Þjóðólfur - 31.05.1901, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 31.05.1901, Blaðsíða 1
ÞJOÐOLFUR. 53. árg. Reykjavík, föstudaginn 31. maí 1901. Nr. 26. Biðjið ætíð um OTTO MÖNSTED’S danska sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og byr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. Fæst hjá kaupmönnunum. ± Fyrir 2 krónur ♦ geta nýir kaupendur fengið Þjóðólf frá I. júlf næstk. til ársloka (30 tölublöð). í kaupbæti fylgja tvenn sérprent- uð sögusöfn blaðsins, hin nýj- ustu, 11. og 12. hepti Ágœtar skemmtisögur. Vilji menn fá sögusöfn þessi, jafnskjótt og menn panta blaðið, verður borgunin (2 kr.) fyrir hálfan árgang þess að fylgja pöntuninni. Askript að þess- um síðari helming árgangsins er jafnframt bindandi fyrir næstkomandi árgang (54. árg.) frá nýári 1902 til ársloka. 'W&F~ Nýir kaupendur ættu að sæta þessum vildarkjör- um sem allra fyrst. Útlendar fréttir. Kaupmannahöfn, 10. maf. í prússneska ráðaneytinu hefur sú breyting orðið þessa dagana, að Miquel fjár- málaráðherra og tveir aðrir hafa fengið lausn og nýir menn komið í staðinn. Ráðaneytið hefur ])ó sama blæ sem áður í pólitisku tilliti. Breyt- ingin er einungis að því leyti viðburður, sem Miqu- el hefur farið frá; hann hefur verið fjármálaráð- gjafi yfir ro ár, auk þess varaforseti í prússneska ráðaneytinu, og þótti stýra embætti sínu með ó- vanalegum dugnaði; sem stjórnmálamaður var hann og talinn garpur mikill: málsnjall, liðugur og framsýnn, en ekki ætíð allur, þar sem hann var séður. Það mun hafa verið óánægja keisara með hann f skurðamálinu, sem olli fráför hans; keisari hefur þó nú opinberlega þakkað honum fyrir góða þjónustu og gefið honum sæti í herra- húsinu (annari deild landdagsins). —Rheinbaben innanrfkisráðgjafi hefur tekið við embætti Miquel’s. A Spáni er nú aptur uppþot, einkum í Barcelona, sem kvað vera einskonar miðdepill ó- eirðanna þar syðra og þar sem spánskir anarkist- ar og ýmsir útlenskir óróaseggir halda til. Upp- þotið er aðallega að kenna vinnuþrasi, sem leitt hefur til, að fjöldi verkamanna gengur atvinnu- laus, en hin eiginlega orsök til þessara sífelldu ó- eirða á Spáni er eymdarástand alþýðu bæði í efna- legu og andlegu tilliti; fátæktin veldur óánægju og gremju og fáfræðin gerir lýðinn leiðitaman í höndum samvizkulausra æsingamanna. Að stjóm- inni þykir ástandið ískyggilegt, sézt m. a. af því, að hún þegar hefur sent fjölmennan herflokk (6— 8000 m.) til Barcelona til þess að skakka leikinn; fjöldi uppreisnarmanna (yfir 500) er tekinn fastur og er svo ákveðið, að hinir sekn skulu dæmdir við herrétt (Standret). Þess er getið, ,að Rússar hafi á Póllandi sett fleiri hunduð manna fasta, vegna nihiliskra æsinga. Búar og Bretar berjast nú fjörugar en nokkru sinni, einkum norðan-og austan til í Transval; Búar kvað hafa misst margt manna; að Bretar held- Ur ekki komast klakklaust af, sézt m. á. af þvf, að þeir eptir opinberum skýrslum hafa í aprílm. misst aðsamtöldu 31 herforingjaog421 dáta (8 + 122 féllu, 20 + 206 særðust og 3+93 voru herteknir). Rptir ræðu, sem Milner landstjóri nýlega héfur haldið í Kapbæ á leið til Englands, er ástandið þó betra í augum Breta, en fyrir 2 mánuðum ; her- menn Búa kvað vera farnir að missa kjarkinn.— I byrjun þ. m. voru af 519 sjúklingum 217 dauð- ir af pest í Kapbæ. Sömu stympingarnar í K í n a ; sendiherrarnif kvað nú vera orðnir ásáttir um, að Kínverjar skuli greiða í skaðabætur alls 450 miljónir taéls (hér um bil 1300 milj. krónur). Þess er getið, að Tuan prins sé höndlaður og eigi að sitja æfilangt í fangelsi. Austurríkismenn ætla nú, eins og Þjóð- verjar, að fara grafa skurði milli fljótanna þar í landi; þó að stjórnin annars eigi við raman reip að draga, kvað þó vera útlit fyrir, að Koerber ráðaneytis- forseta muni takast að fá oddvita helztu flokkanna í þinginu til að samþykkja frumvarp í þá átt. ÝmÍSlegt. Dreyfus hefur gefið út æfisögu sína á þeim 5 árum, sem hann sat í Djöfulsey. Sagan byrjar með handtöku hans í París og end- ar með málinu í Rennes. Það verður auðvitað sorgleg saga; flest blöð hafa birt