Þjóðólfur


Þjóðólfur - 17.03.1896, Qupperneq 4

Þjóðólfur - 17.03.1896, Qupperneq 4
52 Póstskipið „Laura" kom hingað að kveldi 14. þ. m. Farþegar með því voru: Björn Q-uðmundsson kaupmaður, Daníel Daníelsson ljósmyndari, Pétur Hjaltesteð úrsmiður, og Berry meðeigandi verzlunar- innar „Edinborg“ hér í bænum; ennfrem- ur spunavélameistari danskur til Björns Þorlákssonar á Álafossi, Nielsen að nafni, og þrjár danskar Hjálpræðisherdömur, til liðveizlu og huggunar hermönnunum hér heima. Embættaveitingar. Landritaraembætt- ið er veitt af konungi 28. f. m. Jbni Magn- ússyni sýslumanni í Vestmannaeyjum, og önnur málsfærslumannssyslanin við landsyf- irréttinn 29. s. m. cand. jur. Oísla ísleifs- syni. Embættispróf í lðgum við háskólann hefur tekið Björgvin Vigfússon með 2. einkunn. — Fyrri hluta læknaprófs hefur tekið Kristján Kristjánsson með 1. einkunn og fyrri hluta fjöllistaprófs (polyteknisk Exa- men) Sigurður Pétursson frá Ánanaustum með 2. eink. góðri. Stórkaupmaður P. C. Knudtzon er orðinn einn af bankastjórum við þjóðbank- ann í Kaupmannahöfn, með 12,000 kr. laun- um um árið. Hann er áður fyrirliði í hernum og konungkjörinn alþingismaður, auk þess sem hann, eins og kunnugt er, rekur verzl- un hér á landi: í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík. Er mælt, að þessar verzlanir eigi að hætta bráðlega, ef ekki tekst að selja, með því að hr. Knudtzon vill losa sig við störf sín hér. Innflutningsbannið á lifandi fénaði til Bretlands er, eins og áður er getið hér í blaðinu, ekki enn komið í kring, en eptir pví sem frétzt hefur, kvað vera mjög tvísýnt, að nokkur undan- þága fáist, að þvi er ísland eða önnur lönd snert- ir. 1*6 er mælt, að Norðmenn geri sér fremur vonir um það, hvað Noreg snertir, og er líklegt, að ísland yrði þá sömu hlunninda aðnjótandi. Væri ðskandi, að betur rættist úr þessu, en áhorfist. — Hér á landi er að vonum mikill uggur og ótti við bann þetta, og fundir hafa víða haldnir verið í sveitum til að ræða um þessi vandkvæði, en eins og eðlilegt er, getur það ekki haft mikla þýðingu eða áhrif úr þessu. ÍJr Þingeyjarsýslu er ritað 19. f. m., að kaupfélagið þar hafi afráðið að senda mann til Skotlands til að reyna að koma á kjöt- flutningi í ís héðan og þangað, ef bannið verður lögleitt. Fundur var og haldinn á Stórólfshvoli 2. þ. m. og landshöfðingja skrifað um málið. Má ganga að því vísu, að hann geri allt, sem í hans valdi stendur, til að fá voðabanni þessu afstýrt, hver sem árangurinn verður. Fyrirspurnir og svðr. Um 1862 sá eg, að hékk í Skálholtskirkju stór olíumynd, af Finni biskupi. Nú heyri eg sagt, að hún sé horfin úr kirkjunni. Hvar er hún nú og hvers eign er hún? Spurull. Svar: Olíumynd þesBi mun nú vera í eign ekkju Hilmars Finsens Iandshöfðingja eða barna þeirra í Danmörku. Bigendur Skálholtskirkju (Bjarni amt- maður Thorsteinsson eða synir hans) höfðu, að því er mælt er, gefið hana Finsen landshöfðingja, sem, eins og menn vita, var sonarsonarsonur Finns biskups. Eg er búandi á kirkjujörð, sem fyrir fám árum var prestssetur, og á kirkjan allt heimaland og ítök í annari jörð. Mér er nú byggð jörðin með öllum þeim hlunnindum, sem presturinn átti. Missi eg eða kirkjan þessi ítök fyrir það, að þeirra var ekki getið, þegar landamerki jarðanna voru gerð? Svar: Nei. Bg