Þjóðólfur - 04.01.1895, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 04.01.1895, Blaðsíða 3
8 ín Priðlaugsdðttir £rá Syðrafjalli í Suðurþingeyjar- sýslu. 7. Sigríður Sigurðardóttir frá Klambrasoli í Suðurþingeyjarsýslu. 8. Sigrún Rögnvaldsdóttir frá Pelli í Skagafjarðarsýslu. 2. deild: 9. Ingibjörg Sigurðardóttir frá Syðriey í Húna- vatnssýslu. 10. Maria Jónsdóttir frá Hallgilsstöð- ura í Eyjafjarðarsýslu. 3. deild: 11. María Jónsdóttir frá Hvassafelli i Eyjafjarðar- aýslu. 12. Sigríður Bjarnadóttir frá ísafirði. An'kadeild: 13. Quðbjörg Þorsteinsd. frá Broddanesi í Stranda- sýslu. 14. Guðný Oddsdóttir frá Síðu i Húnavatns- sýslu. 15. Guðriður Rafusdóttir frá Eyjarkoti í Húnavatnssýslu. 16. Hallfríður Sigurðardóttir frá Rangá í Norðurmúlasýslu. 17. Hólmfríður Hannes- dóttur frá Þórormstungu í Húnavatnssýslu. 18. Jónína Einarsdóttir frá Kollsstaðagerði i Suður- múlasýslu. 19. Jóhanna Gísiadðttir trá Holtsmúla í Skagafjarðarsýslu. 20. Kristín Sigurðardóttir frá Skrapatungu í Húnavatnssýslu. 21. Kristín Tómas- dóttir frá Bildudal í Barðastrandarsýslu. 22. | Oddný Pétursdóttir frá Héraðsdal í Skagafjarðarsýslu. 23. Oddný Guðmundsdóttir frá Tröllatungu i Stranda- sýslu. 24. Pálína Jónsdóttir frá Egg í Skagafjarðar- sýslu. 25. Sigurlína Guðmundsdóttir frá ísafirði. 26. Solveig Guðmundsdóttir frá Staðarbakka í Húna- vatnssýslu. 27. Signý Halldórsdóttir frá LeyBÍngja- stöðum i Dalasýslu. 28. Sigurlaug Indriðadóttir frá Ytriey í Húnavatnssýslu. 29. Þorbjörg Prið- riksdóttir frá Bildudal i Barðastrandasýslu. 30. Þórunn Jóhannesardóttir frá Sveinseyri í Barða- Btrandarsýslu. Ytriey 8. desbr. 1894. Elín Ilriem. Háskólamálið. Ungur námamaður nyrðra, er hefur sent „Háskólasjóðnum" 2 kr. að gjöf, hefur jafnframt ritað „Þjóð- ólfi“ á þessa leið um málið: „Yegna kringumstæða minna get eg ekki látið meira af mörkum í þetta sinn, en jafnframt skal eg geta þess, að eg hef ásett mér, að gefa 1 krónu árlega í sjóð þennan framvegis, því það kemur mér betur, vegna fátæktar minnar, heldur en að leggja meira fé fram í einu lagi. Það lýsir harla miklu hugsunarleysi, hversu almenniugur lætur sig litlu skipta þetta velferðarmál, það veitir ekki af að brýna þetta opt og rækilega fyrir mönnum, ef vera kynni, að áhugi manna vaknaði á því. Það er alls ekki fé, sem oss vantar, þegar um þetta mál er að ræða, heldur einungis almennur áhugi og samtök, og allt, sem ritað hefur verið á móti máli þessu, er frá mínu sjónarmiði bara slúður; hvað ætli það sæist á efuahag manna, þótt hvert mannsbarn i landinu gæfi árlega 50 aura til sjóðsins? Það gæti þó komið til að verða dálagleg upphæð með tíman- um. — Það er mín trú og sannfæring, að fátt, jafnvel ekkert, mundi fleygja oss meir áfram á framfarabrautina, heldur en ís- lenzhur háshöli, og þessi sannfæring mín styrkist æ betur og betur, þrátt fyrir allt það, er „Fjallkonan“ segir um þetta mál, og eg fyrir mitt leyti álit það alls ekki spilla, þótt hlutaðeigendur