Þjóðólfur - 18.01.1895, Page 3

Þjóðólfur - 18.01.1895, Page 3
11 á skipum og sjávargörðum. Það hittist líka svo illa á, að jafnframt veðrinu var mjög stórstreymt, svo sjórinn gekk kærra en vanalegt var. Á Miðnesi skemmdust fjögur skip og víða hrundu sjógarðar til grunna og þari ásamt með möl og þangi fór iun yíir túnin; einkum urðu brögð að því í KIöpp á Miðnesi og Lambastöð- um og Hofi í Garði. Það er annars eptir- tektavert, hve mikið hefur brotnað af land- inu hér á suðurkjálkanum, á þessari öíd. Þar sem gróður og jarðvegur og enda bæir voru fyrir 100 árum, eru nú sker langt út í sjó. Býjaskerseyri var grasivaxin fyrir mannsaldri síðan, svo var Lambarif fyrir sunnan Garðskaga og nú er sjórinn kominn fast að Gamlakirkjubóli. Sjálfur Garðskagi hefur náð miklu lengra fram fyrrum; öll „Flösin“, sem nú er skerja- garður vestur af Skaganum, var áður grasi- vaxiu, þar sézt nú ekki á stein um fióð. Á Naustarifi framundan Útskálum var kot á fyrri öld og allstór grastorfa 1832, nú er það allt í kafi um flóðið. Svo brotnar hér ótt upp landið, að á 15 árum, liefur sjórinn etið 12 faðma framan af Garðskaga þar, sem ljóskerið steudur; það er því við því búið, að það megi til að flytja það hærra upp á Skagann, áður en langt um líður. Bæirnir Hof og Lambastaðir eru þegar komnir í sjó og túnin á Útskálum og Gerðum brotna talsvert upp á hverjum vetri. — Það er margt, sem mælir með þeirri skoðuu, sem ýmsir hafa hér, að land- ið sé að síga, en slíkt er samt varlegt að fullyrða. Mestur hluti sjávarstrandariunar samanstendur af lausu grjóti, en sjávar- gangur er mikill, svo eigi er að furða, þó sjórinn sverfi upp flæðarmálið. Lausir stein- ar, sem öldurnar kasta fram og aptur, núa og eyða hinum föstu skerjum og af því sýnist mönnum þær lækka; í þær eru víða komnir skessukatlar. — Nýlega höfðu formenn í Garði fund með sér og samþykktu að róa ekki fyr á morgnana, en miðabjart væri orðið, á tímabilinu frá nýári til 1. apríl; þetta gerðu þeir vegna fiskiveiðasamþykktarinn- ar, sem heimilar Garðmönnum einum, að leggja lóðir í sjó innan vissra takmarka & hinu umrædda tímabili. Veifur skulu dregnar upp á morgnaua á 5 stöðum í plássinu, 0g má enginn fara á sjóinn á undan þeim. — Þessi haustvertíð er hin rýrasta, sem lengi hefur komið hér, það má svo heita, að mjög lítill fiskur sé af- gangs því, sem hefur verið haft til heim- ilisnautnar; og nú er aflalaust með öllu. — Margir sjómenn hafa kvartað undan æðar- fugiinum í vetur. Svo stendur hér á, að á haustin afla menn beitu (krækling) ofan úr Hvalfirði og innan af Nesjum, með ærn- um kostnaði, leggja hana svo uiður hér í lónum, þar sem hún getur fest sig, og taka hana svo þaðan jafnóðum og henni er beitt. Nú hefur æðarfuglinn lagzt á beituua, etið hana upp og eyðilagt, og valdið stórskaða, hefði aflaár verið. En nú er æðarfuglinn heilagur, óstraflfanlegur og ábyrgðarlaus eins og ráðgjafinn, svo ekki er gott við- gerðar. Ef þessu heldur áfram, mun það ekki auka á löghlýðui manna, við friðun- arlög æðarfuglsius, sem aldrei hefur verið afgangur af. Slysfarir. Seint í sept. f. á drukknaði ófermdur unglingur nálægt bænum á Hjart- arstöðum í Eiðaþinghá. Hann var þar gestkomandi og voru hann og fleiri ung- lingar að leika sér að því, að vaða út í tjörn eina litla, sein hann drukknaði í. Hinn 10. des. drukknaði í Lagarfijóti, stúlka á 11. ári frá Hóli í Hjaltastaða- þinghá, með þeim atvikum, að móðir stúlk- unnar fylgdi gesti á leið ásamt henni vest- ur yfir fljótið, en er þær fóru heim aptur var farið að rökkva og gengu þær í auða vök á isnum, sem allur var ótraustur. Móðirin hafði ekki þrótt til að halda henni fastri, og missti hana því frá sér, rétt áð- ur en mannhjálp kom og bjargaði móður- inni. Sjálfsmorð. Unglingsmaður á Akur- eyri, Friðrik Guðjónsson að nafni, réð sér bana 16. des. á þann hátt, að hann hnýtti axlaböndum sínum saman og herti svo að hálsinum með handafli. Hann hafði sömu nóttina verið tekinn höndum, við innbrot í vörugeymsluhús