Þjóðólfur - 09.08.1901, Page 1
M
ÞJOÐOLFUR
53. árg.
Reykjavík, föstudaginn 9. ágúst
1901.
Nr. 40.
Biðjið ætíð um
OTTO MÖNSTED’S
danska smjörlíki
sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör.
Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru
og ódýrustu í samanburði við gæðin.
Fæst hjá kanpmönnnnnm.
Utlendar fréttir.
Kaupmannahöfn, 26. júlí.
x6. þ. m. sagði ráðaneytið Sehested af sér
völdum og viku síðar (23. þ. m.) skipaði konung-
ur nýtt ráðaneyti úr flokki vinstrimanna. Hinir
útvöldu eru þessir:
J. H. Deuntzer háskólaprófessor, dr. jur., ráða-
neytisforseti og utanríkisráðgjafi.
F. H. Jöhncke kontreadmiral, herflotaráðgjafi.
Y. H. 0. Madsen oberst, hermálaráðgjafi.
C. Hage stórkaupmaður, cand. polit., fólks-
þingsmaður, fjármálaráðgjafi.
P. A. Alberti hæstaréttarmálafærslum., dóms-
málaráðgjafi og ráðgjafi fyrir Island.
,T. C. Cliristensen-Stadil statsrevisor, fólksþm.,
kirkju- og kennslumálaráðgjafi.
Ole Hansen sjálfseignarbóndi, fólksþm., land-
búnaðarráðgjafi.
Y. Hörup ritstjóri, járnbrauta- og póstmála-
ráðgjafi.
Enevold Sörensen ritstjóri (frá Kolding), fólks-
þm., innanríkisráðgjafi.
Ráðaneytið er eindregið vinstriráðaneyti, þó
að skoðanamunur sé talsverður. Þeir Deuntzer,
Hage og Hörup eru „radikale", Christensen og
Sörensen aðhyllast mest pólitik gamla Bergs, Al-
berti og Hansen eru bændavinir. Elztur afþeim
er Jöhncke, f. 1837, yngstur Christensen, f. 1856.
— Ole Hansen, f. 1855, er fyrsti bóndinn, er set-
ið hefur i ráðgjafasessi í Danmörku. Þeir C. og
S. hata tekið alþýðukennarapróf; C. hefur og
gegnt þesskonar stöðu á Jótlandi þangað til fyr-
ir eitthvað 2 mánuðum, en hann hefur jafnframt
verið einhver atkvæðamesti vinstrimaður á þingi.
— Gleðin yfir ráðaneytisskiptunum er mikil í her-
búðum vinstrimanna (og sósíalista með) — allir
búast þeir nú við gulli og grænum skógum —
pólitiskt séð; eptir er nú að eins að vita, hvort
vinfengið milli vinstri og sósíal. helzt til lang-
frama. Hægrimenn taka breytingunni yfirleitt
með stillingu; verst er þeim vitanlega við Hörup,
naprasta og tannhvassasta mótstöðumann hægra-
flokksins. Hörup heíur fengið ritstjórn „Politik-
en“ í hendur dr. phil. Edvard Brandes.
Islandsráðgjafinn, Alberti, sem nú er 51 árs
að aldri, var fyrir 9 árum öldungis óreyndur í
pólitik, en hefur siðan hann komst á þing 1892
látið allmikið til sín taka, en hefur ekki ætíð
þótt við eina fjölina feldur. Hann er sósíalist-
um f jarstæður og hefur einatt átt í hnútukasti við
þá á þingi. Hann hefur aldrei skipt sér af ís-
landsmálum svo rnenn viti.
Það hefur þótt tíðindum sæta, að Bretar hafa
i bæ þeim, er Reitz heitir, náð nokkrum betri
mönnum meðal Búa á vald sitt, þar á meðal
hinni svonefnau stjórn Oraníuríkis; þó tókst gamla
Steijn að sleppa undan við annan rnann. Annars
bvað Búar láta borginmannlega, þykjast geta bar-
lzt ennþá í Vh ár; de Wet segist jafnvel geta
Þvælzt fyrir Bretum í 3—4 ár í fjallatindum. Þetta
túá þó heita ótrúlegt, ef það er satt, að Búar
tthssi svo margt manna, sem Engl. segja, (frá 8/3
til 8/7 þ. á. t. d. 8000 m. að öllu samantöldu),
einkum þegar þess líka er gætt, að Bretar hafa
ofureflí liðs (seinustu mánuðina 251,000 m. — þar
á meðal voru þó 14000 sjúklingar).
Kona Kriigers íorseta er nýlega dáin í Pret-
oriuaf lungnabólgu — eptir 3 dagalegu — 67 áragl.
