Þjóðólfur - 25.05.1894, Page 2
94
en utan vildi hann fara á háskólann í Höfn, og
taldi mér trú um, að það væri minni koatnaður,
því þar fengi hann meiri etyrk og af því væri
meiri frama von; þetta féllst eg og allir vanda-
menn hans á, og fórum að búa hann út til sigling-
ar og tókum nú allt scm bezt til og um þetta
voru tvö heimili; en hvað skeði, allt fór, fjármunir
okkar og fallegi pilturinn tapaðist Iíka, en alla þá
sorg og hugarraun vil eg ekki segja og ýfa meira
en þette harma mína, því nú er hann dáinn og svo
margir af vinum mínum.---------------—----------
Sveitakona.
Einkennilegt fornhandrit hefur rúss-
neskur maður Nikulás Notovitch að nafni
fundið nýlega hjá Búddatrúarprestum í
klaustri nokkru í Tibet. Hann hafði kom-
izt að því á ferðum sínum þar, að Búdda-
trúarmenn þekktu spámann nokkurn, er
þeir nefndu Issa og tignuðu framar flest-
um eða öilum höfuðguðum sínum, sem alls
eru 22 að tölu. Nafnlíkingin og ýms ein-
stök atriði úr æfi Issa, er Notovitch fékk
vitneskju um, styrktu hann í þeirri ætlan,
að þessi Issa væri sami sem Jesús Krist-
ur, guð kristinna manna, og eptir allmikla
fyrirhöfn tókst honum að komast eptir því,
hvar saga Issa væri niðurkomin, en hon-
um var í fyrstu neitað um að skoða þetta
dýrmæta handrit, og það var að eins af
tilviljun einni, að honum var fengið það í
hendur. Yoru það tvær bókfellslengjur
með stórum, gyltum blöðum, en textinn á
hinu svo nefnda „palí“-máli, hinu sama,
sem hinar eldgömlu, helgu bækur Búdda-
trúarmanna eru ritnar á. „Journal des
Debats“ í París hefur tekið stutt ágrip af
þýðingu Notovitch á sögu Issa, og segir
þar meðal annars svo:
„Issa var í heiminn borinn í ísraels-
ríki. Foreldrar hans voru fátækir af því
kyni komnir, er hafði mikið orð á sér fyrir
guðrækni og ráðvendni, og þekkti ekkert
æðra né háleitara en að lofa skaparann
og þakka honum fyrir hinar þungu raun-
ir, er honum af vizku sinni hafði þóknazt
að leggja því á herðar, en hugsaði ekkert
um hið fyrverandi veldi sitt og mikilleik á
jörðinni. Frá barnæsku boðar Issa tilveru
hins „frumeina og óskiptilega“ guðs. Þá
er hann er 13 ára gamall og því orðinn
myndugur samkvæmt lögmáli Gyðinga,
víkur hann burt úr foreldrahúsum og fer
með kaupmönnum til Sind í stað þess að
kvongast, eins og landsvenjan fyrirskipar.
Á 14. aldursári sezt hann að hjá Aríum og
kemur til Djagguernat, Radjagriha og
Benares, þar sem hann lærir að skilja
Yedabækurnar. En allt í einu slítur hann
sambandi og samneyti við Bramapresta,
neitar hinum guðlega uppruna Vedabók-
anna og holdtekju eða „avataras“ hins mikla
Brama í Visnú. Hinir „hvítu prestar“
hóta honum dauða og hann flýr þá í land
Gaoutamída, lærir „palí“ og er að sex ár-
um liðnum orðinn nákunnugur hinum helgu
leyndardómum hinnar hreinu, óbreyttu
Búddatrúar. Því næst snýr hann vestur
á bóginn og prédikar alstaðar kröptuglega
gegn skurðgoðunum. í Persíu berst hann
gegn kenningu Zóróasters, en verður að forða
sér þaðan á flótta fyrir ofsóknum anda-
særendanna. 29 ára gamall kemur hann
aptur til Gyðingalands, og prédikar þar op-
inberlega fyrir lýðnum. Pílatus landsstjóri
í Jerúsalem óttast hina vaxandi hylli hans
og kveður saman presta og skriptlærða í
landinu til að dæma hann; þeir hefja rann-
sókn gegn honum en] dæma hann sýknan“.
