Þjóðólfur - 25.09.1896, Side 3
179
Lundúna, í þeim hluta hennar, er City
Defnist, skamnit frá St. Pálskirkjunni, og
er þar sá staður í London, sem mest er
Umferð um. Þar eru allar stærstu búðirn-
ar, skrifstofur dagblaðanna o. m. fl. Þar
er líf «g þar er fjör. Það er ómögulegt
fyrir ókuuna menn að gera sér hugmynd
um það. Þar standa alstaðar lögregluþjón-
ar á miðjum götunum, og gæta þess, að
^agnarnir keyri ekki yfir fóikið. Þar er
blátt áfram hættulegt að komast yfir þvera
götuna, því opt eru svo margir vagn-
ar á götunum í senn, að allmikinn fim-
leika þarf til að sneiða á milli þeirra.
Jafnmikla umferð mun hvergi að sjá í
nokkurri borg heimsius, enda eru nú í
Lundúnum um 5 miljónir manna og öll
borgin er hér um bil 20 enskar mílur um-
mále. Má þar af ráða, hversu feiknastór
hún er. Mun fáum verða svefnsamt fyrstu
nóttina, er þeir sofa við aðalgötu í City,
nn smátt og smátt venst maður við vagna-
skröltið, svo að það verður að eins konar
vöggusöug. Milli kl. 1 og 3 á nóttunni er
°furlitið hljóðara á strætunum, en eptir kl. 3
°g einkum kl. 4 er hávaðinn afarmikill; þá
eru þeir, sem eiga verzlunarbúðir inni í
h°rginni, að aka þangað, en á kveldin um
7 • 6~~7 fara þeir aptur heim til sín utar
í borgina. j fyrra dag fórum við að skoða
St. Pálskirkjuna, sem var skammt frá veit-
ingahúsi því, er við bjuggum í. Er það
afarmarkverð bygging, reiat á áruuum
1675—1697 eptir bruna hinnar eldri Páls-
kirkju 1666. Bygging hennar kostaði um
l31/s miljón króna. Hún er og 500 fét á
lengd frá austri til vesturs, 225 feta há
undir lopt, en öll hæð hennar frá grunni
UPP á turnspíru er 365 fet ensk. í hliðar-
gongurn kirkjunnar eru afarmargar mar-
maralíknekjur af ýmsum heiztu mönnum
Englands, og eru margar þeirra hin mestu
snilldarverk. Svo fórum við niður í graf-
hvelfingu kirkjunnar og eru þar margir
legsteinar mjög merkilegir. A.ð því búuu
gengum við upp í hvelfiuguna og þaðan
upp í stöpulinn. Var þaðan afarvíðsýnt
í allar áttir út yfir borgina, enda var veð-
ur allbjart, sem kvað vera fremur sjald-
gjæft í Luudúnum. Mjög fagur skraut-
garður er kringum kirkjuna með gosbrunni
í miðju, og gengum við nokkra stund um
hann. St. Pálskirkjan er eflaust að öllu
saman lögðu hin merkasta kirkja í Norður-
álíunni, auk Péturskirkjunnar í Róm. — Þá
er við höfðum skoðað Pálskirkjuna, geng-
Um við niður að ánni Tames (Tems). Velt-
Ui: hún þar fram kolmórauð og er vatnið
Vo gruggugt eins og í forarpolli, en svo
er hún lygn, að varla verður greint í
hverja átt hún reunur. Ekki ægði okkur
breidd hannar, því að óvíða mun hun vera
breiðari en Ölfusá hjá Laugardælum, og
víða mjórri. Eiunig er hún fremur grunn,
og naumast geta stórskip gengið lengra
upp eptir henni en að Towerbrú, sem er
skammt frá kastalanum Tower. Er sú
brú hin langstórfenglegasta, er yfir Tems
liggur og gengum við upp á brúarstöpui-
inn, sem er afarhár, og er þaðan víðsýni
hið bezta yfir borgina. — Daginn eptir
(26. ág.) skoðuðum við kastalann Tower
ásamt leíðsögumanni, er hið stóra ferða-
félag Cook & Sons í London útvegaði okk-
ur. Tower er harla merkileg bygging og
afarforn, því að elzti hluti þessa kastala
var reistur á dögum Vilhjálms bastarðs
Euglakonungs (ý 1087). Þar sáum við
hlið það, er fangarnir voru fluttir inn um,
og stóð letrað yfir aftökuklefanum: „Bloody
Door“ (Blóðhliðið). Stóð þar inni högg-
stokkur mikill úr tré, mjög líkur því, sem
haft er til að kurla við á heima hjá
oss, og var letrað á hann, að Lovat lá-
varður hefði þar verið hálshöggvinn 1747.
