Þjóðólfur - 10.05.1895, Side 3
87
hefur verið á, en kaupskip til Norðurlands-
ins eru sögð ýms hér úti fyrir í ísnum
eða fyrir ntan hann, svo sem skip Gránu-
félags, „Rósa“ og „Grána“, en eitt af skip-
um þessum, er norður áttu að fara, brotn-
aði í ísnnm í fyrra morgun (29. apríl)
6—7 míl. undan landi, og sökk á vetfangi,
svo skipverjar gátu með naumindum kom-
izt í skipsbátinn og bjargazt til lands (í
Brúnavík); komu skipverjar hingað í gær-
kveldi. Skip þetta hét „Aktiv“ og átti að
fara til verzlunar konsúl J. Havsteens á
Oddeyri. „Stamford“ kom hingað 17. f. m.
með vörur til „pöntunarfélagsins“ og kaup-
manns Sig. Johansens; þjappaðist ísinn svo
utan um skipið, meðan það lá hér á höfn-
inni, að optlega varð eigi skipað upp, og
einn daginn (21. apríl) rak það með ísn-
um út í fjarðarmynnið. Héðan komst
„Stamford11 loks 28. apríl norður á Yopna-
fjörð, og iagði þar upp vörur til pöntun-
arfélagsdeildarinnar þar, en lengra komst
skipið ekki fyrir ís, og sneri því hingað
aptur, og er nú að leggja hér á land vör-
ur þær, er íara áttu á Húsavík (til Þing-
eyinga), og fer héðan utan í kveld. „Vágen“
kom hingað 18. f. m. með vörur til stór-
verzlunar 0. Wathne’s, og fór héðan með
vörur suður a Hornafjörð. „Egill“ kom
hingað 9. f. m. með vörur til sömu verzl
unar, og nú kom „Egill" aptur hingað í
gær. „Riukan“, gufuskip það, er stór-
kaupm. Thor. Tulinius hefur nú í förum,
og sem flytja átti og vörur hingað, komst
ekki lengra en í fjarðarmynnið, og sneri
þar aptúr suður á Eskifjörð og lagði farm-
inn þar á land. — Veðuráttan hefur verið
mjög óstöðug og breyúieg síðan ísiun kom,
eins og jafnan á sér stað, þegar hanu ligg-
ur fyrir landi, ýmist hríðar og frost, eða
sólskin og blíðviðri“.
t Þórarinn prdfastur Böövarsson
r. af dbr. í Görðum á Álptanesi andaðist
7. þ. m- sjötugur að aldri. Hann var fædd-
ur í Gufudal 3. maí 1825. Foreldrar hans
voru: Böðvar prófastur Þorvaldsson (próf-
asts Böðvarssonar), síðast prestur áMelstað,
og fyrri kona hans Þóra Björnsdóttir
prests í Bólstaðarhlíð Jónssonar, ein hinna
nafnkunnu „Hlíðarsystra“. Séra Þórarinn
var útskrifaður úr Reykjavikurskóla 1847,
og af prestaskólauum 1849 með 1. eink-
unn, vígður s. á. aðstoðarprestur föður síns
að Melstað, fékk Vatnsfjörð 1854, varð
prófastur í norðurhluta ísafjarðarsýslu 1865,
fékk Garða á Álptanesi 1868, og varð próf-
astur í Kjalamesþingi 1872, en riddari
dannebrogsorðunnar 1874. Hann sat á öll-
um þingum frá 1869 sem þjóðkjörinn þing-
maður fyrir Kjósar- og Gullbringusýslu,
og var tvisvar forseti neðri deildar (1891
og á aukaþinginu 1894). Með konu sinni
Þórunni Jónsdóttur (prófasts í Steinnesi
Péturssonar), er andaðist í fyrra vetur, átti
hann 3 börn, er upp komust: Jón skóla-
stjóra í Flensborg, Önnu konu Kristjáns
yfirdómara Jónssonar og Elizabetu konu
Þorsteins Egilsens kaupmanns í Hafnar-
firði. Auk þess misstu þau hjón einn son,
Böðvar að nafni, mesta efnispilt, er dó í
latínuskólanum.
Séra Þórarinn var fyrirmannlegur sýn-
um og hinn öldurmannlegasti á velli, höfð-
ingi í lund og manna hjálpsamastur, fast
tækur og fylginn sínu máli. Hann var
jafnan mikils metinn í héraði, og bar
margt til þess. Hann auðgaðist allmjög í
Vatnsfirði, og hélt þeim efnum furðanlega
vel við, þrátt fyrir mikinn og margvísleg-
an kostnað.
f 9. f. m. andaðist í Leith í Skotlandi
Þorbjörn Jónasson kaupstjóri, er sigldi
með „Laura“ síðast; var nýstiginn þar á
land, er hann lagðist í illkynjaðri maga-
veiki, sem hann hafði alllengi þjáðzt af.
