Þjóðólfur


Þjóðólfur - 03.05.1898, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 03.05.1898, Qupperneq 2
82 ara og mikilvægara, en »Nýju-Öldina*, því að ótrúlegt er, að þingmenn hafi hugsað sér að launa þess háttar »ritstörf« af almannafé, Veitingin til G. Zoéga skólakennara 500 kr., mælist og fremur illa fyrir; það má segja að nú sé öldin önnur, en þegar forfeðurnir voru að skrifa sín snildarrit, sem hafa haldið ís- lenzku þjóðinni mest á lopt í hinum mennt- aða heimi. Það sést ekki af sögunni, að þeir hafi farið bónarveg til þingsins um að sér yrðu veitt ritlaun. En þá var heldur enginn landssjóður til handa vissum gæðingum til að gramsa í. Hin nýja stefna, sem komin er inn á þingið frá prestastéttinni, að létta ár- gjöldum af brauðunum, og gefa eptir skuldir, sýnist ekki heppileg. Haldi þingið þeirri stefnu áfram, er ekki ólíklegt, að þeim fjölgi drjúgum> er álíti þetta fyrirkomulag þjóðkirkj- unnar kostnaðarsamt, og fari þá fyrir alvöru að hugsa um aðskilnað ríkis og kirkju. Eg og fleiri hér eru á þeirri skoðun, að vér höfum ofmarga presta í samanburði við fólks- fjöldann, nú á þessum tímum, þar sem barna- skólar eru komnir víðast í kauptúnum og sjóplássum og umgangskennsla víðast til sveita. Margar menntastofnanir hafa aukþess komizt á fót í seinni tíð, sem létta undir með prestunum í uppfræðingu ungdómsins. Það er mín skoðun, að prestarnir mættu vera langtum færri, en þeir nú eru, og legðu þá alla sína krapta fram í þjónustu kirkjunnar. Frumv. um viðaukalög um utanþjóð- kirkjumenn, er vonandi, að næsta þing sam- þykki óbreytt eins og það kom frá efri deild. Það er frelsismál. Úr Rangárvallasýslu ritar annar merkur atkvæðamaður blaðinu 21. f. m. „Um pólitík er hér lítið rætt. Að vísu lesa menn hér blöðin, margir sér til stór- leiðinda og gremju, þ. e. að segja sum þeirra, sem alltaf eru að flytja marg-þvættar og upptuggnar greinar um stjórnarskrármálið, og eru nú ekki færri en þrjár stefnurnar á lopti í því máli; getur verið að einhverjir verði búnir að finna út aðrar þrjár í viðbót fyrir næsta þing, sem útséð er nú um, að ekki verði fyr en 1899, þrátt fyrir gagnstæða spádóma þeirra 16 þingm. í sumar. Annars vinna blöðin, líklega þeim sjálf- um óafvitandi, hraparlegt ógagn þessu aðal- máli voru, þar eð mörg þeirra virðast ekki geta um það skrifað, nema að blanda inn í mjög dónalegum uinmælum og aðdróttunum um þingmenn þá, sem ekki æru af því sauða- húsi, sem blaðið fylgir, og þykir mönnum „ísafold" vera allt of framarlega í þeim flokki, þegar litið er til þess, að ritstjórinn er fylli- lega kominn til vits og ára og ætti að sjá, hvað málefninu er fyrir beztu. »Þjóðviljann unga« lesa hér fáir nú orðið, menngetahaft nær sér jafnkostgott kryddmeti, sem hann hefur að færa, og engum mundi bregða, þótt þær fréttir kæmu, að »Bjarki« hætti að sjást. »Nýju Öldina« minnist enginn á. Hún sést varla hér um slóðir. En eg fyrir mitt leyti hef aldrei haft trú á Jóni Ólafssyni sem póli- tíkus, og hef það ekki enn, og svo munu fleiri vera. Þó að Valtýskan eigi hér fáa sem enga fylgjendur og sé nú til dauða dæmd, tala menn hér í sýslu rólega um báðar eða allar stefnur malsins, án þess að sverta þá, sem eru á annari skoðun. Það sem mönnum hér sariiar mest við Valtýs-flokkinn á síðasta þingi, er það stráks- lega tiltæki hans að eyðileggja síðasta þing- fund neðri deildar, og þar með koma í veg fyrir, að maklegt þakkarávarp frá deildinni í nafni þjóðarinnar væri flutt konungi vorum og drottningu hans fyrir þær stórkostlegu gjafir, sem þau gáfu og gengust fyrir að gefnar yrðu til að bæta úr landsskjálftatjón- inu, og hafa þessir þingmenn, sem voru 'í þeim flokki stimplað sig með óafmáanlegu letri, sem seint mun verða afmáð í augum annara þjóða, en það erum vér allir Islendingar, sem berum þá blygðun fyrir gerræði þessara manna “. Fleipur ,Nýju