Þjóðólfur - 21.03.1899, Blaðsíða 2
um til þess að hrista af sér syndimar! Það
getur orðið æði erfitt, því að Þjóðverjar eru
margir og nauða syndugir. Þess skal getið, að
stjórnarblaðið, sem flutti ræðu þessa, hafði slegið
stryki yfir syndirnar, en lét keisara segja, að hann
heíði ásett sér að styrkja samkomulagið meðal
þegna sinna eða því um líkt.
í stað William Harcourt’s er Henry
Campbell-Bannermann orðinn foringi vinstri
manna á þingi Englendinga. Hann er 63
ára gamall og hefur verið hermálaráðgjafi í ráða-
neytum Gladstone’s og Rosebery’s. Hann kvað
vera miðlunarmaður, standa mitt á milli »imp-
erialista« (þeirra, sem auka vilja nýlendueignir
Englands) og andstæðinga þeirra, vinstrimanna-
flokksins gamla. — Gæzluskip Dana við Færeyjar
klófesti nýlega ekki minna efi 23 botnverpinga
fra Grimsby og lét dæma þá í vanalegar sektir.
Þingmaðnr Grimsby-inga dró málið óðara fram
í parlamentinu og skoraði á stjómina að senda
herskip til Færeyja til varnar botnverpingum og
gat þess, að varnarskip Englendinga við Island
hctði gert mikið gagn. Stjórnin svaraði, að fyr-
irspurn væri þegar send til dönsku stjórnarinnar,
en annars gæti hún ekki tekið málstað botn-
verpinga, þegar þeir træðu lög annara landa
undir fótum. —
Apturhefur bólað á ágreiningi milli Frakka
og Englendinga, sem þó ef til vill þegar er að
jafnast. Frakkar vildu kaupa land í Muskat af
soldáninum 1 Oman til þess að hafa þar kola-
stöð; en Bretar sem alstaðar hafa í seli, mót-
mæltu og soldán þorði því ekki. Eptir seinustu
fregnum lítur þó út fyrir, að Frakkar muni fá
leyfi til að reisa þar kolabúðir, ef þeir hætta við
landkaupin.
Jámbrautarslys afarmikið varð 18. f. m. við
stöð þá, er Forest heitir, í nánd við Bryssel.
Um 30 manns drápust við samrekstur lestanna,
50 stórsködduðust og yfir 100 manns meiddust
meir eða minna. Slysið orsakaðist á sama hátt
sem við Gentofte hér í landi 1897; önnur lestin
stóð kyr á áfangastaðnum, hin kom hvæsandi
með fleygiferð og muldi öptustu vagnana; hafði
vélstýri ekki séð stöðvunarmerkið fyrir þoku.
Drottningin í Belgíu kvað liggja hættulega
sjúk.
I janúarmánuði voru j arðskjálftar miklir i
Grikklandi og gerðu talsverðan skaða, sama
fréttist og um þær mundir frá Mexiko.
Kona Ferdinands fursta í Búlgarlu, Mar-
ía Lovísa andaðist í janúarm. síðastl. að eins
29 ára gömul. Hún var dóttir Roberts hertoga
af Parma (af ættinni Bourbon).
Héðan úr Danmörku er fátt að frétta.
Af mannalátum má nefna: professor Studsgaard,
yfirlækni við »Kommunehospitalet« og líflækni
Kristjáns konungs.
Háskólaprófessor í sögu Edv. Holm hefur
fer.gið lausn frá embætti, og er bókavörður, dr.
phil. J. A. Fridericia skipaður í hans stað.
Margir landar munu kannast við prof. Holm
sem einn af þeim allra viðfeldnustukennurumvið
háskólann.
Auðmaðurinn og ölbruggarinn Carl Jac-
obsen hefur gefið landi sínu stórt safn aflista-
verkum (det gamle Glyptothek), sem er metið á
10 miljónir króna, að eins með því skilyrði, að
byggt verði hæfilegt hús handa sa^inu. Boðinu
50
hefur verið tekið fegins hendi. Húsið, sem á að
gizka mun kosta */2 miljón kr., verður líklega
reist í nánd við hið svo nefnda Ny Carlsberg
Glyptothek, sem hann áður hefur gefið landinu.
