Þjóðólfur - 26.04.1901, Síða 4
8o
Skýrsla stórtemplars Good-
templarfélagsins, sem er styrkt af
landssjóði með 800 kr. árlega, er nýútkomin fyrir
1901. Tveir pridjungar hennar eru um málaferli,
kærur og rifrildi um bindindisbrot. — I Keykjavík
hefur Good templurum fækkað um 300 manns síðan
1899, en „vonandi hefur meðlimatölunni í allri regl-
unni fjölgað eitthvað ofurlítið", segir þar, en hve
miklu hefur verið varið á þeim tíma til „agitationa"
verður eigi séð, þó að í ráði sé að verja 2—JOOO
kr. „til víðlendrar agitationar“ næstu 2 árin. — Út-
breiðsla reglunnar er samt svo mikil heima fyrir, að
stórtemplar kemst svo að orði „að við hér ættum
að geta haft einhver áhrif á bindindismálið utan-
lands“. Skyldi samt ekki vera eitthvað eptir að gera
innanlands enn þá, þó mikið sé þegar að gert. —
Þetta sannleikskorn er líka allmerkilegt: „Það sem
einna mest hefur haldið nafni íslands á lopti út um
heiminn frá því 1886 og þangað til ( dag er bind-
indishreyfingin á landinu eða reglan ein. Svo er
gefið í skyn, að íslenzku bókmenntirnar eigi því að
þakka, að þeim sé gaumur gefinn, og eins jafnvel,
að Danmörk hefur snúið— vegna pólitiska sambands-
ins — eptirtekt sinni til Islands á síðustu árum“.
Það á að halda stórstúkuþing í sumar 1901 og þó
er sagt í skýrslunni: „Það eina, sem er tiltölulega
dýrt, er þinghaldið okkar og pað hindrar okkitrfrá.
að gefa okkur eins mikið við útbreiðslu reglunnar,
eins og við ættum að gera“. — Helzti árangurinn eru
stúkustofnanirnar, sem hafa verið I7ásíðustu tveim
árum. — Starf Good-templarreglunnar, sem er styrkt
af landsjóði, virðist leggja of mjög áherzlu á hið ytra,
en minna á hið innra, líknar og hjúkrunarstarfið og
græðslu á hag og meinum þeim, sem afleiðingar of-
drykkjunnar hafa farið illa með. — Fjárhagur regl-
unnar er svo góður, að eignir44 undirstúkna einna
eru 30,064 kr. og þó vantar skýrslur frá 13, svo að
ætlazt er á, að þá „væri skuldlaus eign undirstúkn-
anna allra eitthvað fyrir ofan 32,000 kr.“
Good-templarreglan, segir stórtemplar Indriði
Einarsson, er því ekki „bú, sem ber sig illa“. Tekj-
urnar eru nógu miklar. En er búskapurinn eptir
því eins affarasæll og hann gæti verið fyrir vesal-
dóm drykkjumanna og heimili þeirra, í hinu virki-
Jega praktiska lífi ? S.
Eptirmaell.
