Þjóðólfur - 03.05.1897, Qupperneq 2
86
Hinn 19. f. m. andaðist í Kaupm.höfn,
ekkjufrú Jofrlður Sigurðardóttir (kaup-
manns Johnsen í Flatey) ekkja Jóns Guð-
mundssonar kaupmanns frá Flatey, góð
kona og vel að sér ger. Dóttir hennar
Guðrún, er gipt Birni kaupro. Sigurðssyni
í Flatey.
Sýslufundur Árnesinga var haldinn dag-
ana 6.—8. f. m. Um 60—70 mál voru þar rædd,
og voru þessi hin helztu, samkvæmt eptirfarandi
skýrslu, dags. á Byrarbakka 11. f. m.:
1. Skoðaðir hreppsreikningar; reyndust sumir rétt-
ir og aðrir rangir, eins og að undanförnu.
2. Borið upp og samþykkt, að fara þess á leit við
þingmenn Árnesinga, að flytja á næsta þingi
frumvarp til laga um að laun yfirsetukvenna
verði eptirleiðis greidd fir landssjðði, og var
þess um leið getið, að sýslnsjðði sé um megn að
borga laun þessi, sökum hinna miklu útgjalda,
sem á honum hvíla.
3. Lesið upp bðnarhréf frá Guðna Þorbergssyni
veitingamanni á Kolviðarhóli, um 60 kr. styrk
af sýslusjóði til þess að geta betur staðið í stöðu
sinni með hey og annan nauðsynlegan greiða
handa ferðamönnum. Nefndin var styrk þess-
um samþykk, en áleit þð réttast, að suðuramtið
í heild sinni styrkti Kolviðarhðlsbúann, og lof-
aði því að gera sitt til, að amtsssjóður léti eitt-
hvað af hendi rakna við hann.
4. Samþykkt að skipta Stokkseyrarhrepp í tvö
hreppsfélög.
6. Samþykktur styrkur til gufuhátsins, eins og að
undanförnu, og verða ferðir álíka margar og í
fyrra. Ekki var verzlunarstjðrinn á að rýmka
til um farmgjald, en lofaði að sjá um, að ferða-
áætlun bátsins hverja ferð yrði miðuð við 4—6
daga (áður 6—8).
6. Kosinn varaamtBráðsmaður séra Magnús Helga-
son á Torfastöðum.
7. Sveitaverzlun var leyfð hr. Eggert Benedikts-
syni í Laugardælum.
8. ítrekaðar voru bænir um, að 4 brúarstæði verði
skoðuð og flutningabrautin verði ákveðin, og á-
ætlaður kostnaður til þess hluta hennar, sem
liggja á frá Eyrarhakka til Ölfusárbrúarinnar,
sem virðist sjálfsagður og bráönauðsynlegur.—
Var samþykkt, að vegasjóður sýslunnar leggi
allt að helming kostnaðar, eða allt að 12,000 kr.,
til þessarar vegagerðar, gegn því, að landssjóð-
ur kosti hitt, og ef ákveðið verði, að lokið sé
við veg þennan fyrir næstu aldamót. — Þetta
er að líkindum eitthvert fyrsta tilboð um að
styrkja að vegagerð með landssjóði; er því mjög
líklegt, að tilboði þessu verði síður hafnað.
9. Langar og harðar umræður urðu um jarðskjálfta-
skaða-matið í ýmsum hreppum sýslunnar. Óvíða
þótti of hátt. í Hraungerðishreppi færði nefnd-
in matið upp um helming. Að öðru leyti lét
nefndin uppi álit sitt um réttmætan skaða hvers
hrepps, og á álit það að geta verið góð leiðbein-
ing fyrir þá, sem skipta eiga gjöfunum. Til að
mæta á fundi jarðskjálftagjafanefndarinnar í
Reykjavík voru kosnir: Sigurður Ólafsson sýslu-
maður, séra Magnús Helgason á Torfastöðum
og Jón Árnason dbrm. í Þorlákshöfn.
10. Talsverðar umræður urðu um, hvort kaupa skyldi
að minnsta kosti hálfan Tryggvaskála við Ölfus-
árbrú. Töldu nokkrir það mjög hentugt hús,
að halda þar i hina stærri fundi: kjörfundi,
þingmálafundi o. fl., vildu spara sér með þessu
kostnað við hús á öðrum stað, því búizt er við,
að sýslusjóður þurfi að byggja skýii yfir brúar-
vörðinn við Ölfusárbrúna. Sakir andmæla frá
séra St. Stephensen á Mosfelli og einnig séra
Vald. Briem var samþykkt að Iokum, að fresta
þessu máli. Töldu þeir þennan stað ekki nærri
einB hentugan fyrir fundi og þann, sem notaður
hefur verið. Sá fyrnefndi vildi byggja skýlið
yfir vörðinn heima á Selfossi, en ekki mun það
hafa verið samþykkt, enda mundi brúargæzlan
þá verða að eins að nafninu.
