Þjóðólfur - 01.09.1899, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 01.09.1899, Blaðsíða 3
175 takast, þvi að landslagsmyndir frá íslandi eru ó- þekktar þar suður frá. Hann brá sér og snöggva ferð til Krísuvíkur. Lét hann mjög vel yfir för sinni hingað og dáðist að náttúrufegurð landsins og sérkennnileik þess. Var þó veðuráttan hin óhagstæðasta, meðan hann dvaldi hér. Gerði hann ráð fyrir að koma hingað aptur að sumri, ef allt gengi að óskum. Með ,Lauru‘ frá Höfn síðast kom Sig- urður Pétursson mannvirkjafræðingur. Hefur hann verið lasinn að heilsu að undanförnu, en er nú á batavegi. Mun hann standa næstur til að hljóta styrk þann (allt að 3000 kr.), er þing- ið veitti til rannsókna á byggingarefnum lands- ins og til leiðbeininga í húsagerð. Á búnaðar- félag Islands að sjá um úthlutun þessa styrks. Endurbætur í húsagerð hér á landi eru afarnauð- synlegar og þýðingarmiklar, sakir þess að við þær sparast svo mikið fé, mikill vinnukraptur, sem eytt er lítils gagns á ári hverju, af þ'd að húsagerðin hér er enn sem komið er lítt til frambúðar. »Laura« fór héðan vestur og norð- ur um land áleiðis til Hafnar, 29. f. m. og með henni fjöldi farþega, þar á meðal margir alþing- ismenn, einnig Guðm, Hannesson læknir á Ak- ureyri, er dvalið hafði hér syðra um tíma. Til Vesturlandsins fór Bogi verzlunarstjóri Sigurðs- son í Búðardal við Hvammsfjörð með frú sinni og börnum. Höfðu verið hér syðra um tíma og ferðazt til Þingvalla. ,Hólar‘ komu hingað austan um land í gær. Meðal farþega voru: Ólafur Thorlacius læknir á Djúpavogi með frú sinni, Þorgrímur Johnsen uppgjafalæknir o. fl. — Veðurátta hin hagstæðasta á Austfjörðum, og grasvöxtur mjög góður. Afli einnig dágóður víðast hvar. Nýr aukalæknir. Tómas Helgason fyrv. héraðslæknir á Patreksfirði er af lands- höfðingja settur aukalæknir í Dyrhólahreppi og Austur- og Eyjafjallahreppum. £)^~I»jóðólfur kemur ekki út nœet komandi föstudag 8. sept. Uppboðsauglýsing. Mánudaginn 25. sept. n. k. kl. 12 á hádegi verður í Reykjaréttum í Skeiðahreppi sett opin- bert uppboð, og þar seldur sauðfjárúrgangur úr netndum réttum. Skilmálar fyrir sölunni verða auglýstir fyrir- fram á uppboðsstaðnum. Skeiðahreppi 23/s—99. Jón Jónsson. Kennsla. Við undirritaðir tökum að okkur að und- irbúa pilta undir latínuskólann á komandi vetri; sömuleiðis að kenna ENSKU, FRÖNSKU og DÖNSKU. Sérstök áherzla verður lögð á að kenna að tala þessi mál. Jón Þorvaldsson. Kristján Sigurðsson. Aðalstræti 6. Amtmannsstíg 1. Fundizt hefur skotthúfa. Þeir sem vilja takast á hendur forstöðu- mennsku Þingvallaskálans „Valhallar" ánæst- komandi sumri verða að senda skrifleg til- boð til Skálafélagsstjórnarinnar fyrir 20. sept- embernœstk., ogséþarmeðal annars skýrt frá, með hverjum kjörum þeir vilji taka starf þetta að sér. Tilboðin verða lögð fram á aðal- fundi félagsins í næsta mánuði, og þar ráð- inn forstöðumaður gistihússins til næsta árs. í stjórn „Skálafélagsins" 31. ágúst 1899 Tryggvi Gunnarsson. Sigf. Eymundsson. Hannes Þorsteinsson. LANDSBANKINN verður opinn frá 1. september frá kl. 11 f. m. til. kl. 2. e. m. Bankastjórn til viðtals frá kl. 12—1. Með tilliti til pess, að víxil diskonto hefur hœkkað í Damnörku og Noregi mjög mikið (er nú j1/2—6°/o) hefur stjórn Lands- bankans ákveðið, að diskonto af víxlum og rentur af nýjum og framlengdum sjáljskuld- arábyrgðarlánum, verði j°/o fyrst um sinn frá 1. sept.mán. Tryggvi Gunnarsson. Mót peningum út í hönd kaupi eg smáar blikkdósir. Rafn Sigurðsson. Sá sem tók sængina upp úr kistu í kjallar- anum í nýja húsinu í Veghúsum, skili henni tafar- laust. Að öðrum kosti verður nafn hans opinberað. VOTTORÐ. Eg finn mig ómótstæðilega knúða til að senda yður eptirfarandi meðmæli. Eg undirrituð hef mörg ár verið mjög lasin af taugaveiklun, krampa og ýmsum öðrum veikindum, er staðið hafa í sambandi við það, og er eg hafði leitað ýmsra lækna árangurslaust, fór eg að brúka Kína-lífs-el- ixír frá Waldemar Petersen 1 Frederikshavn, og get með góðri samvizku vottað, að hann hef- ur veitt mér óumræðilega meinabót, og finn eg, að eg get aldrei án hans verið. Hafnarfirði í marz 1899. Agnes Bjarnadóttir. húsfreyja. KÍNA-LÍFS-ELIXIRINN fæst hjá flestum kaup- mönnum á Islandi. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel V P eptir því, að -p ' standi á flöskunum 1 grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku- miðanum: Kínverji með glas í hendi, og firma- nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Glasgo w-prentsmiðj an. 24 dansa við hana síðasta dansinn. Komist inn ( röðina, hljóð- færaleikendurnir fara að byrja". Arnaldur vafði hendinni utan um Geirþrúði og ætlaði að fara að dansa, en hún reif sig allt í einu af honum og sagði". „Komið þér 1" Arnaldur hafði ekki tíma til að spyrja, hvert hann ætti að koma, því að hún þreif um hönd hans og dró hann út að dyr- unum. »Hvert ætlar þú, Geirþrúður?" spurðu nokkrar af vinstúlk- um hennar. „Eg kem undir eins aptur" svaraði Geirþrúður. Nokkrum mínútum síðar voru þau komin undir beran him- in, út í hið svala kveldlopt. „Hvert ætlar þú, Geirþrúður?" „Komið þér!" Hún þreif aptur hönd hans og leiddi hann í gegn um þorpið að húsi föður hennar, þar fór hún inn, en kom brátt aptur með dálítinn böggull í hendinni. „En hvað ætlar þú að gera?“ spurði Arnaldur smeikur. „Komið þér! “ Hún svaraði ekki öðru, en gekk hratt fram hjá húsunum og voru þau loks komin út fyrir merkjagarð þorpsins. Hingað til höfðu þau gengið steinlagðan veg, sem lá til þorpsins, en nú beygði Geirþrúður til vinstri handar og gekk upp á dálítinn flatan höl, sem menn gátu séð frá yfir í hina uppljómuðu glugga veitingahússins. Þarna stöð hún kyr, rétti Arnaldi hendiná og sagði með viðkvæmri röddu: „Skilið þér kveðju minni til móður yðar. Líði yður vel!« „Geirþrúður!" sagði Arnaldur, er var ekki síður hissa en skelk- 21 mjúkt og blítt af vörum Geirþrúðar, þá hljómaði það ómjúkt og hryssungslega af vörum allra annara. En allir ungu mennirnir voru mjög vingjarnlegir við hann og einn þeirra gekk til hans, tók vingjarnlega í hönd hans og sagði: „Það er mjög vel gert af yður að verða hjá oss. Vér lifum leiðinlegu lífi hér og millibilið líður skjótt". „Hvaða millibil?" spurði Arnaldur og undraðist meir á hvern hátt hann sagði það heldur en það að ungi maðurinn þóttist vita með vissu að hann myndi framvegis dvelja í þorpi þessu. „Haldið þér, að eg koroi hingað aptur?" „Ætlið þér að fara í burtu héðan aptur?" spurði hino ungi bóndi. „Já, á morgun eða hinn daginn, en eg kem aptur". „Á morguu\ Já, þannig", sagði maðurinn hlæjandi, „já við getum þá talað um það á morgun, en samgleðjist okkur nú, því að úr því þér farið í burtu á morgun, þá sjáið þér ekki einu sinni alla dýrðina til enda". Hinir hlóu en ungi bóndinn tók Arnald við hönd sér og fór með hann um allt húsið, sem var fullt af glöðum mönnum. Fyrst fóru þeir í gegnum herbergi, þar sem nokkrir bændur sátu og spiluðu um stórar peningahrúgur. í öðru herberginu var strýtuleikflötur og í hinu þriðja sátu nokkrar ungar stúlkur og töluðu saman. í því bili kvað við lúðurþytur og Geirþrúður kom tilþess að dansa við hann. „Komið, við skulum ekki verða síðust" sagði hún, „sem dóttir skólakennarans verð eg að hefja dansinn". „En hvaða skelfing er þetta undarlegt lag", sagði Arnald- ur> „eg get alls ekki fundið hugsunina í því". „Ó, jú, eptir nokkrar mínútur verðið þér búinn að læra

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.