Þjóðólfur


Þjóðólfur - 25.09.1896, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 25.09.1896, Qupperneq 2
c kring. Þá vill hann og, að læknaskólinn sé umbættur og aukinn að kennslukröpt- um. — XJm œttjarðarást er næsta greinin, fyrirlestur eptir Einar Hjörleifsson, í 4 köflum, nokkuð sundurlausar hugleiðingar á víð og dreif um þetta efni, sem í sjálfu sér er svo afarmikilsvert og því skemmti- legt, en þó um loið töluvert erfltt viðfangs, með því að rætur þess eru svo margar og liggja svo djúpt. í þremur fyrstu köflun um hefur höf. tekið fram nokkur hin helztu atriði, er grundvöllur eru ættjarðar- ástarinnar: ást á landi og þjóð (sbr. og upphaf 4. kafla), en ástin tóm er eigi ein- hlít, er eigi ættjarðarást 1 þeim skilningi, er allar þjóðir leggja í þetta orð, heldur verður ástin að vera starfandi, einlæg og ósérhlifin, svo að menn tími að leggja fram alla sína krapta, andlega og líkam- lega, í sölurnar fyrir þjóð sína, svo sem höf. hefur vikið á í 3. kaflanum, en þó hvergi nærri tekið nógu skýrt fram og skilmerkilega, þar sem hér er um megin- atriði að ræða. En þótt nú fáir, — þeir kunna að vera miklu fleiri, en renna megi grun í að óreyndu, — beri svo ríka ást í brjósti á landi sínu og þjóð, sem hér er kraflzt, þá er síður en svo nokkur ástæða til að lítilsvirða nokkurn einstakan þátt í þessu kerfi tilfinninga og vilja manna, er vér nefnum ættjarðarást, að miklu fremur ber að virða hverja alvarlega tilrauu, hversu iítilvæg sem hún kann að sýnast, til umbóta á hugsunarhætti þjóðarinnar og tii framfara í andlegum efnum og líkamlegum; úr mörgum smáum þáttum má flétta fagurt band, ef vel og viturlega er á haldið. En það er auðséð, að höf. hefur ekki kunnað til hlítar að gera grein á þessum frumþáttum ættjarðarástarinnar og af því stafar ýmisiegur misskilningur og mótsagnir í þessum 3 fyrstu köflum, t. d. sagan um Gunnar á Hlíðarenda (57.— 58.bls.), menn sem ekki geta fengið af sér að skreppa til Færeyja af tómri ættjarðarást (67. bls.), keriingin í Skagafjarðardöiunum (67.—68. bls.), vinnukonan, sem kunni ail- ar kenningar og ísl. fornsögur o. fl. (61.— 62. bls.), og ummæli höf. um þá, er feug- izt hafa við skýringar þessara fræða (66. og 68. bls.); að öðru leyti eru þar margar einstakar athuganir góðar. í 4. kaflanum talar höf. um gönuskeið eða giapstigu ætt- jarðarástarinnar, og telur til þess „upp- tektasemi fyrir almennings hönd, sem sum- ir menn þjást af, hræðslan við það og þykkjan út af því, að allt af sé verið að gera alþýðu manna einhverja skömm“, að vera „svo sem af sjálfsögðu mótsnúinn 178 allri stjórn, öllum yfirvöldum, hvort sem þau hafa mikið til unnið eða lítið, nokkuð eða ekkert", og virðist höf. gera allt of mikið úr þessu hvorutveggja; þá talar hann um það, sem honum finnst átakan- legasta dæmið upp á afvegaleidda ætt- jarðarást, mótspyrnuna gegn Vestrheims- ferðunum. En sú mótspyrna var næsta eðlileg og óhjákvæmileg afleiðing þess níðs, er um tíma var ausið yflr Iand og þjóð í blöðum vestan hafs, sérstaklega Lögbergi og Sameinungunni, í sérstökum bækling- um og á mannfundum, til þess að draga úr landsmönnum hug og dug til að bjarg- ast hér áfram, með því að vekja hjá þeim vantraust á landinu sem lífvænlegum bú- stað siðaðra manna, og ala á þeim skap- lesti (mótþróa gegn allri stjórn), er höf. rétt áður var að víta, svo að hægra yrði að spenna alla þjóðina, meira hluta henn- ar að minnsta kosti, vestur um haf í þá fullsælu, sem þar var sögð henni fyrir- búin. Tilgangur þeirra manna, er fýrir þessu gengust, var auðsær, þótt minna yrði úr framkvæmdum, en til var ætlazt, af ástæðum, er þeir fengu eígi við ráðið; það er og eigi