Þjóðólfur - 27.07.1900, Qupperneq 2
'38
blaðinu, að þeir eru nú orðnir svæsnustu með-
haldsmenn Valtýskunnar, og fjandmenn heima-
stjórnarstefnunnar, gauga ósleitilega fram f því
að rífa niður það, er þeir áður fylgdu, og ata
sauri alla, sem ekki hafa orðið þeim samferða í
hringsnúningnum, heldur staðið stöðugir i barátt
unni. Það geta þessi göfugmenni ekki þolað-
vilja láta alla vera í sömu fordæmingunni. Hversu
margir keppi við þá um þingmennskuna, vita
menn ekki enn með vissu, en almælt er, að
Hannes Hafsteinn sýslumaður muni gefa kost á
sér, og muni þá séra Sigurður einkum tæpt stadd-
ur og enda talið víst, að hann falli fyrir Hannesi
jafnvel fremur en Skúli, því að Skúli er »kram-
ari« og hefur að sögn fjölda manns skuldbundna
sér á gamla klafanum íslenzka, — sem »Þjóð-
viljinn« einu sinni þóttist ætla að leysa af
fólkinu — einmitt þá helzt, er næst búa kjör-
staðnum. Er það einmitt haft eptir helztu
vildarmönnum og flokksmönnum Skúla sjálfs, að
það verði skuldirnar — skuldabréfin, sem hann
hafi í höndum sér, er ef til vill fleyti honum inn
á þing næst, og það er jafnvel talið líklegt, að
pappírar þessir haldi honum uppi í þetta sinn.
En það er spá manna, að hann bindi ekki skó-
þvengi sína lengí á Isafirði, úr því að kosningar
eru afstaðnar, heldur flytji sig hingað suður á
herragarðinn að Bessastöðum, og munu þá Isfirð-
ingar brátt komast að raun um, hversu karl verð-
ur linur í fjárkröfunum við þá, hvort sem þeir
kjósa hann eða kjósa hann ekki. Það kemur
líklega hér um bil í sama stað niður, því að
þakklátssemi og óeigingirni munu naumast vera
þeir kostir, sem Skúli er ríkulegast gæddur af
skaparans hendi. — Að því er Hannes Hafstein
snertir, þá er hann kunnur sem mikill hæfileika-
maður, sköiulegnr og einarður, og mundi eflaust
verða hinn nýtasti þingmaður. Bjóði einhver
duglegur maður sig fram í Isafjarðarsýslu auk
þessara þriggja, er nefndir hafa verið, gæti svo
farið, að livorki Skúli né séra Sigurður næðu
kosningu; að minnsta kosti má gera ráð fyrir, að
þeir slitni þó í sundur í þetta sinn, og að annað-
hvort komi Skúli Sigurðarlaus, eða Sigurður Skúla-
laus á þing, og hefði líklega verið hollara fyrir
þá báða, að svo hefði fyr verið, og engu síður
hollara fyrir þingið. En betra er seint en aldrei.
Isfirðingar sýna það vonandi með kosningunum
nú, að þeir hafi þrek til að láta annanhvorn hýr-
ast heima, þótt þeir geti ekki varpað báðum af
sér í senn. Hinn verður þá léttari fyrir síðar,
þá er annar helmingurinn er burtu.
I Strandasýslu er að sjálfsögðu um eng-
an annan að tala en hinn sama sem fyr, Guð-
jón Guðlaugsson. Það dettur víst engum í hug
að keppa þar við hann og jafnvel »ísafold« gef-
ursig »upp á gat« gagnvart honum, treystir sér ekki
til að setja neinn þar á »skrá« framar honum,
sem hún er þó að bögglast við að gera í öðrum
kjördæmum. Hví sendir hún ekki Einar móti
Guðjóni? Einhversstaðar verður að láta hann
bera niður, hvort sem er, úr því að örvænt er
um, að fyrsti slátturinn verði að nokkru gagni.
En Guðjón mundi naumast verða uppnæmur fyr-
ir sllkum sendingum, þótt magnaðri væru, því að
Strandamenn vita vel, að þeir eiga ekki völ á
öðrum jafnfærum manni úr bændastétt til að
senda á þing, sem Guðjóni, er óefað hefur bezta
þingmannshæfileika þeirra manna á þingi, sem
»ólærðir« kallast, og enda framar flestum hinna
lærðu, bæði að greind, staðfestu og kjarklyndi.
Útlendar fréttir.
(Eptir enskum blöðum frá 16.—18. þ. m.).
Öll athygli manna beinist nú að atburðum
þeim, er. gerast austur í Kína um þessar mundir.
