Þjóðólfur - 02.05.1899, Blaðsíða 3
83
mann, mann, sem hefir frelsað marga af með-
brœðrum sínum frá óbærilegum kvölum og líf-
tjóni með sinni listfengu hendi og hnífnum, og
þannig unnið oss ómetanlegt gagn. Maður þessi
er Guðm. læknir Hannesson.
En vér förum ekki nógu vel með þennan
mann, vér látum hann hafa alltofmikið erfiði,
og það liggur í augum uppi, að vér getum ekki
notið hans lengi, ef vér ekki hlífum honum.
Hann hlýtur annaðhvort að sllta kröptum sínum
•of fljótt eða fara frá oss. — Sá sem iðulega
þarf að farainní innyfli manna til að sækja mein
og sulli og blöðrusteina o. s. frv., má ekki vera
skjálfhentur af þreytu. Vér verðum því aö losa
hann við héraðslæknisstörf hans og veita honum
svo rifleg laun, að hann geti lifað áhyggjulausu
lífi sem spítalalæknir á Akureyri. -- Vel veit eg
það, að land vort er fátækt og þolir ekki óþörf
útgjöld, en hér er ekki heldur um óþörf útgjöld
að ræða, heldur einmitt um sparnað eða hve
mörg mannslíf munu þurfa til þess að vega móti
svo sem 3000 kr.? Eg veit eðlilega ekki, hve
mörg mein er talin hafa verið ólæknanleg, og Guð-
mundur hefur bætt, síðan hann kom til Akur-
eyrar, en það veit eg, að menn hér í Þingeyjar-
.sýslu, sem hann hefir frelsað frá kvölum og
•dauða, jafnvel á einu ári, eru 3000 kr. virði. —,
Eg er því viss um, að allir Norðlendingar,
•og líklega fleiri, taka undir þá áskorun mína til
alþingis, að það á næsta sumri veiti Guðro.
lækni Hannessyni 3000 kr. laun sem spítalalækni
ú Akureyri, og geri ráðstöfun til þess, að hér-
aðslæknisembætti það, sem hann hefir hingað til
þjónað, verði veitt öðrum manni.
Eg vel taka það fram, að laun hans verða
að vera svo há, að hann sé ekki neyddur til að
taka mjög mikla borgun fyrir »operationir«, þegar
fátæklingar eiga 1 hlut. —
Því var tekið mjög þakksamlega afþjóðinni
«g þjjð talið viturlega gert, þ»gar alþingi veitti
■Birni Ólafssyni laun sem augnlækni. Þessu
mundi ekki tekið miður, að minnsta kosti af Norð-
lendin'gum. —
Grenjaðarstað, 4. aprfl 1899.
B. Kristjánsson.
Húsbrunar Hinn 20. marz brann til
kaldra lcola íbúðarhús á Asgarði, skammt fyrir
innan Þingeyri á Dýrafirði. Það var vátryggt.
Enn varð húsbrúni á Sauðárkrók aðfaranótt-
ina 14. f. m. Þá brann íbúðarhús Guðmundar
Björnssonar trésmiðs, mikið hús og vandað. Mun
þetta vera 5. timburhúsið, er brunnið hefur í Skaga-
firði sfðan 1 fyrra vor, svo að þeir virðast ekki
fara varlega með eldinn Skagfirðingarnir.
Póstskipið „Laura“ fór héðan áleiðis
til Hafnar í gær. Með: því sigldu ekkjufrú
Hansen (Joh. Hansens kaupmanns), M. Olesen
lyfsali og Haraldur Níelsson cand. theol., er
fengið hefur 800 kr. styrk af dönskum sjóði
til að fullkomna sig í hebreskri tungu suður
á Þýzkalandi.
Nýtt flugrit kvað nýlega hafa verið sent
út um land frá Isafoldarprentsmiðju, en farið af-
ar dult með það hér í bænum og nærlendis, því
að höfundarnir munu ekki hafa ætlazt til þess, að
andstæðingar þeirra hér hefðu nokkra hugmynd um
tilveru þess nú fyrst um sinn. Þetta er ekki
fyrsta skiptið, sem Valtýsliðar skríða í skuggan-
um og skjótast út með speki sína, eins og kerl-
ingar með þýfi undir svunturini. Pési þessi heit-
ir »Ráðgjafinn á þingi — stjórnartilboðið 1897«.
Þessu hefur Þjóðólfur komizt að, þótt hann ætti
sjálfsagt ekki að vita það svona fljótt. Og hann
getur meira að segja lýst því, hvernig pésinn er
1 hátt. Það er einskonar barnalærdómskver með
spurningum og svörum og ritningin sem byggt
er á er Valtýskan, og spámaðurinn er auðvitað
Valtýr sjálfur, sem ætlar að skáka þarna þjóð-
inni með peðunum sínum. Verður peðringur
þessi tekinn til nánari athugunar í næsta blaði,
þótt hann naumast eigi það skilið. En ólíklegt
er, að nokkur skynsamur maður láti blekkjast af
þessum »katekismus«, jafn hlutdrægnislega og
álappalega, sem hann er ritaður.
Kolaskip kom loks í gær til Brydes-
verzlunar, og var þess full þörf, þótt fyr hefði
verið, því að bæjarmenn hafa langa hríð verið í
mestu vandræðum, sakir kolaleysis.
Mannalát. Hinn 13. f. m. lézt úr heila-
blóðfalli húsfrú Gudrún Sigurðardóttir, einkadóttir
Sigurðar bónda Sigurðssonar á Seljalandi undir
Eyjafjöllum 25 ára gömul; var í hjónabandi hálft
annað ár, og lætur eptir sig 1 barn. Hún var
atgerviskona og vel látin.
