Þjóðólfur - 17.05.1895, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 17.05.1895, Blaðsíða 2
94 stjórn landsins verða mjög svipaður j>ví, sem nú er. Og þótt svo væri, að hann yrði ofurlítið meiri, þá væri það harla lít- ilmannlegt af þjóð vorri, að vilja ekki láta neitt af hendi rakna, til þess að fá alinnlenda, kunnuga og hagfelda stjórn með fuilri ábyrgð fyrir aiþingi o. s. frv. Sé hugsunarháttur manna svo smásálar- legur, þá er íslandi ekki viðreisnarvou, og þá er til einkis að berjast fyrir frelsi þess og framförum. Menn fá aldrei þýð- ingarmiklar réttarbætur með því, að tíma ekki að leggja neitt í sölurnar tíl að fá þær. Hvað aukaþingin snertir, þá hefur hr. Sigurður búfræðingur Sigurðsson ritað ræki- lega og röksamlega grein um nytsemi þeirra í 15. tölubl. Þjóðólfs þ. á. (29. marz), og látum vér nægja, að vísa til hennar hér. Samkvæmt því, sem nú hefur lauslega verið drepið á, virðist oss, að öllum geti verið Ijóst, að vér eigum að halda máli þessu áfram eindregið og hiklaust, ekki að eins sakir hinna miklu réttarbóta, sem fólgnar eru í frumvarpinu sjálfu, og vér höfum ofurlítið minnzt á, heldur einnig sakir þess, að það er bein skyida hvers íslendings, að halda uppi heiðri þjóðar sinnar, en forðast að gera henni smán með óhæfilegum heigulskap og hringlanda. Það eru þessar tvennskonar ástæður, sem eiga að knýja oss til að halda málinu fast fram, bæði svo nefndar innri ástæður, fólgnar i réttarkröfum, er málið sjálft hefur að geyma, og ytri ástæður, sprottnar af sið- ferðiskröfum og fólgnar í þjóðernismeðvitund og sómatilfinningu hinnar íslenzku þjóðar. Þessar síðar töldu ástæður eru harla mik- ilsverðar. Danska stjórnin hefur með ýmsu atferli sýnt oss greinilega fram á, að hún ætlar sér að fara með oss eins og kögur- börn, að hún ætiar að kirkja úr oss allan kjark og þrótt með eintómu þrályndi og sífelldum lagasynjunum, og bíður því róleg þess tíma, að hún sjái ávöxt breytni sinn- ar í því, að íslendingar glúpni og gugni og hopi aptur á bak í baráttunni, nöldr- andi um ieið í gaupnir sér: „Það er ekki til neins að halda áfram lengra, snúum aptur sem fljótast og hvílumst-lengi,-Iengi“. Svona tala íslendiugar, sem aldrei hafa gengið Danakonungi á hönd. Þá hafa Norðmenn frændur vorir annað lag. Það er ofurlítið meiri í þeim hitinn. Þeir hafa vakið eptirtekt alls hins menntaða heims, með hinni snarplegu, einörðu fram- komu sinni gagnvart Svíastjórn. „Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helgast afl í beim, eins hátt sem lágt má víkja fyrir kraptinum þeim“. Svo hefur norskt skáld kveðið. En sú þjóð, sem ekki veit sitt hlutverk: Hvað er hún? .... Löghlýðin stjórn. Af því að eg gizka á, að mörgum af lesendum „Þjóðólfs“ muni eigi þykja það ófýsilegt að sjá og heyra af stjórnarinnar eigin munni, hvernig hún virðir dómstól- ana, og að hún gerir þeim eigi öllu hærra undir höfði, en löggjafarvaldi alþingis, þegar henni býður svo við að horfa, bið eg yður, herra ritstjóri, að birta í blaði yðar eptirfylgjandi bréf, sem mér barst nú samstundis: „Landshöfðinginn yfir íslandi. Reykjavik 7. maí 1895. Ráðgjafinn fyrir ísland hefur í bréfi, dags. 22. f. m., lagt fyrir mig að tjá yður, að hann sjái sér ekki fært að setja yður inn aptur í embætti það, er þér hafið haft á hendi sem sýslumaður í ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti í ísafjarðarkaupstað, en telji óhjákvæmilegt, ef það á annað borð eigi að geta komið til