Þjóðólfur - 12.10.1901, Side 3

Þjóðólfur - 12.10.1901, Side 3
!95 Pólitíska lineykslið í sumar. Ljósara og ljósara hlýtur það að verða al- menningi, hve óafsakanleg pólitísk stórflónska það var, er Hafnarstjórnarmenn gerðu sig seka 1 á þingi í sumar, þá er þeir-skelltu skolleyrunum við öllum tilböðum heimastjórnarmanna, vildu ekkert tillit taka til stjórnarskiptanna í Danmörku. Nú hafa þeir með aðferð sinni bægt vinstri manna ráðaneytinu frá því að íeggja frumvarp fyrir aukaþingið að sumri, þótt það gjarnan vildi, með því að stjórnin getur naumast gert það, meðan annað frumvarp samþykkt af þinginu (að nafninu til) er á döfinni. Atferli Hafnarstjórnarmanna í sumar miðaði því eingöngu til að fresta úrslitum málsins í stað þess að flýta fyrir þeim, því að þeir máttu búast við því, og mega nú áreiðanlega gera það, að þjóð- in sættir sig alls ekki við frumvarp það óbreytt, er knúið var fram 1 sumar. Um það munu þeir herrar fá greinilegar bendingar fyrir kosningarnar að vori. Það er ekki Hafnarstjórnarmönnum að þakka, þótt vér förum ekki algerlega á mis við allan hagnað af stjórnarskiptunum í Danmörku. Hefðu þeir með Valtý 1 broddi verið látnir einir uni hit- una, þá hefðum vér nú enga von um að fá inn- lenda stjórn, sem vér nú höfum þó að minnsta kosti góðar vonir um, ef hinum tekst ekki að ónýta það aptur, sem á unnizt hefur. I greininni í „Politíken", er prentað var í síðasta blaði, er skýrt tekið fram, að með því að vinstri manna stjórn sé nú komin til valda í Dan- mörku, sé ómögulegt, að Isletidingar muni ekki geta náð meiri sjálfstjórn og frelsi í sérmálum sinutn“ („Politiken" 13. sept.). I sama strenginn tekur blaðið „Köbenhavn" 19. f. m. í mjög velviljaðri ritstjórnargrein. Er þar beinlfnis lögð áherzla á, að í frumvarpi meiri hlutans í sumar sé fallið frá kröfunni um búsetu ráðgjafans hér á landi, og „þess vegna fari það fratn á tninna, en hið núverandi ráðatieyti tnunivera tilleiðanlcgt tilað veita Islandi". Er það ekki dálítið einkennilegt, að Danir þurfi að verða til þess að segja okkur það, að krafa vor um innlenda stjórn eða búsetu ráðgjaf- ans hér á landi sé eðlileg, og „ekkert í henni ó- sanngjarnt eða óaðgengilegt frá d'onsku sjónarmiði“ eins og „Politiken" kernst að orði? Þetta þykir Hafnarstjórnarmönnnm sjálfsagt einhver hin versta og mesta goðgá, eptir framkomu þeirra i sumar að dæma, því að þeir voru ávallt að klifa á því, að vinstri manna ráðaneytlnu mundi ekki koma til hugar að sinna slíkri heimsku(!!) og því var tekið mjög fjærri, að stjórnarskiptin ættu að hafa nokkur áhrif á úrslit stjórnarskrársmálins á þingi. Það var róinn lífróður í Hafnarstjórnarflokknum fyrir því, að láta þjóðina ekki fá neitt svigrútn til umhugstmar, gefa henni ekki kost á því að láta í Ijósi óskir sínar við hina nýju stjórn, heldur reyna að binda atkvæði hennar við ákveöið frumvarp, er flokkurinn bjó til, og ekki íór út fyrir þann grund- völl, er Valtýr hafði lagt 1897, því að af honum mátti ekki víkja. Nú ríður á, að þjóðin látiekki Valtýssinna villa sjónir fyrir henni lengur. Sá skollaleikur hefur nógu lengi staðið, þótt honum fari nú að linna. Taki þjóðin ekki af skarið nú við næstu kosning- ar gagnvart Hafnarstjórnarflokknum, má hún sjálfri sér um kenna, að hún dettur í þá gröf, sem hún hefur grafið sjálfri sér. En það er vonandi, að hún hafi svo mikið þrek, svo mikið sjálfstæði, að hún sjái fótum sínum forráð. HeimferO H. Hafsteins. Meðal hinna mprgu ósanninda, er Hafnarstjórn- armenn og málgögn þeirra hafa í gremju sinni spunnið upp út af sendiför Hannesar Hafsteins, er það, að hannhafi »hrökklast« heim með »Ceres« erindisleysu, verið ráðlagt að bíða ekki lengur, en annars ætlað sér upphaflega að fara ekki heim ú leið fyr en nú með »Laura« til Reykjavíkur. Þetta eru helber ósannindi