Sambandsher stórveldanna hefur verið að bætast
lið smátt og smátt; hefur hann átt í slfeldum or-
ustum umhverfis Tientsin og þeim allhörðum,
svo að mikið mannfall hefur orðið bæði af Ev-
rópumönnum og Kínverjum. Loks náðu banda-
menn 13. og 14. þ. m. hinum kínverska hluta
borgarinnar og öllum vígjum þar í grend, nema
einu. I bardögum þessum hafa fallið um 6—800
manna af bandamönnum, en líklega nokkuð
meira af Kínverjum. Þykja þeir sýna meiri
rögg af sér, en búizt var við í fyrstu, enda þykj-
ast menn þess fullvissir, að það séu eigi »boxarar«
einir, er veiti bandamönnum mótstöðu, heldur
reglubundið lið, sem beinlínis er gert út af kín-
versku stjórninni, þótt hún þykist þar hvergi nærri
koma, heldur leitist við að vernda Evrópumenn
fyrir boxurum.
Erá Peking eru allar fregnir mjög óljósarog
á reiki. Hvað eptir annað hafa borizt fregnir
um, að allir erlendir sendiherrar og allir útlend-
ingar í Peking hafi verið strádrepnir, en svo hef-
ur það verið lýst ósatt annað veifið. En menn
eru samt hræddir um, að morðsögurnar séu sann-
ar, einkum sakir þess, að engar fregnir hafa kom-
ið frá sjálfum sendiherrunum, síðan um miðjan
júní. Það eru eingöngu kínverskar heimildir, sem
blöðin verða að byggja á. Hvenær sendiherrarn-
ir hafi verið drepnir ber sögnum ekki saman,
sumar segja 30. júní, sumar 6. júlí og sumar segja,
að þeir hafi verið heilir á húfi 9. júlí o. s. frv.
Að keisarinn hafi verið myrtur, ekkjudrottningunni
verið gefið eitur og hún orðið vitstola, eins og
einu smni var tullyrt, mun vera tóm endileysa.
— Uppreisn er hafin í Mantschuri, og hafa Kín-
verjar þar ráðizt á Rússa. Li-Hung-Chang hef-
ur verið kvaddur frá Kanton til Peking, og gerð-
ur að landstjóra (vísikongi) í Chi-li, eins og hann
var áður. Búast menn við uppreisn í Kanton,
þá er hann er burtu.
Frá Búastríðinu engar merkar nýjar fréttir, en
eitthvað var Roberts tekinn að hreyfa sig frá
Pretóríu, þá ersíðast fréttist, því að hann sá, að
hershöfðingjum hans tókst ekki að vinna svig á
Búum þar í grenndinni. Virðast þeir alls ekki
að þrotum komnir, og höfðu nýlega barið dug-
lega á Bretum við Nitrals Nek, og tekið marga
til fanga. Þykir Bretum heima fyrir sækjast
seint róðurinn fyrir þeim Roberts.
Hjálparlið Breta komst loks til Kumassi,
höfuðborgar Ashantaríkis 15. f. m., og leysti þar
úr læðingi hið örfáa setulið (100 manns), er
brezki landstjórinn á Gullströndinni skildi þar
eptir, við lítinn vistaforða, er hann flúði sjálfur
frá Kumassi með mikla sveit manna, og er hug-
prýði hans lítt lofuð. Þykir nú líklegt, að Kum-
assi sé á valdi Breta, þótt uppreisnin í Ashanti
sé eflaust ekki bæld niður til fulls. Heitir sá
Willcocks, er hjálparliði Breta stýrði, og komst
hann til Kumassi sama daginn, er hann hafði
áður sagt, að hann skyldi vera þangað kominn
til hjálpar, og þótti rösklega efnt loforðið, þvíað
um ófærur miklar er að fara, og við ákaflega
mikla erfiðleika að stríða á leiðinni frá sjávar-
ströndinni upp þangað, í sífelldri baráttu við
fjandsamlega villumannaflokka.
Illar fregnir.
Bretar hættir við fjárkaup hér.
Hinar vissu vonir, er menn höfðu gert sér
um fjárkaup Englendinga hér í haust hafa hrap-
arlega brugðizt. Með skipinu »Dronning Sofie«,
er kom hingað 23. þ. m. með kol til Ásgeirs
kaupmanns Sigurðssonar skrifuðu fjárkaupamenn-
ir Parker & Fraser í Liverpool, að þeir væru hætt-
ir við að kaupa fé hér'á la.ndi, (sbr. aúglýsingu
hér aptar í blaðinu). I bréfi sínu til Ásgeirs Sig-
urðssonar ds. 6. þ. m. færa þeir engar ástæður
fyrir þessari brigðmælgi aðrar en þær, að það
yrði sóhjákvæmilegt tjón« (»inevitable loss«) fyr-
ir þá, að ráðast 1 þessi fjárkaup. Og þeir leit-
ast ekki við, að rökstyðja þetta á neinn hátt.
