Þjóðólfur - 27.08.1897, Qupperneq 4
166
ig var það, að þá er ávarpið skyldi koma
tii umræðu í deildinni kl. 9 í gærmorgun,
létu þessir 10 Yaltýsliðar (Björn Sigfúss.
Guðl. Guðm., Halidór Dan., Jens Pálss.,
Jón frá Stafaf., Jón Jenss., Jón Þór., Sk.
Thoroddsen, Þ. Thoroddsen og Valtýr
Guðm.) eigi sjá sig á þingi, og þá er
sent var eptir þeim fundust þeir hvergi.
Hafa ef tii vili setið einhversstaðar að sam-
drykkju upp á velferð þjóðarinnar (!!).
Að þjóðkjörnir þingmenn skuli verða
til þess, að gera sig seka í slíku gerræði
og ofbeidi, er eigi að eins fyrirlitlegt og
þjóðkjörnum fulltrúum til stórrar vansæmd-
ar, heldnr einnig sorglegt tákn tímanna og
háskalegt atferli, er getur haft afarískyggi-
legar afleiðingar í för með sér, því að á
þennan hátt getur ósvíflnn minni hluti,
ef hann að eins er rúmur þriðjungur deild-
armanna ávallt hindrað framgang hvers
einasta máls á þingi. Og það væri held-
ur laglegt ástand, ef sú venja tæki að
tíðkast. Á þennan hátt, geta t. d. hinir
konungkjörnu í efri deild bundizt samtök-
um að sundra öllum málum, sem þeim væru
á móti skapi. án þess nokkur gæti við
það ráðið. Þessir skrúfumenn í neðri d.,
þjóðkjörnu þingmennirnir, hafa nú riðið á
vaðið með þessa sómasamlegu (!) þingvenju.
Þetta dæmi sýnir Ijóslega, hversu langt
menn geta leiðzt á glapstigu á þingi, ef
forsprakkar flokkanna eru nógu samvizku-
mórauðir í vali meðalanna, og það sýnir,
á hve háskalega braut Valtýsflanið hefur
dregið suma fulltrúana á þessu þingi, enda
mælist þetta tiltæki hvarvetna mjög illa
fyrir utanþings og innan, jafnvel hjá hin-
um öflugustu stjórnarsinnum í efri deild,
og hafi verið unnt að gera málstað þess-
ara Valtýsliða dekkri í augum þjóðarinn-
ar, en áður var gert, þá hafa þeir nú sjálf-
ir gert hann svo svartan, að frekar verð-
ur naumast áaukið. Þetta er einmitt hæfi-
leg kóróna á fraœkomu þessara þjóðfulltrúa
á þessu þingi, og mun enginn öfunda þá
af slíku djásni, er þeir hafa skreytt sig
með þinglokadaginn. En hérna á árunum
hefði einhverntíma heyrst hvinur í vestur-
átt, hefðu mótstöðumenn endurskoðunar-
innar hegðað sér svoua.
Vonandi er, að þetta tiltæki hafl eigi
skaðvænlegar afleiðirigar eða eptirköst á
starfsemi þingsias eptirleiðis. En það er
ekki þeirn að þakka, sem nú hafa gengið
á undan í þessu, sem rniður lofleg fyrir-
mynd íslenzkra þjóðfulltrúa.
Þá fór efri deild þó öðruvisi að ráði
sínu með sitt ávarp. Þar voru Valtýs-
liðar fyrst í meiri hluta og sömdu ávarp-
ið frá sínu sjónarmiði, en minni hlutinn
g&t með samkomulagi komið breytingum
að, svo að hann varð í meiri hluta að
lokum. Auðvitað er það ávarp litlaust,
en þó miklu skárra, en hið upphaflega,
er biskupinn samdi í Valtýs anda.
Skriðuhlaup urðu allmikil á, Seyðisfirði að-
faranótt 15. þ. m. Hafði rignt mjög nokkra und-
anfarna daga, einkum hinn 14. og nóttina eptir,
og óvanalega mikill vöxtnr hlaupið í ár og læki.
Mestan skaða gerði skriða, er hljóp á Bóðareyri
utarlega; klofnaði hón, er niður kom, í tvennt, og
rann önnur kvíslin niður á land Otto Wathne, inn-
an við tvö pakkhús (Mandalshúsin), sem hann á
þar, og niður á pall og bryggju fram með húsun-
um, braut þar og bramlaðí allt, sem fyrir varð;
hin kvíslin beygði út á við að veitingahúsinu (Stein-
holti), kom fyrst á stðrt hesthús og fjós fyrir ofan
veitingahúsið, braut það að mun og drap þar um
20 hænsn (en kýr, sem var í fjósinu, náðist síðar
ómeidd út), féll svo á veitingahúsið, þokaði því ör-
lítið til á grunninum og skemmdi nokkuð efri hlið
þess, féll síðan niður í sjó utan við hús pöntunar-
félagsins, skemmdi þar nýbyggðan húsgrunn og
fyllti kjallarann með aur og leðju; þar varð og
undir skriðunni allmikið af timbri, er norskur timb-
urkaupmaður (Sörensen frá Mandal) átti þar í landi,
ennfremur nokkuð af reiðtýgjum og farangri Hér-
aðsmanna, sem voru þar í kaupstaðarferð, og ýmis-
legt fleira. Dað var á 5. stundu um nðttina, er
skriðan féll, og flestir þá í fasta svefni, en vökn-
uðu við hinar ógurlegu drunur í fjallinu, og
jörðin skalf þar eins og jarðskjálfti væri á ferð-
um, enda hafði stór klettur í fjallinu sprungið
fram og steypzt niður með skriðunni, og heljar-
stór björg liggja nú víðsvegar, þar sem skriðan fór
yfir, innan um aurleðjuna, en mikið fðr þó alla leið
niður í sjó. Önnur skriða, miklu stærri, féll og
um sama leyti úr Strandatindi niður í sjó, utar-
lega á ströndinni, nokkru utar en yztu húsin þar,
og gerði því litinn skaða. Hestar nokbrir, er Hér-
aðsmenn áttu, voru þar á beit í fjallshlíðinni, er
skriðan féll, en þeir tóku til fótanna, er þeir heyrðu
gauraganginn í fjallinu, og komust allir undan
henni. Mörg minni skriðuhlaup féllu þessa sömu
nótt, bæði sunnan og norðan megin fjarðarins, og
gerðu flest meiri og minni skaða. — í Loðmundar-
firði félln og allmargar skriður, og gerðu þær mest-
an skaða á Úlfsstöðum, skemmdu þar til muna
bæði tún og engi, tóku með sér um 40 hestburði
af þurru heyi, og talið líklegt, að eitthvað af sanð-
fé hafi einnig orðið undir hlaupunum. í Mjóafirði
féllu og skriður víða báðum megin fjarðarins, og
gerðu flestar nokkurn skaða, en óvíða þar mjög
mikinn. [Eptir bréfi af Seyðisfirði 18. ág.].
