Þjóðólfur - 22.06.1894, Blaðsíða 1
Uppsögn, bundin við Aramöt,
ógild nema komi til útgefanda
fyrir 1. október.
Árg. (Cö arkir) kostar 4 kr. rx T / \ 1 \ Á \ í 1 T [ I /
PJUDULJj U lí.
XLYI- *rg.
Frá Chicagosýningunni.
Eptir P. M. Clemens.
V.
ITtlendu Ibyggingarnar.
Af hinum fjölda mörgu þjóðum, sem
þátt hafa tekið í sýningunni eru allmarg-
ar, sem ekki voru ánægðar með að sýna
iðnað sinn í hinum stóru sýningarhöllum,
þar sem svo margt er að sjá, að auðveld-
lega getur margt gleymzt; en til þess að
gera sig sem eptirtektarverðastar hafa
þessar þjóðir látið byggja sér sérstakar
byggingar, og er auðvitað, að hverþjóðin
hefur keppzt við aðra, til að ná sem bezt
þessu takmarki. Að eins nokkrar af bygg-
ingum þessum eru tii þess hafðar að sýna
i þeim muni. Allmargar eru höfuðaðsetur
umsjónarmanna þessara þjóða á sýning-
unni. Fyrirkomulag það, sem hér á sér
stað, er næsta eptirtektarvert. Hér eru
hinar fjarlægustu þjóðir nágrannar. Gulir
menn úr Austurálfu og hvítir menn úr
Norðurálfu, fulltrúar þjóða sinna, þjóðir,
sem álitnar eru rammir andstæðingar dvelja
hér hvor við hliðiua á annari, draga upp
fána sína í virðingarskyni hvor við aðra,
svo sem maunkynið væri ein þjóð. Mað-
ur óskar ósjálfrátt, að svona væri ásig-
komulagið í heiminum.
Sökum rúmleysis get eg ekki farið
nema nokkrum orðum um hiuar helztu af
byggingum þessum. Þýzkaland hefur hér
sem annarstaðar sýnt mikilleik sinn, því
að stærð og fegurð þýzku byggingarinn-
fr tekur öllum hinum langt fram. Bygg-
inS þessi er í lögun sem þýzkt dómhús.
Upp úr einum gaflinum er afarhár turn,
og f*r húsið af því útlit, sem það væri
kirkja. Um alla bygginguna eru smærri
turnar, kvistir, svalir og allskonar útbygg-
ingar, sem íslenzkan á engin nöfn yflr.
Á framhlið hússins, sem Þjóðverjar kalla
„Das Deutsche Haus“ stendur þessi vísa
i gotnesku letri:
Nahrhaft und wehrhaft,
Voll Korn und voll Wein
Voll Kraft und Eisen,
Klaugreich, gedankreich,
Ioh will dich preisen,
Vatorland mein.
Það þýðir: Nærandi og hlífandi, birgt
með korn og vín, með krapt og járn, hljóm-
Reykjavík, fðstudaginn 32. júní 1894.
ríkt, gáfurikt, eg vil þig lofa, föðurland
mitt.
Byggingin er mjög skrautlega máluð,
og einhver hin sterklegasta á allri sýning-
unni að frátaldri fögru listabyggingunni.
Að eins þessi bygging kostaði Þjóðverja
250,000 doll; en að henni frátaldri hefur
Þýzkaland hina stærstu sýningu í sýning-
arhöllunum. Óðar en maður kemur inn
fyrir dyrnar minnist maður þess, að það
er þjóðin, sem framleiddi öuttenberg, sem
hér hefur aðsetur sitt, því i byggingunni
er mestmegnis sýning þýzkra bóka og blaða
útgefanda; þó er þar nokkuð af öðru tagi
svo sem kirkju-útbúnaður, myndastyttur
o. s. frv.
Við hliðina á þessu húsi er spánverska
byggingin; í henni eru sýndar nokkrar
menjar eptir Kólumbus; annars er hún
höfð fyrir skrifstofur umsjónarmanna
spönsku sýningarinnar.
