Þjóðólfur - 31.01.1896, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 31.01.1896, Blaðsíða 3
19 smíðað af Samúel trésmið Jðnssyni á Eyrarbakka. Yígði prðfastur hana að viðstöddum 2 prestum“. Prestkosning fór fram í Útskálapresta- kalli 25. þ. m. Af 270 kjósendum á kjör- skrá sóttu 188 fundinn. Kosningu hlaut Bjarni prófastur Þórarinssou á Prests- bakka með 113 atkv. Séra Janus fékk 72 atkv. og séra Þorkell á Keynivöllum 3 atkv. Bruni. Aðfaranóttina 28. þ. m. brann fjós hjá Erlendi sýslunefndarmanni Er- lendssyni á Breiðabólstöðum á Álptanesi, og brunnu þar inni þrjár kýr, er hann átti. Ætla menn, að eldurinn hafi kvikn- að af neista, er fallið hafl ofan í moðið kveldið áður, er kýrnar voru mjólkaðar. Mjög þakklátir geta Hafnfirðingar ver- ið nafnleysingjanum í 4. tölubl. ísafoldar fyrir það, að hann hefur íest hina leiðin- legu síldarsögu um aldur og æfi við Hafn- firðinga, því að annars mundi fáum hafa verið það kunnugt, að saga þessi (í 2. tbl. Þjóðólfs) ætti einmitt við Hafnfirðinga- Og hvað leiðréttir svo þessi herra í frásögn Þjóðólfs? Ekkert. G-rein hans virðist byggð á tómum misskilningi og engu öðru. Aðal- atriðið á að vera, að í fyrri ádrættinum (?) hafi verið dregnar að landi um 60 tuunur (ekki 600) og af því hafi tapazt um 30 tunnur(I). En hvernig getur þessi herra, sem sjálfur segíst elcki hafa verid viðstadd- ur, ætlazt til, að menn taki orð hans trú- anlegri, en þeirra manna, er viðstaddir voru, og gizkuðu á, að um 600 tunnur hefðu verið króaðar í netinu, áður en því var sleppt, en þar af hefðu náðzt um 60 tunnur við ádrátt þá þegar á eptir? Höf. virðist blanda þessu saman við annan 8íðari ádrátt, er fór fram nokkrum dög- um síðar og alls ekkert er minnzt á í Þjóðólfi. En frásögnin þar er beinlínis tekin eptir 2—3 merkum Hafnfirðingum, er vissu gerla um þetta síldarhneyksli og við það verður að sitja, enda hefur ísafoldar- Hafnfirðingurinn, er sumir þykjast renna grun í, hver vera muni, harla lítið bætt úr skák með þessari marklausu athuga- semd sinni við rétta frásögn. Hið íslenzka kvennfélag hefur ákveð- ið að stofna útsölu („bazaru) á íslenzkum iðnaði næstkomandi sumar, er standi yfir 2V9 mánuð, frá miðjum júní til ágústmán- aðarloka. Tilgangur þessa fyrirtækis er sá, að gera mönnum hægra fyrir að koma í verð því er þeir kynnu að vilja selja, og jafn- framt að hvetja menn til meiri vandvirkni og iðjusemi. Þeir munir, er sendir yrðu á útsölu þessa, geta verið margvíslegir, jafnt unnir af konum sem körlum, t. d. má nefna alls- konar tóskap og hannyrðir, einnig ýmis- konar smíðisgripi úr málmi, tré eða horni. Þeir, er kunna að senda eitthvað á út- sölu þessa, eru beðnir að skrifa utan á það til útsölunefndar kvennfélagsins i Reykjavík eða til einhverrar af okkur undirrituðum, er kosnar höfum verið til að annast um útsölu þessa. Hver hlutur, er sendur er, verður að vera með fast- ákveðnu verði og greinilega merktur nafni þess, er sendir. Eptir að munirnir eru komnir í hend- ur útsölunefndarinnar verða þeir vátryggð- ir og að öllu leyti teknir í ábyrgð. Þegar útsölunni er lokið, verður hverj- um sendir sínir peningar að frádregnum 10°/o af upphæðinni, er álitið er að þurfa muni til útsölukostnaðarins. Þeir munir, er ekki ganga út, verða endursendir á kostnað eiganda, nema hann geri aðra ráð- stöfun. Að endingu viljum vér óska, að menn vilji sinna þessu fyrirtæki, svo það geti 12 svo miklum mun verra, en það hafði verið áður, að það eitt gæti verið orsökin. Hann fann, að ekki var nú hægt að komast hjá að fá ýmislegt úr kaupstað, sem áður hafði eigi þurft. Það var til dæmis fataefni handa krökkunum. Móðir þeirra sagðist ekki kunna við að sjá þau lakar til fara en annara manna börn, það væri ómögulegt, að vaðmál klæddi eins vel og danska efnið; og þó var ekki hægt að komast af með minni ull til heimilisins en áður. — Þá var kaffið. Á fyrstu búskapar- árum sínum hafði hann ekki keypt nokkra baun af því, eu bráðum þótti þægilegt að liafa það handa gestum, og þá sér til gamans rétt á hátíðum og við tækifæri. pvi næst var tekið upp að hafa það í litla skattinn á sunirin, og svo þótti það ómissandi, ef mjólk vantaði, og nú voru allír sannfærðir um, að það væri mjög hollt að hafa það á eptir miðdegismatnum. Þórður varð ásamt öðrum að fylgja tizkunni. Hjúin voru vön að segja, að svona og svona hefði það verið hjá honum Árna eða Birni húsbónda sínum í fyrra, og húsfreyjurnar sögðu, að þau mundu ekki vilja hafa það lakara hjá sér en þau hefðu vanizt því. Þórður hafði hátt og í hljóði bölvað þessum kaffikaupum og 0pt gert ráð fyrir að hætta þeim; þó varð aldrei af því. Honum fannst þá reyndar hálf-leiðinlegt að neita sér um það, skömmina þá arna, úr því þessi vani var kominn á. Hann var 9 tók hann það fram, hve kvennfólkið ætti þar gott. Eg hugsaði svona til hennar Gunnu minnar, kunningi, því þótt hún hafi alizt upp hjá mér, þá væri ekki ómögu- legt, að eitthvað gæti orðið úr henni, ef hún hefði það sem húu þyrfti, því ekki er von, að þessi grey geti orð- ið mikið, þegar þau hafa ekkert.-----------Mér sýnist, að við ættum endilega að reyna að komast í sumar“. „Eg held það sé nú ekki svo óálitlegt fyrir þig“. „Þú værir viss að græða þar líka“. „Og ekki veit eg nú hvað því líður; eg held mað- ur þakkaði fyrir, ef maður gæti komizt þolanlega af. En eg held það sé ekki fyrir fátæklingana að komast svona hjálparlaust. Eg get ekki skilið, að eg hefði peninga til þess, þótt hægt væri að selja þetta rusl eitthvað, sem ekki mundi heldur ganga greitt". „Og einhver held eg yrði lakar staddur en þú. Eg er líka viss um það, að hann Stebbi minn mundi ekki amast við þér, ekki sízt ef við værum báðir svona saman“. „Hefur þú annað,, en ef þú gætir fengið eitthvað fyrir þessar kindur?“ „Og ekki býst eg nú við, að eg geti nú eiginlega gert reikning upp á mikið annað; eg hugsa að eg kom- ist kannske af með það. Helga mín hefur nú verið í vist og ætlar að kosta sig sjálf“.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.