og uppspuni. H. Hafst. var fastráðinn í því, þá er hann sigldi heðan í þinglok, að fara heim aptur með »Ceres« kringum land til ísafjarð- ar. Þetta var öllum flokksbræðrum hans kunn- ugt og mörgum öðrum, því að það var ekkert leyndarmál. Hann gat lokið erindi sínu á þeim tíma, sem »Ceres« stóð við í Kaupm.höfn, og gat hvort sem var ekki setið svo lengi yfir ráð- gjafanum, að Valtýr sæti ekki lengur. Hefði H. H. séð þess nokkra þörf, að breyta ferðaáætlun sinni og bíða »Lauru« mundi hann eflaust hafa gert það, en þess þurfti ekki. — Hvað Valtýs máltólin að öðru leyti segja um þessa sendiför, þá er nú komið sem komið er, að Valtýr mun hafa tapað alveg skákinni, sem hann hélt, að hann mundi vinna í sumar; verður líklega erfitt fyrir hann úr þessu að skáka valdinu út úr land- inu og sjálfum sér upp í ráðherrasætið. Annars er sennilegt, að Hannes Hafstein muni á sínum tíma taka eitthvað í hnakkann á Valtýsmálgögn- unum fyrir spangól þeirra gagnvart honum per- sónulega, ef hann þá telur það þess vert. Alþingi leyst upp, Með opnu bréfi 13. f. m. hefur konungur leyst upp alþingi samkvæmt 61. gr. stj.skrárinnar, með því að samþ. var frumvarp til breytinga á stjórn- arskránni af alþ. í sumar. Nýjar kosningar. Sama dag (13. sept.) hefur konungur fyrir skip- að með opnu bréfi að n ý j a r, k o s n i n g a r til al- þingis til næstu 6 áia skuli fram fara á tíma- bilinu frá 2.— 11. júní 1902, að báðum dögum meðtöldum. Síðar verður fyrirskipað, hvenær aukaþingið skuli koma saman. Ný lög. Þessi lagafrumvörp frá síðasta alþingi eru orðin að lögum, staðfest af konungi 13. f. ni. 1. Samþykkt á landsreikningunum 1898 og 1899. 2. Fjáraukalög fyrir árin 1898 og 1899. 3. Póstlög. 4. Breyting á tilskipun 20. apríl 1872 um bæjarstjórn í Reykjavík. 5. Um manntal í Reykjavík. 6. Um próf í gufuvélafræði við stýrimannaskólann. 7. Um tilhögun á löggæzlu við fiskiveiðar í Norð- urstjónum. 8. Um bann gegn því að flytja vopn og skotföng til Kína. 9. Viðauki við lög 6. nóv. 1897 um undirbúning verðlagsskráa, 10. Um forgangsrátt veðhafa fyrir vöxtum. 11. Um útvegun á jörð handa Fjallaþingaprestakalli. 12. Breyting á 4. gr. laga 14. des. 1877 um laun sýslumanna og bæjarfógeta (Suðurmúlasýsla). 13. Um heilbrigðissamþykktir í kaupstöðum, kaup- túnum og sjóþorpum á Islandi. 14. Viðaukalög við lög 31. jan. 1896 um varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma. 15. Um stofun slökkviliðs á Seyðisfirði. 16. Um skipun sótaraí kaupstöðum öðrum en Reykja- vík. 17. Viðaukalög við lög um prentsmiðjur 4. des. 1886. 18. Um skipti á jörðunni Vallakoti í Reykdælahreppi og jörðunni Parti í sama hreppi. Er þetta rúmur þriðjungur að tölunni til þeirra frumvarpa, er samþykkt voru á síðasta þingi. íslenzkir sagnaþættir. Frá Hafnarbræðrum. Þegar timburskipið „Strombola" strandaði og rak upp á Starmýrarfjöru 1818 (á landeign þeirra Hjörleifs) þá fréttu þeir feðgar norður að Nesi, að skipið væri fullt af timbri. Hjörleifur fór þvl suð- ur um haustið, þó að farið væri að kólna lopt, og áður en Tvede sýslumaður var farinn að bjóða upp strandið. Hjörleifur fór um Breiðdal til gg frá, og Arni sonúr hans með honum. A suður- ferðinni voru þeir nótt hjá Sveini frænda sínum í Eyjum; varð þeim skrafdrjúgt um kveldið, og sagði þá Hiörleifur sögu um það, hvernig Os og Streiti komust undir Heydali og urðu kirkjujarðir, og var það í páfadæmi. Sagan er svo: „Prestar hafa lengi verið ágjarnir", sagði Hjör- leifur, „einkurn fyrrum; þeir hefðu sumir aldrei átt að vera. Einu sinni fyrir fleiri hundruð árum var prestur einn í Heydölum, sem- lék ágirnd á Osi, og jafnvel Streiti. Bændurnir á þessum bæj- um voru aldraðir og óhraustir, og dóu ásínum tíma; áttu þeir sína jörðina hver, Ós og Streiti (12 hndr.hvor); þeir voru grafnir í Heydalakirkjugarði. Veturinn