Þjóðólfur - 10.08.1900, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 10.08.1900, Blaðsíða 2
146 Stúdentaförin danska. Búizt var við, að »Botnia« mundi koma hing- að með dönsku stúdentana sunnudagskvöldið er leið og höfðu stúdentar hér í bænum, eldri og yngri akademiskir borgarar, fyrir tilstiili nefndar úr stúdentafélaginu afráðið að sigla móti »Botniu« á gufuskipinu »Hólar«, fylgja þeim inn á höfnina og verða þar fyrstir til að bjóða hina dönsku bræður slna velkomna. Hafði skipstjóri Öst-Ja- kobsen góðfúslega léð »Hóla« 1 því skyni og lof- að sinni vissu og góðu aðstoð við för þessa. Var haldið út í flóann eptir hádegi sunnudaginn 5. ágúst, 40—50 eldri og yngri stúdentar, meðal þeirra landfóg. Á. Thorsteinson, yfirdómari Kr. Jónsson, yfirkennari Stgr. Thorsteinson, sem bjóða skyldi stúdentana velkomna; var þar og með hornaflokkurinn undir góðfúsri forustu Helga Helgasonar. Var farið alla leið út að Skaga og beðið þar eptir hinum langþreyðu gestum, en er »Botnia« sást hvergi, vaið að sigla við svo búið heim aptur um nóttina. Mánudagsmorguninn eptir þ. 6. ágúst renndi svo »Botnia« inn á höfn í bezta veðri og glaða sólskini. Stúdentarnir voru fluttir á land á bát- um »Heimdalls«. Á bæjarbryggjunni, sem var prýdd veifum og blómsveigum á háreistum skrúð- boga, tók bæjarstjórinn móti gestunum í viður- vist helztu borgara bæjarins, stúdenta og aragrúa fólks, sem safnazt hafði að úr öllum bænum. Gengu dönsku stúdentarnir sfðan í skrúðgöngu undir sínu forna stúdentaferðamerki upp bryggj- una undir hvellandi húrrahrópum, og sungu ísl. stúdentar þá »Der er et yndigt Land«, en dönsku stúdentarnir aptur »Eldgamla Isafold«. Héldu þeir upp á »Austurvöll«; þar kringum Thor- valdsen var stúdentunum vísað á heimilisfeður þá, er þeir skyldu búa hjá meðan þeir dveldu hér í bænum. Mælti skáldið Mylius-Erich- sen, ritari ferðamannafélagsins danska, þar fyrir minni Reykjavíkur. Var mjög mikill hátíðarbragur yfir öllu lffinu bæði f bænum og á höfninni, þar sem »Botnia«, »Hólar«, »Ceres« og »Heimdallur« lágu öll flöggum skreytt þann dag hér inni. Um kl. 7 buðu svo stúdentar hér í bænum hinum dönsku bræðrum sínum til sérstaks kveðju- fundar í stóra salnum á »Hótel Island«, til að bjóða þá velkomna í champagne. Mælti yfir- kennari Stgr. Thorsteinsson þar fyrir minni gest- anna, minntist sambandsins milli frændþjóðanna, milli danskra og ísl. stúdenta og hve blessunar- ríkt það gæti orðið og bauð gestina velkomna. Fogh læknir (frá Vordingborg) þakkaði fyrirhönd gestanna. Margar fjörugar og snjallarræður vortt haldnar. Meðal annara töluðu stud. juris Ptirsc- hel og stud mag. Ágúst Bjarnason. Þriðjudeginum var varið til þess að sýna gest- unum Laugarnesspftalann, — fóru sumir þeirra þangað á bátum Heimdals, en aðrir gangandi eða ríðandi,— og.síðan til að skoða söfnin hér og dómkirkjuna. Um kvöldið kl. 5 hélt bærinn þeim stóra veizlu með miðdegisverði kl. 5 1 Iðnaðar- mannahúsinu; sátu þar undir borðum 160 manns og var mönnum skipað ekki að eins í stóra sal- inn niðri, heldur og uppi á leiksviðinu og í and- dyrsganginum langa við hliðina á salnum. Amt- maður Júlíus Havsteen bauð menn velkomna og minntist konungsins. Séra Jón Helgason mælti fyrir minni gestanna, en Nanke borgarstjóri (frá Korsör) þakkaði með ræðu fyrir íslandi. Guðm. læknir Björnsson minntist Danmerkur, yfirréttarmálfærslumaður Steinthal íslenzkra stúdenta oglæknirFogh íslenzkra kvenna. Einnig mælti stud. mag. Henrik Ussing fyrir mmni prófessors Finns Jónssonar og að lokum hélt skáld- ið Mylius-Erichsen ræðu um