Þjóðólfur - 29.06.1894, Page 4
190
afmimin með Iðgunum 22. maí 1890, en liklegra
er að avo sé, sbr. landshöfðingjabréf 26. maí 1891
út af fyrirspurn frá sýslumanninum í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu. Þar segir landshöfðingi, að það
sé sitt álit, að engin heimild sé til að undanskilja
ljóstoll undan almennum fyrirmælum nefndra laga
22. maí 1890 í 2. gr. sbr. 7. gr. um greiðslu á
kirkjugjöldum, en bætir því við, að það sé að öðru
leyti vitaskuld, að það beri undir dómstólana, að
skera úr ágreiningi út af réttum skilningi laganna
<sbr. Stj.tíðindi 1891 B, bls. 73). Samkvæmt þessu
landshöfðingabréfi virðast því fjárhaldsmenn kirkna
ekki vera skyldir að taka ljóstollinn í tólg meðan
ekki er skorið endilega úr þessu fyrir dómstólun-
um. Útg.
Með því að vér Friðrik öíslason í Reykja-
vík, Gísli kaupmaður Stefánsson í Vest-
mannaeyjum, Hjalti kaupmaður Jónsson í
Vestmannaeyjum, Jón sýslumaður Magnús-
son í Vestmannaeyjum og Sigfús bóksali
Eymundsson í Reykjavík höfum numið
eyðieyna Eldey framundan Reykjanesi og
kastað eign okkar á hana, bönnum vér
hérmeð öllura öðrum öll afnot téðrar eyði-
eyjar og tilfæringa vorra á eynni.
Þess skal getið, að vér höfum leitað
úrskurðar landshöfðingjans yfir íslandi um
eignarrétt vorn til eyjarinnar.
Reykjavík, 12. júní 1894.
1 nafni mínu og hinna annara eiganda Eldeyjar.
Sigfús Eymundsson.
Matsala. Nýsveinar, námsmeyjar og
yfir höfuð þeir, sem vilja, geta fengið góð-
an kost frá 1. október næstkomandi vet-
ur ódýrari en tíðkast. Menn snúi sér til
ritstjóra Þjóðólfs.
Hjartsláttur og höfuðþyngsli.
Eptir að eg í mörg ár hafði þjáðzt af
hjartslætti, taugaveiklan, höfuðþyngslum
og svefnleysi, fór eg að reyna Kína-Iífs-
elixír herra Waldimar Petersens, og varð
eg þá þegar vör svo mikils bata, að eg
er nú fyililega sannfærð um, að eg hef
hitt hið rétta meðal við veiki minni.
Haukadal 16. nóv. 1893.
Guðríður Eyjólfsdóttir
ekkja.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flestum
kaupmönnum á íslandi.
Sjórekinn maður.
Þann 14. þ. m. rak hér í Búðaós lík af sjó-
drukknuðum manni, í öllum skinnklæðum (í brók
með sjóskó á fótum og í skinnstakk); lík þetta er
28/4 al. á lengd, og af heldur þéttvöxnum manni,
og eptir því, sem hægt er að sjá á útlití af mið-
aldra manni, en þar eð höfuðið á líkinu er svo, að
eigi er hægt, að lýsa andlitsfalli þess á nokkurn
hátt, skal því lýst fatnaði þeim, er utan um það
er, sem eru svört vaðmálsföt, að sjá gömul og bætt,
jakki tvíhnepptur, bættur og með einni lítilli bót á
bakinu neðan til um herðar, og vaðmálsvesti ný-
legra tvíhneppt óbætt; líkið var í einum sokkum
ómerktum og með Ieðurskó bryddaða á fótum, á
hægri hendi á líkinu var nýlegur gullhringur og
innan í hann grafið nafnið „Guðrún" og um Jjtla
fingur á sömu hendi vafinn léreptsrenningur; í buxna
vasa vinstra megin var gömul peningabudda tví-
hvolfuð, með peningum í: 2kr. 5 Bilfri og fáeinum
eyrpeningum og gömlum handhring úr látúni eða
nýsilfri, og í hægri vestisvasa tindósir með munn-
tóbaki. Skal eg því í Bambandi við þetta, skora
á hvern þann, er þekkir lík þetta og þau ein-
kenni, er hér hafa verið upp talin, hvort heldur
er ekkja, vandamenn eða vinir, að gefa sig fram
við undirskrifaðan, sem allra fyrst; lík þetta verð-
ur grafið hér á Búðum í kringum 20. þ. m. á minn
kostnað fyrst um sinn, á vanalegan og heiðarleg-
an hátt.
