Þjóðólfur - 26.10.1900, Síða 1

Þjóðólfur - 26.10.1900, Síða 1
ÞJÓÐÓLFUR. 52. árg. Reykjavík, föstudaginn 26. október 1900. Nr. 50. Biðjið ætíð um OTTO MÖNSTEDS danska sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. Fæst hjá liaupmönnuniim. Frá Parísarsýningunni. (Eptir Sig/ús Blöndal cand. mag.) I. Eg hafði gert mér miklar vonir um sýning- una 1 París, en eg verð að játa, að það sem eg hef séð hér, er miklu skrautlegra og miklu stór- kostlegra en eg nokkurntíman hafði ímyndað mér. Fyrsta kvöldið sem eg var þar, gekk eg yfir í Trocadero-höllina og í garðinum þar 1 kring sá eg heilan bæ af skrautlegum byggingum, sýn- ingarhöllum og veitingastöðum og allt var fullt af fólki, argandi sölumönnum, hlæjandi gestum og drekkandi og skrafandi fólki fyrir utan veitinga- staðina. Eg sá á auglýsingum, að sjálfar sýning- arhallirnar væru lokaðar eptir kl. 6, en ýmsar aukasýningar voru opnar og um kvöldið átti að uppljóma alla sýninguna og það vildi eg sjá. Eg gekk yfir Jena-brúna yfir Signu og yfir á Marsvöllinn, þar sem aðalhluti sýningarinnar stendur. Þegar eg var kominn á miðja brúna, gullu við glymjandi fagnaðaróp, því í því vet- fangi sáust ótal ljós kvikna í einu um allan Eiffel- turninn, á norðurhlið Marsvallarins. Eg flýtti mér þangað og fór í lyptivél upp í turninn. Þar var dýrðlegt um að litast, því nú byrj- aði uppljómunin srnámsaman um allt sýningar- sviðið, en frá turninum sást yfir alla sýninguna og allan bæinn. Hinu megin árinnar blasti við mér Trocadero- höllin; gosbrunnarnir fyrir framan hana þeystu strókunum hátt í lopt upp, en utan um höllina og báða turnana á hliðar henni vöfðust smámsam- an ljóskeðjur, og í sýningarhöllunum tóku ljós að kvikna. Brátt var allt, eins og logandi stjörnum hefði rignt niður yfir bæinn og þær sezt á turna og hvelfingar, sumar í lifandi gullbjarma, aðrar fölari, sumar með grænum blossum, aðrar rauðar og bláar og fjólulitar. Frá Eiffelturninum stóð ljósgeislakóróna, fimm, hvítar, breiðar, skær- ar ljósrákir, og önnur kóróna af geislarákum stóð yfir sýningarhliðinu á hinum enda Marsvallarins. Sjálft sýningarhliðið virtist sett gimsteinum, er skiptu lit við og við. í Rue de nations (Þjóða- stræti) þar sem hallir þær liggja, er sérsýningar ýmsra þjóða eru sýndar í, var dýrðin hin sama Og yfir 1 nýlendusýningunni hjá Trocadero og iðnaðarsýningunni á Marsvellinum. Vitarnir hinu- megin við Signu vörpuðu breiðum rafljósgeislum hingað og þangað um sýninguna. En eitt hið dýrðlegasta var sjálft fljótið, þar sem gufubátam- ir fullir af fólki þutu hratt og hávaðalítið, og öll dýrðin speiglaðist f bylgjunum. Eg sat lengi upp í tuminum og gat ekki þreytzt á að horfa á uppljómunina, sem var svo margvísleg og svo skrautleg. Loks fór eg niður, fór í gufubát á Quai de Passy og hélt svo eptir fljótinu þangað til eg kom á Place de la Con- corde í miðjum bænum. Þar var allt með sama brag: Listasýningin uppljómuð og þúsundir af glöðu fólki reikaði fram og aptur um strætin. Eg settist fyrir utan veitingastað á Boulevard des Capucines og fór að horfa á strauminn. Þetta var þá París og þarna hafði eg fyrir mérhátíða- líf bæjarins. Eg tók fljótt eptir þvf, að hér ægði öllum Þjóðum saman, jafnvel meir en í Lundúnum, ef sl<kt er mögulegt. Þýzka, ítalska og enska heyrð- Ust allstaðar. Og eg fór að hugsa um, að í raun réttri mun varla vera í heiminum staður, hent- ugri til að laða menn að slíkum sýningum, en Parísarborg. Að halda stórsýningu í Ameríku má auðvit- að gera, eins og nýlega í Chicago, en það segja fróðir menn, er séð hafa Chicagosýninguna og þessa sýningu líka, að þó Chicagosýningin að sumu leyti væri næstum því enn þá stórfenglegri en þessi sýning, þá hefði maður þó aldrei getað gleymt því, að hún var í Bandaríkjunum, það var Ameríkublær yfir öllu þar, andi þessarar miklu og voldugu þjóðar var of einráður í henn- ar eigin landi, Aptur á móti er þessi sýning í París fremri sem alþjóðasýning, það er ekki hægt að segja, að það sé sérlegur franskur blær yfir henni. Þjóðverjar, Rússar, Engiendingar og Ameríku- menn koma hérum bil eins mikið fram og Frakk- ar sjálfir og það er eins og allur þjóðamismunur