Hinn 4. f. m. andaðist úr lungnatæringu
Einar Snorrason verzlunarmaður á Isafirði, sonur
Snorra heit. Pálssonar verzlunarstjóra á Siglufirði,
á þrítugs aldri.
Hinn 7. f. m. andaðist að Króki í Hróarsholts-
hverfi Sveinn Sveinsson, 96 ára gamall. Hann var
fæddur í Súluholti í Hróarsholtssókn árið 1803,
bjó lengi og vel í Kotleysu í Stokkseyrarhreppi,
var fjáður vel, glaðsinna, greiðvikinn og greindur
vel. Hann hafði alla æfi verið heilsuhraustur, þangað
til fyrir rúmu ári síðan, að hann lagðist í rúmið
af gigt. Sjón, heyrn og heilbrigðum sálarkröptum
hélt hann að heita mátti fram í andlátið. Að öllum
líkindum hefur hann verið elztur manna hér í
sýslu.
(Ó. S.)
Með „Lauru" hef eg nú fengið hina
margþráðu Xlíristaslcó ásamt miklum
birgðum af alls konar VÖIld.'ílð 11511 og
ódýrum skófatnaði.
Rafn Sigurðsson.
Þakkarávarp
Eg undirritaður finn mér bæði ljúft og skylt, að
votta opinberlega mitt innilegasta þakklæti heiðurs-
hjónunum: Magnúsi organista Jónssyni og Helgu
ljósmóður Indriðadóttur í Gilhaga í Skagafirði og
sömuleiðis hjónunum Indriða Árnasyni og Sigurlaugu
Isleifsdóttur samastaðar fyrir þá velvild og stöku
aðhjúkrun, sem þau sýndu móður minni sálugu,
ekkjunni Guðbjörgu Árnadóttur, sem dvaldi hjá
þeim síðustu æfiár sín og lá þar nærfelt árlanga
sjúkdómslegu, sem leiddi hana til dauða síðastl. haust
á áttra;ðisaldri. Allan þann tíma, sem hún dvaldi
hjá þeim, breyttu þau við hana, eins og hún væri
móðir þeirra eða systir, án þess að taka nema mjög
lítið endurgjald fyrir, enda þótt hún væri þeirn vanda-
laus, og að síðustu önnuðust þau hana hina löngu
sjúkdómslegu, ún þess að vilja nokkra borgun
þiggja —En þótt eg eigi gæti goldið þeim hina
ágætu framkomu við móður mína sál, peningalega,
eins og þau verðskulduðu en þáðu ekki, þá hef eg
þó lítilfjörlegt gjald, er eg bið þau að þiggja og
það er hreint og innilegt þakklæti og hlýr vinar-
hugur.
Eyvindarstöðum í Blöndudal 6. apr. 1899
Jón Porsteinsson.
Hálf jörðin ÚTVERK á Skeiðum
fæst til kaups nú þegar en ábúðar í fardög-
um 1900.
Gunnl. Þorsteinsson á Kiðjabergi sent-
ur um kaupin.
Kristján Þorgrímsson
s e 1 u r:
ELDAVÉLAR og OFNA frá beztu
verksmiðju í Danmörku fyrir innkaups-
verð, að viðbættri fragt. Þeir, sem
vilja panta þessar vörur, þurfa ekki
að borga þær fyrirfram; aðeins lítinn
hluta til tryggingar þvf, að þær verði
keyptar, þegar þær koma.
Til heimalitunar
HarOindi mikil eru sögð af Vestur- og
Norðurlandi, og útlitið hið voðalegasta með
skepnuhöld. j Dýrafirði var t. d. farið að reka
fé út á gaddinn í byrjun f. m. í Eyrarsveit og
víðar á Snæfellsnesi var farið að skera fé niður,
■og úr Strandasýslu sunnanverðri ætluðu menn að
reka fé sttður f Borgarfjörð upp á von og óvon,
•enda þótt lítið væri þar um haga. Úr Skaga-
firði er skrifað 17- f. m., að margirséu þar orðn-
ir mjög tæpstaddir með hey, en ekki talað þó
um nein veruleg vandræði. Nú síðustu dagana
hefur tíð batnað svo hér syðra, að líkindi eru til,
að sá bati nái yfir allt land, og stórfellir verði
•eigi, svo framarlega sem úrkomur og hlýindi
haldast áfram, sem vonandi er úr þessu. Hafís
meðfram ströndum landsins hefur ekki verið að
neinu ráði; að minnsta kosti hefur hann ekki
hindrað skipaferðir, að því er spurzt hefur.
Þeir sem vilja taka að sér umsjón
gistihússins „ Valhallar“ á Þingvöllumísum-
ar og hafa þar á hendi veitingar handa
ferðarnónnum, verða að semja við oss undir-
ritaða fyrir 20. maí nœstk. Húsið verður
albúið til notkuna? um eða fyrir miðjanjúní.
Stjórn „Skdlaftlagsins", Rvík 20. apr. i8()<).
Sigfús Eymundsson, Tryggvi Gunnarsson,
Hannes Þorsteinsson.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja
tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.
viljum vér sérstaklega ráða mönnum til að
að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa verð-
laun„ enda taka þeir öllum öðrum litum fram
bæði að gæðum og litarfegurð,
Sérhver, sem notar vora liti, má öruggur
treysta þvf, að vel muni gefast.
í stað hellulits viljum vér ráða mönn-
um til að nota heldur vort svonefnda
„Castorsvart“, því sá litur er miklu fegurr
og haldbetri, en nokkur annar svartur
litur.
Leiðarvísir á íslenzku fylgir hverjum
pakka.
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á
íslandi.
Buchs Farvefabrik,
Studiestræde 32, Köbenhavn.