Hinn 17. október f. á. andaðist í Arney á Skarðs-
strönd Loptm Jónsson, fyrrum hreppstjóri og merk-
isbóndi. Hann var fæddur 16. marz 1824 í Holti
í Hvammssveit; þar bjuggu foreldrar hans, Jón Jóns-
son og Helga Helgadóttir, frændkona Helga bisk-
ups Thordersens; þau áttu fjölda barna og var Lopt-
ur yngstur af þeim, er upp komust. Nafnkenndast-
ir af þeim systkinum voru þeir: Hallur bóndi í
Túngarði og Saura-Gísli, sem mörgum var kunnur
hér á landi, og nú fyrir fáum árum er dáinn í Ame-
ríku. — Loptur sál. byrjaði búskap í Stóru-Tungu á
Fellsströnd, en síðan bjó hann í Skoravík, Hallsstöð-
um og Víghólsstöðum ( sömu sveit, og Mannheim-
um á Skarðsströnd síðast. Hann var jafnan talinn í
helztu bænda röð, hreppstjóri var hann ! Fellsstrand-
arhreppi yfir 20 ár, og sýslunefndarmaður var hann
í nokkur ár. Það þótti kveða að honum í mörgu,
enda var hann vel að sér á tunguna, vel máli farinn
og vantaði hvorki þrek né þol til að halda sínu
máli fram, við hvern sem í hlut átti. Hann var
gestrisinn heim að sækja, glaðlegur í viðrnóti, fynd-
inn og gamansamur. Flest verk léku í höndum hans,
bæði smíðar og annað. — Loptur sál. kvæntist sinni
eptir lifandi ekkju, Kristínu Ketilsdótturhaustið 1849,
og lifðu þau saman í eindrægni og kærleika 54 ár,
og varð 12 barna auðið og lifa 7 af þeim, sem öll
eru gipt, og eru þau þessi: Vilhelmína gipt Jóni
Jónssyni á Fjósum, Lárus bóndi ( Arney, kvæntur
Halldóru Jónsdóttur frá Brokey, Ólöf, gipt Andrési
bónda Magnússyni í Gerði, Helga, gipt Páli Sigurðs-
syni á'Ballará, Halldóra, gipt Guðmundi búfræðing
Helgasyni á Kálfárvöllum,;Alexander bóndi í Frakka-
nesi og Septenborg, gipt Haraldi bónda á Á. —
Loptur sál. ruddi sér braut með þreki og karlmennsku,
eins þar sem leiðin virtist óslétt; með atorku og
iðjusemi var líf hans einkennt, frá því hann fékk
krapta til þess að geta unnið, enda var hann alltaf
fremur veitandi en þurfandi í búskapnum, þó ómegð-
in væri mikil. Guð hafði gefið honum góða hæfi-
leika, andlega og líkamlega, mörgum fremur af stétt-
arbræðrum hans, enda naut hann þeirrar tiltrúar í
félagi sínu, að hann var jafnan kosinn til að standa
framarlega í fylkingu bændanna, sem ráðandi og
stjórnandi. (A. M).
ðtT' Þjóðólfur kemur tvis-
var út í næstu viku, þriðju-
dag og föstudag.
jl-----1;
^ ÓDÝRAST A „
SAUMA8T0FAN í REYKJAVfK
14 BANKASTRÆTI 14,
Myndarammar margskonar teg-
undir fást í verzlun Sturlu Jó?tssonar.
Eg undirskrifaður tek að mér að mála /tús
og húsgögn og allt sem að málaraiðn lýtur.
Kirkjustræti 4,2
Jón Reykdal,
Nýsilfurbúna svlpu fann Jón Guð-
mundsson á Ægissíðu.
Þakkarávarp,
Þeim heiðruðu Reykjavíkurbúum, mér þekktum
og óþekktum, er svo innilega hluttekningu sýndu
mér með orði og verki í minni djúpu sorg, þegar
minn elskulegi sonur Grímur Ste/ánsso?? frá Kára-
nesi, drukknaði hér á Raykjavíkurhöfn, votta eg hér
með mitt innilegasta þakklæti af hrærðu hjarta, en
þó einkum og sér í lagi þeim góðfúsu bræðrum Jóni
og Jóhannesi Magnússonum, búandi á Bræðraborgar-
stíg, sem ótilkvaddir tóku sér fram um að fá fólk
til að slæða upp lík sonar míns, og alla þá fyrir-
höfn frá því fyrsta, og þar til jarðarförinni var lok-
ið, gáfu þessir fyrnefndu bræður mér ásamt slnum
félagsbræðrum. Eg treysti því, að guð launi fyrir
mig fátæka.
Stödd í Reykjavík, 23. apríl, 1901.
Gudb/örg Guðmundsdóttir.
Við, ekkja og börn Jónssát. Einars-
sonar í Skildingaresi, og eiginmaður,
tengdamöðir og tengdasystkini Ólafar
sál. Guðmundsdóttur samastaðar, vottum
hér með öllum þeim, sem auðsýndu okk-
ur hluttekningu í söknuði okkarogsorg,
og með návist sinni heiðruðu jarðarför
þeirra — sem fram för i gær — okkar
innilegasta þakklæti.
Reykjavík 24. apríl 1901.
Ásta Sigurðardóttir. Sigurður Jónsson.
Einar Jónsson. Guðrún Jónsdóttir.
Vilborg Jó?isdóttir.
Pappinn góði
er kominn til Gísla Þorbjarnarsonar.