íslenzkt þjóðerni, viðhald þess og einkenni; var gerður sérstaklega góður rómur að hans máli og þótti honum tak- ast prýðilega. Skáldið Ei n ar Benediktsson hafði ort hið snjalla kvæði til hinna dönsku stúdenta, sem prentað er hér í blaðinu; fengu þeirþað í sérstakri danskriþýðingu. Einnigvar sungiðprýðilegaortgam- ankvæði, erfrúHelgaVídalfnhafðikveðið til þeirra ádönsku. Skáldið Mylius-ErichsenogOlaf Hansen höfðu ort mjög tilkomumikil og til- finningarík kvæði. Hinn síðamefndi, sem er svo góðkunnur Islendingum af hinum á gætu þýðing- um sínum á nýíslenzkum kvæðum, vareigi viðstadd- ur; hafði orðið sjúkur á leiðinni og lá rúmfast- ur, erá landkom; er nú því betur á batavegi. Eptir miðdegisverðinn var dans um kveldið; var þá um 400 manns samankomið, er yngri stú- dentar og ungar meyjar höfðu bætzt við í hópinn eptir kl. 9. Var drukkið, dansað og skemmt sér fram á nótt. Daginn eptir, miðvikudag, lögðu gestirnir af stað til Þingvalla og Geysis. Er vonandi, að veðrið haldi sér jafnfagurt og náttúran brosi þar við þeim eins blíð og sólskinsfögur og hér í Reykjavík. Eins manns má Island sakna, er það tekur á móti þessum bróðurlega stúdentahóp, sem hver- vetna hér hefur áunnið sér hylli og vináttu þeirra, er við hann kynntust —ritsnillingsins fræga Ge- orgs Brndes, sem hefur hvatt til fararinnar með sínum mörgu velvildargreinum um Island og tekið ástfóstri við nýíslenzkar bókmenntir á hin- um sfðari árttm, síðan hann fékk kynni af þeim, en sakir sjúkleika var honum ráðið frá, að leggja út í svo langa ferð. En þökk sé honum fyrir sóma þann, sem hann vildi sýna landi voru, og fyrir hinn hlýja hug, er hann ber til bókmennta þess bæði að fornu og nýju. Til hinna dönsku stúdenta. Með vinarandans góðu gyðju í stafni þið gerðuð ykkar ferð. Heill bróðir. Skál! Við heilsum ykkur hér í Islands nafni, og holl og trygg eru’ okkar kveðjumál. Vor foma tunga' á auð af góðum orðum, og uppruninn hann tengir þjóð við þjóð. Vor forna saga’ er ættfróð enn sem forðum; í æðum okkar rennur frændablóð. — Við geymdum lengur liðna tímans hætti; enn lifir skuggi’ af þeim í okkar reit. Þið sóttuð fram. — Nú, tvinnum þessa þætti, sem þúsund ára breyting aldrei sleit. Sé hitt á réttan streng kemst allt í eining, í öllu’ er gullinn sambandsvegur til. Hjá oss í dag er veik og veil öll greining — svo veik sem snjór í sólargeislans yl. Um allan heim í hverju lífsins verki til heilla’ er menntadísin alla stund og undir hennar gamla, gilda merki við göngum nú til móts með káta lund. Um hús og andlit er sem spánnýr bragur og allt í sömu skorðum þó sem fyr. Sjá, stúdentanna stóri heiðursdagur hann stendur hátt við opin port og dyr Ein bróðurskál hún bætir fleira’ og jafnar en bréfin öll. — Velköminn, gestur kær. Nú kynnumst við. Það sundrar ekki’ en safnar, tveir saman komast það sem einn ei nær. Vort Ijóð í dag berst langt — frá vík til hafnar og landinn heyrir mál vort nær og fjær. Hvert vinarorð má verða fræ, sem dafnar. Að veggjabaki hjarta fólksins slær. Hér felst svo margur, margur rfkur sjóður, sem mætti lypta í tveggja bræðra hönd. Hér bliknar opt svo bjártur andans gróður við barm þess djúps, sem skilur okkar lönd. En vel þið mætist kross- og hörpu-húfa. Hér heilsast löndin, Frón og Danaströnd. Með góðum huga hafið sjálft má brúa. Til hamingju með öflug félagsbönd! Vor móðir horfir hátíðar í skrúða á hópinn allan. Þetta er sumar vort. Hún vill þið munið mynd sfna svo prúða, sem minnir ekki á kulda, hel né skort. Og himinvítt sig fjallafangið breiðir; hún fagnar ykkur hljóð og sagnarík, með