Þjóðólfur - 04.01.1895, Síða 2
Snæfell hátt,
6, Snæfell hátt.
Löngun heit í hjarta ungu,
hríf þig burt frá efni þungu.
Sofðu sára þrá.
Líttu’ á heiðan himinboga,
hættu villta sál að loga,
reyndu ró að fá.
Helga nótt, ó, hlyti’ eg frið
himinborinn faðm þinn við,
faðm þinn við,
já, faðm þinn við.
Skaðar af ofviðri. Aðfaranóttina 28.
des. var hér syðra ofsarok af útsuðri með
geysimiklum sjávargangi af stórstraums-
flóði, svo að elztu menn þykjast varla
muna jafnmikið hafrót og sterkviðri. Urðu
allmiklar skemmdir af því hér í bænum:
tveimur bryggjum sópaði alveg burtu en
flestar skemmdust til muna, þar á meðal
hin marglaskaða bæjarbryggja. Kola-
geymsluskúr við W. Christensens verzlun
féll gersamlega að grunni, og hliðin á
„bryggjuhúsinu“ brotnaði annarsvegar og
tók þar út nokkrar vörur. Búð Helga
kaupm. Helgasonar beið þó eiuna mestar
skemmdir, brotnuðu hliðveggirnir beggja
megin að neðanverðu, og skemmdist þar
allmikið af vörum, 50—60 sekkir af ujjöli,
nokkuð af kaffi og sykri m. fl. Fiski-
skútuna „Sleipni", eign Guðna bónda á
Vatnsnesi, tók út af stakkstæði og rak
upp annarsstaðar, allmikið brotna. — Hjá
Jóni bónda í Skildinganesi brotnaði sex-
mannafar í spón og tveir bátar til muna.
Víðar urðu og skemmdir á skipum og
Bjávargarðar löskuðust meira og minna.
Geymsluhús í Hvassahrauni skekktist í
hafrótinu og tók þar út allmikið af mat-
björg jarðarábúendanna. — Um fjárskaða í
veðri þessu hefur ekki frétzt, nema hjá
Jóni bónda Ólafssyni á Bústöðum, fátækum
manni. Hann missti um 20—30 fjár, er
rotaðist í fjörunni undir klettunum í Foss-
vogi. — Austanfjalls (á Eyrarbakka og þar
í grennd) kváðu ekki hafa orðið neinar
verulegar skemmdir af veðriuu, euda kveð-
ið þar miklu minna að því.
Bráðafár í sauðfé hefur verið óvenju-
lega mikið næstl. haust, einkum á Suður-
og Vesturlandi, en miklu minna nyrðra,
og minnst á Austurlandi. Hefur það lagzt
einna mest á unglömb og veturgamalt. í
Árnanesi í Hornafirði var dautt um 100
fjár snemma i desbr. í Árnessýslu hefur
fárið verið einna skæðast á Skeiðum og í |
Grímsnesi. Er skrifað þaðan, að Gunn-
laugur bóndi á Kiðjabergi hafi misst nál.
öll lömb sín. í Kjósinni hefur fárið gert
afarmikinn usla, drepið t. d. helming alls
fjár hjá sumum bændum, t. d. hjá Guðna
bó.nda í Eyjum. Úr Dalasýslu er ritað
14. des., að á allmörgum bæjum þar hafi
drepizt 40—70 og jafnvel 80—90 kindur.
Sagt er og, að Bjarni bóndi á Reykhólum
hafi misst um 100 fjár. — Sá maður ætti
mikil laun skilið, er gæti fundið nokkurn
veginn óyggjandi meðal gegn þessari land-
plágu, er veldur slíku stórtjóni á eignum
manna.
Úr Eyjafirði 1. desbr.: Herra ritstjðr i!
Bg hefði gjarnan viljað skrifa yður ofurlitinn
fréttapistil héðan úr firðinum, en annaðhvort er,
að eg man ekki svo sem neitt markvert nú í svip-
inn, eða þá, að fréttir eru fáar, sem í letur sé fær-
andi, og er þó sannast að segja, að blöðin eru ekki
ofþyngd af fréttum úr Byjafirði.j
Tíðarfar í sumar, er óhætt að segja, að var
dæmafátt að blíðu og hagstæði og entist það allt
fram að veturnóttum. Það var varla að skúr kæmi
úr lopti í allt sumar og haust; varð þvi harðvelli
og hálfdeigjur sumstaðar ekki vel sprottið, en þó
er óhætt að segja, að heyvöxtur hafi almennt orð-
ið í betra lagi og nýting hin bezta. Bptir vetur-
nætur fór tíðin að breytast til austanáttar og rak
niður töluverðan snjó, svo sumstaðar varð jarðlaust,
mest þó fyrir áfreða. Bn eptir miðjan nóvember
fóru að koma ákafar austanrigningar, svo snjórinn
tók mikið upp, og 24.—26. var sunnan asa-hláka
og mikil rigning, svo allan snjó tók langt upp í
fjöll. Siðan hefur verið mjög óstillt tíð og óvana-
legar rigningar.
Bé var með vænna móti í haust. Heimtur af
afréttum víða Blæmar. Kaupmenn á A'kureyri keyptu
töluvert af fé af bændum .í haust fyrir Slimon? og
gáfu hæst 15 kr. fyrir sauði 2. vetra og 10 kr.
fyrir veturg. sauði. — Bráðapest hefur gert nokk-
uð vart við sig á stöku bæjurn, drepið allt að 30
kindur á bæ. — Heilbrigði manna hefur mátt heita
fremur góð, síðan Influenzunni lauk í sumar, og
fáir nafnkenndir dáið.