„ Jön Bolia hefur hér einnig hús handa
sér, en því væri varla veitt eptirtekt, ef
það hefði ekki einhvern hinn bezta stað á
sýningarsvæðinu. Það er á bersvæði þétt
við Michiganvatn. Svo hefur viljað ein-
kennilega til, að fallbyssurnar á Banda-
ríkjaherskipinu „IUinois", sem liggur við
bryggju rétt hjá, miða beint á þennan að-
seturstað hans Jóns Bola.
Bygging Svía er ein með hinum stærstu
af útlendu byggingunum, hún var byggð
að öllu leyti í Svíþjóð og flutt hingað til-
búin, hún er í lögun, sem sænskar kirkj-
ur og höfðingjasetur á 16. og 17. öld. í
henni er aðalsýning Svía, og er hún mjög
stór og merkileg. Hér er ágætlega sýnt
starf sænskra skóla. Einkum veitti eg
eptirtekt sýningunni frá verknaðarskólun-
um, og var hún hin fullkomnasta í þeirri
grein, sem eg sá á allri sýningunni. Með-
al þessara skóla var skólinn í Naás, sem
frægur er fyrir „slöjdkennslu" sína. Á
honum hafa verið nemendur frá Japan og
Indlandi auk annara landa. Eg gladdist
mjög yfir að sjá á lista, sem þar hékk,
að þar hafði einnig verið nemandi frá ís-
landi; það var stúlka, sem send var þang-
að fyrir skólann Vinaminni í Reykjavík.
Hér er mikið sýnt af verkfærum úr hinu
fræga sænska stáli. Svo eru á einum stað
myndir af sænsku þjóðlífi, þar er herbergi,
Nr. 29.
sem búið er út sem sænskt heimili. Fólk-
ið er gert úr vaxi og klætt í sænska þjóð-
búninga.
Hús Norðmanna er skammt frá þýzku
byggingunni. Það er mjög lítið, og til
engra sérstakra nota. Það er eptirlíking
af gamallri norskri „stavkirkju“.
Af lýsingu þessara bygginga má að
nokkru leyti gera sér hugmynd um hinar
aðrar byggingar. Þær eru flestar í stýl
þess lands, sem þær eru frá. Af þeim eru
indverska, tyrkneska, síamska og Ceylon-
ar bygggingarnar, frábrugðnastar. En
að lýsa þeim í stuttu máli án mynda væri
ógjörningur.
Útlendar fréttir.
Kaupmannaliöfn 2. júnl 1894.
Rússakeisari hefur nýlega tekið af ráð-
gjöfum sínum rétt til embættaveitinga og
vald til þess að setja af embættismenn. Það
hefur hann lagt undir nefnd, sem hann
stýrir sjálfur; það er hin þarfasta réttar-
bót og er vel tekið af öllum lýð. Enginn
skal ætla, að þessi aðferð boði nýja stjórn-
arstefnu; keisarinn er fyrst og fremst
rammur apturhaldsmaður og skoðar ein-
veldi hið eina rétta stjórnarfyrirkomulag,
hann er valmenni og vill vel, en hann sér
ærið fátt með sínum eigin augum, og þess
vegna er engin ástæða til að ætla, að
skipt verði um stjórnarstefnu í bráð, og
ekki fyr en þjóðin menntast og þroskast.
Á Bolgaralandi er ærið róstusamt um
þessar mundir. Stambulow, ráðgjaflnn
nafnfrægi, er farinn frá völdum nauðugur.
Vinir hans og fylgismenn gengu til hans
í fylkingum og æptu Ferdínand fursta
bölbænir. Fylgismenn hans urðu ekki
seinir til svars og sló þá í bardaga á
götum höfuðborgarinnar Sofla; í öðrum
stað barðist herinn, hélt nokkur hluti
hans með Ferdínand en aðrir með Stam-
bulow. Uppi í sveitum urðu víg og vopna-
viðskipti. Ferdinand varð yíirsterkari, og
nú lætur hann halda vörð um hús Stam-
bulows og nokkurra vina hans. Þetta er
alveg nýskeð, og er ekki auðsætt til hvers
þetta muni draga, en fréttir óglöggar enn.
Stambuiow er ungur enn þá og manna
vitrastur, framsóknarmaður mikill. Undir