Eins og áður hefur verið auglýst, á
öðrum stað, eiga allir kaupendur »Plógs« að
greiða andvirði þessa yfirstandandi 3. árgangs
til mín, sömuleiðis þeir, sem skulda fyrir 1. og
2. árg. blaðsins. Gjalddagi fyrir ?niðja?i júlí.
Allar pantanir á blaðinu og annað útsendingu
þess áhrærandi á að sendast til mín.
Af því að ýmsir hafa viljað fá 1. og 2.
árg. blaðsins keypta, auglýsist hér með, að
borgun fyrir þessa árganga verður að fylgja
p'óntuninni: 1 kr. 25 a, fyrir 1. árg. og
1 króna fyrir 2. árgang. Annars verður
pöntunum þessum ekki sinnt, með því upp-
lag þessara árganga er nær þrotið. — Þeir
sem selja 5 eintök eða fleiri af 3. árg. fá 20°/0
í sölulaun, en af 4 eint. eða færri reiknast
engin sölulaun.
Reykjavík 26. apríl 1901.
Hannes Þorsteinsson.
í verzlun Sturlu Jónssonar
fæst:
Farfi allskonar, terpentína, kítti, purk-
andi, shellakk, benzin, maskínuolía, salmíak-
spiritus, edikssýra.
♦ Samsöngurt
undir forstöðu Brynjólfs Þorlákssonar og Helga
Helgasonar verður haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu
sunnudagskveldið 28. þ. m.
WfT~ Ágóðinn rennur til minnis—
varða yflr Jónas Hallgrimsson.
Bankastjóri Tr. Gunnarsson hefur í 10. tölubl.
Þjóðólfs þ. á. í „maðka“grein sinni með fyrirsögninni
„Þyrnar milli rósa“ gefið það í skyn, að eg hafi
ekki viljað eða nennt að skoða Bessastaðatjörn. Þar
eð þetta er ekki sannleikanum samkvæmt, eins og
eg einnig hef sýnt fram á í 33. tölubl. Þjóðólfs f. á.,
sé eg mig knúðan tii þess að reka af mér þennan
áburð með lögsókn gegn velnefndum bankastjóra,
og það bið eg hér með Þjóðólf að birta sínum les-
endum. —
Rvík 19. apr. 1901.
Sig. Thoroddse?t.
Gufubáturinn
,Oddur4
Eptir samningi við umboðsmann sýslu-
nefndarinnar í Rangárvallasýslu, herra prest
Skúla Skúlason i Odda, fer gufubáturinn „Odd-
ur“ í sumar 2 ferðir milli Eyrarbakka,
Stokkseyrar, Skúmsstaða og Hall-
geirseyjar í Landeyjum, og Holtsvarar
undir Eyjafjöllum:
1. ferð ?nilli 1. og 10. júní,
2. — — 28. júní og 6. júlí
Pöntun á vörum frá Lefoliisverzlun verð-
ur að vera komin til mín í seinasta lagi 2
dögum á undan áætlun.
Eyrarbakka 18. apríl 1901.
P. Nielsen.
Ný útkomið:
Hemiing Jensen: Bernska Og æska
Jesú.
Kostar í kápu: Kr. 1,00.
Aðalútsölu hefur:
Sigfús Eymundsson, Reykjavík.
Fæst hjá útsölumönnum bóksalafélagsins víðs-
vegar um land.
VOTTORÐ.
Eptir að eg í mörg ár hafði þjáðst af
hjartaslætti, taugaveiklan, höfuðþyngslum og
svefnleysi, fór eg að reyna Kína-lífs-elixír
herra Valdemars Petersens, og varð eg þá
þegar vör svo mikils bata, að eg er nú fylli-
lega sannfærð um, að eg hef hitt hið rétta
meðal við veiki minni.
Haukadal.
Guðríður Eyj ó 1 fsdóttir
ekkja.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum kaup-
mönnum á íslandi, án nokkurrar tollhækkunar,
svo að verðið er öldungis sama sem fyr, 1 kr. 5°
a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta
Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel
V.P.
eptir því, ad—þý standi á flöskunum 1 grænu lakki,
og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku-
miðanum: Kínverji með glas 1 hendi, og firma-
nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Glasgow-prentsmiðjan.