Nú er hinn nýi amtmaður kominn hingað, og
búinn að taka við embætti sínu. Menn eru víst
almennt mjög ánægðir yflr að hafa fengið hann
fyrir amtmann, — úr því nokkur amtmaður þykir
þurfa að vera.
Bg hef nú fyrirfarandi verið að rusla dálítið í
ruslakistu alþingis frá síðasta þingi, og verð eg
að segja, að eg fann þar sára-lítið af gullkornum,
— en meira af hinu. — Ef eg ætti að gefa því
einkunn, yrði það í hæsta lagi einkunnin : „magurt",
því það er, að mínu áliti í meira lagi þunnt í roð-
inu. Stærstu málin á þessu þingi, eða sem þing-
menn hafa mest lagt sig fram við, eru víst „stóra
humbúgið11, sem sumir kalla „stóra máliðíl, og —
Halldór Danielsson á Mýrunum, sem nefndin góða
sá aumur á, og smeygði inn í þingsalinn, hvað
sem kosningalögin segja. Óskandi er, að ekki ko mi
mörg þing í röð jafn fátæk af gagnlegum fram-
kvæmdum og þetta þing var, því verði það, eða
þaðan af verra, er alþingi íslendinga alveg hor-
! fallið!
Athgr. ritstj. Hinn háttvirti fregnriti tekur
að vorum dómi nokkuð djúpt í árinni, að því er
síðasta þing snertir. Að vísu var það ekki af-
kastamikið, en þess var varla að vænta á svo stutt-
um tíma. „Stóra“ málið var rætt rækilega og ef
til vill með heldur miklu og óþarflegu kappi, en
þingmönnum má virða það til vorkunnar, þá er
um svo mikla nýjung var að tala. Annaðhvort varð
að ræða það nokkuð eða vísa þvi algerlega á bug.
Vér vonum að hinn háttvirti fregnriti fái ástæðu
til að verða ánægðari yfir gerðum næsta þings.
Undan Jökli 12. desbr.: Nú er þessi ver-
tíð bráðum á enda, hún hefur verið einhver hin
óarðsamasta, sem við höfum fengið í langan tíma,
sem orsakast af hinni. umhleypingasömu tíð, sem
verið hefur, því síðan 30. október hefur í Ólafsvík
að eins verið róið 9 sinnum, og optast i mjög slæmu
sjóveðri. Prá 19.—30. október var þar bezti kafl-
inn af vertíðinni, þá var róið 7 sinnum og fiskað-
ist á þeim dögum frá 100—150 í hlut af dágóðum
fiski; síðan á Mikalismessu mun í mesta lagi vera
um 300 meðalhlutar, sem undanfarin ár opt hefur
verið um 800 meðalhlutar á sama tímabili. Það
sem fiskazt hefur, hefur mest verið lagt inn í verzl-
anirnar, enda hafa þær borgað fiskinn vel, frá 50
—76 au. fyrir 16 pd, eptir stærð; 50 au. verðsins
hefur ekkert gætt, því svo smátt hefur ekki fisk-
azt, heldur hefur hér um bil allt náð 60 og 76 au.
verði, svo nú má heita, að enginn eigi fisk í salti
nema verzlanirnar; þannig er einnig í hinum veiði-
stöðunum, já hvergi betra en í Ólafsvík.
Snjókoma hefur verið lítil, þar til fyrir viku,
að snjó hlóð hér niður, svo jörð hefur verið næg
til þess tíma, svo hestum og fé hefur nærfellt ekk-
ert verið gefið. Kýr gera almennt litið gagn, og
er það þfi að kenna, að hey eru létt.— Bráðapest
hefur stungið sér niður víðast hvar hér í sýslu,
sumstaðar að miklum mun, þó hvergi sem í Helga-
felisveit, því þar geisar hún ákaft, svo útlit er fyrir
að sögn, að fé gjöreyðist á sumum bæjum, ef þessu
fer fram; á einum bæ er sagt, að sé dautt uin 100
fjár úr henni. — Enginn nafnkendur maður hefur ný-
lega dáið, en í Ólafsvík er mjög kvillasamt, mest
taugaveiki, í henni lágu þar 4 þegar seinast frétt-
ist, voru sumir komnir á fætur aptur, eptir að
hafa þó legið í henni.
Verð á innlendri vöru var þannig í sumar:
Þorskur 42,00, þyrsklingur 32,00, langa 36,00,
ýsa 27,00, ull 60 au, þorskalýsi 20,00, hákarlslýsi
28,00, plattfiskur 80,00. — Útlend vara var: Húgur
6'/a a., bbygg 10 a., hrísgrjón 11 a., baunir 11 a.,
overh.mjöl 9 a., kaffi 1,25, sykur 36 og 40 a.,
melis 33 og 36 a., rulla 2,20, rjól 1,60.
Framfarir eru liér engar, það er eins og ein-
hver deyfðardrungi hvíli yfir öllu þess háttar, bæði
í andlegu og líkamlegu tiliiti, því sá litli framfara-
hugur, sem virtist vera að kvikna fyrir nokkrum
árum, sýnist nú vera útkulnaður. Það er ljótt, en
pað er satt, Jöklarar góðir.
Kyennaskóliim í Ytriey.
1. deild:
1. Anna Bjarnadóttir frá Kleifum í Dalasýslu.
2. Anna Hlöðvisdóttir frá Stafafelli í Austurskapta-
fellssýslu. 3. Anna Steffánsdóttir frá Geitagerði í
Norðurmúlasýslu. 4. Guðrún Jóhannesardóttir frá
Lýtingsstöðum i Skagafjarðarsýslu. 5. Ingunn Dan-
ielsdóttir frá Kolugili í Húuavatnssýslu. 6. Krist-