síður kunnugt, að forkólf- um þessara tilrauna vestan hafs gekk tii þess allt annað eu ættjarðarást, euda má mótspyrnan gegn þessu bralli þeirra miklu fremur heita því nafni, svo sem hver mað- ur getur séð, er vili skoða þetta mál hlut- drægnislaust. Að lokum minnist höf. á háskólamálið og „finnst heldur mikið kenna þess tilgangs hjá formælendum háskólans ísleuzka, að Ioka menn inni fyrir útlend- um áhrifum“. Þetta er vist að mestu leyti misskilningur; það eru varla aðrir en nokkrir klerkar, er hafa stutt háskóla- hugmyndina meðal annars í þeim tilgangi, að sporna við útlendu (dönsku) siðleysi og trúleysi, er þeim þykir námsmönnum mundu verða minni hætta af búin, ef þeir ættu kost á að stunda fræði sín hér á landi, en hvorki þeim né öðrum kemur vitanlega til hugar sú fásinna að ætla sér með háskól- anum að aptra straumum vísinda eða menn- ingar heimsins umhverfls oss frá að ná til vor og verma og vökva vorar köldu og þurru lendur, fremur nú en á liðnum öld- um, alla tíð síðan land bygðist, heldur ætlast þeir til að háskólinn verði nokkurs konar gróðrarstía til að hlyja að þeim fræ- kornum, er þess eru verð og hingað hljóta og eiga að berast með þessum straumum, áður en þau séu gróðursett í ísl. jarðvegi og 8íðar í uppvexti þeirra; þeir ætlast til, að háskólinu verði hér, eins og í hverju hverju öðru landi, lyplistöug innlends þrifn- aðar og framfara í andlegum og líkamleg- um efnum, í fyllsta máta þjóðleg stofnun. — Þessu næst er grein um Sjálfstjórnar- lcröfur Islendinga og stjórnarslcrármálið á alþingi 1895 eptir Sigurð Stefánsson, lipurt og ljóst samin; ber höf. sáttarorð milli flokkanna í þessu máli á síðasta þingi og hvetur þá til að gleyma ekki málefninu fyrir óviðurkvæmilegu hnútukasti og rifr- ildi um „leiðir og lendingar“ í þessu máli, þar sem allir eru þó sammála um hvert halda skuli í öllum aðalatriðunum. Ættu menn að lesa þessa greiu rækilega. — Síð- asta greinin í rítinu er um Fiskveiðar út- lendinga hér við land á síðustu árum eptir Bjarna Sæmundson, um veiðiaðferðir Frakka, Englendinga, Norðmanna, Færey- inga, Þjóðverja og Ameríkumanna, er þyrp- ast hingað á hverju sumri til að moka upp auðæfum hafsins við strendur vorar, og um arð þann, er þeir fá í aðra hönd, fróðleg ritgerð, er mjög svo snertir annau aðalatvinnuveg vorn, sjávarútveginn, og mættu sjómenn og aðrir, er þann atvinnu- veg stunda, margt af henni læra. Almanakið (1897) iuniheldur ýmis- legan fróðleik, svo sem æfisögur Alexand- ers Búlgarafursta (d. 1895), er var hinn mesti kappi og nýtasti þjóðhöfðingi á síð- ari árum, þótt lúta yrði haun að lokum fyrir ofurefli Rússa, og Stambúlows, þess er stýrði Búlgaríu um mörg ár með mikl- um dugnaði, en var myrtur i fyrra; mynd- ir fylgja æfisögunum. Þá eru töflur, er sýna með ýmislegum litum laiidsbagi allra ríkja í Norðurálf'unni, fyrst löud og höf á jarðarhnettinum o. s. frv., stærð ríkjanna og mannfjölda, þjóðerni, trúarbrögð, skrif- andi menn og lesandi, herafla og herkostn- að. Þar næst er Árhók íslands og ann- ara landa, Um lwiksetningar eptir Guðm. Magnússon, Smiðurinn og skrúfan, kvæði eptir franskt skáld, um harðýðgi þá, er verkamenn opt og tíðum verða að sæta af félögum sínum, þá er verkföll eru gerð; ágrip af verðlugsskrám o. fl. Munið eptir eru bendingar, áskoranir og heilræði eptir Tr. Gunnarsson, og að lokum skrítlur. Kennir í almauakinu margra grasa, og er kverið hið eigulegasta. Feröapistlar frá ritstjóra „Þjóðólfs“. II. London 27. é-gúst. Yið komum til Lundúna að kveldi 24. þ. m, og settumst að á veitiugahúsi einu í Fleet Stroet, sem er eitt af aðalstrætum

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.