Þjóðólfur - 17.03.1897, Blaðsíða 3
51
stórveldin voru að átta sig á þessu, hafði
grískur herforingi, Vassos, gengið á land
á Krít skammt frá höfuðborginni Canoa,
tekið vígið Aghia á náttarþeli og náð 100
tyrkueskum föngum á sitt vald. Þetta
var 15. febr. Eu í sama bili komu 28
herskip með 11,000 manna frá ölíum stór-
veldunum, er nú höfðu orðið ásátt um að
skerast í leikinn. Þorði þá Vassos ekki
að hafast neitt frekar að næstu 4 daga.
En svo ætla menn, að hann haíi fengið
skipun heiman að, að láta eigi við svo
búið standa, og gerði hann sig þá líkleg-
an til að taka vígið Bukolis. En þá þótt-
ust stórveldin ekki lengur geta staðizt
mátið og tóku að skjóta á Grikki og upp-
reistarmennina. Og mælt er að þeir hafi
leyft tyrkneska hernum að skjóta á Krít-
eyinga meðan þeir voru að taka upp hina
særðu og dauðu úr liði sínu, og hefur það
hvívetna mælzt illa íyrir og snarpar um-
ræður um það orðið í euska parlamentinu.
Þá er svo var komið var Grikkjum uauð-
ugur einn kostur, að láta staðar numið,
því að herfioti stórveldanna ógnaði þeim,
ef þeir hreyíðu sig frekar. Smáir herflokk-
ar af grísku sjálfboðaliði voru annaðhvort
stöðvaðir á miðri leið til Krít og reknir
heim til Grikklauds aptur, eða bönnuð
laudgauga á eyjunni, er þeir voru þaugað
komnir, og er það allt verk stórveldauna.
Við þetta situr eptir síðustu fréttum, og
er enginn efi á því, að Grikkir verði neydd-
ir til að hörfa algerlega burtu og sleppa
öliu tilkalli til eyjarinnar. Gladstoue gamli
hefur í bréfi nokkru farið þessum orðum
um tiltæki stórveldauna: „Ef þér óskið
að vita mína skoðun um alla hegðunstór-
veldanna næstliðin tvö ár, þá játa eg, að
eg er bæði hryggur og reiður, og einmitt
nú virðast stórveldin vera að fylla mæli
siunar eigin svívirðingar“. Á sömu skoð-
un munu flestir hinna göfuglyndari þjóð-
málaskörunga vera í þessu máli.
Á Kuba rekur hvorki né gengur, en
uppreistarmenn hafa jafnan góðar vonir
um, að þeim muni takast að losna undan
oki Spánverja.
Á Indlaudi gengur voðaleg pest eða
„svartidauði", er drepur fólkið unnvörpum,
einkum í Bombay. Þar deyja daglega að
meðaltali 170 manns í Karachi dóu 293
af 320, er sýktust, og á öðrum stað 129
af 180. Allar ráðstafanir til varnar þess-
ari voðalegu drepsótt hafa reynzt árang-
urslitlar, því að íbúarnir skoða þetta sem
refsidóm himuaföðursins, er eigi verði um-
flúinn 0g hirða því alls ekki um noinar
hreinlætisfyrirskipanir, en þvo sér og baða
sig í sama ílátinu, sem þeir drekka úr.
Dr. Friðþjófur Nansen hefur verið á
einskouar sigurhelgiför um Eugland og
Skotland og haldið þar fyrirlestra um i
norðurför sína. Hefur honum sem vænta
má, verið tekið með kostum og kynjum, |
og sæmdur alls kouar heiðursmerkjum,
gullmedalíum o. s. frv. Hefur prinzinn af
WalesL meðal annars mælt fyrir minni
hans. Þykir nú enginn maður frægri en
Nansen, enda hefur duglega verið slegið
til hljóðs fyrir honum, og þó fann hann
ekki „pólinn“.
Dr. Þorvaldur Thoroddsen í Noregi.