Þar hjá var exi mikil og allhöfug, er
höfð var til að hálshöggva með. í Tower
eru geymd öll tignarmerki konungsættar-
innar á Englaudi, og þar er borðbúnaður
Viktoríu drottningar undir glerhimni, og
standa þar jafnau lögregluþjóuar, því að
margir dýrindisgripir eru þar saman komn-
ir. Þar sáum við kórónu drottningarinn-
ar, og er hún skreytt 2783 gimsteinum
og svo þung, að kerlingiu getur ekki haft
hana á höfðinu, eu verður að láta bera
hana á undau sér. Þar er og veldissproti
hennar og aðrir skrautgripir, er notaðir
eru við mjög hátíðleg tækifæri. Þar var
og kóróna prinzins af Wales, öll úr skæru
gulli, og þar var hinn frægi gimateinn
Ljósfjallið (Cohinor), hinn stærsti gim-
steinn í heimi; var hann á stærð við rjúpu-
egg. í Tower eru og geymd vopn og
verjur frá ýmsum tímum, eldgamlar byss-
ur o. fl. Þar eru og margar líkneskjur í
öllum herklæðum, þar á meðal flestir Eng-
landskonungar síðan á 13. öld, og er elzt-
ur þeirra Játvarður 1., er situr þar á hest-
baki alvopnaður, og svo hver af öðrum.
Er það allt harla markvert saf'n og ein-
stakt í sinni röð. — Frá Tower fórum við
á gufubát upp eptir Tems að Westminster-
höllinni, er stendur audspænis Parlaments-
húsinu. í Westminster eru merkustu meún
Englendinga grafnir og þar eru afarmarg-
ar líkneskjur, sem óþarft er að telja, því
að meginþorri leseuda „Þjóðólfs“ mundu
eigi kannast við þau nöfn. Til að skoða
Parlamentshúsið að iunan, hefðum við þurft
að fá leyfi frá einhverjum þingmanni, en
nú stóð þing ekki yfir, svo að það var
ekki unnt, enda sagði leiðsögumaður okk-
ur, að þeir væru mjög fáir, er fengju að
skoða það hús að innan. — Frá West-
minster keyrðum við á járnbraut til Kryst-
allshallarinnar, er liggur sunnarlega í bæn-
um, langt fyrir sunnan Temsá. Höll þessi,
sem var reist 1851 úr gleri og járni, er
1608 ensk fet á Iengd, og er afarskrautleg
bygging, en umhverfis hana er svo ljóm-
andi fagurt og íþróttlega ræktað svæði, að
fegurri blett getur trauðlega að líta. Eink-
um er þar afarskrautlegt á kveldin. Þá
er söngur í höllinni og aðrar skemmtanir,
en flugeidar úti fyrir og allt Ijósum ljóm-
að. Er þar þá troðfullt af Lundúuarbúum,
er aka þangað tii að skemmta sér og njóta
fegurðarinnar, enda segja Englendingar
svo, að þar sjái maður Paradís á jörðu, og
við félagar vorum einnig sammála um, að
fegurri sýn gæti varla. Að minnnsta kosti
vonumst við ekki eptir að sjá neitt feg-
urra. Inni í sjálfri höllinni eru afarmargar
likneskjur úr marmara m. fl. og myndir af
Indiánum og ýmsum dýrum og ákaflega
stórt málverkasafn. Þar eru og stórar
sölubúðir inn undir hvelfingunni, og allt
er þar stórkostlegt.
í dag höfum við haft hinu sama leiðsögu-
mann um borgina. Hann segist tala þýzku,
frakknesku, ítölsku, spánversku og portú-
gizku, og hafa fylgt mörgum þúsundum
ferðamanna um borgina, en aldrei neinum
íslendingum fyrri. Var hann hinn við-
kunnanlegasti maður. Fórum við fyrst til
Trafalgar Square, og stendur þar á miðju
torgi geysimikil líkneskja hí Nelson, og
önnur standmynd miklu minni af Gordon
hershöfðingja, er féll við Khartum 1884.
Þaðan ókum við út í Keusingtongarð; þar
er skrautlegt minnismerki yfir Albert
! mann Viktoríu drottningar, og skammt
þar frá er höll sú, sem Viktoría var fædd
í (1819). Steudur þar líkneskja liennar úr
marmara, er á að sýna hana, er hún kom
til ríkis 1837, 18 vetra gömul, en í höll-
inni býr nú markísinn af Lorne, dóttur-
maður Viktoríu, einn af hiuum mestu tign-
armönnum á Englandi. — Svo ókum við til
dýragarðsins og borðuðum þar miðdagsverð.
Er þar margt að sjá, og yrði ollangt að
lýsa því öliu. Svo skoðuðum við British
Museum og er það afarmerkilegt safn,
einkum af fornmenjum frá Egyptalandi,
Assyríu, Indlandi, Grikklandi og Ítalíu.
Er það eflaust citthvert hið fjölbreyttasta