Hann var sonur Jónasar bónda i Arnar-
holti í Stafholtstungum Jónssonar prests
á Bergsstöðum Jónssonar og Bjargar Stef-
ánsdóttur frá Keflavík í Hegranesi Sigurðs-
sonar, föðursystur séra Sigurðar alþm. í
Vigur og Stefáns kennara á Möðruvöllum.
Þorbjörn heit. var vandaður maður og
yfirlætislaus.
Drukknun. 2. þ. m. drukknaði maður
af bát suður í Vogum, og 2 dögum siðar
fórst bátur af Akranesi í brimgarðinum
þar úti fyrir lendingunni; drukknuðu þar
2 menn og 2, sem bjargað var með lífs-
marki, dóu, þá er í land var komið.
Skipstrancl. 3. þ. m. sleit upp kaup-
skip í Þorlákshöfn og strandaði. Það var
hlaðið vörum til Jóns kaupmanns Árna-
sonar og Christensens verzlunar á Eyrar-
bakka.
Póstskipið Laura kom hingað 7. þ. m.,
viku á eptir áætlun. Með því kom fjöldi
farþega, þar á meðal Mr. Franz fjárkaupa-
máðurinn, 4 danskir leikendur, 2 undir-
foringjar úr Sáluhjálparhernum og Einar
Hjörleifsson, ritstjóri „Lögbergs“, frá Ame-
ríku, alkominn hingað með konu og börn.
— „Laura“ fór í fyrra dag aptur héðan
til Vestfjarða.
Strandferðaskipið „Thyra“ hafði ekki
komizt lengra en að Sléttu sakir haf-
iss, og sneri þar við sunnan um land til
Austfjarða; hafði komið við í Vestmanna-
eyjum 30. f. m.
Dr. Þorvalclur Tlioroddsen hefur feng-
ið La Roquette-gullmedalíuna frá laudfræð-
isfélaginu í París.
Handritasafn Bókmenntafélagsins.
Félagsdeildin í Höfn hefur á fu. di 19. f. m.
veitt stjórn sinni heimild til að semja um
sölu handritasafnsins til Landsbókasafns-
ins á sama hátt eins og Reykjavíkurdeild-
in samþykkti að sínu leyti á fundi hér
18. marz (sbr. 14. tölubl. „Þjóðólfs“). Er
vonandi, að saman gangi með sölu þessa,
þvi að það væri afarmikill vinuingur fyrir
Landsbókasafnið að fá safn þetta.
Leiðrétting. Dinesen sá, er stytti sér ald-
ur í Kaupmannahöfn síöast í marzmánuði, var ekki
þingmaðurinn Lars Dinesen (f. 1838), eins og sagt
var í siðasta tölubl. „Þjóðólfs“ (eptir þýzku blaði),
heldur nafni hans kapt. A. W. Dinesen (f. 1845),
kunnur sem rithöfundur, með dularnafninu ’Boganis’.
Tóuskinn eru keypt í
verzlun Sturlu Jónssonar.
Óvanalega ódýrt
selur undirritaður allskonar reiðtygi mót
peningum út í hönd, svo sem: söðla með
ensku og íslenzku lagi, huakka með virkj-
um og einnig ágæta virkjalausa hnakka
og barnahnakka líka, hnakka með járn-
virkjum og söðla mcð fjaðrir í setum, ef
pantað er, hnakktöskur, hlið.irtöskur, áburð-
artöskur, klifsöðla, allskonar óiar, beizlis-
stengur, svipur, og yfir höfuð allt, sem til
reiðskapar heyrir. Gömul reiðtygi til sölu
og reiðtygi til láns. — Pantanir og að-
gerðir skulu fljótt og vel af hendi leystar.
Flest sveitavara tekin, líka innskript
til kaupmanna, en þá er verðið lítið eitt
hærra.
Reykjavík, Ingðlfsstræti 5.
Sigurður Bjarnason.
Haröfiskur fæst í
verzlun Sturlu Jónssonar.
• Ekta anilínlitir te
Pr
•i—< fást hvergi eins góðir og ðdýrir eins og &
VH •I-H í verzlun * c
c 83 Sturlu Jónssonar h->
93 Aðalstræti Nr. 14.
JÍ e-t~
W •