Því næst er skýrt frá því, að Issa hafi
haldið áfram að prédika fyrir lýðnum, unz
Pílatus hafi látið taka hann höndum og
varpa honum í dýflissu, af því að hann
hafi óttazt uppreisn í landinu; því næst
hafl hann fært hann fram fyrir öldunga-
ráðið ásamt tveimur ræningjum og ljúg-
vitni hafi verið fengin til að vitna gegn
honum, þar á meðal einn þjóna Pílatusar,
er hafði svikið Issa í hendur hans. Því
næst er skýrt frá viðtali Issa við vitni
þetta og landsstjórann, er þá hafi orðið
svo reiður, að hann hafi heimtað hann
dæmdan til dauða, en ræningjana sýknaða,
en þá hafi dómararnir eptir sameiginlega
ráðsályktun kunngert Pilatusi, að þeir vildu
ekki drýgja svo mikla synd að dæma sak-
lausan mann en sýkna ræningja, því að
það væri gagnstætt landslögum, en hann
gæti gert það, sem honum þóknaðist, og
að því mæltu hafi ráðherrarnir gengið
burtu og þvegið hendur sínar í vígðu vatni
með þeim ummælum: „Yér erum saklausir
af dauða hins réttláta“. Því næst er skýrt
svo frá, að Issa hafi verið krossfestur á-
samt báðum ræningjunum, en á þriðja degi
hafi menn fundið gröfina, þar sem lík hans
var lagt í, opnaða og tóma.
Lengra nær ekki ágrip það, sem „Jour-
nal des Debats" hefur tekið úr sögu Issa.
Það er einkum tvennt, sem er harla eptir-
tektavert í þessari frásögu, fyrst og fremst
að hún fyllir stóra eyðu í frásögu guð-
spjallanna frá því Kristur var 12 ára gam-
all til þess tíma, að hann lætur skírast
af Jóhannesi og í öðru lagi, að það er
Pílatus sjálfur en ekki öldungaráðið, er
hefur verið frumkvöðull að lífláti hans.
Frásögn þessi er því svo eptirtektaverð
nýung, að hún hlýtur að vekja mikla ept-
irtekt og leiða til ítarlegra rannsókna. Sé
hér um svik eða fals að ræða af hálfu hins
rússneska vísindamanns mun ekki verða
erfitt að komast að því. En sé svo ekki,
hvernig stendur þá á því, að guðspjalla-
mennirnir minnast ekkert á þessar miklu
ferðir og löngu dvöl Krists í Austurlönd-
um? Ymsir guðfræðingar, er Notovitch
leitaði álits hjá, réðu honum frá að birta
þessa uppgötvun sína, og kardínáli nokk-
ur í Róm, einlægur trúnaðarmaður páfans,
bauð honum allmikið fé til að láta þetta
kyrt liggja, en Notovitch sýndist annað og
hefur nú látið prenta allt saman.
Grein sú, er vér höfum tekið þetta
eptir, er prentuð í hinu nafnkennda þýzka
vikublaði „Das Echo“ (Bergmálið) 5. f. m.,
en er þar nokkru fyllri, en hér hefur ver-
ið skýrt frá.
Nýungar úr ýmsum áttum.
Nýtt tundurefni. Turpin, uppgötvari
sprengiefnis þess, er „melinit“ nefnist, þyk-
ist nú hafa fundið upp annað miklu öfl-
ugra ogvoðalegra morðmeðal, er enginvarn-
arvirki geti staðizt fyrir, og sterkustu og
rambyggðustu kastalar verði á svipstundu
að einni hrúgu og mennirnir sópist burtu
þúsundum saman fyrir þessu morðtundri.
Þingmenn sem ræningjar. Tveir
fulltrúar á gríska þinginu hafa orðið upp-
vísir að því, að hafa lifað á ránum milli
þinga. Þessir virðulegu þjóðfulltrúar veittu
þremur ræningjaflokknum forstöðu. T>á er
þeir sátu á þinginu í Aþenu, höfðu þeir
iðulegar bréfaskriptir við félaga sína í fjöll-
unum, og opt komu einnig nokkrir þeirra
til borgarinnar til kaupskapar. Loksins
voru þó fulltrúar þessir kærðir af nokkr-
um mönnum, er ræntir höfðu verið, og
voru þeir þá settir í varðhald og híbýli
þeirra rannsökuð. Fundust þar margir
stolnir munir og miklar birgðir af vopnum.
Bíða þeir nú dóms.
Hégómagirni. 6. apríl þ. á. andað-
ist í New-York kona nokkur Cornelia F.
Cotta 52 ára gömul. Hún skipaði svo
fyrir, áður hún lézt, að öllum eignum henn-
ar, er voru ein miljón dollara, skyldi var-
ið til að reisa grafhvelfingu yfir hana.
Bósa Bonlieur, frakknesk kona, sem
er nafnkend fyrir málverk af dýrum hefur
verið gerð að „offisera“ frakknesku heið-
ursfylkingarinnar, og er það fyrsta skipti,
sem kvennmaður hefur öðlazt þá sæmd.