Tíðarfar hafði nm alllangan tima verið kalt
og mjög votviðrasamt á Austfjörðum, er Bremnæs
fór þar um. Reitingsafli af síld í flestum fjörðun-
um, en hvergi aflast þar neitt að mun af henni.
Fiskafli er og yfirleitt fremur rýr eystra, enda
gæftir eigi góðar. — Á Norðurlandi hafa verið
óvenjulega mikil votviðri í sumar, og nýting heyja
því mjög ill.
Aðalfundur Gránufélagsins var hald-
inn á Seyðisfirði 3. þ. m. Var þar, meðal annars,
samþykkt, að félagið gæfi 100 kr. til hins fyrirhug-
aða spítala á Seyðisfirði.
Hvalveiðabáturinn norski, „Friðþjófur",
sem strandaði við Þórshöfn í sumar, er nú kominn
til Seyðisfjarðar. Keyptu þeir Otto Wathne og
verzlunarfulltrúi W. Backe bátinn í félagi fyrir 100
kr., eins og hann lá í fjörunni, og tókst þeim
bræðrum, Otto og Tönnes Wathne, að ná honum á
flot 4. þ. m.; drógu gufuskipin „Elín“ og „Egeria“
bátinn þá út á háflæði og höfðu hann svo á milli
sín á leiðinni til Seyðisfjarðar. Talið er víst, að
Wathne muni ætla sér að hafa bátinn til hvalveiða
síðar, þegar aðgerðinni er að fullu lokið.
S kemmtis amkomu (þj óðminni n gardag)
héldu Múlasýslubúar að Egilsstöðum á Völlum
sunnudaginn 8. þ. m. Kotnu þar saman full 300
manna úr Héraði og Fjörðum. Skemmtu menn sér
við ræðuhöld, íþróttaiðkanir (hlaup, stökk o. fl.),
söng og dansleik fram eptir kvöldinu. Mun flest-
um hafa þótt samkoma þessi ágæt hressing, og
hafa því í huga, að halda slíka skemmtisamkomu
á hverju sumri eptirleiðis. Veður var hið bezta
allan daginn, þó rigndi dálítið seinni hluta dags-
ins.
Dr. Þorvaldur Thoroddsen er nýkom-
inn hingað úr rannsóknarferð nm Húnavatnssýslu,
og siglir héðan til Hafnar með „Laura“ 2. Bept.
Hefur hann nú farið yfir og skoðað allt ísland,
nema heiðarnar suður og vestur af Langjökli, og
ætlar hann að rannsaka það svæði næsta sumar.
Hann hefur í sumar fengið vandað gullúr sem
beiðursgjöf frá ensku laudfræðifélagi fyrir rann-
sóknir hans hér á landi, og er letrað á úrið all-
langt mál frá gefendunum.
Gæzlustjóri landsbankans er kosinn af
efri deild alþingis Kristján Jónsson yfirdómari í
stað Benedikts prófasts Kristjánssonar frá 1. júlí
1898. — Gœzlustjóri Söfnunarsjóðsins kosinn af
efri deild Jón Jensson yfirdðmari. — Yfirskoðun-
armenn landsreikninganna eru kosnir þeir bræður
Jón Jensson yfirdómari og Sigurður prófastur Jens-
son í Flatey.
„Vesta“ kom hingað í gær. Farþegar með
henni: Árni Thorsteinsson (landfógeta), Friðrik
Friðriksson stúdent, Jón Jónsson skipstj. í Mels-
húsum, Gísli Finnsson járnsmiður og 2 Englend-
ingar. — Friðurinn milli Tyrkja og Grikkja var
enn eigi fullsaminn um 20. þ. m. Káðaneytisfor-
setinn á Spáni, Canovas del Castillo, var myrtur
8. þ. m. Nákvæmari útlendar fréttir í næstablaði.
Alþingi var alitið kl. 4V2 e. m. í g*r.
Nokkrar breytingar, en þó óverulegar,
urðu á fjárlögunum í sameinnðu þingi-
ySV Nánari fregnir af þinginu í nœsta
Uaði, er liemur út á þriðjuduginn 31. þ. m.
Fundizt hefnr á veginum frá Kotströnd að
Kögunarhól í Ölfusi böggull með kvennfatnaði í.
Eigandinn vitji hans að Syðstumörk undir Eyja-
fjöllum, mót borgun þessarar auglýsingar._
Hannyrðabókin fæst á afgreiðslu-
stofu pjóðólfs.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Félagsprentsmiðj an.