Þjóðólfur - 27.07.1894, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 27.07.1894, Blaðsíða 3
139 Dáin er hér í bænuni 25. þ. m. ekkju- frú Valgerdur Ólafsdóttir (yfirdöroara Fin- sen), systir 0. Finsen póstmeistara, síðari kona Halldór3 prófasts Jónssonar á Hofi í Vopnafirði (f 1881), á 62. aldursári (f. 16. marz 1833), vel látin særodarkona. Pástskipið „Botnia“ fór héðan áleiðis til Hafnar aðfaranóttina 24. þ. m. Með því fóru útlendu ferðaraennirnir, er flestir höfðu farið til Þingvalla og Geysis, meðan skipið stóð hér við. Létu þeir allvel yfir förinni og hrepptu þó úrkomu allinikla. Með skipinu fóru og alfarnir héðan af landi 0. Nickolin tannlæknir og A. Jesper- sen fyrv. veitingamaður, ennfremur dönsku leikendurnir. Holdsveikislækniriim dr. Edv. Elilers er nú á ferð um Árnes- og Rangárvaila- sýslur, kemur aptur hingað til Reykjavík- ur 3.—4. ágúst, f'er um 6. s. m. roeð gufu- bátnum „Elínu“ til Búða á Snæfellsnesi eða til Straumfjarðar (á Mýruro), ferðast svo landveg kringum Snæfellsjökui og ráðgerir að koma til Ólafsvíkur 9.—10. ágúst, en 13. s. m. til Stykkishólms, fer þaðan með „Thyra“ hinn 14. vestur og norður um land. Hér nærlendis hefur hann skoðað um 22 sjúklinga, og sagði hann, að miklu fieiri hefðu þennan sjúk- dóro, en talið væri í opinberum skýrslum, þar á meðal kvaðst hann hafa skoðað 8 holdsveika menn úr Borgarfjarðarsýslu, en þar væru ekki taldir nema 3 eptir nýjustu skýrslum. Skýrsla um íjársöluinál Bjarnar kaup- manns Kdstjánssonar er nú nýprentuð og útbýtt ókeypis með „ísafoid“. Skýrir Björn kaupm. þar frá því, að pöntunar- félagsstjórarnir Zöiluer & Vídalín hafi spillt máliuu fyrir honum á Englandi, og gefur í skyn, að hann hafi þess vegna | orðið að hætta við það. En „ekki er nema | hálfsögð sagan, er einn segir frá“. Að minnsta kosti hefði höf. þurft að útiista | dálítið nákvæmar skjalaföisunarmálið, sem aílt byggist þó í rauninni á. Hann hefði | átt t. d. að geta þess, hvað það var, sem hann sjálfur skrifaði til Hamborgar 22. febrúar, því að það verður að álítast svo, að haun sjáifur hafi skrifað eitthvað, sem spillti máistað hans. Bæði þetta og ýmis- legt annað hefði þurft að skýrast rækilegar. Það er yfir höfuð mjög hæpið að byggja á frásögn annars máisaðila, án þess birt séu nokkur málsskjöl. Einnig hefði það j verið heppilegra, að Björn kaupmaður hefði með málþráðarskeyíi beðið Stein í Ham- borg að senda til réttarins frumritið af bréfi því, er um var að ræða, því að svo virðist, sem það hefði getað dugað. Þess er getið í enskum blöðum, að málsfærslu- maður verjauda Mr. Law hafi fyrir rétíin- um farið lítt mjúkum orðum um fram- komu sækjanda í málinu um leið og málið var fellt niður, og hefur það líklega ekki verið ófyrirsynju. Yfir höfuð getur alls ekki komið til greina, að fjársölumálsskýrsla þessi, svo óljós sem hún er, geti að neinu leyti rýrt hið góða áiit, er hr. Zölluer & Vídalín hafa áunnið sér hér með viðskiptum sín- um eða svipt þá verðskuldaðri tiitrú lands- manna á nokkurn hátt. Ctufuskipið „Stamford“ lagði af stað héðan 23. þ. m. beint til Newcastle með 480 hesta fyrir kaupfélag Skagfirðinga nál. að helmingi, en fullur helmingur var beinlínis keyptur af Zöllner & Vídalíu nyrðra og vestra. Eptir eru á 2. hundrað hesta, er „Stamford“ sækir næst (um 6. ágúst) ásamt viðbót, sem nú er verið að kaupa eystra (í Árnes- og Rangárvallasýslu). -------------------------- Báturinn „Elin“. Nokkrum orðum ætla eg mér að fara enn þá um málefni þetta, en kem því ekki við nú vegna 56 53 lofi fyrir dugnað þeirra, eins og skylda haus var að gera. En svo höfðu liðið sjö mánuðir, heiiir sjö mánuðir, að enginn miuntist á þær til neins, og höfðu þær þó gengið í kirkju tvisvar á hverjum sunuudegi, og setið í kirkjunni, þar sem allir liiutu að sjá þær, og fleygt stór- um koparhlunkum í betli diskinn, og heimsótt prests- konuna stöðugt tvisvar í viku, og sagt henni allar þær dúðursögur, sem þær gátu þefað upp, og ailar sem þær hbfðu búið til sjálfar; en allt kom fyrir ekkert. Ekkert nema þögn, endalaus þögu allan þann tíma. Slíkt mátti ekki svo búið standa. Sómi og mann- orð félagsins var í veði. Nú voru góð ráð dýr. Þá kom ein meö tillögu, að félagið gengist fyrir sam- skotum tii að gefa séra Long einhvern fagran grip til minja, sem þakklætisvott fyrir allt hans mikla og góða starf. Þetta var samþykkt með öllum höndum, og ákveðið, að gjöfin skyldj vora vandað gullúr; og næstu daga þeyttust kvennfélagskjólar eins og fjaðrafokur um öll stræti, og fylltu vasana af peningum, mest frá karl- mönnum, því þeim er ekki bannað að styrkja kvenn- félög við svoleiðis tækifæri. Og fáum dögum síðar sást presturinn með guliúrið og demantsnistið, og þakkiætið kom af stólnum, eins og Húsbóndi minn hét séra Long, og það er óhætt að segja, að hann var í öllu heiðarlegur maður, og breytti í öllu sínu líferni, eins og hverjum trúum drottius þjóni ber að breyta. fíann gekk daglega í hárfínum, hrafn- svörtum fötum, með hvítan kraga um hálsinn, sem hnepptur var að aptan; og framan á maganum hafði hann sjálfsagt tvo fjórðunga af ístru — eins og allir prestar eiga að hafa. Hann var einn af þeim fáu prestum, sem hefja hugann yfir þennan heim, og ekki hirða um hans gæði. Hann dró ,fram lífið á þrjú þúsund dollurum um árið, og áttí stórt og skrautlegt hús, með mörg hundruð doll- ara virði af dýrum húsbúnaði. Haun reyndi líka að halda saman þessum litlu reituin, sem hann átti. Hann var ekki eins og þessir gömlu, heiðarlegu íslenzku bændur heima á ættjörðu vorri, sem láta hús sín ætíð stauda opin fyrir gestum og þurfamönnum, og greiða þeim allt, sem þeir geta í té látið, án endur- gjalds. Séra Long var kominn hærra í meuntun heimsins en það. Hann hafði hljómbera í húsinu sínu, og ef fátækl- ing bar að dyrum, og ef hann viidi ekki með góðu móti fara, þá voru honum gerð fljót og góð skil, á þann hátt, að það var hringt í hljómberann eptir lögreglu- þjóni, og innan fárra mínútna var sá allslausi kominn.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.