Þjóðólfur - 26.07.1895, Side 3
147
Þar til svarast nei; slíkir skólar eru
ekki til í neinu landi, þar sem þýzk tunga
er töluð, bvorki í Prússlandi né hiuum
einstöku ríkjum þýzka alríkisins og held-
ur ekki í Austurríki nó á Svisslaudi.
Þýzkir skólar skiptast þannig neðan
frá: 1. Realskóli, með eintómri real-
kennslu, og eru þar eigi lærð önnur mál
en frakkneska og enska. Burtfararvottorð
þaðan veitir að eins aðgang að eins árs
herþjónustu, en ekki að neinu öðru. 2.
Realskóli með „Progymnasium“ (undirbún-
ingskennslu undir ,,Gymnasium“); þar er
kennt alveg það sama sem í realskóla,
að eins með þélm. viðauka, að þar gefst
kostur á latínukennslu 1 3 ár, samsvar-
andi að umfangi þvi sem kennt er í þrem-
ur neðstu bekkjum (Sexta, Qvinta, Quarta)
„gymuasianna" (lærðu skólanna); geta svo
þeir, seui þeirrar kenuslu liafa notið, orðið
teknir í neðri deild 3. bekkjar, talið ofan
frá (Tcrtia). 3. Reai-gymnasium (áður
kallað: æðri realskóli); í þeim skóla er
nokkuð ítarlegri realkennsla en í realskóla
nr. 1 og 2 og þar til latínukennsla í um-
f'angsmeiri mæli.1 4. „Gymnasium“ (áður
eiunig kallað latínuskóli, samsvarandi ykk-
ar lærða skóla) með latínu og grísku
kennslu. Burtfararvottorð frá þessum skól-
um veitir keimild til framhaldandi æðra
náins. — Af þessu sést ijósast, að hjá oss
eru sameinaðir latíuu- og realskólar alls
ekki til.
Eg fyrir mitt leyti skil ekki, hveruig
menu ætla sér að sameina tvo slíka skóla,
það hlyti að verða skringilegur hrærigraut-
ur, og á sama máli eru þeir, sem eg hef
átt tal við um þetta. í stuttu máli: vér
skiljum alls ekki þessa íslenzku fyrirætluu.
Annarhvor hlutinn hlyti að skaðast, og
það yrði þá einmitt ykkar gamli, frægi
Rerði skóli. En vonandi er, að þetta verði
lausagrilla eiu og ekki annað“.
Mikil botnliius vitleysa er það, sem
„ísafold“ ber á borð fyrir lesendur sína
2o. þ- m- út af úrskurði neðri deildar um
forseta-atkvæðið 8. þ. m. Hún hringsnýst
þar utan um sjálfa sig, eins og höfuðsóttar-
gemlingur, jórtrar upp setningar eptir sjálfri
sér, leggur þær Þjóðólfi í munn, og berst
’) Eptir þessa árs skýrsiu hins œðri realskóla
í Leipzig var þetta lesið af latnoskum rithöfund-
um: 10 æfir í Cornelius Nepos, 6 bækur í Cœsar,
Jugurthustríð eptir Sallúst, valdir kaflar fir Meta-
morphoBes Ovidíusar, Livius 21. og 23. bók, Cato
Major Cicero’s, 1., a. og 3- hók í Eneasardrápu
Yergils, Germania eptir Tacitus, Yaldar óður
Hórazar.
svo um á hæl og hnakka gegn þeim, svo
sem annari endiieysu. Fyr má nú vera
öfug hringferð í hugsunarganginum eu svo
sé. Það er meira að segja ískyggiíegur
vanki. Hver maður með meðal-þekkingu,
hvað þá heldur margra ára stúdent í lög-
vísi, ætti að geta séð það, að í Þjóðólfi
hefur aldrei verið vikið að því einu orði,
að úrskurður þingdeildanna um réttan
skilning á þir.gsköpunum væri ekki talinn
gildur á þeim tíma, sem hann er uppkveð-
inn og í því máli, sem fyrir liggur, enda
er auðvitað skylt að hlíta slíkum úr-
skurð um. Eu þingdeildirnar geta fellt
úrskurði þvert ofan í aðra úrsurði
þeirra, sem áður hafa verið feildir, og
það hafa þær stuudum gert, sem sýnir, að
það er komið að miklu leyti uudir geð-
þekkni deildarmanna í það og það skipti,
hvernig úrskurðir þeirra falla, og er því
hér ekki um ueitt algilt lagaboð að ræða,
er alls ekki verði breytt með öðruin endi-
legum úrskurði (konungs eða ráðgjafa), ef
einhverju er haldið svo langt til streitu
til að taka af allan vafa eptirleiðis.
