Þjóðólfur - 21.06.1895, Blaðsíða 4
120
kand. Filippus Magnússon kosningu með
öllum atkvæðum (31) þeirra, er kjörfund
sóttu.
Grímseyingar hafa hafnað hinum eina
umeækjanda um það brauð, séra Jóni Jóns-
syni á Hofi á Skagaströnd, en síðan hefur
séra Matthías Eggertsson á Helgastöðnm
sótt um brauðið, og fær hann eílaust betri
byr.
Lausn frá embætti hefur Halldór Kr.
Friðriksson yfirkennari sótt um frá 1. okt.
þ. á. Hann hefur verið kennari við lærða
skólann nærfellt bálfa öld (síðan 1848).
Fulltrúar á Þingvallaf'und kosnir í
Þingeyjarsýslu: Friðrih Qudmundsson bóndi
á Syðra-Lóni og Jakob Hálfdanarson borg-
ari á Húsavík, en í Norður-Múlasýslu
Indriði Einarsson endurskoðandi í Keykja-
vik.
Strandferðaskipið „Thyra“ fór héðan
í gær og með henni fjöldi fólks, flest til
Vestfjarða til að leita sér atvinnu, auk
ýmissa farþega, er með henni komu að
vestan.
Athugasemd.
í 52. nr. „ísafoldar“ 19. þ. m. segir rit-
stjórinn, að hr. Quðjon alþm. Quðlaugsson
á Ljúfustöðum hafi lagt það til, og feugið
Kollabúðafundinn „nokkuð áleiðis með sér
í það spaug11, að láta landið kaupa gufu-
báta, jafnvel svo tugum skiptir.
En af því að mér er málefni þetta
nokkuð kunnugt, þar sem hr. Guðjón Q-uð-
laugsson sendi amtsráðinu í Vesturamtinu
til meðmæla samskonar tillögu, eins og
hann bar fram á Koilabúðafundinum í vor,
þá er mér Ijúft að geta þess, að þessi sögu-
sögn „ísafoldar“ er uppspuninn einber.
Hr. Guðjón GuðlaugsSon hefur aldrei
lagt það til, sem „ísafold“ ber hann fyrir,
heldur fer tillaga hans að eins í þá átt,
að landið kaupi 5—6 gufubáta, til þess
að gangaá stærstu fjörðum og flóum lands-
ins, sem og með fram suðurströnd þess,
og hvort sem sú tillaga hans fær meiri eða )
minni byr á þingi, — og um það ræður !
„ísafold", að eg voua, minnstu — þá held
eg, að flestir verði að játa, að þessi rök- j
samlega tillaga hans eigi að minnsta kosti
allt annað skilið, en að henni sé heilsað
með háði og útúrsnúningum, eins og „ísa-
fold“ gerir.
Annars er það leiði óvandinn, sem „ísa- |
fold“ ætti helzt að reyna að leggja niður,
að koma urrandi til dyranna, ef einhver
hinna einarðari og fjölhæfari þingmanna
úr framsóknarflokknum lætur eitthvað til
sín heyra.
Eg skil ekki, að landshöfðinginn heimti
slíkt, eða að það sé nauðsynlegt til þess
að halda blað-fleytunni ofan sjávar.
p. t. Reykjavík ’95.
Skúli Thoroddsen.
Eptirmæli.
Hinn 1. þ. m. andaðist í Holti nndir Eyjafjöll-
um Loðvik Símonarson 4 18. ári, fðstursonur Kjart-
ans prófasts Einarssonar og konu hans; hann var
mjög vandaður unglingur og gott mannsefni, hafði
lært að leika 4 orgel hjá ágætum organleikara
Jóni PálsByni á Eyrarbakka. Dauðamein hans var
meinsemd í fæti, sem bann iá íþrautafulla legu ná-
lægt 15 vikur. r.
