Þjóðólfur - 29.05.1896, Page 1
irg. (60 arklr) koetar * kr.
Erlendln 5 kr.- Borgist
fyrir !&•
Dppaögn, bnndln vi9 irainöt,
ögild nema komi til útgefanda
iyrir 1, oktéber.
ÞJÓÐÖLFUR
XLVIII. árg.
Útlendar fréttir.
Kaupmannaböfn 6. mai.
Tflrlit. Hver dagur færir ný tíðindi,
og svo hefur það verið allt þetta ár frá
upphafi. Þingdeilur hið innra, kappræður,
flokkadrættir, sókn og vörn í allsherjar-
málura þjóðanna, stórpólitiskar orrahríðir
hið ytra. Annan daginn er dátt með stjórn-
um landanna, hinn daginn rígur og við-
sjár.
Eins og fyr er frá sagt hér í blaðinu,
er nýlendupólitíkin orsökin til alls þessa
óróa. Allar þjóðir vilja toga sem mest til
sín, og fá aðra til að toga með sér, móti
hinum og móti íbúum þeirra landa, sem
deilan er um. — Vér sögðum frá því eigi
alla fyrir löngu, að lítið útlit væri fyrir,
að þríveldið héldist mjög lengi, engum þætti
lið að Italíu, og henni væri hentugast að
koma sér vel við Frakkland. Nú, eptir að
Crispi fór frá, hefur Vilhjálmur þýzki keis-
ari farið suður til tals við Rudini, og það-
an til Vínar, og ætla menn, að hann hafi
verið að búa um hnútana, og tryggja sam-
bandið nokkur árin enn. Jafnframt ætla
menn, að hann hafl lagt þeim liðsyrði við
Englendinga, og þess vegna hafl fulltrúar
þríveldisins greitt atkvæði með, að kostn-
aðurinn við herferð Englendinga á hendur
Mahdistunum, skuli greidd af fó Egypta-
lands. Eins og áður er sagt, hafa ítalir
hag af þeim leiðangri, enda hafa þeir nú
sagt sundur griðum við Abessiníumenn, og
farnir að sækja á aptur. Fyrir nokkrum
vikum var ekkert ólíklegra en vinátta með
Þjóðverjum og Englondingum, nú vinna
þeir saman eins og beztu bandamenn. Nú
sem stendur vinnur England og þríveldið
saman í bezta bróðerni; en Frakkland
stendur eitt sér og mænir á Rússland.
Konungsmorð. Persakonungur, Shah
Nasred-din, var myrtur 1. maí í höfuðborg
sinni Teheran. Hann var á gangi 0g margt
manna með honurn, og ætlaði til heilags
staðar eins í borginni; hann nam staðar
og talaði alúðlega við vatnskarla nokkra,
sem urðu á leið hans; þá reið af skot, og
hitti konunginn í hjartastað; hann féll á
knén, stóð upp aptur og datt niður dauður.
Morðinginn var þegar höndlaður; hann
er af flokki Babía, það eru ofstækismenn
Reykjavík, föstudaglnn 29. maí 1896.
í trúarefnum, og hafa áður reynt að koma
konuDginum fyrir. Hann segist hafa verið
„kosinn“ til að vinna vígið, og hefur nefnt
marga meðseka sér.
Nasred-din konungur (Shah) er frægur
hér í álfu af ferðum sínum um höfuðlönd-
in; hann hefur verið þrisvar alls hér
vestra, til að kynna sér siðu hérlendra
þjóða. Árangurinn hefur ekki orðið mikill,
hann kvað hafa komið á póstgöngum og
látið slá mynt eptir frönskum peningum,
jafnvel fengið franska iðnaðarmenn og
vegasmiði austur til sín, en stjórnarfar var
algerlega austurlenzkt; hann lét drepa
stórvezíra sína eða ráðgjafa, þegar honum
þótti eitthvað að, og ef villa fannst í reikn-
ingum fjármálaráðgjafans, þá fékk sá hýð-
ingu með priki — 400 högg í itjarnar;
Konungurinn var óvenjulega vel kvæntur;
hann átti 4 konur og 200 hjákonur, og
allar fylgdu þær honum á ferðum hans
um Persaland; hann eignaðist, að því er
menn vita, 19 sonu og 19 dætur.
