Þjóðólfur - 19.03.1897, Síða 2

Þjóðólfur - 19.03.1897, Síða 2
64 að sér, eius og í fyrra, gufubátsferðirnar fyrir Norður- og Austurlandi, og birtist áætlun skipsins („Bremnæs") hér í blað- inu. Samkvæmt henni verða ferðirnar 6 milli Hornafjarðaróss og Siglufjarðar, á tímabilinu frá 1. maí til 24. sept., og auk þess 3 aukaferðir til Beykjavíkur og ein til Sauðárkróks. Hr. Tulinins hefur nýlega keypt nýtt gufuskip „Hjalmar“, 330 smálestir, og er þess getið i „Söfartstidende", að það eigi að verða til íslandsferða, er ísafold skilur svo, að það muni jafnvel eiga að koma í stað „Bremnæs“. En það er flestum kunn- ugt, að hr. Tulinius hefur einmitt mörg gufuskip í förum til íslands (Austfjarða) árlega, og tii slíkra milliferða mun skip þetta ætlað. Nú er Faxaflöagufubáturinn væntan- legur frá Mandal siðast í næsta mánuði. Hann hefur 3 farþegarúm og getur tekið um 200 farþega. Á hann að hefja ferðír sínar hér um flóann 6. maí. Hann heitir nú „Reykjavík“ (en áður ,,Tönsberg“). Lausn frá embætti hefur Benedikt Sveiusson sýslumaður sótt um. og mun hann flytja hingað suður. Nokkur orð um vörðuleysið á Hellisheiðarveginum o.fl. Eins og kunnugt er, var vegur þessi lagður yfir heiðina sumarið 1895 og um Kamba sumarið 1894. Allir, sem um veg þennan fara á auðu, eru sammála um, að hann sé hinn vandaðasti, vatnsrúm á hentugnm stöðum o. fl. Vegur sá, sem áður var farinn. liggur nokkru norðar. Þegar vestur á fjallið kemur er alllangur spölur á milii þeirra, sem stafar af því, að eldri vegurinn er fyrir norðan Reykja- fell ofan Hellisskarð — það er bein stefna — ennýi veguriun liggursunnanundirReykja- felli ofan Lágaskarð. Séu leiðir þessar byrjaðar jafn snemma og að eins farinn klyfjagangur, reynist allt að ®/4 kl.st. mis- munur á vegalengdum þessum. Allir kjósa þó heldur að fara syðri leiðina meðan kleyft er, þótt hún sé lengri. En því mið- ur liggur vegur sá víða lágt og safnast því snjór yfir hann á stöku köflum, einkum í brekkunum sunnan undir Reykjafelli. Samt mundi það ekki verða til fyrirstöðu að nota veginn á vetrum, og sannfærður er eg um, að vart mun drífa niður svo mikinn snjó, að sú leið yrði ekki þægilegri og öruggari, en nyrðri leiðin, sem liggur um klungur og gjótur, sem eru afarhættulegar yfirferðar, þá snjór er yfir, og svo, eins og áður er sagt, er Hellisskarð á þeirri leið, sem optast er lítt fært með klyfjaburð á vetrum, þótt farið sé. — Þrátt fyrir örðug- leika þá, sem eg hef þegar talið viðvíkj- andi nyrðri leiðinni, er hún þó fremur not- uð nú að vetrinum, sem stafar af því, að allt frá fornöld hefur sá vegur verið varðaður, og vita það allir, sem um Hellis- heiði hafa farið í myrkri eða byl, að ekki hefði verið unnt að komast til manna- byggða, ef vörðurnar hejðu ékki vísað á leiðina. — Fyrir stuttu fór eg um þennan áminnsta veg, og sá mér til stórrar undr- unar, að meiri hluti af vörðunum fyrir austan Eystri-Þrívörður var annaðhvort alveg dottinn eða hálfhruninn, sem stafar sjálfsagt meðfram af hinum miklu jarð- skjálftum í sumar þar nálægt, og svo hinu, að búizt var við, að gamli vegurinn mundi leggjast niður, þegar nýr, upphleyptur veg- ur kom rétt að kalla við hliðina á honum. Reynslan sýnir nú, að svo er. ekki, enda verður gamli vegurinn alltaf meira og minna notaður af göngumönnum, ef vörð- unum er haldið við, sem sjálfsagt er. Það er því mjög leiðinlegt, að ekki var ráðin bót á þessu í haust, áður en vetrarferðir hófust, því fullyrða má, að varla komi sá dagur, að ekki sé meiri eða minni umferð um heiðina, enda er Hellisheiði fjölfarnasti fjallvegur á