Þjóðólfur - 25.10.1901, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 25.10.1901, Blaðsíða 4
204 bætti honura það. Seinna vildi Stefán eignast stúlku ættaða að sunnan, Eggþóru dóttur Eggerts prests Bjarnasonar, en sagt var að séra Björn á Stafafelli hefði tálmað því, en er því varð eigi framgengt lagðist hann í rúmið og lá í því öðru hverju til dauðadags (nálægt 1860 eða nokkru fyr). — Stefán var næstum 3 al. á hæð og sæmi- lega gildur og sterkur, en þó eigi sem faðir hans. Hann var toginleitur með rautt skegg og dökk- leitt liðahár; hann var gerfilegur maður. Guðmmidur Hjörleifsson bjó á Efri-Starmýri, eign sinni, og hafði fyrst fyrir bústýru systur sína Guðlaugu; síðan giptist hann Sigríði systur Stefáns á Hvalnesi, Arnasonar á Neðri-Starmýri; hún var óhraust og lifði skamma stund, eptir að þau gipt- ust. Eptir dauða hennar gerðist Ragnheiður Stef- ánsdóttir, bróðurdóttir Sigríðar og fósturdóttir Guðmundar, bústýra hans og giptust þau síðan, og áttu nokkur böm: Oddnýju, Stefán, Sigríðiar 2, Guðleifu, Ragnheiði. Stefán var formaður. Sig- ríður eldri átti Sigurð Bjarnarson á Þvottá. Guð- leif átti Brynjólf Jónsson á Geithellum. Sigríður yngri átti Finn Jóhannsson á Starmýri. Guðmund- ur var vel meðalmaður á hæð, herðamikill, beina- stór og vöðvamikill, hrokkinhærður, með smá og gráleit augu; hann var ekki rauðleitur í andliti, sem Stefán bróðir hans, en heldur fölleitur, en þó eigi bjartleitur og ekki langleitur; hann gekk fremur lotinn og skálmaði áfram, ef hann vildi flýta sér, sem tröll væri og i því var hann svip- aður föður sínum og föðurbróður og gormæltur, sem faðir hans; hann var tveggja maki eins og bræður hans, þó að sjaldan á bæri; voru þeir lang- feðgar stilltir og stærðu sig aldrei af neinu, er þá sjálfa snerti, hvorki afli, keppni eða nokkurri þeirra framkvæmd. Guðmundur smíðaði báta eins og faðir hans og vann að því, sem öðru, er hann gerði, mjög traustlega. Hann var fremur efnamað- ur og átti fjölda fjár. Guðlaug Hjörleifsdóttir, átti Sigurð Markússon frá Flugustöðum; þau voru á Efri-Starmýri og áttu eigi börn og dó hún skömmu síðar. Hún var með hærri kvennmönnum, svipuð í andlitsfalli Guðmundi bróður sfnum og var stillt og góðvikin við flesta, eins og hann. Hún var fáorð, en þægi- leg þegar búið var að taka hana tali, eins og bræð- ur hennar og ötul vinnukona. — Það lítur svo út eins og þessir langfeðgar og margt af kyni þeirra hafi verið þunglynt. (Meira). Skipstrand. Hinn 18. þ. m. sleit upp hér á höfninni timb- urskipið »Thrift« eign Frederiksens & Co. 1 Man- dal, og rak upþ á klettana við »batteríið« og brotnaði þar úr því botninn. 3 menn voruáþví og var þeim bjargað í land á kaðli. Skipstjóri var í landi. Skipið var ferðbúið til Noregs með seglfestu. Það var óvátryggt. Norskur skipstjóri Aamundsen að nafni varð fyrir því slysi laugar- dagskveldið 12. þ. m., að lærbrotna í fjöruklett- um hjá Laugarnestöngum, var þar á ferð í myrkri liéðan úr Reykjavík, og ætlaði að komast út á skip sitt, er lá inni í Viðeyjarsundi, en var ókunn- ugur, fór ofnærri sjónum og hrapaði þar niður 1 klettaurð. Lá hann þar fótbrotinn alla nóttina, og féll sjór á hann upp að mitti, en um morg- uninn fann sjúklingur frá Laugarnesspítala hann af hendingu, og var skipstjóri eins og geta má nærri allmjög þrekaður en þó málhress. Kalsa- veður hafði verið um nóttina en frostlaust. Mað- urinn var fluttur hér á spítalann og bundið um brotið; er hann á góðum batavegi. Þykir hann hafa borið hraustlega hörmungarnar þessa voða- nótt, enda er hann sagður hraustmenni hið mesta og afarharðger. ,Laura‘ kom af Vestfjörðum í fyrra kveld, hafði taf- ist vegna storma. Fer til útlanda á morgun. Drukknun. Um 20. þ. m. drukknaði í Markarfljóti (Þverá) stúlka á þrítugsaldri frá Múlakoti í Fljóts- hlíð, Soffla Kristmundsdóttir, dóttir Krist- mundar bónda Ólafssonar á Syðri-Úlfsstöðum 1 Austur-Landeyjum. Var hún á heimleið úr kynn- isför hjá föður sínum, envarein á ferð yfir fljótið. Skipkoma. I morgun kom hingað beint frá Liverpool fjár- flutningaskip Zöllners „Fridthjof". A það að taka hér 2,700 fjár, er beðið hefur skipsins alllengi. Áð- ur í haust hefur skip þetta farið tvær ferðir með fjárfarm frá Norður- og Austurlandinu til Englands, annan frá Eyjafirði, hinn frá Vopnafirði. — Verð á fénu ytra heldur lægra en í fyrra.— Ný ensk blöð frá 19. þ. m. herma engin verulegtíðindi, eralmenna þýðingu hafa. ____________ Frekleg ósannindi eru það, sem ritstj. Isafoldar var fyrir skömmu N ý k o m i ð til Reinh. A S t ó rt að bera á borð fyrir Iesendur sína, að ekki væri unnt, að skjóta Hannesi Hafstein undan ábyrgð á öllu því, sem fréttasnatinn í „Nationaltidende" hermdi eptir honum, því að það væri almennur siður(!), að þeir, sem leitað væri frétta hjá, læsu yfir það, sem snatarnir hefðu eptir þeim, áður en það væri prentað og leiðréttu það!!. Þetta er hreinasti þvættingur. Eptir upplýsingum, er Þjóðólfur nú hef- ur fengið, náði fréttasnatinn Hannesi Hafstein að máli kl. 9—10 um kveldið, talaði við hann dálitla stund, og morguninn eptir fyrir miðjan morgun var greinin prentuð í blaðinu. H. H. hefur látið þess getið, að greinin sé „mjög stílfærð", ýmsu vikið við og sumt misskilið hjá snatanum, eins og eðli- legt er. n derson’s, af Ú r v a 1 V etrarfrakkaefnum frá 5—12 kr. al i n i n. Agætlega gott C H E V I O T 3». i vetrarföt. Allt selst með ■» 15u afslætti = gegrt borgun út í hönd. Skipmannsgarn fæst í VERZLUNINNI ,GODTHAAB‘. AUMASTOFA Gott yflrsængurflður er til sölu í Lind- argötu nr. 23. Undirritaður tekur að sér má'.færslu- störf. Bústaður Þingholtsstræti 8. Heima frá 12—2 og 4—6. Jón Þopkelsson. Guðm. Sigurðssonar, BANKASTRÆTI 14 er birg af öllu, sein til fata þarf. Mj'óg fínt CHEVIOT í sparifót. cand. jur. Andvari. Þeir, sem vilja senda ritgerðir til,AndvaraS eru beðnir að gera það svo snemma, að þær séu komnar í hendur undirskrifaðs for- seta Þjöðvinafélagsins fyrir lolc febrúarmánaðar næstk. Tryggvi Gunnarsson. Verð og gæði frá kr. 1 ,35—6,00 pr al. Efni í ULSTEKA — VETKABKÁPUR - FERÐAJAKKA — BABNAKÁPUK — DRENGtJAFÖT (mjiig ódýrt). BUXUB cinstakar — HVEBSDAUSFÖT — KAMGABN 0. fl. Ný efni væntanleg meðsls Laura. Þakkará varp. Þegar eg í s. 1. septembermánuði lagðist í þungri (og alllangri) sjúkdómslegu, sýndu þau heiðursverðu hjón, hr. L. Jörgensen málari og frú hans Rósa Jörg- ensen, mér þann mikla velgerning, að sækja handa mér húslækni þeirra (G. M.), án þess að þau tækju hið minnsta endurgjald fyrir. Fyrir þetta, sem og annað gott er þessi mann- úðarríku hjón sýndu mér í áður umgetnum veikind- um mínum, votta eg þeim hérmeð mitt innil. hjart- ans þakklæti, og vona að sá kærleikskraptur, sem ávalt er ráðandi f öllu hinu góða og sanna, endur- gjaldi þeim góðverk þetta á hentugri tíð. Reykjavík 11. okt. 1901. Pétur Pálsson. Gaddavír fæst nú í VERZLUNINNI „GODTHAAB" 3YEITAMENN geta fengið góðan og ódýran saltfisk í VERZLUNINNI ,,GODTHAAB“. yalleg gratulationskort. e i n k u m Ijómandi falleg og skrautleg SA Giptingarkort Hvergi fallegri í bænnni. SKÓLAVÖRÐUSTÍG M 5. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Glasgow-prentsmiðjan.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.