eptir var góður mjög, og hugsar prestur sér nú upp ráð til þess að ná jörðunum, nálægt jólum. Hann sendi eptir skeljum með fiski í út að Ósi, óg tók þær síðan og setti á leiði bænd- anna, hann lét og brennistein á skeljarnar og kveikti svo í, og varð þar bláleit týra. Nú komu ekkjur bændanna til kirkju og er prestur mjög þurlegur við þær; fer hann nú að minnast á, hve illa og óforsjállega bændur þeirra hafi lifað, að gefa ekkert til guðshúss fyrir sálu sinni. Ekkjurn- ar kváðust ekki vita til, að þeir hefðu lifað ver en aðrir. Prestur segir að það sé nauðsynlegt að biðja fyrir allra sálum, þótt misjafnt hafi syndgað, fer síðan með þær að leiðum bænda þeirra — lík- lega um jólanóttina — og sjá þær þar loga eld- týru bláleita og tístir í; þetta kvað prestur vera sálir bænd'anna í helvíti að sýta, og spyr, hvort þær vilji ekki leysa þá úr kvölunum. Þær taka að gráta og biðja hann að gera allt sitt bezta til að koma þeim þaðan, og biðja fyrir sálum þeirra. Prestur segir: „Þið eruð nógu ríkar, þið eigið jarðir, og þær eru vissastar til kirkjueignar; auð- urinn kemur ykkur ekki inn í himnaríki; þið haf- ið heyrt hvað frelsarinn sagði: „Gerið ykkur vini, eigi af þeim ranglætis mammoni, svo að nær yð- ur þrýtur, meðtaki þeir yður í eilífar tjaldbúðir". Þær gáfu síðan jarðirnar Ós og Streiti og var það fljótt bréfað". Daginn eptir fóru þeir Árni og Hjörleifur burt frá Eyjum og suður á Djúpavog og fundu sýslu- mann. Hjörleifur talar nú við hann um strandið og spvr, hvort hann megi ekki eiga neitt af strand- inu, þar sem það hafi rekið á sitt land. Sýslu- maður segir, að hann fái að njóta þess við upp- boð eins og aðrir. Hjörleifur segir: „Já, að eg skuli borga það eins og aðrir; það finnst mér nú ekki sanngjarnt". Sýslumaður segir: „Jú, það er sanngjarnt, því að stjórnin vill hafa allt strand, skip- reka, höggin og hefluð tré í ríkissjóðinn". Hjör- leifur segir: „Á eg þá ekkert að hafa af strand- inu? "Sýslumaður segir : „Eg sagði yður það“. Hjörleifur mælti; „Eg tek þó eitthvað af því með mér til baka; má eg það ekki? “Sýslumað- ur segir: „Nei, það á að bjóðast upp eins og það er“. „Það dregur ekki heilt konungsríki", seg- ir Hjörleifur, „þótt annarhvor okkar Árna beri 1 burtu fáein pund“. Sýslpmaður svarar engu, og gekk heim til húss síns. Hjörleifur kallar til hans, en hann anzar eigi. Hjörleifur segir: »Láttu mig ná í skottið á þér Tveði* og tekur nú í frakka sýslumanns og segir: „Má eg þá ekkert taka með mér af strandinu til baka? Það verður þó aldrei mikið". Sýslumaður segir: „Og eg get ekki átt við ykkur, þið getið tekið það, sem ykkur sýnist, en búið er að skrifa upp“. Hjörleifur segir: »Eg er enginn þjófur, eg segi þér og vara þig við, að eg ætla að skoða strandið, en hugsa ekki að flytja mikið í burtu". Sýslumaður segir: „Jæja, Hjör- leifur minn, ef þið takið nokkuð, þá verðið þið að láta mig sjá, þegar þið komið aptur". „Það skal eg gera“, segir Hjörleifur, „og vertu sæll Tveði!" Þeir Hjörleifur þáðu eigi að koma inn til sýslumanns. Þeir feðgar tara nú suður og koma apturá 3. degi;þá vill Hjörleifur finna sýslumann; hann kemur út. Hjörleifur segir: „Nú er eg bú- inn að skoða strandið og er þar mikið timbur; eg tók þar dálítið af blýi og kem nú að sýna þér það“. Sýslumaður mælti: „Hvar tókuð þið það, er það úr hliðinni á skipinu, þar sem kanónuhlaup- ið á að ganga að?“ „Það er víst" segir Hjörleif- ur, „má eg ekki fara með það?“ „Og það held eg“ segir sýslumaður. Hjörleifur segir: „Ekki fer eg með það, ef þér þykir nokkuð að því". Sýslumaður segir: „Og þiðmegiðhafa það“. Hjör- leifur segir: „Eg borga það ekkert". „Eg sel það heldur ekkert“, segir sýslumaður. Hjörleifur seg- ir: „Nú verðumviðað fara yfir fjörðinn, og vertu

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.