Þjóðólfur - 22.04.1898, Síða 3

Þjóðólfur - 22.04.1898, Síða 3
76 Kaliforníu, og meiri hluti þeirra var hálfvilltfr Indí- ánar. Árið eptir fyrsta gullfundinn, voruíbúamir orðn- ir um 3 miljónir, og ávallt komu nýir og nýir hópar inn í landið. Maður sá, er þessumstórkost- lega þjóðaflutningi olli hét James Marshall. Hann var fátækur bóndi, er bjó í dal nokkrum við ræt- ur Klettafjallanna. Einhverju sinni, er hann var pæla upp akur sinn, rakst hann á gljáandi, há" gulan stein. Hann tók hann upp, hreinsaði hann Tækilega og, sýndi hann einum nágranna sínum, fyrverandi skólakennara frá Englandi, er hafði verið vikið frá embætti fyrir þjófnað og lifði nú þarna sem veiðimaður í litlum kofa. Hann keypti gula steininn fyrir 40 krónur af Marshall, er var harðánægður með verðið og fór glaður heim til sín, en nágranni hans fór daginn eptir til San Francisco, og seldi þar steininn gullsmið nokkr- um fyrir 5°° krónur. En þetta var í rauninni hnullungur af 24 „karata“ skíru gulli, allur sam- an. Mánuði síðar seldi Marshall landeign sína .gullnemafélagi einu fyrir 20,000 krónur, en fór sjálfur hátt upp í fjöllin til að leita að gulli, og honum heppnaðist það mætavel. Hann var hálft ár við gullgröptinn, og keypti því næst veitingahús í einum hinna mörgu bæja, er þá voru að þjóta upp. Jafnframt tók hann að gefa sig við fjárgróða- fyrirtækjum. Hann keypti stór landflæmi, seldi þau aptur innflytjendum, og græddi þannig stór- fé. En smátt og smátt fór auðsæld hans þverr- .andi. Fjárgróðafyrirtæki hans urðu æ glæfralegri og glæfralegri, og einn góðan veðurdag var hann orðinn félaus maður. Hann andaðist einmitt nú í vetur (í febrúar) á fátækrahúsi í San Francisco. Svona er hamingjan stundum fallvölt hér í heimi. Prentvilla hefur slæðst á einum. stað inn í grein séra Árna á Kálfatjörn í 17. tölubl: fall- byssubol, á að vera: fallbyssutó/. Pöntun upp á IO krónur. Þeir ntenn út um land, sem panta vefn- aðarvörur af einhverju tagi fyrir minnst 10 krönur hjá mjer, fá þær sendar sjer kostn- aðarlaust með póstskipunum til allra hafna, er þau koma við á, ef þeir senda borgunina með pöntununum. Sje eitthvað ofborgað, verður það sent til baka með vörunum, sem pantaðar eru. Pöntuninni verður að fylgja sem nákvæmust lýsing á því, sem um er beðið, og til hvers það á að notast. Ef tilbúin vinnuföt eru pöntuð, verður að senda mál af þeim, sem þau á að nota, tekið yfir um manninn efst undir höndunum. Hlutir, sem ekkilíka, eru teknir til baka fyrir fullt verð, ef þeir eru sendir hingað um hæl mjer að kostnaðarlausu og efþeir eru í jafngóðu ásigkomulagi og þeir voru, þegar þcjir voru sendir hjeðan. Lán veitist alls ekki. — Jeg kem til að hafa miklu meiri birgðir af alls- konar þýzkum og frönskum vefnaðarvörum þetta ár en að undanförnu og með mjög lágu verði. Menn geta pantað hvaða vefn- aðarvörutegund, er menn óska og sem vant er að flytja hjer til Reykjavíkur. Reykjavík, 23. marz 1898. Björn Kristjánsson. Fundizt hefur silfurfingurbjörg. Rit- stjóri vísar á finnanda. Tilbúinn fatnaður, Jakkaföt úr góðu efni og allt, sem til þeirra þarf, nýr diplo- matfrakki og vesti úr fínu klæði, ljósleit sumarföt mjög lítid brúkuð og brúkaður diplomatfrakki er til sölu fyrir mjög gott verð hjá Reinh. Andersen. (Glasgow). Hinar ágætu og alþekktu Prjónavélar frá herra SIMON OLSEN Kaupmannahöfn, sem mjög eru orðnar útbreiddar hér á landi, má ávallt panta hjá Th. Thorsteinsson, Reykjavík, (Liverpool). Ekta anilínlitir Ekta anilínlitir. fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og í verzlun , Sturlu Jónssonar Aðalstræti Nr. 14. t-kta anilínlitir. Árs atvinna. Ötull og heilsugóður verkmaður getur fengið ársatvinnu strax. Kaup 400 krónur borgað í peningum. Ritstj. vísar á. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Prentsmiðja Dagskrár. 64 upp að brjósti hans; hún var svo glöð yfir því, að öll þessi hræðsla var úti — það voru þau sannarlega bæði. Á meðan þau stóðu þarna var dyrunum lokið upp og Möller og sonur hans gengu inn. — Það varð mikið um dýrðir — Möller óskaði þeim til hamingju, því hann var samþykkur þessum ráðahag og skólastjórinn var vingjarnlegur við Pétur og talaði alls ekki um að hegna honum, svo að honum fannst þungum steini af sér létt. í raun og veru gat hann ekki hugsað sér meiri heiður, næst því að vera sjóræningi, en að vera mágur skólastjórans síns. Lára faðmaði föður sinn að sér með tárin í augunum og kyssti Pétur, síðan gekk hún til skólastjórans, strauk litlu, hvítu höndinni yfir enni hans og — þá fyrst var Thorsen skólastjóra Ijóst, að hann væri trúlofaður — trúlofaður í raun og veru, en í rauninni gat hann ekki gert að því. Málaflutningsmaðurinn í klónum á kölska. Gömul saga. Það var einu sinni málaflutningsmaður, er hét Kornelíus, eink- ar ráðvandur maður og hafði þess vegna auðvitað lítið að gera og átti erfitt uppdráttar. Hann hafði með naumindum getað borgað húsáleiguna fyrir fyrsta missirið; það var komið að krossmessu og hánn hafði ekki einn eyri í vasanum. Já, og þar við bættist það, sem verra var, hann hafði orðið ástfanginn 61 Lára saumaði í ákafa en þó flausturslaust, því að hið kyr- láta og spaka eðli hennar speglaðist í vinnu hennar, spor eptir spor á hinni þraðbeinu leið, sem saumurinn myndaði. Hvað ætli hún hafi hugsað umf Hún hugsaði um, hvað notalegt væri í þessari litlu stofu, hún hugsaði um, hversu henni þætti vænt um hinn herðabreiða, gráhærða mann, sem sat gagnvart henni og beygði sig yfir teikniborðið. Hún hugsaði einnig um, hvort allur klæðnaður Péturs væri í lagi — já, Pétur var nú í skólanum og skóla- stjórinn var Thorsen. Hún saumaði með aðgætni hið hvíta, smá'gerfa lérept, en sífellt sá hún þó hin stóru, blíðu augu skóla- stjórans frammi fyrir sér. Hann var ágætur maður og þá var hann ekki síður hygginn. Smámsaman fengu hugsanirnar vald yfir henni og vinna hennar féll niður í kjöltuna. Hún horfði utan við sig út um gluggann og án þess að hún vissi neitt af því rispaði hún með nálinni í gluggakistuna fyrst T, síðan h, svo o,—r,^—s,— e, og loks n, en í endanum á n’inu varð krók- urinn beinlínis hræðilegur og í því bili kom hún til sjálfrar sín, stóð upp af stólnum og sagði: »En hvað er þetta? — Faðir minn, sjáðu! — Nei, hvað er þetta, þarna kemur skólastjórinn æðandi berhöíðaður — hann kemur hingað inn!« »Hrri!« ságði Möller um leið og hann lagði ritblýið frá sér, en sat þó kyr. Dyrunum var hrundið upp og Thorsen skólastjóri æddi inn. Lára varð beinlínis dauðhrædd af útliti hans og Möller sneri sér jafnvel við og horfði á hann með spyrjandi augna- ráði. Skólastjórinn opnaði munnirin, en kom engu orði upp; hann tók'utan um hálsinn ‘á sér, eiris og hann væri að kafna,

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.