Maður sá, sem getið var um í Þjóðólfl, að drukkn-
að hefði í Selvogi 16. marz síðastl. var Einar Ein-
arsson húsmaður frá Torfabæ i Selvogi; hann var
fæddur 24. apríl 1835 í Hvammi í Ölfusi; foreldrar
hans voru Einar Egilsson frá Kiðabergi Jónssonar
Grím8sonar og Sigríður Gísladóttir frá Reykjakoti
í Ölfusi Guðnasonar þar. Einar sál. ólst upp hjá
móðurbróður sinum Gnðmundi Gislasyni i Reykja-
koti frá því hann var 5—6 ára, og var þar fram
um þrítugt; þaðan fór hann að Núpum í sömu
sveit vinnumaður. Var síðan lausamaður í Reykja-
hjáleigu 10 ár og svo á Núpum 2 ár, þaðan
fór hann að Hlíð í Selvogi sem húsmaður 1 ár,
þaðan að Torfabæ og dvaldi þar til dauðadags.
Einar sál. giptist ekki, og átti ekki afkvæmi á lífi,
hann hafði arfleitt bústýru sína að eigum sínum,
eptir sinn dag, og sýndi það meðal annars, hve
tryggur og vinfastur hann var. Einar sál. var
fremur vel greindur maður, iðju- og reglumaður,
jafnlyndur og stilltur. G.
N ý k o m i ð
í verzlun H. Th. A. Thomsens:
Prjónavélar fyrir heimilisiðnað.
Saumavélar, margar tegundir.
Bómullardúkar ýmsir o. ra. fl.
Dálítið af tilMnum skófatnaði, inn-
lendum og útlendum, sem selst með mjög
vægu verði, hefur
Jún Brynjólfsson,
Bankastræti 12.
Takiö eptir!
Vissra orsaka vegna get eg ekki komið
því við, að flytja hingað til bæjarins, eins
og eg nýlega auglýsti, fyr en eptir í hönd
farandi kauptíð.
p. t. Reykjavík 19. júní 1895.
Guðjón Sigurðsson,
úrsmiður.
Hannyrðabókin og Rauðhetta fæst á
skrifstofu „Þjóðólfs11.
Feitisvertu, 25 aur. dósina; skóreim-
ar, 4 aur. parið; skósvertu, 4 aur. bréfið;
stígvélajárn 20 aur. ganginn, selur
Jón Brynjólfsson,
Bankastræti 12.
EEE-3EjEIEéEIE*rI=*=T::j;=TTj!EIE*EIrjt8!l
„Piano“- verzlun
„8kandinavien“,
verksmiðja og sölubúð
Kongens Nytorv 22, Kjöbenhavn.
Verksmiðjunnar eigið smíði ásamt
verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum.
Birgðir af Orgel-Harmonium.
Er allt selt með 5 °/0 afslætti gegn
borgun í peningum, eða
gegn afborgun.
Gömul hljóðfæri tekin í skiptum.
Verðskrá send ókeypis.
__ir=—H—»— 1 I
V o 11 o r ð.
Eg undirskrifuð hef ailmörg ár þjáðzt
af gigt. óhægð fyrir brjósti og svefnleysí,
og var mjög þungt haldin. Eg leitaði
mér Iæknishjálpar, en árangurslaust,. Fyrir
tæpu ári var mér ráðið að reyna Kína-
lífs élixír hr. Valdemars Petersen’s, er eg
einnig gerði, og á þessum stutta tíma hef
eg nálega fengið heilsu mína aptur, og
vona, að eg verði alheilbrigð áður en langt
um líður.
Með því að Kína-lífs-elixírinn hefur
hjálpað mér svona vel, ræð eg sérhverjum,
er þjáist af áðurgreindum eða svipuðum
veikindum, að reyna hann.
Kaldaðarnesi 23. nóv. 1894.
Quðrún Emarsdóttir.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flostum kaup-
mönnum á íslandi,
Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kina-_
lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel eptir
V P
því, að j. - standi á flöskunum í grænu lakki, og
eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðan-
um: Kíuverji með glas í hendi, og flrmanafnið
Valdemar Petersen, Frederikshavn, Danmark.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Ilunnes Þorstelnsson, cand. theol.
KélagsprentsmiBJan.