Sigfúsar kaupmanns Jónssonar, og hafði alllengi áður stolið þaðan á þann hátt. lláiun 14. des. f. á. Sveinn Sveinsson hreppstjóri í Haganesi í Fljótum eptir langa og þunga banalegu, merkur maður í sinni stétt. Síldarafli hefur verið mjög mikill á Reyðarfirði næstl. haust. Hafa gufuskip Wathnes ávallt verið á ferðinni, til að flytja hana jafnóðum á markaði erlendis, og kvað hún vera þar í mjög háu verði nú,‘ tunnan um og yfir 2Ö kr. — Fiskafli hefur og verið mjög góður á fjörðunum þar eystra, t. d. mokfiski á Vopnafirði fram undir miðjan desember. — Veðurátta þar eystra hin bezta, en nokkuð umhleypinga- söm, eugin skepna t. d. komiu á gjöf í Mjóafirði og Norðfirði fyrir miðjan desem- ber, samkvæmt því, sem þá er skrifað úr þeim sveitum. Af Norðurlandi er einnig að frétta beztu tíð fram yfir jól. Splunkurnýr embættismaður!!! Hin nýjustu tíðindi héðan fir bænum eru þau, að binn nafnkunni „ísafoldar“-ritstjðri hefur nú hátíðlega dubbað sjálfan sig til embættismanns!! Hann hef- ur líka lengi langað til að geta talizt í þeim flokki, þðtt honum haíi verið varnað þess hingað til, sak- ir þeBsarar ðiukkans lagaprófsvöntunar, sem bezt er að hafa ekki hátt um, því að það kynni að særa um of hinar viðkvæmu háspokihugmyndir mannsinB um sjálfan sig. Bn nfi hefur hann skap- að sjálfum sér spánnýtt embættisverksvið, sem allir munu óska honum til hamiugju að hafa íundið, þvi að þar virðist hann vera í essinu sínu, cnda er embættið hávirðulegt og nafnið ekki siður, eins og kunnugt er, svo að það er engin furða, þótt mað- urinn sé hreykinn af því öllu samau. Og veldis- sprotinn kvað vera griðarstór vöndur, er maður- inn þykist hat'a roiddan um öxl til að vera við- bfiinn að hirta þverbrotua syndara samkvæmt em- bættisvaldi sínu. Og þessir þverbrotnu syndarar, það eru fyrst og fromst íslenzku blaðstjórarnir, sem hafa leyft sér að spretta fingrum að „ísafoldar"- manninum og draga dár að voldissprota hans og vindhöggum, þá er hann hefur verið að pata og pata með vöndinn sinn fit i loptið, áður en hann tókst embættið fullkomlega á kendur, en þá óvirð- ingu þoldi hann auðvitað ekki. Nfi síðast þykist hann hafa reitt embættis-veldissprotann sinn að ritstjóra „Þjóðólfs11 í krapti laganna, og ritar um það langa romsu í síðustu „ísafold11. Honum svið- ur það sáran, manntetrinu, að það var dálítið hreyft við stjórn hans á Bókmenntafélaginu, og sýnt fram á allraargt, sem manninum hefur þótt óþægilegt, en þá hefði hann aldrei átt að hleypa sér út á það foræði að höfða málið, enda þótt dómurinn félli honum í vil. Það er ekki sama sem almenn- ingsdómur. Að hann fer í vandræðnm síuum að setja deiluna við Fífuhvammsþingmanninn i sam- band við þetta, það er harla undarlegt, þá er öll- um var það fullljóst, að það var einmitt „ísafoldar“- ritstjórinn — þessi dæmalausi stjórnarvöndur og stjórnargæðingur — er spauaði þingmanninu — mein- leysismann af náttúru — fit í ástæðulausan ffilyrða- austur gegn ritstjóra „Þjóðólfs11. „ísafoldar“-ritstj. ætti framvegis að varast að fá menn í sinn stað til að verða sér til minnkunar. Það er nóg, að hann verði það sjálfur, eins og hann hefur orðið optar en einu sinni í deilum sinum við „Þjóðólf“, því að önnur eins ffilyrðakássa, eins og hann þá optast hefur hrfigað saman, er jafn skopleg sem kauðaleg og alls ekki samboðin þoim munnsöfnuði, er menntaðir meun hafa um hönd, eða þeir sem vilja láta nefna sig þvi nafni. Maðurinn þolir auðsjáanloga ekki hógværa ertni, og þess vegna er líklega ekki gustuk að stríða houum, garminum, þá er hann kann ekki betur að stjórna geði sínu en hann hefur sýnt. Að síðustu virðist oss eiga mjög vel við, að landar vorir hrópi „hfirra“ fyrir þessum nýbakaða embættismauni með vöndinn sinn, og „drekki eina skál til dýrðar hans sál", þessari dómasál, er þykist hafa svo frábærlega gott vit á öllu réttarfari, þótt hann líklega sé farinn dálítið að ryðga í sumum greinum lögfræðinnar, karltetrið.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.