sumarblómin stráð um langar leiðir. Vort land er stórt — þó smá sé Reykjavík. Við lyftum glasinu með heilum huga til heiðurs þeim, sem veginn til vor fann. Þið stiguð fetið fyrst og það mun duga. Þið fáið alla að vinum, konu og mann. Hvert spor sé ykkur létt á lands vors grunni, til langrar gæfu sé hin skamma stund. Við óskum ykkur heilla hönd og munni og heitum allir: Munum þennan fund! Til ,ísafoldar‘. Nú þykir mér »ísafold« gömlu farið að förl- ast; hún er hætt að skilja sjálfa sig. I 48 tölubl. eyðir hún nærfellt 4 dálkum í 5 greinum til að tala um »atkvæðasmala og sendisveina banka- stjórans*, »hann ætti að banna sendisveinum sínum« o. s. frv. Þessu svaraði eg aptur í »ísa- fold« 49. tölubl. og lýsti því þar yfir, að eg hefði engan mann beðið um atkvæði til þingkosninga og engan mann sent til smalamennsku. Mér virðist þetta beint svar gegn getsökum hennar. En í 49. tölubl., í grein með fyrirsögn: »Banka- stjórinn og kosningabrall h an s« segja ritstj. með stóru letri: sGallinn á mótmælum bankastjórans er sá, að Isafold hefur aldrei sagt það, sem hann er að mótmæla*, en þar fyrir neðan stendur svo: satkvæðasmalar bankastjórans« — »gegn við- leitni hans að bola J. J. afþingi«. Það er mjög þreytandi að eiga tal við menn, sem svona eru sjónlausir fyrir því, sem er satt og sæmilegt, enda ætla eg ekki að þrátta lengur við ritstj. um þetta smalamennskubull þeirra, það er allt of ómerki- legt blaðamál. Óviðkomandi menn hljóta að á- líta, að mér sé kunnugra en ritstj, um það, hvað eg sjálfur hef gert í þessu máli, og eg tel mér það víst, að enginn álíti mig ósannorðari mann en Einar Hjörleifsson. Ritstj. »ísafoldar« þykjast vera að amast við þingsetu minni, af því þeir álíti, að mínar skoð- anir á landsmálum séu skaðlegar; ekki er svo sem hætt við persónulegri áreitni hjá þeim mönn- um. Færi nú svo, að eg gæfi kost á mér til þingsetu hér eða annars staðar — sem eg ekki hef fullráðið enn — til þess að fylgja fram ýms- um áhugamálum mínum og um leið að fækka einu atkvæði hinnar svonefndu Valtýsku stjórnar- stefnu, væri það þá svo ásökunarvert, þó eg fylgdi þar reglu »ísafoldar« ? Mér virðist hún eigi ámælalaust að leyfa mótstöðumönnum sínum að nota sama mælikvarða, sem hún mælir sína menn á. Eg hef engan mann heyrt áfella Einar Hjör- leifsson fyrir það, að hann bauð sig fram til þingmennsku í Snæfellsnessýslu, en eg hef séð marga brosa að þvf, hve fáir þeir voru, sem þar vildu hafa hann fyrir fulltrúa, og þó öllu fremur að því, að hann, þjóðkempan, skyldi bjóða sig fram í héraði, þar sem hann sjálfur segir (í 48. tölubl.) að sístöðuleysið og fáfræðin sjálfsagt sé almennari en í nokkru öðru kjördæmi hér á landi«. Það er eins og hann hafi haft hugboð um, að hollast væri fyrir sig að »ráðast þar á garðinn, sem hann væri lægstur* og skoðanirnar væru þroskaminnstar um það, hverjar tillögur í landsmálum væru hollastar. Eg er fullkomlega á sömu skoðun og ritstj. hefur verið í þessu atriði og á- lít, að honum hafi farizt óvanalega hyggilega í þessu;'6skandi væri,að hannværijafnhygginnílands- máltim, eins og hannvarþarna í sfnu eigin máh- Hann veit það, að í 4 sýslum norðuramtsins, þar sem skoðanir manna um landsmál eru taldar einna þroskamestar á landinu, er ekki t'1 neins fyrir hann að bjóða sig fram til þingmennsku; þar sjá menn, hve ill og eyðileggjandi áhrif hann hefur haft á »ísafold«, og vilja ekki styðja að þvÞ að hann nái að hafa sömu áhrif á löggjöf lands- ins. Með því áliti, sem E. H. hefur á þjóðhylÞ

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.