mála, að þér séuð í embættum eptirleiðis, að þér flytjizt í annað sýslumannsembætti, er þér eptir því sem fram er komið, ekki séuð álitinn ófallinn til að gegna. Slíkt embætti telur ráðgjafinn sýslu- mannsembættið í Rangárvallasýslu, sem nú er laust, og hefur því falið mér að tjá yður, að ef þér sækið um nefnt embætti, þá muni hann leggja til, að yður verði veitt það. En ef ekki sé komið umsókn- arbréf frá yður til ráðaneytisins í síðasta lagi með póstskipi því, sem eptir ferða- áætluninni á að koma til Kaupmanna- hafnar 4. júní næstkomandi, þá muni hann leggja hitt til, að yður verði veitt lausn frá embættum þeim, er þér nú hafið, með eptirlaunum eptir eptirlaunalögunum. Þetta tilkynnist yður hér með. Magnús Stephensen. Hannes Hafstein. Til herra sýslumanns og bæjarfógeta Skúla Thoroddsen á ísafirði". Andinn i bréfi þessu leynir sér ekki, og aðferðin þarf engrar útskýringar frá minni hálfu. Svar mitt var stutt, og að eg hygg laggott eptir atvikum: „Eg læt ekki setja mig niður sem hreppsómaga“. Það er líka hér við athugandi, að em- bætti það, sem stjórnin ætlar að vera svo náðug að leggja til, að mér verði veitt, er 2—3 þúsundum króna tekjuminna, en embætti þau, sem eg enn í dag hef kgl. veitingu fyrir, og sýnir það enn betur aðferð stjórnarinnar, ofan á allt það fjártjón, sem hún þegar hefur bakað mér með nær- fellt þriggja ára „suspension" og allsendis ástæðulausum máls eltiugum, svo sem dóm- ur hæstaréttar vottar. Eg þarf ekki að bæta því við, að ráð- herrabréf þetta skapast þá fyrst, er ráð- herrann hefur að vanda leitað álita lands- höfðingjans Magnúsar Stepliensens, og er það í fullu samræmi við aðra aðferð Magnúsar í máli þessu, og kom mér því alls eigi á óvænt. En máske eg verði eíðar maður til þess — þegar „fríið“ er fengið —, að skýra lönd- um mínum nokkuð frekar frá aðgerðum Magnúsar í máli þessu, því að eg hef nokkuð getað grafizt eptir þeim, enda þótt hann af einhverjum ástæðum virðist hafa notað „privat“ bréfa-skriptirnar ekki síður en embættisbréfin. ísafirði 12. maí 1895. Skúli Thoroddsen. * * * Þetta „smiðshögg“, sem landshöfðing- inn og ráðgjafinn hafa nú loksins sett á fratnkomu sína gagnvart hr. Skúla Thor- oddsen, þrátt fyrir algerða sýknun hans í hœstarétti, mun vera alveg einstaklegt dæmi í sögu landsins, og er talandi vott- ur þess, hversu stjórnarástand vort er í- skyggilegt, og hversu brýna uauðsyn ber til, að öll þjóðin verði samtaka í því, að fá því breytt í betra og viðunanlegra horf. Jafnvel hinir römmustu 9tjórnarsinnar, sem áður hafa ekki viljað kannast við, að máls- höfðunin og málareksturinu gegn Skúla, hafi verið sprottinn af pólitiskura ástæð- um frá stjórnarinnar hálfu, munu nú varla dirfast að haida því fram lengur, er þeir hafa lesið bréf það, er hér birtist. Það tekur fullkomlega af skarið, um það hvern- ig málinu er háttað. Hefði hr. Sk. Th. sætt stórsektum í hæstarétti, þótt hann hefði ekki verið dæmdur frá embættinu, þá var þó heldur viðlit fyrir stjórnina, að geta „fóðrað“ afsetningu hans frá sínu sjónarmiði, en nú getur hún það ekki á neinn veg, svona þvert ofan í sýknunar- dóminn í hæstarétti. Að bjóða hr. Sk. Th. anuað embætti miklu launaminna í raun og veru, er auðvitað hreinn fyrir- sláttur, því að það mátti ganga að því vísu, að Sk. Th. léti sér það aldrei lynda, að vera þannig „settur niður sem hrepps- ómagi“, eins og hann sjálfur kemst að orði.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.