AUur vefur „ísafo!dar“ um frestun á
fundi og þar fram eptir götunum, er hin
hlægilegasta della, sem hugsazt getur. Það
hefur enginn minnzt á neitt þvílíkt, nema
hún ein. En að öðru leyti er varla ómaks-
ins vert að yrðast við málgagn, er annað-
hvort snýr öllu öfugt gegn betri vitund,
þá er engin önnur ráð eru til að verja sig
með, eða er svo andlega vankað, að skilja
ekki mælt mál, né geta gert greinarmun
á réttu og röngu. Það virðist eiga eitt-
hvað sammerkt við manninn, er varð að
skila pappírunum hvítum við lögfræðis-
prófið í Kaupmannahöfn hérna um árið
eptir langan og strangan undirbúning.
A1 þ i n g i.
VI.
Þiiigsályktunartillagan í stjórnar-
skrármáliuu var samþykkt í efri deild
22. þ. m. með 7 atkv. þ. e. öllum konuug-
kjörna flokkuum, ásamt Jóni Jakobssyni
og Þorleifi Jónssyni gegn 3 (Guttormi Vig-
fússyni, Jóni Jónssyni og Sigurði Stefáns-
syni), en Sigurður Jensson greiddi ekki
atkv. Hélt Þorleifur alllanga ræðu móti
stjórnarskrárfrumvarpinu, og lýsti því bein-
línis yfir, að hann greiddi atkv. gegn því,
ef það væri lagt fyrir deildina. Bar eink-
um fyrir sig vilja kjósenda sinna, og kvaðst
álíta, að hann brygðist trausti þeirra, ef
hann greiddi ekki atkv. með tillögunni.
Eptir að vita, hvort meiri hluti Húnvetn-
inga verður á sama máli um það. Traust
það, sem Jón Jakobsson bar til þingmanns-
ius í þessu máli, hefur því ekki iátið sér
skammar verða. „Öðruvísi mér áður brá“,
má segja, ef flett er upp Þjóðólfi á árun-
um 1886—1888, þ. e. í ritstjórnartíð þm.
Húnvetninga. en það er sjálfsagt flest
gleymt nú. Aptur á móti virðist hafa orð-
ið erfiðara að gleyma „miðluninni41 frá
1889.
Lagaskóli. Þeir Jón Jakobsson og
ÞorJeifur Jönsson hafa borið upp í efri
deild frumvarp um stofnun lagaskóla, svip-
að því sem áður hefur verið samþ. af þing-
inu. Skulu tveir kennarar vera við skól-
ann, er annar sé jafnframt forstöðumaður
og hafi 3000 kr. í árleg laun, en hinir
kennarar 2500 kr. Jón Jakobsson notaði
tækifærið við 1. umr. málsins, til þess að
varpa hnútum að háskólamálinu, og hefur
víst þótzt sýna mikla rögg af sér með því
að lýsa því yfir, að hann greiddi atkv.
gegn stofnun háskóla, hveuær sem frum-
varp um það væri borið upp í ,þeirri deild,
sem hann ætti sæti í. Hallgrímur Sveins-
son talaði og í málinu, en fór kurteisari
orðum um háskólastofnun hér og samskot
til þess, heldur en þm. Skagfirðinga. Að
lokum var sett 3 manna nefnd í málið:
Hallgr. Sveinsson, L. E. Sveinbjörnsson
og Þorleifur Jónsson. Jón Jakobsson var
éklti valinn í nefndina. Annars er ekkert
á móti því, að lagaskólafrv. þetta verði
samþ. af þinginu. því að hver veit nema
stjórnin sinni því nu, og er þá fengiún
einn aðalþáttur í hiuni fýrirhuguðu há-
skólastofnun. Þetta frv. þarf því alis ekki
að verða því máli til hnekkis síðar meir,
heldur miklu fremur til stuðnings.
Ojafsóknir. Skúli Thoroddsen og Pét-
ur Jónsson bera upp frumv. um, að gjaf-
sóknarréttur embættismanna sé úr iögum
numinn.
Fréttaþráður. Samþykkt hefur verið
í Nd. sú tiilaga frá samgöngumálanefndinni,
að þingið skori á ráðherra íslands, að hlut-
ast til um, að það verði borið fram við
erleud ríki, hvort og að hve miklu leyti
þau kynnu að vilja styðja að því, sérstak-
lega veðurfræðinnar vegna. að lagðurverði
fréttaþráður (teiegraf) til ísiands.
Búseta fastakaupmanna. Frv. um
það samhljóða frv. síðasta þings flytur
Skúli Thoroddsen.
Þjórsárbrúin er nú fullger og verður
vígð á sunnudaginn kemur 28. þ. m. af
Hannesi Hafstein landritara í umboði
landshöfðingja, er sjálfur getur ekki þang-
að farið af alþingi. Kvað brúarvígslan
vera ákveðin kl. 4 e. h. og er það óhent-
ugri tími fyrir héraðsbúa, er þangað koma
að sjá og lieyra, heldur en vigslan hefði
farið fram á hádegi eða fyr. Um háslátt-
inn vill fólk fara sem allra-sparlegast með
timann.______
Nýtt nautakjöt á 0,20 og 0,30 pd.
fæst á morguu í
verzlun Eyþórs Felixsonar.