Þjóðólfur - 14.02.1902, Qupperneq 4
23
s(ðartöldu, en Krómwell var fjarri góðu
gamni og smoginn úr greipum lögreglunn-
ar með allan aflann, en skjalalaus.
Einn botnverpilinn
enn handsamaði »Beskytteren« fram
undan Grindavík og kom með hann hing-
að ii. þ. in. og slapp hann með 23 pd.
sekt (414 kr.) og hélt afla og veiðarfærum.
Botnvörpuskip þetta heitir »Straton«, skip-
stj. Smith. Sannanir fyrir brotinu voru
ekki svo glöggar sem skyldi.
Fimm þilskip
er J. P. T. Bryde stórkaupmaður hefur
keypt í Stafangri til fiskveiða hér við land,
komu hingað frá Noregi nú í vikunni,
með ísfenzkum skipstjórum og hásetum,
er farið höfðu út til að sækja skipin.
Kolabyrðingur
frá Brydes verzlun sökk hér á Rauðar-
árvík í rokinu 7. þ. m. með 2400 skpd.
af kolum, er munu ekki hafa verið í ábyrgð
og skaðinn því allmikill.
Póstskipið „Laura“
fór héðan áleiðistil Hafnar í fyrra dag.
Með því fór fjöldi farþega, þar á rneðal
kaupmennirnir Asgeir Sigurðsson, Brynj.
Bjarnason, D. Thomsen, Ólafur Árnason
frá Stokkseyri, P. J. Thorsteinsson frá
Bíldudal, og Skúli Thoroddsen frá Bessa-
stöðum, ennfremur Sigfús Bjarnarson kon-
súll frá ísafirði, Pétur Ólafsson verzlun-
arstj. frá Patreksfirði, Páll Torfason frá
Flateyri, Þórður Pálsson cand. med., Magn-
ús Benjamínsson úrsmiður, Jón Brynjólfsson
skósmiður, Einar Pálsson snikkari o. fl.
héðan úr bænum.
(Jm ísland og Ameríkn flytur S. B. Jónsson erindi í Iðnaðarmannahúsinu
á þriðjudagskveldið kemur, kl. 8'/». — Inngangur 25 aura. — Húsið opnað kl. 8.
Kartöflur fást í verzlun
Sturlu Jónssonar.
B1 ó m s v e i g a r.
á líkkistur o. fl., marg-
B L Ó M - ar tegUndir, ljómandi
S V E 1 G A R fallegir, nálægt 300
stykki um að velja,
þar ámeðal mjög stórir og ffnir blóm-
sveigar, hentugir, þegar félög vilja
heiðra framliðna vini sína eða meðlimi.
Sömuleiðis blómsveigaborðar,
áprentaðir ef óskað er, margar mjög
fallegar gerðir. Blóm og puntur í
blómsturvasa, ákaflega margarog marg-
breyttar tegundir um að velja. Pálma-
greinar af öllum stærðum, vaxrós-
ir, grályngf og margskonar tilbúin
blóm (um 90 tegundir), bæði til þess
að búa til úr blómsveiga og annað
skraut. •
Ennfremur mjögj mikið úrval af
heillaóskakortum, mjög ódýrum
og eptir nýjustu tízku.
Þetta og fleiri tilbúnir skrautmunir,
t. d. áteiknað angóla og klæði með
tilheyrandi, fæst á
Skólavörðiistíar 5.
Svanl. Benediktsdóttir.
í verzluninni
EDINBORG
i Reykjavik
fæst með bezta verði flest allt, er að
útgerð lýtur, svo sem
Línur,
Önglar,
Kaðlar allskonar.
Segldúkur margskonar,
Olíuföt o. fl. o. fl.
Einnig nægar birgðir af góðri og
billegri matvöru.
Ásgeir Sigurðsson.
Nýprenluð eru :
SKÓLALJÓÐ
Kvæðasafn handa unglingum
til að lesa og nema.
Valið hefur og búið til prentunar:
Þórhallur Bjarnarson.
Kostar í bandi kr. 1,00. Aðal-útsala
í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.
Fæst einnig hjá öðrum bóksölum í
Reykjavík.
----——»------------------
Klæðaverksmiðja
i Danmörku.
óskar að fá duglegan umboðsmann á
íslandi til að taka á móti ull til vefn-
aðar. — Beztu vörur, fljót skil. — Menn
sendi blaði þessu skriflegar upplýsing-
ar, með merki: „klæðaverksmiðja", um
meðmæli og kröfur um þóknun fyrir
að taka þetta starf að sér.
Skákdæmi og Tafllok.
II. hepti
Kom nú með Laura. Verð 50 aurar.
Fæst hjá Sigfúsi Eymundssyni bóksala
og Pétri Zóphóníassyni Lækjargötu 6.
Leikfélag Reykjavikur.
í kveld verður leikið í fyrsta sinn
hinn nýi leikur
„Skí rnin“
eptir „Peter Snrevsen".
Aðalfundur
Þilskipaábyrgðarfélagsins verð-
ur haldinn á „Hótel ísland", laugar-
daginn 15. febr. kl. 5. e. h.