Læknir Sven Aage Rasmussen kvað vera
skipaður læknir við kaþólska spítalann á Fá-
skrúðsfirði.
Kaupmannahafnarbær hefur, eins og kunn-
ugt er, lengi verið stærsti bær á Norðurlöndum
og þó einkum vaxið á seinni árum; en nú er í
ráði að færa takmörk bæjarins út yfir Brönds-
höjhrepp og vex flatarmál hans allt að helm-
ingi við það, íbúatala þar á móti ekki að því
skapi.
Þess hefur áður verið getið, að kapteinn
Daniel Bruun ætli að fara í Andréeleit til Græn-
lands; en nú er þó talið tvísýnt, hvort nokkuð
verður úr þvf. Prófessor Nathorst í Svíþjóð
kvað líka búast í Grænlandsferð í sama tilgangi
og þar eð Svíar þykjast næstir til að leita að
landa sínum, halda menn, að B. muni láta N.
hata æruna af ferðinni! Annars hefur nú geis-
að ný flugufregn um Andrée, sem þó hefur
reynzt eins ósönn og allar hinar. Fregnin kom
frá Krasnojarsk, höfuðstaðnum í fylkinu
Jeniseisk í Síberíu.
Óskar Svíakonungur varð sjötugur að aldri
21. jan. þ. á., hann var sjúkur 'um þær mundir,
en nú á góðum batavegi.
Á Ungverjalandi eru þau tíðindi orðin, að
ráðaneytið Banffy er vikið trá völdum og nýtt
ráðaneyti myndað af Koloman Szell. Ráðgjafa-
forsetinn, sem er 55 ára gl. kvað vera æfður og
vel metinn »politíkus« og af frjálslynda flokkin-
um. Það lítur út fyrir, að allir flokkar uni ráð-
gjafaskiptunum vel og að nú loksins komi hlé á
óróann og sundurlyndið bæði meðal Ungverja
innbyrðis og í samningaviðskiptum þeirra við
Austurrlki.
Öðruvlsi stendur á 1 Finnlandi. Undir
eins og Bobrikow varð landstjóri, bólaði á því
að eitthvað nýtt væri í vændum í þá átt að
skerða stjórnarréttindi landsins, eins og áður
mun áminnst, og við auglýsingu 15. f. m. frá
Rússakeisara má sérstaða Finnlands 1 ríkinu
heita horfin, svo að það nú er eins og hvert
annað rússneskt fylki. Þegar auglýsingin var
birt, fóru málsmetandi menn af Finnum á fund
Rússakeisara til þess að leiða honum fyrir sjónir,
að auglýsingin gæti ekki samrýmzt gildandi lög-
um Finnlands, en keisarinn vildi ekki einusinni
sjá þá og fannst mikið til um bíræfni þeirra.
Annars ganga ýmsar sögur af keisaranum.
Það hefur meðal annars heyrzt, að hann væri
sjúkur, ef til vill geðveikur og að stjórnartaum-
arnir væru í raun réttri í höndum Michaels stór-
fursta, föðurbróður keisara. Þessar sögusagnir
hafa vitanlega verið lýstar ósannar í stjórnar-
blöðunum. Aðrar sögur segja, að keisarinn sé
heill heilsu, en ráði engu fyrir uppivöðslusemi
rússneskra aðalsmanna.
Leo páfi liggur veikur um þessar mundir,
ofreyndi sig fyrst á þvl að taka á móti heilla-
óskum frá þeim mörgu, sem fögnuðu því að
hann 2. þ. m. varð 89 ára ! Svo hafa læknarn-
ir orðið að skera af honum æxli eða þvl um líkt,
sem lengi hefur verið honum til ama. Lækn-
amir láta eins og karlinn sé að skríða saman,
en sum blöð segja hann dauðvona. Hvernig
sem því er nú varið, þá er það víst að menn
eru fyrir alvöru farnir að leita að eptirmanni
hans. Það kvað verða að vera Itali.
