Þjóðólfur - 20.07.1894, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 20.07.1894, Blaðsíða 1
Arg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júli. ÞJÓÐÖLPU H. TJppsögn, bundin við áramftt, ógild nema komi til útgefanda íyrir 1. oktöber. XLVI. úrg. Heiöraöir kaup- endur „í>jóöólfs“ minn- ist þess, aö blaöiö átti aö vera borgaö fyrir 15. þ. m. Útlendar fréttir. Kaupmannahöfn 5. júli 1894. Carnot forseti yeginn. — Nú steudur yfir mikil sýning í Lyon. Þangað fór Car- not forseti snöggva ferð, og á sunnudags- kveld 24. júní ók hann með miklu föru- neyti frá sýningarhöllinni áieiðis tii leik- húss. Allar götur voru troðfullar af fólki, en ríðandi hermenn riðu með vögnunum og fyrir, til þess að að ryðja þeim leið. Vígið. Maður hljóp með vagni forset- ans — sem bæði var lágur og opinn — og héit á blómhnapp. Forsetinn sneri sér við, og tók brosandi við blómunum. En mað- urinn hafði falið rýting í erm sinni, og lagði honum í brjóstið á forsetanum. Stóð blóð- gusa af sárinu hjá liinum mikla skildi heiðursfylkingarinnar. í vagninum með forseta sat landshöfðinginn í Eónarfylki. Jafuskjótt og hann sá þetta, sló hann morðingjann niður í grjótið og vörpuðu þeir, sem næstir stóðu sér á hann ofan; hann hefði verið tættur sundur hefði lög- gæzluliðið ekki borgið honum og hneppt hann í ramma dýflizu. Eptir vígið. Forsetiun var færður dauð- vona til húss síns, og tóku læknar þar við honum. Sáríð var bæði mikið og hættulegt, hafði járnið nær skorið sundnr lifrina og brotið eitt rif. Læknarnir voru hræddir um, að honum myndi blæða inn, og skáru upp undina, var |iann me^ fuj]rj rænu og sagði skýrt: „Það svíður“! Var svo nokkrar stundir, að hann barðist við dauð- aun. Tók hann síðustu smurningu af erki- biskupi og sagði síðan þrisvar sinnum: „Eg^ dey“ ! „Vinir yðar eru nærstaddir“, sagði biskitp. „Þsð er mér gleði“, sagði hann, og var þegar dauður, Það var kl. 12.45 mín. um nóttina hinn 25. Úti fyrir. En úti fyrir hleyptu menn Reykjavík, föstudaglnn 20. júlí 1894. upp skoteldum til sæmdar forsetanum, og múgurinn æpti og bað honum velfarnaðar. Vissu menn að vísu, að einhver hefði ætl- að að vinna honum mein, en ekki annað. Dupuy stjórnarformaður ók frá höll- inni, er hann lá í. Hann stóð upp í vagni sínum og kallaði: „Æpið ekki svo, góðir menn, forsetinn er særður til ólífis". Var honum sýnilega brugðið. Sló fyrst óhug á lýðinn, en þá æstist hann. Hljópu sum- ir til fangelsis og vildu brjótast til morð- ingjans, en þess var enginn kostur. Aðr- ir ruddust til hallar italska sendiherrans, en þar töku við þeim hermenn og löggæzlu- lið, og fengu þeir ekki brotið höllina. Enn aðrir sneru hefndum á ítali, og létu greip- um sópaðar búðir og sölustaði; urðu róst- ur, en mannvíg fá. Vegandinn. Hann er ítalskur og heit- ir Santo Caserio, og er af flokki stjórn- leysingja. Er það nú upp komið, að þeir hafa haft ráðabrugg og samsæri til að hefna lífláts þeirra Vaillants og Henrys, flokksbræðra sinna; af þeim toga er allt spunnið: fjörráðin við Kússakeisara, til- ræðið við Crispi og víg Caruots. Höfðu þeir átt fund með sér, nokkrir