Þjóðólfur - 27.08.1897, Page 1

Þjóðólfur - 27.08.1897, Page 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendje 5 kr. — Borgiet fyrir 15. J61i. Uppsögn, bundin yifl áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. Þ J 0 Ð Ó L F U B. XLTX. árg. Reybjarík, fíJstudaginn 27. ágúst 1897. Nr. 41. Síðasta liepti Kambsránssðg- unnar er- nú fullprentað og Terður sent nú með strandferðaskipunum („Vestu“ og ,,Bremnæs“) og landpóst- um til útsolumanua Þjððólfs TÍðsvegar um land, og annara kaupenda, er skil- vísir liafa reynzt. Hór í Reykjavík og grenndinni (Crullbringusýslu) verður þetta síðasta lxepti afhent. hverjum kaupanda um leið og hann borgar þennan yflrstandandi árgang. Grjald- dagi var 15. júlí. W&T Frá næsta nýári (1898) verður Þjóðólfúr í miklu stærra iu’oti en nú, og tölublöð jafnmörg, en verðið sama. Xánara augiýst síðar. A fdrif stj órn arskrárbreyti ngar- imiar á þingi. Endurlit. Sakir þess að ýmsir greindir og gagn- fróðir menn, er þó hafa nokkurn veginn fylgzt með gangi stjórnarskrármálsins á Þ*DSi i þetta sinn, hafa kvartað um, að þeir hag ekki fuiikomlega getað áttað sig á atkvæðagreiðslnnni í neðri deild 21. þ.m., þykir vel við eiga að skýra í stuttu sam- hengi frá gangi máigins í þetta skipti, með því að það hefur verið nokkur krabba- gangur á því, og atkvæðagreiðslurnar nokk- uð undarlegar, svo að það er allerfitt fyrir óviðkomandi menn að glöggva sig á því eptir einstökum blaðagreinum. En auðvitað verður hér mjög stutt yfir sögu farið. Þar er þá fyrst til máls að taka, að þegar í þingbyrjun bar dr. Valtýr Gtuð- mundsson upp í neðii deild eins konar frumvarpsnefnu um breytingar á stjórnar- skránni, en jafnframt komu skilaboð frá dönsku stjórninni fyrir munn landshöfð- ingja, að hún mundi fallast á þetta frum- varp, með því skilyrði, að stjórnarbarátta íslands væri með því til lykta leidd. Nú Þötti bleðill þessi svo úr garði gerður, að nálega engir neðri deildar menn vildu um það leyti við honum líta, sízt óbreyttum, nema að eins einn (Jón Jensson). Hins- vegar þótti mörgum tillögur landshöfðingja í brjefi til ráðgjafans 20. des. 1895 miklu aðgengilegri grundvöllur til að byggja á, og að því hneigðist meiri hluti deildar- innar þá. Samt sem áður var þó Valtýs- frumvarpið eigi fellt þá þegar, en hnoð- aðist í nefnd, og þar átti flutningsmaður- inn svo erfitt uppdráttar með þennan unga sinn, að hann varð einn síns liðs gegn 6. Lofaði hann þá þegar að taka frumvarp sitt aptur, en meiri hlutinn (Ben. Sveins- son, Gtuðl. Gtuðmundsson, Klemens Jónsson, Pétur Jónsson, Sigurður Gunnarsson og Skúli Thoroddsen) komu raeð annað frum- varp, byggt á tillögum iandshöfðingja. Þá er á fund kom var frumvarp Valtýs fellt með atkvæðagreiðslu, sakir þess, að hann hafði lýst því yfir, að frumvarp meiri hlutans væri byggt á sínu frumvarpi, sem alls ekki var, og vildí meiri hlutinn því ekki kannast við það. Nú var þá Valtýr í raun og veru úr sögunni. En þá tóku að sjást undarleg veðrabrigði á lopti i deild- inni. Tveir meiri hluta menn (Guðl. Guð- mundsson og Skúli Thoroddsen) lýstu því yfir, að þeir væru ekki samþykkir einu aðalatriðinu í frumvarpi meiri hlutans, er þeir höfðu þó sjálfir skrifað undir, en það var ákvæðið um, að sérmái íslands skyldu ekki borin upp í ríkisráði Dana. í því bili hefur sá Vondi eflaust farið ofan í suma þingmenn, þótt eigi sæjust þess ljós merki á öllum í það sinn. En hann hefur þá þegar farið að spila innan í þeim, þótt aðrir heyrðu það eigi. Karlmennsku- hugurinn var þá ekki harðari en svo, eða trúin orðin svo sterk, að þeir hefðu full- komið áræði til að greiða atkvæði gegn frumvarpi meiri hlutans, eða gera breyt- ingar við það, samróraa Valtý, heldur vörpuðu öllum vandanum á efri deild í fullu trúnaðartrausti nm, að hún gerði þetta fyrir þá. Og í þeirri von hjá sum- nm var frumvarp meiri hlutans samþykkt í neðri deild með 19 samhljóða atkvœðum, þar á meðal af Valtý sjálfum(M), en 4 greiddu þá eigi atkvæði með því (Einar Jónsson, Jón Jensson, Jón í Múla og Ólaf- ur Briem). Nú kom málið með þessum atkvæða- fjölda til efri deildar. En hún hafði þá fengið veður af því, að breytingar á frum- varpinu væri sumum í neðri deild all- kærkomnar, enda varð nefndin, sem skip- uð var í efri deild, svo náðug, að breyta frumvarpinu þannig, að það nálgaðist meir hið upphaflega Valtýsfrumvarp, auk þess, sem ákvæðinu um ríkisráðið var kippt burtu. Og þessi frumvarpsnefna var sam- þykkt í efri deild með eins atkvæðis mun, og hefur áður verið skýrt frá því í Þjóð- ólfi, hverjir greiddu þar atkvæði með og móti. Meðan málið var í verksmiðju efri deild- ar, höfðu Valtýsliðar í neðri deild sótt í sig veðrið og safnað nýju þreki og kröpt- um, svo að nú þóttust þeir hvergi smeik- ir, og mun meiri hlutinn í efri deild hafa gert sér góðar vonir um, að frumvarpið þeirra yrði hvorki fellt né apturreka, enda munu þeir hafa þóttzt eiga skilið að fá eitthvað fyrir snúð sinn, er þeir höfðu svo meistaralega leyst hina bundnu hugs- un Valtýsliðannna í neðri deild. Það kom og brátt í ljós, þá er stjórn- arskrárnefndin gamla í neðri deild fór að athuga efri deildar frumvarpið, að lávarð- arnir höfðu hitt naglann á höfuðið, því að nú skárust þeir Guðlaugur og Skúli ber- sýnilega úr leik og gengu beinlínis í !ið með Valtý í hinu nýja nefndaráliti. Vildu þeir þremenningarnir nú fallast óskorað á frumvarp efri deildar, en hinir 4 nefnd- armennirnir, er áður var getið (Benedikt, Klemens, Pétur og Sigurður) héldu hinni fyrri stefnu óbreyttri, og gerðu grein fyr- ir skoðun sinni í rækilegu nefndaráliti, um leið og þeir réðu deildinni til að gera þær breytingar á frumv. efri deildar, er færðu það öldungis í hið fyrra horf, eins og það hafði verið samþykkt áður í neðri deild (með 19 samhlj. atkv.). Svona horfði málið við, þá er það kom aptur til umræðu í neðri deild 21. þ. m. Það var allmikill ys og órói í þingsölun- um þá á laugardagsmorguninn, áður en fundur var settur. Það var auðséð, að sumir hinir ofstækisfyllstu þingmenn voru

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.