Þjóðólfur - 18.11.1898, Page 2
214
í haf. Á Vestmannahafnarsundinu í Færeyj-
um lentum við aptur f þoku og lágum þar
bundnir 20 stundir. Síðan var veður bjart
og nenni eg ekki að tefja frásögnina á meiru
Færeyja-tali. En það segi eg, að sé nokk-
urt land hér í heimi til, eða þjóð, sem okk-
ur sé vorkunnarlaust að bjóða byrgin og
hlífa ekki, þó „diplomatfkin" ekki væri svo
ýkja hrein, þá eru það Færeyjar. Mætti þar
hálft ísland vel byrgja sig upp annað hvort
ár með blautfiski, en skattgilda „grindina"
eða taka ella og setja í súrt! En aðr-
ir meina, að við hingað til höfum hvergi
nærri sýnt þeim frændum vorum nægilega
velvild og virðingu. Má margt af þeim læra;
eru þeir að öllu samtöldu leiknari og þoln-
ari sjómenn og fiskimenn en við, en líka
manna vandaðastir í viðskiptum, og engir
ættlerar.
Fyrir austan eyjarnar horfðum við á
hvalveiðara, er var að vinna á heljarmiklum
„fiski“. Það var reyður. Skall á hennihvert
sprengikúluskotið á fætur öðru, en þó hljóp
hún í hálftíma eða lengur með skipið, eins
og trylltur hestur með tóman sleða, og
„bakkaði" þó skipið með vélinni allt hvað
aftók. Hinn 19. ágúst árla sáum við gamla Nor-
eg; var það eyjaklasinn úti fyrir Norðhörða-
landi, er oss bar að, og héldum við skömmu
síðar fyrir Hólmann grá, þar sem Slembir
var fangaður og drepinn, og minntist eg
kveðlinga ívars Ingimundssonar:
„Hraut í stöngum þars hildingar
vanir við víg vápna neytto;
slitnaði friður frænda miðli
guður geisaði, gekk Hildr saman, — og
þat telk illa er jöfurr skyldi
kynstór koma í kvalar slíkar
Tekur Sigurði slðan engi
maðr röskvari um meðalkafla".
All-löng er innleiðin til Björgvinar, og
fríkkar eptir því sem eyjar og hlíðar verða
grösugri og skógríkari; liggur leiðin inn hjá
Aski og tekur þá skjótt við Vogurinn hinn
nyrðri, aðalhöfn borgarinnar. Askur er all-
stór ey. Þar heimsótti Egill gamli kunn-
ingja sinn signor Bergönund, og optlega er
þeirra eyja getið. Víða sér í bergið
hvítgrátt innan um grenið, því allt berg er
þar frumberg eða granít.
Brot úr menning-
arsögu íslands.
[Úr annál eptir Björn Bjarnason á Brandsstöðum
í Blöndudal: Lbs. 3i68vo].
Það er kunnugt, að eptir brunafellirinn 1784
komu mikið góð ár allt til 1791, en þá voru
skepnur svo ofúr fáar, en grasvöxtur mjög œikill,
því allt graslendi var yfirþakið með sinu, svo
menn fundu lítið til, þó snjóskorpu gerði eður
gróðurlítið yrði, og jafnvel þó manneklan væri
ógnarleg og flestir bændur einyrkjar, var atorka,
dugnaður, iðni og sparsemi brúkuð, hafi það
nokkum tíma verið. Allir menn, er gátu borið
sig, fóru vestur til sjóróðra kringum Jökul, en ei
suður. En konur og unglingar hirtu skepnumar.