landinu. Þá er til nýja vegarins kemur, er þess að geta, að hann er óvarðaður enn, og fyrir því eru menn optast neyddir til, að halda með- fram vörðunum og fara gamla vegiun — eða fara nýja veginn þar til hann þrýt- ur af ófærð, eða menn villast út af honum, sem sem opt kemur fyrir, og lenda svo ef til vill í ógöngum. Út af þessu er það almennt álit, að ekki sé unandi við þetta lengur, og bráð- nauðsynlegt sé, að varða veg þennan hið bráðasta, helzt á næsta sumri. Væri þá bezt að byrja á Kambabrún og setja vörð- urnar þétt með annari hlið vegarins, alla leið niður á Kolviðarhól. Merki (hella eða annað) ætti að vera úr einni hliðinni á þeim og vissi það eptir veginum og í sömu átt á öllum, því ella gæti það valdið rugl- ingi; 50—60 faðmar virðist hæfilegt milli- bil milli hverrar vörðu, annars er það ekki ugglaust, því opt er mjög myrkt upp á fjall- inu, ef vont er. Þrjú dæmi hef eg fyrir mér, sem sýna, að hættulegt er að ferðast nýja vegiun, ef misjafnt er veður og færð. í fyrra lagði ísak austanpóstur við 2. mann og 6 hesta vestur á heiði; áliðið var dags og illt útlit, þeir fóru nýja veginn meðan til sást, kafaldsbylur var á, og töluvert frost. Svo fóru lejkar, að þeir villtust, því ekki var unnt að fylgja veginum, og urðu þeir því að hafast við um nóttina upp á háfjalli, og náðu þeir við illan leik nið- ur á Kolviðarhól morguninn eptir, enda var þá upplétt. — Fyrir stuttu lögðu tveir menn vel hraustir upp á fjall með 8 hesta með klyfjum. Bezta veður var á, og ófærð lítil á nýja veginum; réðu þeir því af að að halda hann; þegar vestur á fjallið kom datt á þá svartabylur með frosti, þeir villt- ust út af leiðinni, lentu í klungrum og ó- færum, urðu þeir því að taka af, og nátta sig þarna upp á fjalli, og er ekki að vita, hvaða skaði af þessu hefði hlotizt, ef ekki hefði birt upp snemma daginn eptir, og þeir náð vestur af fjallinu. Þriðja dæmið er af göngumönnum, sem fóru eptir veg- inum, meðan unnt var, en villtust sem hinir, en náðu þó með mestu herkjum á Kolviðarhól, og hrepptu þeir sem hinir, er í raunir þessar höfðu ratað, hinar alúðar- fyllstu viðtökur hjá hinum vel þekkta gestgjafa þar, Guðna Þorbergssyni, sem lætur sér einkar annt um að taka sem bezt á móti ferðafólki; en ýmsra örðug- leika^vegna er honum það ekki unnt, eins og viljinn býður. Af þessum og fleirum dæmum, sem auðvelt væri að nefna, er vegurinn nú mjög illa rœmdur, og fullyrða má, að und- ir sömu kringumstæðum verður hanu ekki farinn nema þá bezt og blíðast er, eða á auðu, og mun hann þá helzt til dýr að liggja ónotaður þann tíma árs, sem mest ríður á góðum vegi. í þess stað er veg- urinn nú hálfgerð svikamilla, — en hættuleg getur hún orðið fyrir líf og eignir manna, ef ekki er aðgætt í tíma. Bitað í febrúar 1897. Símon Jónsson. Önundarfirði 22. jan.: „Héðan er fátt að frétta, nerna óbagstætt árferði eins og víðar síðast- liðið ár. Sumarið var fremur óþurkasamt og nýt- ing á heyjum því mjög siaem, samfara grasbreati, og varð heyskapur því með rýrara móti, sem hafði i tör með sjer skepnufækkun töiuverða. Haustið var mjög rosasamt og sjógæftir þvi mjög strjálar, enda var afli miklu minni eu undanfarin haust, og mest af því smáfiskur og ýsa, sem mjög reynist létt á metum kaupmannsins, enda létu fáir eða engir blautfisk inn í verzlanir í haust, með því flestum mun hafa þótt verðið lágt, þar sem gefnir voru að eins 4 aurar fyrir pd. í málfiski, 3 aurar fyrir smáfisk og 2 aurar fyrir ýsu, og verður lítið úr afla manna með slíkum kjörum og taka svo út

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.