langa kafla úr henni. ____________ Um sama leyti semDelcassé, utanríkisráð- gjafi Frakka, var í Pétursborg, kom sú saga, að Rússar ætluðu að taka nýtt ríkislán upp á 500 miljónir franka. Blöðin telja það víst, að Rúss- ar heimti það sem nýjan vináttuvott, að Frakkar útvegi þeim féð. Það verður útdráttarsamt á end- anum að standa í vinfengi við Rússa! Fólkstala áEnglandi og Wales er sögð 32,525,716 manna — 3,523,191 fleiri en 1891. Lundúnir hafa 4,536,034 íbúa (308,717 fleiri en síðast). í Svíþjóð, þar sem margir glæpamenn hafa verið líflátnir á seinni árum, er samþykkt, aðvið aftökur skuli framvegis notuð fallöxi (guillotine) i staðinn fyrir handöxi. Griesheim heitir títill bær mílu írá Frankfurt við fljótið Main, íbúar um 8000, mest verkamenn (með fjölskyldur), er hafa atvinnu við kemiskar verkstofur þar í bænum. I lok f. m. varð það slys i verkstofunum, að eldur komst að nokkrum ílátum, þar sem í var píkrínsýra, og sprengdust þau í sama vetfangi, og áður en varði stóðu verkstofurnar og allt umhverfisí björtubáli; eldurinn þeyttist meir að segja yfir ána og náði þorpinu Schwanheim, þar sem nokkur hús brunnu. 15 manns biðu þegar bana við sprenginguna og 150 meiddust og sæ^ðust meira eða minna. Tjón- ið vitanlega geysimikið. Af öðrum slysum má nefna stórfelldan bæj- arbruna i Jacksonville í Floridaíbyrjunþ. m. 25 húsaþyrpingar (2 enskar milur á lengd) brunnu; 5 börn fórust, en 10—15000 manns urðu hús- næðislausir. Fjártjónið metið 15 miljónir dollara. Ríkisdagurinn þýzki hefur með 185 atkv. gegn 40 samþykkt frumvarp til lagaum, aðþing- menn skuli fá laun fyrir þingsetu (20 ríkismörk á dag og járnbrautarkeyrslu án farareyris). Þetta er reyndar engin ný krafa, en sambandsráðið (Forbundsraadet, efri deild eða »yfirhúsið«) hefur ávallt fellt frumvarpið. Nú er eptir að vita, hvað »ráðið« segir í þetta sinn. Illgirnis-þvættingur „ísafoldaru. Allt á sömu bókina lært. Stjórnarmálgagnið er 1 illu skapi núna þessa dagana, sem að vísu er ekki ný bóla. Menn eru alveg hættir að kippa sér upp við það, þótt blað- tetrið ausi auri á báðar hendur, og geri svo óhreint fyrir sínum eigin dyrum, að frágangssök sé íyrir mennina að gera þar nokkurntima hreint aptur, enda leitast þeir ekki við það. Þar er svo mik- inn Agíasarflór að moka. En þeir verða þó að reyna að halda sér einhvernveginn upp úr manna- tetrin, þótt »pólitiskt dauðir« séu fyrir mannasjón- um, og það gera þeir með útúrsnúningum og heimskuvaðli, þegar einhver hefur stungið upp f þá óþægilegum bita, sem þeir vilja nauðugir kyngja. — Til þessara venjulegu varna sinna hafa þeir gripið gagnvart rangfærslum þeim á tillögu minni í stjórnárskármálinu o. fl., er þeir voru gerðir sannirað sökumí síðasta tölubl. Þjóðólfs. Þeirhafa nú orðið að kyngja þvf aptur, en reyna svo að breiða yfir flanið með því að ranghverfa tillög- unni sjálfri og taka alls ekkert tilgreina, hvern- ig hún er stíluð. Við slíka menn er naumast orðum eyðandi. En vegna annara, sem ekki sjá nema aðra hliðina og kunna að blekkjast af moldrykinu og yfirlætisgorgeirnum í þessum pilt- um, þá er naumast rétt að láta illgirnisraus þeirra eins og vind um eyrum þjóta. Þess er þá fyrst að geta, að Isafoldarmönn- unum er afarilla við ráðgjafa búsettan hér á landi, sem er skiljanlegt, því að menn þessir vilja róa að því öllum árum, að valdið flytjist ekki inn í landið, heldur út úr því. En einkennilegast er, að þeir eigna mér, að eg heimti í tillögu minni búsettan ráðgjafa hér á landi án stjórnarskrárbreyt- ingar, er ekki geti staðizt, af því að landshöfð- ingjanum sé í stj.skránni fengið í hendur æzta vald innanlands á ábyrgð ráðgjafans (sbr. 2. gr.). Hefðu þeir viljað lesa tillögu mína, eins og skyn- semi gæddar verur, þá hefðu þeir getað séð, að þar er einmitt lögð sérstök áherzla á þau atriði, er vér skoðum sjálfsögð án stjórnarskrárbreyt- ingar,nfl. að samkv. 1. gr. sé skipaður sér- stakurráðherra fyrir sérmál Islands, maður, er ekki hafi öðrum stjórnarstörfum að gegna, og svo síðar, að hann mæti á alþingi í

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.