Allar hendur, sem til nokkurs liðs voru, unnu
að prjónlesi; það var nú kaupstaðarvaran; sokk-
ar vel stórir á 9 skildinga, ull var mjög lítil og tólg
brúkuð til matar, mjöltunna 4—5 rdl., en rúg flutt-
ist lítið; þá voru fáar kvarnir, þó hreppur hver
ætti eina kvöm, og einstöku fóru nú að búa
þær til, helzt sunnanlands, en ofur-dýrar útlend-
ar, og sem minnst var nú keypt af óætum, út-
lendum vörum. Kúpeningur fjölgaði óðum, sauð-
fé miklu tregara, og mörgum urðu hrútlömb
fleiri; allra bágast var að fjölga hrossunum, en
tamin og brúkuð vom þau á öðm ári. Mikið
mein gerðist af þvl, að hey var of lítið að ala
skepnur á eptir vild sinni, þó það mörgum vel
tækist, einkanlega var lftil taða, misjöfn aðferð
og hagnýting áburðarins, klíning brennt, en sauða-
tað vantaði, máske hrísi lítið hlíft o. s. frv. En
svo var skepnum vel gefið, sem vit og heyföng
vora til, en úrgangi máske sumstaðar ómælt brennt,
því bezt þurfti að ala hrossin, þau gerðust líka
ótrúlega væn, ei minna á lagt, en tólf fjórðunga
fiskabaggar með þungum reiðing og ofan í milli
og mjöltunna í bagga úr kaupstað. Undarlegt
var það, að fjallagrös níddust í brananum, en
kræðan ekki og gekk fólk fram á heiðar og tók
mikið af henni á stuttum tíma, og lagði 1 stóra
bagga; hún fór að niðast, en grösin spruttu lítt
i 3 ár. Fiskiafli var hér norðanlands vor og
haust, hvar sem útræði var, þá ei bannaði haf-
isinn. Vindhælishreppur var líka á þessu tima-
bili talinn langbeztur að efnum og búnægtum i
Húnavatnssýslu og Fljótin í Skagaf.sýslu. Þessar
sveitir höfðu fénað, sem þær fremri, og þar með
marga duglega formenn, er áttu eptir því væn
og ei allfá skip. Sú önnur orsök: optast góður
sjávarafli. Þegar lengi var íslaust, aflaðist vor
og haust rétt vel hér á Skaga og ströndinni. A
Hafnabúðum voru 12—18 sjóbúðir og ein skips-
höfn í hverri, vora formenn af ströndinni og
framan úr sveitum, hver sem farið gat frá heim-
ilum reri ytra, og aflaði á vorinu 5—6 hundr.
af stórum þorski, nokkuð smáþyrsklingi með og
heilagfiskislimum, og á haustin x—3 hndr. mest
af þorski, sem allt var heimflutt, og munaði þá
um aðdrátt þennan, sem áttu skip og nokkra
menn á, það sá llka á Vindhælishreppsmönnum,
er flestir voru auðugir eður vel megandi, svo í
tali var 1784, að hann einn gyldi sýslugjaldið
eptir Húnavatnssýslu. — Eptir því sem megun
fór fram, og um fleiri skepnur var að hirða,
lögðust af verferðir vestur, sem gerðar voru að
liðnum jólum, til þess að ná vetrarvertfð, er byrj-
aði eptir þrettánda, og náði til páska, því vorvertíð
hófst eptir páska, og um aldamót mátti kalla af
lagt til sjóróðra vestur að fara, en samt keyptu
flestir fisk þaðan, því sunnan netfiskur þótti lítt
ætur, hjá þeim góða hjallþurkaða vestan-freð-
fiski og ýsu, en sunnan-ýsan þótti mest bein og
hreistur. En eptir 1792 tókust upp verferðir
suður, þegar frí-höndlarinn fór að borga mikið
vel þorskfiskinn, jafnvel þó ei væri gagnharður,
því hann var vanalega feitur, og netfiskur gerði
30 vel vættina; bárust fyrir hann miklir peningar
á landið í bankaseðlum mest, og talsverðu af nýrri
silfurmynt Kristjáns VII, en áður var mest af
krónumynt (einfætingum), þýzkum keisaradölum
og holienzkum í landinu. — Þriðja orsök: lág
útgjöldbúendanna. i.Til vinnufólks mjög lítiðkaup,
vinnumannskaup 4 rdl. og ókostbær fatnaður.
Vinnukonur upp á föt og fæði, fengu að eiga
kind, þá betur var nokkurt silfur utan á sig,
kistu o. s. frv. Ætti hún barn, var það sumstað-
ar haldið reikningslítið, þá faðir gat ei með þvf
gefið. En lausaleiksböm vora þá mjög fá, því
nokkur peningasekt lá við, þó leysing og ráð-
spjallsbætur væru að öllu burtu teknar. — 2.
Landsskuldir borgaðar 1 bankaseðlum 4 rdl. 48 sk.