Eptir beiðni Iandfræðisfélagsins í Kristian-
íu hélt Þorv. Thoroddsen fyrirlestur í fé-
laginu um ísland hinn 10. febrúar; tal-
aði hann um ástand íslands eins og það
er nú, um þjóðina og atvinnuvegina og
framfarir þær, sem orðnar eru á seinni
árum. Yfir 900 manns hlustuðu á fyrir-
lesturinn og eru langar greinir um hann
í norskum blöðum. Eptir fyrirlesturinn
hélt landfræðisfélagið dr. Þorv. Thoroddsen
veizlu; í samsæti þessu voru margir frægír
vísindamenn og heldri menn, sem sumir
eru;kunnir>hér ;á landi t d. professor Mohn,
prof. Gustafi Storm jarðfræðingarnir prof.
Brögger, prófessor Helland, dr. Reusch
ráðgjafarnir Steen og Astrup o. m. fl. For-
maður landfræðisfélagsins óberst Haffner
mælti fyrir skál dr. Thoroddsens, prof.
G. Storm íyrir minni fslands og prof.
Brögger fyrir skál dr. Thoroddsens sem
jarðfræðings.
í haust hélt dr. Þ. Thoroddsen fyrir-
lestur um jarðskjálftana í landfræðisfélag-
inu í Kaupmannahöfn; þar var konungur
viðstaddur og fjöldi fólks.
f Óli Finsen póstmeistari lézt á
spítala í'Kaupmannahöfn 2. þ. m. af slagi.
Hann sigldi héðan með „Lauru“ síðast til
að leita sér lækniuga gegu steinsótt. Hafði
skurðurinn tekizt vel, en banameinið þó
iíklega að nokkru Ieyti afleiðing hans.
ó. Finsen var læddur í Reykjavík
1. janúar 1832 og voru foreldrar hans
Ólafur Finsen assessor í laudsyfirréttinum
(sonur HanDesar biskups Finnssonar), og
María dóttir Óla Möllers kaupmanns í
Rvík. 1856 var Óli póstmeistari útskrif-
aður úr lærða skólanum, eu 1872 var hon-
um veitt hið Dýstofnaða póstmeistaraem-
bætti. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Hendrikka Andrea, dóttir Morits
Bjeriugs kaupmanns í Rvík og áttu þau
7 börn, en aðeins 2 þeirra eru á lífi, Ólafur
læknir á Akranesi og María kona Ólafs
Ámundasonar verzlunarstj. í Rvík. Með
síðari konu sinni, Maríu dóttur Þórðar há-
yflrdómara Jónassonar, átti hann 5 börn,
sem öll eru á lífi.
Óli Finsen var að mörgu leyti dugn-
aðarmaður i embætti sínu, og vildi rækja
það sem bezt. Eu staða hans var erfið
og vandasöm, og verður þá opt miður
þakkað en skyldi af þeim, er ókunnir
eru. Hann var góðmenni og gæflyndur
í umgengni, bezti heimilisfaðir og yfir höf-
uð vel þokkaður af öllum, er nánari kynni
höfðu af honum.
Póstskipið „Laura“ kom hingað í gær.
Með henni voru kaupmennirnir: Björn
Guðmundsson, Friðrik Jónsson og Geir
Zoéga, Helgi Jónsson cand. mag., Kristján
Kristjánsson cand. med., Jeus Waage stú-
dent, Hannes Thorarensen verzlunarmaður
og Jón Jónsson skipstjóri í Melshúsum.
Emhættispróf við háskólaun hafa þess-
ir laudar tekið: Oddur Oíslason i lög-
fræði með 1. einkunn, Helgi Pétursson í
náttúrusögu elunig með 1. einkuun, Kristj-
án Kristjánsson og Sæmundur Bjarnhéð-
insson hvortveggja í lækuisfræði með 2.
einkunn hinni betri hvor.
Um stjórnárskrármálið heyrist hvorki
stun né hósti frá danska ráðaneytinu.
Svampar hvergi batri
en i veizlun
Eyþórs Felixsonar.
• Ekta anillnlitir te
t»r
fást hvergi eins góðir og ðdýrir eine og rt-
NH í verzlun íc P
s= cö Sturlu Jónssonar
cö Aðalstræti Nr. 14. Þ N—
e-t'
w
•j»n«jnro»
Oturslíinnshúflir ágætar í verzlun
Eyþórs Felixsonar.
LEIÐARYÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsyn-
legar upplýsingar.
lESLeÐfö. fæst keypt í verzlun
Eyþórs Felixsonar.