Aldarinnar*. Það má varla minna vera, en að eg sendi ritstjóra „Nýju-Aldarinnar“ ofurlitla kvittun fyrir sendingu þá, er hann vék að mér og Þjóðólfi í blaði sínu 29. f. m. En eg vil biðja lesendur Þjóð- ólfs fyrirfram afsökunar á, að eg í þetta skipti neyðist til að verja nokkuð miklu rúmi í blaðinu til andsvars gegn illviljaðri árásargrein, er hr. J. 01. hefur soðið saman, öldungis upp úr þurru, annaðhvort af eigin hvötum eða fyrir fjárhalds- mann sinn, þingmanninn í Landakoti, sem hefur verið eins og súrsaður í ediki, síðan minnzt var á hann í Þjóðólfi næstl. haust í sambandi við Vestu-útgerðina. Eg skal þá fyrst geta þess, að það er afar- margt athugavert við þessa prédikun N. A., er ritstj. hefur nú birt almenningi eptir 7 mánaða undirbúning, og það er eigi erfitt að sýna fram á fleiprið í þessum Jónsbókarlestri. Það hafa víst flestir veitt því eptirtekt, hversu mikið yndi hr. J. Ól. hefur af öllum smásmugleg- um orðasamtíningi, líklega til þess að sýna, að hann sé svo mikill smekkmaður og málfræðingur. Hann tínir t. d. saman einstök orð og setningar úr greinum annara manna, allt slitið út úr sam- anhenginu og lagað(!) á ýmsan hátt. Hann á að því leyti og ef til vill í fleiru sammerkt við Grá- koll gamla, er beitti þeirri aðferð i níðinu um Benedíkt Sveinsson í „Isafold“ næstl. vor. Mér virðist einmitt aðferð hr. J. Ól. gegn Þjóðólfi nú eitthvað svipuð þessu, þótt í smærra mæli sé. Hann vitnar í örfá orð og setningar úr löngum pólitiskum greinum, er stóðu í Þjóðólfi um þing- tímann næstl. sumar, setningar, sem auðvitað áttu ekki að hafa neitt sannanagildi út af fyrir sig, og allir blaðamenn bregða fyrir sig í heitum og fjör- ugum kappsmálum, J. Ól. sjálfur, engu síður en aðrir. Og þá er hann hefur tínt upp þessi ör- fáu orð, svo ákaflega hróðugur, þá smellir hann óðar fram ályktuninni af þessari dásamlegu rök- semdafærslu sinni, þar sem hann segir: „Og svona [já, einmitt svona] má ganga [því ekki þaðj gegnum allt blaðið fram til þessa dags [hann á það víst eptir] ekki ein lína af röksemd- um [nokkuð þunn rök, hr. J. Ól.] ekki ein setning [ja, hver þremillinn!] til að skýra fyrir lands- mönnum eðli málsins [það gerir víst enginn, nema J. Ól. einnj en því meira af vatnspóstastýl [nýtt og smekklegt orð frá J. Ól.. eins og »laspur„(!) i sömu grein] oghnífilyrðum [sællnafni] o. s. frv. þarna • er röksemdafærsla J. Ól.lifandi komin. Slíkt fleip ur út í loptið kalla eg sleggjudóm og ekkert ann- að. Sjálfur talar hann um „órökstudda" sleggju- dóma, en eru sleggjudómar ekki ávallt og að sjálf- sögðu órökstuddir? Það er annars furðu skoplegt að heyra hr. J. Ól. að vera að vanda um dálítið óvæginn rithátt annara manna. Þad skartar allra manna sízt á honum, manni, sem löngum hefur verið og er orðlagður fyrir óheflaðan munnsöfnuð á prenti framar flestum öðrum. Eða hvenær hafa menn séð öllu sóðalegri rithátt, en sumt í skömmum J. Ól. t. d. um Grím Thomsen, Tryggva Gunnars- son, Benedikt Gröndal, Gest Pálsson o. m. fl. áð- ur fyrrum, að ógleymdum Heimskringluósómanum í deilunum við Einar Hjörleifsson vestra, sem „tók út yfir allan þjófabálk"? Það er aldrei rétt að tala um snöru 1 hengds manns húsi. Ef stíll Þjóðólfs á heima hjá vatnspóstunum, þá veit eg ekki, hvar stlll Jóns Ólafssonar ætti heima, nema ' ef það væri á sjómannaknæpum hinum lakari^ sem orðlagðar eru erlendis, einkum í stórum hafnabæjum. Og hið einkennilegasta er, að allar hinar svæsnustu skammir J. Ól. hafa snúizt um „persónurnar" en miklu sjaldnar um almenn mál,. eða stjórnarfar yfirleittt. Það hefur að minnsta kosti verið allt annar blær á þeim aðfinningum. Af því að hr. J. Ól. getur þess í sambandi við persónulega viðkynningu af mér, að hann þekki mig ekki aptur, þá er eg fari að skrifa, þá má einmitt segja þetta sama um J. Ól. sjálfan. Eng- inn mun geta neitað því, að hann sé mjög