Þjóðólfur - 29.09.1899, Blaðsíða 3
187
Sjálfsmorð. Einhver auðugasti bóndinn
í Árnessýslu, Halldór Halldórsson á Vatnsleysu í
Biskupstungum fyrirfór sér um næstl. helgi (hengdi
sig). Hann var aldurhniginn maður, hafði orðið
sturlaður á geðsmunum fyrir nokkrum árum, en
batnað aptur, sem þó hefur elcki verið til fulls.
,C©res‘ fór héðan til útlanda 26. þ. m.
Með henni sigldu kaupmenn af Vesturlandi: Chr.
Gram frá Þingeyri og P. J. Thorsteinsson frá
Bildudal. Ennfremur vesturheimsku prestarnir:
séra Friðrik Bergmann og séra Jón Bjarnason
með konu og fósturbörnuro. Með honum fór og
Pétur Einarsson Gudjohnsen (bróðurson konu
hans), frk. Guðrún Indriðadóttir (endurskoðanda)
héðan úr bænum og írk. Anna Sigurðardóttir,
uppeldisdóttir séra Jens Pálssonar 1 Görðum. —
Á eptir prestunum er von á Vilhelm Paulson
agent Kanadastjórnar hingað í haust, og á næsta
vori kemur líklega nýr prestur frá Vesturheimi,
sem einskonar Jóhannes skírari á undan agent-
unum. Til Vesturheims fóru ennfremur: Jón Jo-
hannessen stúdent og Þórður í'insen verzlunar-
maður, en til Kaupm.hafnarmeðal annara stúdent-
arnir Árni Pálsson og Jón Þorkelsson.
Æ)i—j æ j al Og nú er »ísafold«
með allan hringlandanu og skilningsleysið í
stjórnarmáli voru leidd svo langt, að henni finnst
deiluefnið milli heimastjórnarmannanna (and-Val-
týinga) og Hafnarstjórnarmannanna (Valtýinga)
ótrúlega lítið(l) Æi-jæjal Það snarast lík-
lega bráðum alveg yfir um á Brúnku gömlu,
um leið og hún sprengir af sér gjarðirnar, er
haldið hafa valtýsku klyfjunum. Getur hún þá
farið að trítla berbökuð á eptir heimastjórnar-
raönnunum. Sá sem nú heldur í tauminn á
á henni er svo ósköp drýldinn yfir þeirri veg-
tyllu, að hann kann sér ekki læti. Húsbóndinn
er ekki heima. En það kvað vera von á hon-
um að viku liðinni. Og þá veltur hinn úr tign-
inni. En er á meðan er. Honum er nýtt um
varninginn: að vera sinn eiginn herra heilan
mánuð(!) Og hversvegna skyldi maðurinn ekki
mega vera upp með sér? Það er þó ávallt svo
undurskemmtilegt að sjá, hvað hann getur tútn-
að út upp á sinn eigin kostnað. Æi- jæjal
5.
Úr Skagaflrði er skrifað 17. þ. m.
Nú er slátturinn á enda, og hefur heyafli bænda
orðið í betra meðallagi, þrátt fyrir það, þótt sumar-
ið hafi verið votviðrasamt, og þess vegna hafi orðið
tafir á við votaband. Þurkdagar hafa alltaf komið
með köflum og þeir afbragðs góðir, svo að heyin
erá víst yfirleitt vel verkuð. Sumarið hefir verið hið
blíðasta, sem menn muna. Fiskiafli var góður fram-
an af sumri, en enginn síöari hlutann, og kenndu
sumir um tveimur botnverplingum, sem komu hing-
að inn á fjörðinn til fiskiveiða. Ekki var hægt að
hafa hendur í hári þeirra. Höfðu þeir hulið nafn
og númer skipanna, en veittu þeim all snarpa atlögu,
sem ætluðu að sækja fund þeirra, svo að þeirhurfu
undan við svo búið, en botnverplingar sigldu á haf
út með fullar hendur fjár. Þó var sagt að aðrir
hafi skilið eptir vörpu sína á sjávarbotni, en ekki
hefur skagfirzkum fiskimönnum tekizt að slæða hana
upp enn þá. —
Heilbrigði almenn, engir nafnkenndir dáið. —
L.eiÖPéttlng. Herra ritstjóri Þjóðólfs. Vilj-
ið þér gera svo vel og ljá eptirfarandi línum rúm í
blaði yðar:
í grein minni „Afbakaðar þingmálafundarfrétt-
ir“ í Þjóðólfi 6. júní síðastliðinn, er það rangt
hermt, að Sigurður óðalsbóndi Jónsson hafi‘ greitt at-
kvæði 'móti Valtýskunni. Hann greiddi atkvæði
með frumv. efri deildar 1897. — Eg mundi sjálf-
ur ekki fyrir víst, hvort var, en aðrir menn, sem á
fundinum voru fullyrtu við mig, að hann hefði greitt
atkvæði eins og eg skýrði frá. — En þetta hefi eg
frá Sigurði sjálfum. Mér er bæði skylt og mjög
ljúft að leiðrétta þessa missögn og • geri það því hér-
með, og bið alla hlutaðeigendur velvirðingar á
þessu ranghermi.