hafi trú á því málefni, sem þeir berjast fyrir“. Af þessu má sjá, að það er ekki alveg sannleikanum samkvæmt að segja, að eng- inn áhugi sé á þessu máli út um landið. Þeir munu vera fieiri en þessi háttv. höf., sem hafa mikla trú á þessu fyrirtæki, sem betur fer. Sjónleiltir byrja í leikhúsi herra W. Ó. Breiðfjörðs kaup- manus 6. þ. m. kl. 8 e. m. Nánara mcð auglýsingum á götunum. íslenzk frímerki kaupi eg með hæsta verði. Skildingafrí- merki ættu allir að selja mér, því enginn gefur jafnhátt fyrir þau. Austurstræti 5. Ólafur Sveinsson, Úr og klukkur. í verzlun E. Þorkelssonar í Austurstræti nr. g í Reykjavík: silfur-auker- og cylinderúr af beztu tegund i 8 og 15 steinum frá 24—50 kr.; nikkel- anker- og cylinderúr frá 16—22 kr.; stofu- og skips- klukkur frá 5—18 kr.. Birgðir af fallegum úrkeðj- um og hornkössum og m. fl. Úr og klukkur selt með fleiri ára ábyrgð, og viðgerð fljótt og vel af kendi leyst. 4 Hann hitti sambýlismann sinn í dyrunum, og skil- aði honum áhöldunum. „Og svo sárlangar mig til, Árni minn, að biðja þig nú að hjálpa mér urn, þó ekki væri nema einn fiskhelm- ing, til þess að eg geti tekið hljóðin úr börnunum mín” um, þegar eg kem heim“. „Það er mér ómögulegt, Bjarni minn, því að eg á nú ekki nema tvo fiska í eigu minni, og svo hef eg ekk- ert; það er ekki gaman að lifa í þessari tíð“. „En eg hef ekkert, blessaður Árni raínn, hjálpaðu mér nú bara núna — það kann einhver að hjálpa mér dag og dag, þangað til kvígan ber — en þangað til hef eg ekkert“. „Nei, þú verður að fara til einhverra annara, eg er nú búinn að hjálpa þér í tvo daga — taki svo aðrir við, eg gerj ekki meira“. „Er það þá ómögulegt— bara svolítiun bita!“ „Ja — frá hverjum er að taka“, svaraði Árni, „nema hungruðum börnum, eins og hjá þér — en bíddu samt við — Hann tók við amboðunum, og bar þau. inn í skála- stofu, sem var þar suður úr bæjardyrunum; Bjarni sett- ist á bæjarþröskuldinn á meðan, studdi höud undir kinn, og blés þungan. Hungurvofan. Sögubrot úr reykjarharðiiHlununi. Eptir séra Jónas Jónasson. Sólin var að ganga undir fjallið fyrir sunnan og ofan bæinn að Vaði. Lopt var heiðríkt, en þó var eins og einhver glýja í öllu gufuhvolfinu; það hafði svo verið um alit sumarið, þegar til sólar sá, og allan veturinn áður, og allt sumarið þar áður; ailt loptið var þrungið og eitrað af brennisteinsgufum; sólarbirtan var ekki hvít, eins og hún á að sér að vera, heldur rauðmóleit, og sjálf var ljóssins móðir á jörðu eina og dapurlegt lýsisljós að sjá í fjarlægð. Það var eyðilegt að sjá yfir sveitina; það mátti að sönnu sjá mann á ferð á einstöku stað, en flestir voru gangandi; en hvar sem litið var til fjalla eða lágleudis, þá mátti ekki heita, að nokkur lifandi skepna væri þar á vakki; lóurnar einar voru í liópura hingað og þaugað, settust niður, tíndu sér smælki úr jörðunni, og flugu svo upp aptur — allar í einu, flugu allar sama veginn,

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.