Það hefur tekizt — að nafninu — að sporna
við klofningi vinstrimanna flokksins á Englandi,
sem eins og áður er ávikið þótti væntanlegur. A
fundi, sem þingmenn þessa flokks héldu nýlega,
tókst oddvita þeirra, Cainpbell-Bannermann, að
synda svo milli skers og báru — milli imperia-
lista og anti-imp., — að báðir partar komu sér
saman um að votta honum traust sitt, enda þótt
þeir hver um sig jafnframt áskildu sér rétt til
þess að halda fast við skoðanir sínar. Anti-im-
perialistarnir eiga að öðru leyti ekki upp á há-
borðið um þessar mundir; hinn nafnkunni stjórn-
málamaður Rosebery lávarður hefur sagt þeim til
syndanna og í sama strenginn tóku nýlega Lund-
únabúar með borgstjóra í broddi á fjölmennum
fundi í Guildhall, þar sem þeir í tilefni afAíriku-
strfðinu lýstu trausti sínu á ráðaneyti Salisbury’s.
Aptur hafa borist fréttir um ágreining milli
sendiherra stórveldanna í Kína (einkum Engl. og
Rússl.) út af ákvæðunum um greiðslu skaðabót-
anna; seinna hefur það þó verið haft eptir sendi-
herra Bandaríkjanna, að allt væri klappað og
klárt og afborguninni ætti að vera lokið fyrir
1940.
Georg Grikkjaprins hefur tekizt á hendur
landstjórn á Krít aptur fyrir komandi 3 ár; stór-
veldin höfðu algerlega daufheyrzt við uppástungu
hans um að innlima eyna, er að nafninu lýtur
Tyrklandi, í Grikkland.
Baudin, frakkneskur ráðherra, varð hér á
dögunum íyrir tilræði af konu, frú Olzewoski
að nafni, er skaut á vagn hans. Tilgangur
hennar var þó ekki að gera honum mein, heldur
að eins að leiða athygli að sér — þótti ráðaneyt-
ið hafa daufheyrzt kvabbi hennar um fjárstyrk.
Hitinn bæði hér 1 álfu og vestan hafs hefur-
um langan tíma allt ætlað að bræða, hér í Höfn
opt langt yfir 20 st. R. eða upp að 30 st. C.; í
Ameríku deyr fjöldi fólks af hita — 9 þ. m. var
þannig sagt, að í New-York hefði þá seinustu
vikuna dáið 989 m.
Mr. Baldwin, er um miðjan þ. m. lagður af
stað frá Tromsö í heimskautaferð. Ferðina kost
ar amerlkstur auðmaður Ziegler að nafni. Það
er sama hvað ferðin kostar, komist B. að eins —
að pólnum!
Stjórnarbreytingin
í Danmörku. f
Vinstrimenn komnir til valda.
Eins og sést af útlendu fréttunum hér á und-
an, og Þjóðólfur hefur áður skýrt frá á sérstök-
um fregnmiða, komu þau fagnaðartíðindi nú með
»Ceres«, að vinstrimanna ráðaneyti væri komið
til valda í Danmörku..
Allir þeir, sem hrindaviljastjórnarbótarmáli vortt
í gott og æskilegt horf, hljóta að fagna þessari stjórn-
arbreytingu í Danmörku. Og þóttþessi tíðindi kæmu
nokkuð seint til að hafa sem heppilegust áhrif á
úrslit stjórnarskrármálsins á þessu þingi, þá er þó
enn nægur tími fyrir Hafnarstjórnarflokkinn að
sjá að sér og taka þá stefnu í því, er bezt gegn-
ir. Og þar er ekki um marga vegi að ræða. Það
mun hverjum manni liggja í augum uppi, erhlut-
drægnislaust vill líta á þetta mál, að það væri
hið hreinasta gerræði gagnvart þjóðinni að sam-
þykkja nú óbreytt frumvarp það, er fyrir efri deild
liggur, jafnskammt sem það fer og jafnófull-
nægjandi sem það er í öllum atriðum, enda bein-
línis skaðsamlegt fyrir sjálfstjórn vora, þar sem
það miðaði beinlínis að því, að flytja þann litla
snefil, sem vér nú höfum af sjálfsforræði, út úr
landinu til Hafnar. Slíkt frumvarp getur aldrei
fullnægt óskum þjóðar vorrar, eins og geta má
nærri, — ekki neitt þvílíkt, hvernig sem formæl-
endur þess leggja höfuð sín í bleyti til að fegra
það, því að þau meðmæli geta ekki verið sprott-
inaf sannfæringu, heldur af blindu kappi og þráa.
En slík blindni, slíkt ofurkapp er óafsakanlegf,
þegar um velferð landsins er að tefla.
Margur mundi hafa ætlað, að tvær grímur
rynnu á Hafnarstjórnarflokkinn að halda frum-
varpi sínu til streitu eptir sem áður, þá er fregn-
ir voru komnar um þessi ráðaneytisskipti. En
það er því miður lítið útlit fyrir, að þeir láti sér
segjast, heldur neyti þess eins atkvæðismunar, er
þeir væntanlega hafa í efri deild til að knýja
málið nú áfram, berandi það fyrir, að n ú séu
þeir hér um bil vissir um að fá þetta samþykkt.
Það getur vel verið að svo yrði. En værurn vér
nokkru bættari með það? Þvert á móti. Ver
farnir en áður, því að þá væri hér um bil öld-
ungis girt fyrir, að vér gætum slðar fengið nokkra