Þjóðólfur - 14.09.1894, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 14.09.1894, Blaðsíða 4
176 þar eystra í nmboði skozka fjárkaupmannsins mr. Franz, eingöngu fyrir peninga, svo framarlega sem hann fær loforð um gott fé. Þess má geta, að hr. Sigfús var hættur við, að halda markað þar eystra af vissum ástæðum, en hefur nú fyrir áskor- anir og hvatir ýmsra manna lofað að gera tilraun til þess. Fé hefur failið í verði á Englandi síðari, hluta sumarsins, og hefur það eðlilega áhrif á fjár- söluna bér. Látinn er Jónatan Þorsteinsson fyrrum hóndi á Hálsum í Skorradal og Yatnshömrum í Andakíl. Hann andaðist, á Hæli i Flókadal og var þar uppalinn, (sonur Þorsteins bónda Guðmunds- sonar á Hæli og Ljótunnar Pétursdóttur frá Norð- tungu systur Hjálms fyrv. alþm.). Jónatan var gáfumaður og skáldmæltur vel, en litill gæfumað- ur í liflnu og þjáðist á siðari árum af hryllilegri holdsveiki, er dró hann til dauða, sem föður hans. Hann var kvæntur Snjáfriði dóttir Péturs hrepp- stjóra Þorsteinssonar á Grund í Skorradal. Tvenn erfiljóð, er Jónatan orti, haf'a birzt í Þjóðólfi (eptir Þorstein Halldórsson í Bakkakoti og frú Kristínu Eggertsdóttur (Waages) og hera þau vott um ein- kennilega skáldgáfu hjá ðmenntuðum alþýðumanni, og eru að sumu leyti sérstök í sinni röð. Tombóla. Þeir sem með gjöfum vilja styðja tombólu kveunfélagsins fyrir hinn fyrir- hugaða háskóla eru vinsamlega beðnir að muna eptir því, að tombóluna á að halda í næsta mánuði. Allar nefndarkonurnar veita þakksam- iega gjöfunum móttöku. Sigþrúður Friðriksdóttir (forstöðukona). Harðfiskur, salfiskur, tros, grásleppa, smjör, tólg og sauðskinn fæst með bezta verði i verzlun Sturlu Jónssonar. Fjárkaup. Hérmeð vil eg tilkynna þeim, er vilja selja fé fyrir peninga í haust í efri hreppum Árnessýslu: Tungum, Hreppum, Laugar- dal og Grímsnesi, að ef þeir vilja vinna til að safna loforðum upp á minnst 1000 sauði, sem enginn vegi minna á fæti en 100 pund, og senda mér hingað til Reykja- víkur vissu fyrir, að það fáist, fyrir 7. oktbr., þá verða boðaðir markaðir og keypt rnáske talsvert meira fé, ef býðst. Verðið er: 11 til 12 aura pundið eptir vigt. Það sem keypt verður borgast einurigis í peningum í Reykjavík. Reykjavik 13. septbr. 1894. Fyrir hönd Fr. Franz frá Glasgov. Sigfús Eyniundsson. Saumavélar (Singers) fást í verzlun Sturlu Jónssonar. Kennsla undir skóia, í þýsku, dönsku, ensku og reikningi, fæst hjá Bjarna Jónssyni cand. mag. Suðurgötu 6. Skófatnaöur mjög ódýr og vand- aður nýkominn í verzlun Sturlu Jónssonar. Gróður og vel viljugur Hárhestur fæst til kaups. Semja má við G-uðm. Guðmunds- son, Laugaveg 27. Fé er keypt fyrir peninga í verziun Sturlu Jónssonar. Fjármark Gísla Bjarnarsonar á Galtalæk i Biskupstungum er: tvístýft apt. hægra, sneiðrifað framan vinstra. Laukur, nautakjöt (í dósum), uxa- tungur, lax o. fl. fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Prjónavélar, með bezta og nýjasta lagi, seljast með verksmiðjuverði hjá Simon Olsen, Kjöbmagergade Nr. 50, Kjöbenhavu. Vélarnar fást af 7 misfínum. sortum, nfl.: Nr. 00 fyrir gróft 4 þætt ullargarn. — 0 — gróft 3 — — 1 — venjul. 3 —------------ — 2 — smátt 3 — ullar- og bóruullargarn. — 3 — venjul. 2 — — - — — 4 — smátt 2 — — - — — 5 — smæsta 2 — — - — Reynslan hefur sýnt, að vélar nr. 1 fyrir venjulegt 3 þætt uliargarn eru hent- ugastar fyrir band úr íslenzkri ull, og er verðið á vélum þessum þannig: a. Vélar með 96 nálum, sem kosta 135 kr. b. do. — 124 — — 192 — c. do. — 142 — 230 — d. do. — 166 — 280 — e. do. — 190 — — — 320 — f. do. 214 — — — 370 — 8- do. — 238 — — — 420 — h. do. — 262 — — — 470 — i. do. — 286 — — 520 — Vélar þessar má panta hjá P. Nielsen á Eyrarbakka, sem sýnir, hvernig þær fara að prjóna og veitir ókeypis tilsögn til að brúka þær. Verðlistar og leiðarvísir sendist þeim, er þess æskja. Vélarnar verða framvegis sendar kostn- aðarlaust á alla viðkomustaði póstskipanna. Vetrarsjöl ágæt og alls konar kramvara fæst í verzlun Sturiu Jónssonar. Hjá Símoni Jónssyni á Selfossi fæst: Sálmabókin nýja, 3. prentun. Spurninga- kver. Stafrófskver. Reikningsbækur. Þjóð- vinafélags-almanök. H. Hafstein: Ljóðmæli. íslendingasögur. Þjóðsögusafnið Huld, I.— IV. hepti. Prestkosningin (gamanleikur eptir Þ. Egilson). — Sömuleiðis fást aðrar bækur bóksalafélagsins. =J=rT=ii=rr=iI=T=Í=rf=LL=rf=: =T=*=T=J=T=*=T= =I=SF=*=T=Kg „Piano“-verzlun „Skandinavien“ verksmiðja og sölubúð Kongens Nytorv 22, Kjöbenhavn. Verksrniðjunnar eigið smíði ásamt verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum Birgðir af Orgel-Harmonlum. Er allt selt með 5% afslætti gegn borgun i peningum, eða gegn afborgun. Gömul hljóðfæri tekin í skiptum. Verðskrá scnd ókeypis. iil^=l=^=l=l35TSE^=l^=i=IÉ!gFJEi=»^!£EjgÍ=faT=J=T=Jii Fataefni mjög vönduð og tilbúinn fatnaður fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Þakjárn mjög ódýrt fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. FÍÖUr fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Allir þeir, er fengið hafa of- send blöð af þessum yfirstandandl ár- gang Þjóðólfs eru vinsamlega beðnir að endursenda þau sem allrafyrst. Eigamli og ábyrgðarmaður: Hannes Þorstelnsson, cand. theol. FélagsprentsmiSjan.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.