Eptirmaður hans lieitir Muzafler-eddin
Mirza, og er ekki arlborinn til ríkis, en
sá eiginlegi krónprins var tyrkneskur
ambáttar sonur, og þótti þess vegna ófær
til ríkisstjórnar. Nú eru menn hræddir
um, að hann muni kveikja óeirðir.
Transvaal. Nú er það komið upp, sem
margan grunaði, þýzku blöðin sögðu hátt,
og Englendingar urðu sem reiðastir yfir:
að á bakvið herför Jamesons hafa staðið
margir mikilsmetnir menn, þar á meðal
fyrst og fremst Cecil-Rhodes, og aðrir for-
ingjar Englendinga í Afríku. Sumar fregn-
ir segja, að sjálfur Chamberlain hafi vitað
af frumhlaupinu, en það er ósannað enn,
og yfir höfuð allar fréttir óglöggar hing-
að til. Það kvað liafa fundizt telegröm
í farangri Jamesons, sem Búar tóku, og
af þeim á þetta að hafa sést. Víst er,
að það er ekki um annað meira talað
þessa dagana, og Bretar fá sannarlega sinn
mæli fleytifullan af blaðaskömmum. En
þeir láta sér fátt um finnast og kæra sig
hvergi.
Kláðastriðið í Suðurafríku liggur niðri
um stund, en búizt er við nýjum bardög-
nm, þegar minnst varir. — Nú, rétt í þessu,
kom telegram sem segir, að því sé Iokið,
Nr. 26.
uppreisnin algerlega kúguð. Sömuleiðis,
að Cecil-Rhodes og aðrir höfðÍDgjar fyrir
The Chartered Company hafi sagt af sér
völdum í félaginu, Það er hæst í Eng-
lendingum, að taka einkaleyfið af því.
Á Frakklandi er nýtt ráðaneyti mynd-
að af hófsemdarmönnum eintómum og heit-
ir Meline ráðherrann; þar er Hanotaux
utanríkisráðgjafi og kunnastur ráðgjafanna.
Ekki hefur það mikið fylgi, 35 atkvæði
framyfir. Hinir rauðustu hafa sett í gang
„agitatión" um allt landið, og eru alt-
ákafir.
í Danmörk liggur pótitík í dúnalogni,
nema hvað „Politiken“ er að ala á stjórn-
inni og erta ráðgjafana. Hún kallar ráða-
neytið „Kontorbetjentenes Fagforening“,
og er helzt á henni að sjá. sem hún muni
gera sig ánægða með allt fyrst um sinn,
ef að eins verða reistar skorður við því,
að ráðgjafarnir geti gengið í ríkissjóð og
sóað honum til hvers sem þeir vilja. Það
or nokkuð annað, en það sem Hörup sagði
1885: „Ekkert yfir og ekkert jafnhliða
fólksþinginu 1“
Sem stendur hafa Kaupmannahafnar-
búar nóg að hugsa og tala um: brúðkaup
Lovisu Friðriksdóttur, krónprins, og Frið-
riks af Schaumburg-Lippe. Blöðin full
alla daga af lýsingum á viðurbúnaðinum,
telja gjafirnar, heimanfylgju, jafnvel pilsin
prinsessunnar og skyrturnar hafa verið
taldar fram nákvæmlega. Það má álíta
víst, að hún fékk 12 tylftir alls, en um
það kemur mönnum ekki saman, hvort
þær voru úr silki eða öðrum dýrindis-dúk,
sem eg man ekki nafnið á; eg heyrði á
kappræðn um það seinast í gær, en varð
einskis vísari. Brúðkaupið var annars
haldið í kyrþey, og bæði við hirðina og í
borginni hefur verið minua um að vera
en þegar konungsdæturnar voru gefnar
ríkiserfingjum Englands og Rússlands.
Það hefur líka mátt heyra það á fólki, að
því fiunst prinsessan taka niður fyrir sig;
Danir eru engan veginn ánægðir með
þennan tengdason, heldur en tengdadótt-
urina, konuefni Carls prins; hún er dóttir
prinsins af Wales, og eru þau systkina-
börn. Hann fór til Hollands í fyrra vetur,