er félaus maður, en er að reyna til að vinna fyrir móður minni örvasa, svo hún ekki fari á hreppinn, með því að vera í sjálfsmennsku, en hreppsnefndin skyldar mig til að kaupa lausa- mennskubréf og bannar mér að vera laus annars. Svar: Hreppsnefndin hefur rétt til að krefjast þessa samkvæmt lögum. í sambandi við þessar fyrirspurnir skal þess get- ið, að eptirleiðis verða engar fyrirspurnir teknar í blaðið og svarað, nema borgun fylgi, eins og fyrir hverja aðra auglýsingu (2 aura orðið). Br áríð- andi, að þær séu sem styztar og greinilega orðað- ar. Sakir rúmleysis í blaðinu höfðum vér hugsað oss að sleppa algerlega öllum fyrirspurnum, en með því að ýmsir fyrirspyrjendur hafa mikillega ðskað að fá spurningum sínum svarað opinberlega, þá munum vér gera það við og við fyrst um sinn, eptir því sem rúm blaðsins og aðrar ástæður leyfa. Bitstj. Konur þær, er kynnu að vilja koma ritgerðum í Ársrit bins íslenzka kvenn- félags, eru beðnar að senda þær til for- seta félagsins fyrir lok ágústmánaðar næstk. Ritgerðirnar ættu helzt ekki að vera lengri en lx/a örk, og hljóða annað- hvort um kjör og réttindi kvenna eða eitt- hvert almennt mál. Sigþrúður Friðriksdóttir (p. t. forseti félagsins). Nýjar glatt-tennur úr agath, fyrir bók- bindara, selur öuðmundur bóksali á Eyrar- bakka með vægu verði. Sami borgar manna bezt ógölluð, brúk- uð, íslenzk frímerlci. ísenliram ýæisi. kom með „Laura“ í verzlun Sturlu Jónssonar. Emil V. Abrahamson Kaupmannahöfn K. Þær vörur, sem firmaið sérstaklega flytur: Campechetré, kvistalaust, blátrjárextrakt, indigó- og anilínlitir, pakkalitir og önnur litarefni. Kateeliu til veiðineta. K.artÖHnr nýkomnar í verzlun Sturlu Jónssonar. Ekta dönsk normal Marseillesápa. Einka-útsala í Reykjavík hjá H. Th. A. Thomsen. Sjá fylgiblaðið! Farli, fernisolía, terpentína, kítti, rúðugler m. m. fæst í verzlun SturlU Jónssonar. Brúkuö íslenzk frlmerki verða jafnan keypt. Verðskrá send ókeypis. Olaf Grllstad, Trondhjem, Steinolia fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Kfllli., leskjað og óleskjað, einn- ig sement fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Loirtan aí ýmsum tegund- um fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. • u Ekta anilínlitir •fH •iH fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og » NH í verzlun * a d se Sturlu Jónssonar HN ce M Aðalstræti Nr. 14. S* <?4» • Peir, sem þjást af hörundskvillum með þurrum, vilsufullum eða hrúðri liuldum bólum ásamt óþolandi kláða í liörundinu, sem samfara er þessum sjúkleika, verða áreiðanlega læknaðir með „dr. Hebra’s Flechtentod“ (dr. Hebra’B kláðalyf), jafnvel þeir, sem áður hafa árangurslaust Ieitað sér lækninga. Lyfið er óskaðvænt til útvortis notkunar. Kostar 10 krónur, er greiðist fyrirfram með póstávísun eða í frímerkjUm, og verður þá lyfið þegar sent viðtakanda að kostnaðarlausu. Sölustaður: St. Marien-Drogerie, Danzig. Tyskland. Hónir og órónir sjóvetlingar fást í verzlun Sturlu Jónssonar. 13.1 og tilbúinn fatn- aður með ágætu verði fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Singers-saumavélar fást ávaiit í verzlun Sturlu Jónssonar. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorstelnsson, cand. theol. Félagsprentsmiftjan.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.