í hundr., sem fór nú að fást fyrir tvær fiskavætt-
ir. Leigum þótti lint að svara, vfða af einu kú-
gildi. 3. Hreppsútsvar óvíða meir en tíundin, en
borga mátti hana í gildum álnum, en skyldum
ómögum var enn þrengt niður, sem mögulegt var
á náunga. 4. Þinggjöld og til prests og kirkju:
alin borguð með 41/? sk., 1 rbseðill í skatt og lög-
mannstoll o. s. frv. Annars voru nú gjöld til
presta mikið rýr, sumum af þeim gekk líka þungt
búskapurinn. 5. Kaupverzlun: útlend höndlun
fór nú batnandi, einkanlega á harðfiski og lýsi,
ull og tólg var hér nyrðra á 9 sk. en mjöl og
rúgtunna allt að 5 rdl., pijónles steig minna upp,
sokkar á 12 s., vetlingar á 6 og lambsskinn, sem
eru líklega óhræranleg í prís. Fjártaka var á Ak-
ureyri, og ráku stöku menn sauði þangað, er
komust á 3 rdl. og betur höfðu þeir beztu farið;
af matvöra var nú lítið tekið: 1 og 2 tunnur á
heimíli, jám eptir þörfum, steinkol 1—4 kútar,
tóbak af mörgum tekið og almennt lært af sjó-
mönnum, að brúka það, sem fór nú að stígaallt
að tú-marki; brennivín tekið á einn kút á heimili,
allur fjöldi fólks smakkaði það ekki, þó vorutil
drykkjumenn, og létu flestir illa í kaupstaðnum,
þjóðinni til vanvirðingar í útlendra nærveru; þessi
vara komst nú bráðum á 2 mörk, frá 13 sk. taxt-
anum. En það bezta við alla höndlun var, að
peningar bárust nógir, þá vora þeir á lausu fyr-
ir allt fémætt, sem hver hafðitil miðlunar; fé og;
smjör færðist upp árlega, en sunnlenzkir keyptu
væna sauði á 3 rdl. Það bar líka við, að vam-
ingur var útprangaður við kvennfólk, fyrir nóg
af smjöri; sfðustu árin komst ull, tólg og smjör
sunnanlands á 16 sk. Ær hér í sveit á 10 og 11
mörk, gemlingar 7 mörk, væn lömb 4 mörk.
Kaupafólk fór nú að koma í sveitimar nokkuð,
fleira var það að vestan en sunnan, en það var
helzt úrvals-fólk að dugnaði og vinnu, en kaup-
gjald var allt að 3 fjórðungum, eða sauður góð-
ur á viku. Kaupakonur vora sárfáar, líka var
til nokkuð af lausamönnum ýmislega, og sumir
græddu góðan bústofn á fáum árum, aðrir lögð-
ust í svall og drykkjuskap o. s. frv.
(Niðurl.)
Úr höfuðstaðnum og grenndinni.
[Ofsavedur. — Oddfélagahúsid fokid. — Laugarnes-
sþítalinn. — Aðrar skemmdir].
Ofviðri mikið af suðvestri var hér dagana
13. og 14. þ. m., og urðu nokkrar skemmdir af því.
Samkomuhús Oddfélaganna reykvíksku sunnan við
tjörnina tók upp, og fuku flökin úr því langar
leiðir. Eitt þeirra rakst á steinhús Einars bónda
Ingimundssonar í Skálholtskoti, brautþar glugga,
og fór nokkuð af því gegnum hann inn í her-
bergið og mölvaði þar ofnpípu og eitthvað fleira.
Fólk svaf í herberginu og var mesta furða, að
það sakaði ekki. Munu Oddfélagar bæta eig-
andanum þann skaða, er af þessu hlauzt. Ann-
að flakið mölvaði einnig glugga á öðru húsi þar
í Skálholtskoti. Voru menn um morguninn 14.
þ. m. að tína saman sprekin úr húsinu hingað
og þangað upp um Þingholt, Húsbúnaður, bæk-
ur og skjöl Oddfélaganna, er geymt var í hús-
inu, þyrlaðist og burtu að sögn, en mun flest
hafa fundizt aptur, meira og minnaskemmt. Sum-
ir segja og, að sjóður reglunnar hafi fokið, en
það er eina bótin, að þeir félagar (12 að tölu)
eru nógu vel efnum búnir til að bæta tjónið,
sem eigi hefur verið alllítið. Hús þetta vár
byggt eptir spánnýrri tízku, kenndri við Döcker
nokkum og er hún aðallega fólgin í því, að hús-
inu er krækt saman af mörgum hlutum, er svo-
má taka sundur, þá er vill, og flytja úr stað,
en þessi byggingaraðferð, svo »praktisk«, sem
hún kann að vera, virðist eigi vera heppileg hér
á landi. Það er betra, að það sé ekki neitt
hrófatildur, sem á að standast ofsaveðrin hér.
Önnur bygging Oddfélagareglunnar (dönsku)
Laugarnesspítalínn,varðog fyrir nokkrum skemmd-
um í ofviðri þessu. Fuku þar meðal annars plötur
af reykháfum og lamdist ein þeirra ofaní þakið,
svo að hún stóð þar föst. Heyhúsið þar við
spítalann fauk nær um koll, svo að það dingl-
aði á grunninum, en ekkert hey var í þvt. Ann-
ars er nú þegar miður vel látið af allri þessari
umfangsmiklu og marglofuðu spítalabyggingu.
Það kvað meðal annars rigna (og fenna) inn um
gluggana, og ofnarnir reykja svo, að bezti hangi-
kjötsreykur kvað vera inni í herbergjunum, en
verst er þó, að veggjapappinn virðist vera öld-
ungis ótækur, og rifnar hann og gliðnar 1 sund-