Sem viðbót við skýrslu mína get eg þess, að
hreppstjórinn í Stokkseyrarhreppi er nú að enda við
að meta upp jarðskjálftatjðnið þar. í haust var
það metið 1800 kr., en nú er álitið, að skaðinn sé
um 13,000 kr. Líklegt cr, að skaðamatið kynni
víðar að hækka, ef líku væri beitt, því sannast hef-
ur síðan metið var í haust, að stórar skemmdir
hafa komið fram á veggjum og þökum, sem þá
voru ekki séðar. S.
Af ófriðnum millum Tyrkja og Grikkja
bárust engar markverðar nýjar fréttir nú
með „Laura“. En að því er sjá má, höfðu
Grikkir eigi þokast látið til muna síðustu
2 dagana, og eigi hefur soldáni þótt Ed-
hem pasja líklega nógu snar í hreyfingum,
því að hann svipti hann yfirstjórn hersins
í Þessalíu og setti í hans stað Osman pasja,
er frægur er fyrir framgöngu sína í ó-
friðnum millum Tyrkja og Rússa 1877—78
(einkum við Plevna). Er hann nú sextug-
ur að aidri (f. 1837). Á sjó veitti Grikkj-
um betur. Því var jafnvel spáð, að Bolg-
arar og Serbar myndu snúast í lið með
Grikkjum gegn Tyrkjum, en þó ekkert af-
ráðið um það. — Víðsvegar á Englandi
eru haldnir æsingafundir til að tala máli
Grikkja og skorað á ensku stjórnina að
láta ekki þá svívírðingu viðgangast, að
Hund-Tyrkinn fái í næði að berja á Grikkj-
um. En auðvitað hafa þesskonar fundir
eigi mikla þýðingu.
Banatilrœði var Húmbjarti Ítalíukon-
ungi sýnt 22. f. m., en hann slapp með
snarræði undan rýtingslagi morðingjans.
Skiptapi varð á Akranesi 28. f. m.,
fórst bátur með 3 mönnum á, í fiskróðri.
Formaður Guðmundur bóndi Guðmunds-
son í Lambhúsum, dugnaðarmaður og vel
metinn.
Veðurátta er nú hin versta. í gær
ofsarok á norðan með frosti og fannkomu
til sveita. Slitnaði þá upp hér á höfuinni
frakkneskt skip, „St. Paulu, og rak upp í
klettana við Klapparvör. Það er spánnýtt,
mjög fallegt og vandað hjúkrunarskip fyr-
ir frakkneska fiskimenn og hafði að sögn
kostað um 128,000 franka.
Sjöl—Sjöl-Sjöl!
Stórt úrval. Óvanalega ódýr.
Fást í verzlun,
Friðriks Jónssonar.
Vallarstræti 4.
Þareð verzlanir P. C. Knudtzon
& Söns í Reykjavík og Keíiavík hafa
verið lagðar niður, og skuldir og inueign-
ir fluttar til verzlunar sömu eigenda í
Hafnarfirði, þá tilkynnist hlntaðeigendum
hérmeð, að inneignir manna frá nefudum
verzlunum verða greiddar frá Hafnaríjarð-
ar verzlaninni og skuldirnar verða kallað-
ar inn af undirskrifuðum verzlunarstjóra
G. E. Briem í Hafnarfirði, og vii eg við
þetta tækifæri biðja þá, sem skulda verzl-
an P. C. Knudtzon & Söns, og ekki
hefa samið við mig þaraðlútandi, að láta
mér í Ijóai, sem allra fyrst, á hvern hátt
og hvenær eg megi vænta borgunar á
skulduuum, því það getur verið báðum
betra, að eg verði búinn að fá vitneskju
um það, hvað menn hafa hugsað sér í því
tilliti, áður en eg fer að krefjast skuld-
anna á annau hátt.
Þessi tiimæli mín ná til allra, er skulda
nefndri verzlun, eins þeirra, er nú fara
í önnur héruð til þess að leita sér atvinnu
í sumar.
Hafnarfirði 28. apríl 1897.
(x. E. Briem.
Gardínutau, stórt úrval, f*st í
verzlun Friðriks Jónssonar.
Agent,
sem sækir kaupmenn heim, getur fengið
umboð fyrir elztu verksmiðju Danmerkur
í bleki og lituuarefnum til heimalitunar á
ull og vaðmáli. Yiðkomandi verður að
útvega sér góð meðtnæli.
P. Itönning & Gjerlöff.
Kjöbenhavn K.
Waterproof-kápur fyrir karlmenn
og kvennmenn íást í verzlun
Friðriks Jónssonar.
Að gefnu tilefni gefst aluienuiugi hér-
með til vitundar, að verzlan P. C. Knudt-
zons & Söns í Hafnarfirði, verður uudir
forstöðu sama verzlunarstjóra, haldið á-
fram um óákveðin tíma, á líkan hátt og
að undanförnu, að öðru leyti en því, að
það verður máske minna lánað og dálítið
ötular gengið eptir skuldum en hingað til.
Hafnarfirði 30. apríl 1897.
G. E. Briem.