Þess skal getið, að snið á skinnklæðunum virð-
ist henda á, að líkið sé af Suðurlandi.
Búðum (á Snæfellsnesi) 15. júní 1894.
Kjartan Þorkelsson.
Hið bezta kaffi geta menn fengið, með
því að brúka
Fineste] skandinavisk
Export Caffe
F. Hjorth & Co.
í Kaupmannahöfn,
er fæst hjá kaupmönnum.
Nú með „Laura“ nýkomið í
verzlun Sturlu Jónssonar:
Fataefni allskonar, tilbúinn fatnaður handa
fullorðnum 0g drengjum, svuntutau mjög
ódýrt og vandað, silkitau og silkiborðar,
borðdúkar og borðdúkadregill, handklæði
og handklæðadregill, sjöl og klútar af
ýmsum tegundum, gólf- og borð-vaxdúkar,
zephyrgarn, tvistgarn, ullargarn, sirtz og
lérept, nærfatnaður prjónaður, millumpilsa-
dúkar, margar tegundir af blúndum 0g
millumverkum, flibbar, kragar, manchetter,
brjósthlífar, humbug og slöjfur, axlabönd,
lífstykki, hálsklútar, gardinutau, stráhattar,
olíukápur, waterprofs-kápur, margar teg-
undir af skófatnaði, leirtau af ýmsum teg-
undum, allskonar farfi, rúðugler, allskonar
matvara og járnvara, ýmsir niðursoðnir
ávextir, kjöt, sardínur, hummer, lax, ostrur
m. m., ostur, laukur, syltetöj, vín ýmisleg
og tóbak.
Hvalsrengi er til sölu. Semja má viðund-
irskrifaðan áður „Laura“ fer
Rafn Sigurðsson.
Nú með „Laura“ nýkomnar aptur hin.
ar ágætu Singers saumavélar í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Haröflskur, saltfiskur og tros,
sauðskinn, tólg og smjör
fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
T=J=T=1=T=1=T=*=T=«=T=T=T=EÍ
„Piano“-verzlun
„Skandinavien"
verksmiðja og sölubúð
Kongens Nytorv 22, Kjðbenhavn.
Verksmiðjunnar eigið smíði ásamt
verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum.
Birgðir af Orgel-Harmonium.
Er allt selt með 5°/0 afslætti gegn
borgun í peningum, eða
gegn afborgun.
GJömuI hljóðfæri tekin í skiptum.
Verðskrá send ókeypis.
=!=!=I=t
Sumarjakkar fást í verziun sturiu
Jónssonar fyrir 2 kr. 75 a.
Rauðskjóttur hestur með mark: sýlt h.
og standfjöður fremur en biti fr. v. tapaðist frá
Sámsstöðum í Fljótshlíð í síðastliðnum maí mán-
uði. Hann er i meðallagi á vöxt, fallegur útlits,
stinghaltur á apturfæti, ef hann brokkar, klárgeng-
ur, járnaður með sexboruðum skeifum, átti að vera
spjald í tagli merkt S. E- Hann er uppalinn í
Straumi í Garðahreppi. Hver sem hittir hann, er
beðinn að koma honum til skila til Halldórs Sig-
urðssonar í Merkinesi í Höfnum, gegn sanngjarnri
borgun.
Allskonar maskínuprjón fljótt og vel
af hendi leyst á „Geysi“ (Skólavörðustíg).
Vilborg Jónsdðttir.
Frímerkja-blað fæst ókeypis hjá Ghmnlaugi
Jónssyni á Seyðisfirði.
BW* Annað hepti Kambsránssögu
verður prentað í næsta mánuði og í
ágústmán. sent öllum skilvísum kaup'
endum Þjóðólfs.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
E'élagsprentsmiðjan.