Styrjöldin milli Bandamanna ogFilippsey-
inga heldur áfram. í orustum þeim, sem þeir
hafa háð , hafa B. reyndar optast borið sigur
úr býtum, en eyjarskeggjar virðast jafnseigir. Höf-
uðstaðurinn Manila, sem þeir hafa barizt um, er
enn 1 höndum B., en eptir seinustu fréttum eru
F. famir að verða agalegir, og ekki örvænt um.
að þeir taki borgina, ef B. ekki bráðlega tá
liðstyrk að heiman.
Að síðustu skal þess getið í fréttaskyni, að
öll hin einstöku fylki í Ástralíu, semáðurhafa
verið hvert öðru óháð, hafa hópað 'sig saman í
eitt stórt bandamannafélag.
Viðauki. Eptir enskum blöðum frá 8.
og 9. þ. m. er fáu markverðu við að bæta. Eins
og minnst var á í síðasta blaði hafa ítalir krafizt
að fá skika af Kína til umráða, en fengið af-
svar. En Italir eru ekki afbaki dottnir, og ætla
að halda kröfum sínum til streitu, og senda her-
skip austur þangað. Þykjast þeir hafa Þýzkaland
að bakhjalli. Af eigin ramleik geta þeir auð-
vitáð engu áorkað, þótt þeir láti mannalega.
Nú hafa Belgir einnig farið þess á leit að fá
fasta stöð í Hankow í Kína.
Fyrsta samkoma sameiginlega réttarins nýja
í Dreyfusmálinu átti að haldast 10. þ. m. Rétt-
urinn hefur látið dómarann í Cayenne leggja
spurningar fyrir Dreyfus vestur á Djöflaey, en
hann hefur neitað að svara, og segir: »Eg rita
ekkert og skrifa ekki undir neitt«. Hann
er sagður mjög lasinn til heilsu.— Einhver
pati hefur komið upp um Dreyfus-samsæri
alb'íðtækt, er hafi umboðsmenn í Brússel, í Genf
og á Italíu, og muni það helzt stefna að því,
að ná Dreyfus burt af Djöflaey. Þykjast frakk-
nesk blöð vita, hverjir forgöngumenn þess eru,
og yfirvöldin hafi þegar nægar sannanir í hönd-
um til að draga þá fyrir lög og dóm, en verið
getur, að þetta sé aðeins grýla ein, til að spilla
fyrir málstað Dreyfus.
Friðarfundurinn enn eigi byrjaður. Haldið,
að hann eigi að verða í Haag, en ekki í Péturs-
borg. Það er nú borið til baka, að enska stjórn-
in hafi gert nokkurt tilboð um minnkun brezka
flotans.—Látinn er 5. þ. m. John Cook aðalfor-
stöðumaður hins alkunna ferðafélags, er Tómas
Cook faðir hans stofnaði, og kennt er við þá
feðga. Er það kunnugt orðið um heim allan og
hefur skrifstofur í flestum höfuðborgum. En starfs-
semi þess er meðal annars einkum fólgin í því
að veita ferðamönnum ýmiskonar létti í ferða-
kostnaði, með ódýrara fargjaldi á skipum og
járnbrautum, auk annara þæginda og leiðbein-
inga, er stofnun þessi veitir viðskiptamönnum
sínúm. Þetta stórkostlega fyrirtæki efldist mjög
um daga Johns Cooks og var það honum mest
og bezt að þakka. Flestir stórhöíðingjar Norð-
urálfunnar hafa tekið sér farseðla hjá hon-
um, er þeir hafa farið í einhverja langferð og
nú síðast Vilhjálmur keisari, er hann fór til Jór-
sala. Var Cook sjálfur þar í fylgd hans til að
sjá um, að allt gengi sem bezt, en sú för leiddi
hann til bana, því að hann þoldi ekki hitann
í landinu helga, og kom veikur heim í nóvem-
bermánuði síðastl. og rétti ekki við upp frá því.
Hann lézt á búgarði sínum nálægt Lundúnum,
og telja ensk blöð hann með stórmennum sinn-
ar tíðar.
í »Weekly Scotsman« 11. þ. m. er skýrt frá
því, að frakkneskur prestur nokkur mótmælenda-
trúar, Vienot að nafni, hafi talað við Faure for-
seta nokkrum mánuðum fyrir dauða hans, og hafi
hann þá sagt, að hann væri sannfærður um, að
Dreyfus væri saklaus. Prestur varð mjög hissa
1