Spákonufelli 5. sept. 1899.
Arni Arnason.
Öllum hinum mörgu, sem heiðr-
uðu úíför minnar elskuðu eigin-
konu Guðbjargar Sveinbjarnardótt-
ur með návist sinni, og vinum mín-
um fjær og nær, sem bafa sýnt mér
innilega hluttekningu 1 sorg minni,
færi eg bjartanlegt þakklæti.
Holti undir Eyjafjöllum, 8. sept. 1899.
Kjartan Einarsson
Kartöflur, epíi, laukur, niður-
soðin aldini, allskonar syltetöj
fæst í verzlun
Sturlu JÓNSSONAR-
Þórunn Á. Björnsdóttir
ljósmóðir
er flutt í Skólastræti 3 (næsta hús sunnan B.
múrara). Norðurstofan.
Leskjað og öleskjað kalk, gler, farfi,
fernis og allt til málningar
fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
HINN tSLENZKI HÁTÍÐA
SÖNGUR
eptir síra Bjarna Þorsteinsson og SEX
SONGLOG eptir sama höfund, (þar á með-
al »Systkinin« og »Kirkjuhvoll«) fást hjá
þessum mönnurn:
Hr. Steingrími Johnsen í Reykjavfk.
— Wilhelm Hansen í Km.höfn.
— Þorsteini Skaptasyni á Seyðisfirði.
— Lárusi Tómassyni á Seyðisfirði.
— Friðbirni Steinssyni á Akureyri.
— Guðm. Guðmundssyni á Oddeyri.
— Kristjáni Blöndal á Sauðárkrók.
— Pétri Sæmundsen á Blönduósi.
— Grími Jónssyni á Isafirði.
— Sæm. Halldórssyni í Stykkishólmi.
— Guðmundi Loptssyni 1 Borgarnesi.
— Sveini Einarssyni á Raufarhöfn.
— H. S. Bardal í Winnipeg.
— Sigfúsi Bergmann á Garðar,
— Guðm. S. Th. Guðmundssyni á Siglufirði.
Góifdúkar (Linoieum) fást í verzlun.
FriðRIICS Jónssonar.
Koparístað með ól við tapaðist á vegin-
um frá Reykjavík upp að Grafarvogi. Skila má
til kaupm. Jóns Magnússonar Laugaveg eða til
eigandans Halldórs Einarssonar Brúsastöðum.
Reiðbelzli hefur fundizt 20. þ. m. í holt-
inu fyrir neðan Skólavörðuna. Eigandi vitji þess á
skrifstofu Þjóðólfs.
Snemma í vor tapaði eg þrevetri hryssu,
jarpri, mark: biti framan bæði og sprett upp i
hægri nös, og bið eg hvem, sem kynni að verða
varan við hana, að gera mér að vart.
Þyrli 12. september 1899.
Halldór Þorkelsson.
Tvær ungar snemmbærar kýr, góðar
og gallalausar kaupir
Sturla Jónsson.
SALT
fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Mcö »Ceres« kom
Gamle Carlsberg Alliance
í verzlun B. H. Bjarnason.
Bauður hestur, glóföxóttur með síðutök-
um, aljárnaður, mark: hangfjöður aptan vinstratap-
aðist frá Árbæ við Elliðaár 26. þ. m. Hver sem
hitta kynni, er beðinn að koma honum til skila til
Páls Pálssonar í Eystra-Fróðholti á Rangárvöllum.
Fataefni og tilbúinn fatnaður
fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
G ömu 1 vormeldúkskápa tapaðist skammt fyr-
ir öfan Tryggva-skála. Finnandi skili henni til
Guðmundar Jónssonar, Hjálmholtskoti.
Hammond-ritvélar
Vetrarvist fyrir myndarlega þrifna stúlku
fæst strax. Ritstj vísar á.
V.ÆÐI geta menn fengið næstkomandi yetur
hjá undirritaðri.
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Tjarnargötu 4.
Kristján Þorgrímsson
selur:
ELDAVÉLAR og OFNA frá beztu
verksmiðju í Danmörku fyrir innkaups-
verð, að viðbættri fragt. Þeir, sem
vilja panta þessar vörur, þurfa ekki
að borga þær fyrirfram; aðeins lítinn
hluta til tryggingar því, að þær verði
keyptar, þegar þær koma.
Sundmagi er keyptur hæstu verði í
verzlun
Sturlu JÓNSSONAR.
eru beztar, traustastar og hand-
hægastar af öl.lum ritvélum. Með
þeim má rita alls konar tungumál.
Vísindamenn, embættismenn og ver-
zlunarmenn nota þær nú orðið
víðsvegar um allan heim. Fjöld-
amargir merkismenn hafa lokið
mesta lofsorði á þær>gæði þeirra
og traustleik,og taka þeir allir
fram,að afarauðvelt sé að læra
að nota þær, svo að menn verði
margfalt fljótari að skrifa með
þeim, en með penna. Skriptin úr
þeim er prentskript,stafagerðin
ðldungis eins og á þessari aug-
lysingu,
Einka-útsölu á Hammond-rit-
vélum hefur hér á landí.
Sigfús Eymundsson.
Rovlyý flvilf