Þessi sinnaskipti eru því undarlegri, sem umboðs-
menn þeirra, er pöntuðu hér fé hjá bændum í
júnímánuði voru mjög ánægðir yfir horfunum, er
þeir fóru héðan 19. f. m. og töldu alls engan
vafa á, að þeir kæmu hingað til að kaupa fé í
haust. Höfðu þeir skilið hér eptir ýmislegan far-
angur, þar á meðal reiðtýgi, stígvél 0. fl., höfðu
keypt hest og ráðið menn til að ferðast með
þeim til fjárkaupa. Nú hafa þeir að eins stutt-
lega mælzt til, að þetta sem þeir ættu hér yrði
selt. Þykir lítill vafi geta leikið á því, að þeir
Parker & Fraser hafi verið staðráðnir í því, að
hætta fyrirtæki þessu, á ð u r en sendimenn þeirra
komu héðan til Englands, með skýrsluna um
ferð þeirra, og að fregnir þær, sem þeir fluttu af
fjársöluhorfunum hér hafi því alls ekki getað rask-
að því, sem aðalforstjórar verzlunarhússins höfðu
áður fastráðið, hvernig sem útlitið væri hér. En
hvernig stendur þá á þessum undarlega apturkipp
og skyndilegu veðrabreytingu hjá þessu mikla
verzlunarhúsi ? Það er gáta, sem erfitt er að leysa
og því miður verður líklega aldrei leyst til hlft-
ar, þótt reynt verði að grafast eptir því. En þess
ber ekki að dyljast, að margir landsmenn munu
ímynda sér, að Zöllner sé við þetta riðinn, að
honum sé þetta að kenna, hvort sem sá grunur
er á rökum byggður eða ekki. Um það verður
ekkert sagt með vissu. Gæti Zöllner lagt fram
ómótmælanlega sönnun fyrir því, að svo
væri ekki, væri það mjög æskilegt til að firra
menn öllum grun. En það er ekki svo auðvelt,
þannig, að því yrði almennt trúað. Það er kom-
ið sem komið er, hverju eða hverjum, sem það
er að kenna: fjárkaup Englendinga hér eru farin
út um þúfur í þetta sinn, og ef til vill um lang-
an tíma. Að minnsta kosti mun loforðum þessa
Parkers & Frasers trauðla trúað eptirleiðis, þótt
þeir sjái sig síðar um hönd, sem litlar líkur erutil.
Fregnir þessar koma eins og þruma úr heið-
ríkju yfir allan almenning, er gert hafði sér góðar
og vissar vonir um hagkvæman markað á fé sínu
í haust. Það er óþarft að lýsa, hversu ill og
skaðvænleg áhrif slík vonbrigði hafa áhugimanna,
því að það liggur hverjum í augum uppi. Verra
kjaptshögg en þennan apturkipp, gátu íslenzkir
fjáreigendur naumast fengið, eins og nú stendur
á. Því miður mun ekki unnt, að koma fram á-
byrgð eða skaðabótagreiðslu á hendur þessu verzl-
unarhúsi í Liverpool fyrir gabbið, þvl gabb er
það vægast talað að panta fé hjá bændum og
ákveða vissa markaðsdaganúí september
hér í nærsveitunum, en hætta svo við allt
saman upp úr þurru. Og þetta er því athuga-
verðara, sem ýmsir munu h'afa ráðizt í hitt
og þetta f vissri von um fjárkaupin, tek-
ið t. d. lán í banka og hjá verzlunum upp á pen-
ingaborgun í haust, og verða svo að standa uppi
sem svikarar fyrir vikið. Það er í rauninni al-
varlegt málefni, sem þessir útlendu herrar eiga
sök á og ættu að »blæða« fyrir. En það er
enginn hægðarleikur að ná rétti sínum gagnvart
auðugum mönnum í fjarlægum löndum og ekki
sízt á Englandi, eins og réttarganginum þar er.
háttað. Islenzkir bændur verða því líklega að
sætta sig við þetta endurgjaldslaust, þótt hart sé.
Þeir sem mest og bezt gengust íyrir því, að fá
þessa menn til að kaupa hér, þeir Copland &
Berrie í Leith og Ásgeir kaupm. Sigurðsson, eiga
enga sök á því, hvernig þetta hefur snúizt, og
eru, eins og vonlegt er, mjög gramir yfir þessu,
því að þeir hafa einmg verið gabbaðir af mönnum
þessum mjög ónotalega. y
En það tjáir ekki að sakast um orðinn hlut.
Menn mega ekki »missa« móðinn*, þótt svona
hraparlega færi í þetta sinn. Hver veit nema
einhver verði til þess að reyna Frakklandsmark-
aðinn, sem getið hefur verið um hér í blaðinu?
Það er hart að vita af góðum markaði fyrir ís-
lenzkt fé ytra, eins og nú mun vera, ekki að eins