stjórnleys- iugjar, þegar það spurðist, að Carnot kæmi tii Lyon, og vörpuðu hlutkesti um, hver skyldi vega að honum, og kom upp hlut- ur Caserio’s. Er sagt, að h&nn hafi orðið glaður við. Fyrir rannsóknardómaranum lét hann fátt uppi um hagi sína og aðdragandann að morðinu, það kvaðst hann mundi segja kviðdömendum; hann var svo stilltur, að að enginn sá á honum sorg né gleði, nerna þegar hann varð þess vís af spurningum dómarans, að forsetinn væri látinn, þá brá allra snöggvast ánægju-svip yfir andlitið. Allur er hann marinD af barsmíð, og andlitið afmyndað af meiðslum; hann ligg- ur fyrir alla daga, og mælir aldrei orð, nema þegar hann er ávarpaður; á næt- urnar er hann fjötraður á höndum, til þess hann ráði sér ekki baua. Möðir hans er sómakona, og á marga efniiega sonu. Hann er þeirra yngstur, og stendur á tvítugu. Vígið spyrst um Frdkldand. Vinnu- lýðuriun á Frakklandi er betur mannað- ur eu vinnumenn í öðrum löndum; stjórn- Nr. 34. in frjálslynd en land gott, og alþýða manna á því við betri kost að búa en víðast hvar annarsstaðar. En síðan ítalir fóru að finna betur til eymdar sinnar, hafa þeir stokkið úr landi, og margir af vinnuþiggjendum i Frakklandi hafa fengið þá til sín, af því að þeir eru illu vanir og taka minni laun en Frakkar. Þetta svíður landsmönnum, og hata ítali litlu minna en Þjóðverja. Þegar nú svo atvikaðist, að morðinginn var ítalskur, mátti ætla, að hefndum mundi snúið á ítali, er almenningi var illa við þá áður. En fyrir snarræði og aðfylgi Dupuy’s var því afstýrt. Þégar eptir vígið sendi hann hermenn um alla Lyonborg, hann tók fyrir öll hrað- skeyti og hepti flugufregnir. Sjálfur sendi hann hraðfregn til stjórnarinnar í París, og skipaði að búa herlið í öllum setuliðs- borgum, og þannig tók hann fyrir allar óeirðir, svo að hvergi urðu manndráp nema í Lyon, og þau fá. En ítalir urðu svo hræddir, að þeir flýðu þúsundum sam- an austur og suður yfir landamæri. Al- þingi ætlar að veita 100,000 fr. til að flytja þá úr landi, sem eptir eru. Vígið spyrst um útlönd. Um allan heim var tekið hið versta á þessu verki, og hver kepptist við annan að lýsa hlut- tekniugu sinni fyrir ekkjunni og stjórninni. Allir þjóðhöfðingjar norðurálfunnar gerðu það; alþingi Englendinga bað drottningu gera það fyrir sína hönd, en alþingi Norð- manna fól það forseta sínum. Crispi hélt mikla ræðu á þingi og harmaði það, að ítalskur maður skyldi verða til þess að vinna níðingsverkið, en kvaðst hugga sig við, að stjórnleysingjar ættu enga ættjörð. Allir voru hræddir um, að ósætt kæmi upp milli ríkjanna út af þessu, því að það var talið víst, að slíkir ákafamenn sem Frakkar væru, mundu leika þá ítalska menn grátt, sem í Frakklandi byggju. En þetta varð ekki, eins og áður er sagt. Ekki var trútt um, að það fyndist á, að illt hlytu Frakkar af Ítalíu, svo mikið sem hún ætti þeim upp að unna. Carnot. Hann var 57 ára, þegar hann var veginn og hafði lengst af verið í þjón- ustu rikisins fyrst sem ’ingenior, — eg vil heldur viðhafa það orð en „verkfræðing- ur“ — og síðan sem þingmaður og em-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.