kurt- eisíframgönguogviðmótj, mjúkurámanninnog við- ræðuþýður, en þá er hann tekur pennanrl verður annað uppi á teningnum, þá verður kurteisin ekki; svo ýkja mikil að öllum jafnaði, og það er ein- mitt þessi óvenjumikla breyting á manninum, er svo margir hafa jafnan furðað sig á,miðað við still- ingu hans og hógværð í persónulegri viðkynningu.. Og þessi hamskipti eru einmitt bersýnilegri hjá J. ÓL, en nokkrum öðrum manni, sem eg þekki. Hann hefði því átt að láta þetta skeytr, er hann hefur sent mér liggja kyrt hjá sér heima á hyllu.. Dóm. hr. J. Ol. um pólitik Þjóðólfs læt eg. liggja mér í harla léttu rúmi f sambandi við svo lagaða röksemdafærslu, er hann hefur fært fyrir sínu rnáli og áður er getið. Eg skal taka það skýrt fram, að eg hef jafnan gert mér far um að leggja einmitt áherzlu á þau aðalatriði, er almenn- ingur getur skilið, svo stutt og ljóst, sem mér hefur verið unnt og eg hygg, að mér sé óhætt að segja, að það sem Þjóðólfurhefurlagttilstjórn- mála vorra í minni tíð hafi verið lesid og lesið með meiri atfiygli en margra dálka þvælur og upptuggur annara blaða, sem ef til vill hafa hvorki skilið sjálf málið, og því síður getað gert það skiljanlegt fyrir almenningi með löngum orðaflækj- um, gagnslausu þrefi og moldviðrisrugli, sem sár- fáir lesa og engin vekjandi áhrif getur haft á menn, er þurfa að fá stutta og ljósa útlistun á höf- uðatriðum þeim, sem um er að ræða. Og einmitt þá aðferð hefur Þjóðólfur haft að rita stutt og al- þýðlega um málið, en forðast allar málalenging- ar og myrkviðursþvælur því að eg tel það eitt. aðalmarkmið blaða, að allur þorri skynsamra manna skilji það, sem um er ritað. Það er um að gera að „vekja" fólkið en svæfa það ekki.. Einmitt þessari sömu Þjóðólfs reglu hefur t. d.. »Þjóðviljinn ungi« fylgt optast og öllu fremur þó jafn leikinn stjórnmálamaður, sem séra Sigurður Stefánsson í Vigur, þá er hannritar, ogberþó hr. J... Ól. sjálfsagt mikla virðingu fyrir honum sem »pólitikus«. En einmitt sakir þessa tel eg séra Sigurð skæðari sem „praktiskan pólitikus" og áhrifameiri en alla »Nýju-Öldina« og „ísatold" til samans með öllu þeirra þrefi og kringilyrðum. Og það get eg sagt, þótt eg nú sem stendur sé algerlega ósamþykkur stefnu séra S. St. — Það stendur líklega eitthvað í sambandi við þetta„ hversu J. Ól. er meinilla við pólitik Þjóðólfs, að hann sér, að bollaleggingum N. A. er ekki mikill gaumur gefinn af almenningi. Hr. J. ÓI. hefur orðið fokreiður af því, að nokkur skyldi minnast á „einurð" Þjóðólfs. Að tala um einurð hjá nokkrum manni eða nokkru blaði nema J. Ól. og N. Ö. gengur sjálfsagt hneyksli næst. Það er náttúrlega hann einn, þessi mikli frelsispostuli, sem lagt hefur allt í söl- urnar fyrir sannleikann og réttlætið næstliðin 30 ár, og þessvegna á hann víst ekki einn »rauðan« eyri í buddunni nú, eptir því sem hann sjálfur segir, allt líklega farið í þarfir fósturjarðarinnar, allt fyrir föðurlandið, fyrir að halda fram málum, sem fjárhagsleg »hætta og óhagnaður hefur hlotizt af«. En hver þau mál hafi verið er mér reyndar ekki vel ljóst í svipinn. — Eg get ekki með öllum mínum bezta vilja betur séð, en að öll pólitík hr. J. Ól. frá upphafi til enda hafi verið stöðugur krabbagangur og hringsól úr einni stefnu í aðra„ út og suður, austur og vestur. En einmitt af pvi, er hann vitanlega afarhreykinn, eins og öllu öðru hjá sjálfum sér. Það er ávallt hin »æðri og betri þekking«, sem hann hefur orðið aðnjótandi við hverja einustu stefnubreyting. Hann ætti því nú að vera kominn á hið allra hæsta vísdómsstig í pólitíkinni, sem mannlegum anda er unnt að ná, og það er svo sem auðheyrt, að hann er sjalfur fulltrúa um, að svo sé. Eptir 30 ára óþrotlegan eltingaleik viðsannleikannværiþaðundarlegt, ef hr- J. 01. væri nú jafn langtáeptir honum, semibyrjun

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.