hverfi, og að eins svo mikið sé eptir, að með því geti áhorfandinn fengið þægilega tilbreyting. I Lundúnuin og Berlín gæti sýning varla verið eins fögur og aðlaðandi, þar eð náttúra og skrauthýsi þeirra bæja er langt um tilkomuminni en í París. Og París hefur nú einu sinni fengið orð á sig fyrir að vera sá staður í heiminum, þar sem hægt er að skemmta sér bezt og margvís- legast, og það er svo sem auðvitað, að þeir sem hingað koma til að sjá sýninguna koma líka til að sjá fjörið og lífsgleðina í höfuðstað Frakk- lands. Barnamenntunarmálið. Eptir séra Jóhannes L. L. Jóhannsson. II. Sumstaðar mun það einnig eiga sér stað, að verið er að kenna börnum langt of margt. Það ætti t. a. m. ekki að eiga sér stað í nokkrum barnaskóla, að þar væri kennd útlend tungumál (danska eða enska); til þess eru börnin optast of óþroskuð, enda annað miklu þarfara við tímann að gera. Við umferðakennsluna þarf nú eigi að tala úm það, að ofmargt sé kennt, heldur offátt og þó fremur, að þetta fáa hlýtur að verða illa kennt. Þetta er því gagnstæðara kröfum tímans sem útlendar þjóðir hafa á þessari öld lagt svo mikið í sölurnar fyrir barnamenntunina, svo þar er uppfræðsla alþýðu komin langt fram úr því, sem er hér hjá oss, sem þó áður stóðum flestum þjóðum framar í því efni. Það er vissulega fag- urt á pappírnum og enda sjálfsagt, að leggja fram fé úr landsjóði til barnakennslu, en eigi fjártillag það að koma að notum, verður óumflýjanlega að breyta fyrirkomulagi því sem nú er. — Að menn hafa þegar fundið þetta, sést á þvf, að menn hafa á sumum stöðum til sveita verið að berjast við að koma upp barnaskólum, sem auðvitað er hið eina rétta og það eitt, sem full- komið gagn verður að þessu málí til viðrétting- ar, svo framarlega sem skólarnir eru í góðu lagi. Það er auðvitað örðugra hér uppi til sveita 1 allri strjálbyggðinni að koma upp skólum og nota þá, heldur en þar sem mikill mannfjöldi býr saman á einum litlum bletti, svo börnin geta gengið í skólann að heiman á hverjum degi, en hér verða þau að hafa heimavist í skólanum; þann kostn- að, sem af þvl leiðir, mega menn samt engan veginn láta sér í augum vaxa, því hér er um mik- ilsvert nauðsynjamál að ræða, og vér verðum nú að taka land vort eins og það er og leggur sig. Þar sem ötulir áhugamenn hafa átt hlut að máli hefur tekizt að koma upp barnaskólum og má til dæmis um slíka menntaskóla nefna skólana á Þingvöllum, Leirá og Reynivöllum, en sá galli hefur fylgt skólum þessum, að þeir hafa átt sér stutta æfi og lagzt furðu fljótt niður aptur, þegar hinna einstöku dugnaðarmanna, er voru lífið og sálin í stofnun þeirra missti við. Þetta verð eg að kenna því, að hina réttu undirstöðu í öllu barnamenntunarmálinu vantar, en það er eigi von, að þeir hlutir, sem í lausu lopti eru byggðir geti lengi staðið. Vér megum alls eigi láta skólamál vor vera komin undir eintómri geðþekkni og dugnaði einstakra manna. Það er bráðnauðsyn- legt, að sllk alþjóðleg stofnun, sem skólinn í h e i 1 d s i n n i er, styðjist við lögskipun og hafi vissar, ákveðnar tekjur, öldungis eins og kirkjan, sveitarfélögin og landsjóður, þá fyrst hættir öll þessi bygging að svífa í lausu lopti og hefur fengið fastan grundvöll til að standa á. Meðan skólinn í landinu hefur engar sjálfsagðar tekjur að lifa af, getur hann engin föst stofnun heitið, sem hann þó þarf að vera. Það er þá tillaga mín í þessu máli, að alþingi með ráði sýslu- nefndanna skipti öllu landinu niður í skólahéruð, sem hefði þetta frá rooo upp í 2000 manns, því það er skaðlegt, að hver sveit sé að koma upp skóla fyrir sig vegna þess, að þá vantar kraptinn til að gera skólann góðan, það sýna sveitaskólar þeir, er upp hefur verið komið, og einnig all- margir sjóþorpaskólar, Tekjur þær, er eg ætla skólunum og síðar verður talað um, eru einnig þannig lagaðar, að safna verður þeim saman af allstóru svæði, ef um þær skal muna. En að hinu leýtinu gerir það ekkert til, hvort menn verða að flytjabörn sín bæjarleiðinni lengra eða skemmra, úr því foreldrarnir verða að koma þeim í heima- vist f skólanum og leggja þeim til mat þangað \

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.