Þjóðólfur - 31.01.1896, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 31.01.1896, Blaðsíða 4
20 framhaldist og haft tækifæri til að sýna það gagn, er vænta má af því. Reykjavík 28. jan. 1896. Porbjörg Sveinsdóttir. Kristín Benedildsd. Ingibjörg Bjarnason. Ingibjörg Jóhnsen. Elín Eggertsdóttir. Öllum þeim æðri og lægri, er sýndu mér hluttekningu í sorg minni við fráfall míns elskaða eiginmanns J 6 n s háyfirdómara Péturssonar og heiðr- uðu jarðarfðr hans 25. þ. m. með nær- veru sinni, flyt eg, ásamt nærstðddum og fjarstöddum hörnum liins látna og nánustu venzlamönnum, mitt hjartan- legasta þakklæti. Reykjavík 28. jan. 1896. Sigþrúður Friðriksdóttir. C. ZIMSEN hefur einkaútsölu fyrir ísland Quibells Sheep Dip & Cattle Wash. Ágætt baðlyf á kindur og aðrar skepnur. Eeglur fyrir brúkuninni verða prentaðar á íslenzku. Lífsábyrgðarfélagið „Star“. Umboðsmenn félagsins eru: Borgari Vigfús Sigfússon, Vopnafirði. Verzlunarm. Ármann Bjarnason, Seyðisfirði Verzlunarm. Grimur Laxdal, Húsavík. Ritstjóri Páll Jónsson, Akureyri. Verzlunarm. Kristján Blöndal, Sauðárkrók. Séra Bjarni Þorsteinsson, Siglufirði. Verzlunarm. Jón Egilsson, Blönduós. Bókhaldari Theodor Ólafsson, Borðeyri. Sýslumaður Skúli Thoroddsen, ísafirði. Séra Kristinn Daníelsson, Söndum í Dýraf. Kaupmaður Pétur Thorsteinsson, Bíldudal. Kaupmaður Bogi Sigurðsson, Skarðstöð. Bóksali Gísli Jónsson, Hjarðarholti í Dalas. Verzlunarm. Ingólfur Jónsson, Stykkishólmí. Kaupmaður Ásgeir Eyþórsson, Straumfirði. Kaupm. Snæbjörn Þorvaldsson, Akranesi. Læknir Skúli Árnason, Hraungerði, Árness. Verzlunarm. Magnús Zakaríasson, Keflavik. Ólafía Jóhannsdóttir, Reykjavík. Skrifstofa félagsins er í Kirkjustræti 10, opin hvern rúmhelgan dag kl. 12—2 og 5—7 e. m.___________________________ Jarðir til sölu. Hvammur í Holtum, Bolafótur í Njarð- víkurhreppi, */4 úr Stóra-Hólmi í Leiru og Tjarnarkot í Njarðvíkurhreppi ásamt 2/g úr stóru og vönduðu íbúðarhúsi, sem stendur á lóðinni. Mjög aðgengilegir borgunarskilmálar. Lysthafendur snúi sér sem fyrst til undir- skrifaðs, sem af skiptaráðandanum í Kjós- ar- og Gullbringusýslu er falið að selja ofanskrifaðar fasteignir ‘undir hendinni’. Áshjörn Ólafsson, Njarðvík. Jörðin Laugardælur í Árnessýslu er nú þegar til sölu. Tún gott, mest 200 hestar af töðu. Úthey- skapur töluverður, bæði mýri og valllendi. Dúntekja í hólmum í Ölfusá um 40 pund (að aukast). Laxveiði mikil, opt yfir 1000 krónur á ári. Liggur örstutt frá Ölfusár- brúnni. Kartöflur í heitum garði nálægt laug í túninu, um 30 tunnur á ári. Timburhús ágætt. Menn snúi sér til Sturlu Jónssonar kaupmanns í Reykjavík. Gnðxn. Guðmnndsson. Fyrirlestur um sköpunina og vísindin heldur herra prestur J. Frederiksen á suuuudaginn kemur 2. fehrúar, kl. 872 e. m., í Goodtemplara- húsinu. Ágóðinn rennur í sjóð ThorvaldsensfélagB- ins. Inngöngumiðar á 60 aura t'ást i Brydesverzl- un laugardaginn 1. fehr. og við innganginn. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Porsteinsson, cand. theol. Félagsprentsmiðjan. 10 Þórði var reyndar ekki um að eiga það á hættu að styrkja Hallgrím til muna, og kom honum því vel svar þetta. — „Hvernig ætli það sé með þessi útgjöld þar?“ spurði hann ennfremur. „Ætli þau séu hreint engin?“ „Aldeilis engin“, svaraði Hallgrímur fljótt, „það sagði ‘agentinn’ mér“. „Líklegt er þó, að einhverstaðar þurfi að taka það, ekki er þar svo lítið ‘umvélis’“. „Stjórnin kostar það allt saman, og svo gefur landið það einhvern veginn af sér, held eg“. Ja, það er nú aldrei munur eða hérna, þar sem hver skildingur er herjaður út af þessum bændaræflum. Um minna má draga“. Þórður fór að engu óðlega. Hann spurði Hallgrím, og Hallgrímur leysti úr öllu með því, sem ‘agentinn’ hafði sagt honum. Þegar þeir voru komnir út á hlað, sagði Þórður, að það væri ekki aldeilis fráleitt að hafa þetta í huga, ef einhver skepnan tórði til vorsins. Það þyrfti ekki að geta um það fyrst um sinn. Hann þyrfti að minnast á það við konuna o. s. frv. Svo kvöddust þeir. Þórður gekk til baðstofu, og þegar hann var kominn úr snjóplöggunum, settist hann með prjóna sína og mælti ekki orð allt kveldið. * * * Þórður hafði búið allan búskap sinn, milli 20 og n 30 ár, á Seli. Jörð sú lá í dálitlum dal upp af aðal- héraýinu. Tengdafaðir hans hafði átt hana hálfa — hinn helmingurinn var kirkjueign — og fengið dóttur sinni Þórunni, þegar hún giptist heiman. Þær systur voru tvær, — hin yngri þeirra hét Anna — og var svo kært með þeim, að þær höfðu heitið því, að nefna í höfuð hvor á annari fyrstu dætur sínar.—Þau Þórður og Þórunn höfðu byrjað búskap með mjög litlum efnum, en svo smá- fjölguðu þau fé og urðu fremur veitandi en þurfandi, enda lagðist sá orðrómur á, að Þórður gamli væri ekki að hampa skildingnum, þótt honum innhentist hann, en hann mundi sjá um sig. Nú á síðustu árum fannst Þórði, að sér og búskap sínum hnignaði meir og meir, og það var líka að nokkru leyti satt. Sjálfur var hann kom- inn um fimmtugt og farinn að finna mjög til lúa og lasleika. Börn þeirra hjóna voru 3: Ólafur 21 árs, Anna 18 ára og Guðmundur 16. Þau voru að vísu komin svo til vinnu, að eigi þurftu foreldrar þeirra að hafa vinnufólk nema einn kveunmann. En þau þurftu líka margs með, svo sem gerist á þeim aldri. Þórður átti á síðustu árum erfitt með að verjast kaup- staðarskuldum. Opt hafði hann hugsað um, hvað ylli þessari apturfór, en það var ekki svo auðvelt að sjá það í fljótu bragði. Auðvitað áttu útgjöldin og vaxandi hreppsþyngsli nokkurn þátt í því; en þetta var þó ekki

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.