Tryggvi Gunnarsson.
Herbergi til leigu eitt eða fleiri fyrir
einhlsypa menn í Veltusundi nr. 3 frá 14.
maí næstkomandi.
VOTTORÐ.
Eg hef síðustu 6 ár verið þungt hald-
inn af geðveiki og brúkað við því ýmis-
leg meðul, en árangurslaust, þar til eg
fyrir 5 vikum fór að brúka Kína-lífs-elix-
ir Waldemars Petersen í Fjiðrikshöfn.
Þá fekk eg undir eins reglulegan svefn;
og þegar eg var búinn með 3 glös af
elixírnum, kom verulegur bati, og vona
eg, að mér batni alveg, ef eg held á-
fram með hann.
Staddur í Reykjavík.
Pétur Bjarnason
frá Landakoti.
Að framanskráð yfirlýsing sé af frjáls-
um vilja gefin og að hlutaðeigandi sé
með fullri skynsemi, vc>ttar
L. Pá1sson
prakt. læknir.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum
kaupmönnum á íslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðiðeröldungis sama.
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir
v.p.
að líta vel eptir því, að F standi á flösk-
unuii 1 grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið Walde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Glasgow-prentsmiðjan.
t4
að halda rannsókn yfir óeirðarseggjunum og skyldi hún hafa aðsetur á
Leirdalseyri. Andrés frá Rjóðri bjóst aptur til þess að veita stjórninni
mótspyrnu, hélt fundi, ritaði bréf og ók út um sveitina og var nafni
hans frá Velli enn sem fyr í fylgd með honum. Bændurnir lofuðu einn-
ig í þetta sinn að fylgja leiðtogum sínum dyggilega og gefast ekki upp
fyr en í fulla hnefana.
Andrés fra Velli hafði verið úti á engjum, þar sem verið var að
veita á vatni. I Leirdal er mjög þurlent og er því vatni úr mörgum
smálækjum, sem koma niður undan fjöllunum, veitt með skurðum yfir
á engjarnar. Andrés gekk inn í stofuna áEfra-Rjóðri með skófluna sína
i hendinni.
Þar var hlemmur á þakinu, eins og þá var títt, og kallaður var ljóri;
mátti opna hann með stöng, sem lá niður í miðja stofuna, til þess að
reykurinn gæti farið út um opið. Ingiríður stóð á miðju gólfinu og var
að fást við ljórastöngina, þegar Andrés gekk inn. Faðir hennar sat í
öndvegi við borðsendann og fyrir framan hann lágu skjöl hans og blek-
byttan.
„Það var gott, að þú komst, Andrés", sagði Rjóðurbóndinn og þurk-
aði svitann af enninu á sér. „Eg var einmitt að skrifa skjal til stjórn-
arinnar, sem þú skalt nú fá að heyra. Það styrkir rétt okkar til þess
að veita mótstöðu; þegar það er komið á stað, getum við skírskotað til
þess, að við höfum sent stjórninni skriflegt bónarbréf, og þá verða þeir
þó, að minnsta kosti, að fresta úrslitunum þangað til svarið kemur".
í því bili kom vinnukona inn hlaupandi í dauðans ofboði. „Það
koma hermenn!" hljóðaði hún upp yfir sig. „Það úir ög grúir hérna
fyrir neðan af hvítklæddum og rauðklæddum mönnum og það blikar a
byssur og sverð. Guð hjálpi okkur! Þeir drepa okkurl"
Hún tók að háorga, hljóp fyrst út í skotið fyrir aptan rumið og leit
þar upp fyrir kistu og þaut loks alveg sturluð aptur út um dyrnar.
„Látum þá korna", sagði Rjóðurbóndinn og leit út að litla glugg-
anum, sem vissi út að túninu. Hann lagði saman skjöl sín, lét þau inn
í hornskápinn og læsti vandlega.
«5
Andrés frá Velli hljóp fram í miðja stofuna og greip um Ijórastöng-
ina, eins og venja er til, þegar sagt er frá einhverju mikilvægu málefni,
og horfði djarflega á bændaöldunginn.
„Já, látum þá koma“, kallaði hann upp. „Verið getur, að bardag-
inn verði harður, það kemur þá fyrst og fremst niður á okkur. Gefðu
mér nú Ingiríði dóttur þína til eiginkonu til merlds um það, að við skul-
um nú fylgjast að og styðja hvor annan, sem einn maður! Hún er
sannfærð um rétt okkar, alveg eins og eg og þú, og það skiptir minnu,
hvort dótturmaður þinn á jarðir og lausafé, heldur en hvort hann er
maður til þess að styrkja þig og verða þér að liði“.
„Um það getur þú átt við Ingiríði", sagði Andrés og stakk lyklin-
um að hornskápnum í vasann. „Eg fyrir mitt leyti sé ekkert því til
fyrirstöðu".
í því bili kom vinnukonan aptur æðandi inn. „Jesús minn góður!"
veinaði hún. „Þeir umkringja bæinn, þeir brenna okkur inni. Almátt-
ugur guð í himnaríki!" Hún fleygði sér niður á hnén og grúfði and-
litið niður í bekkinn, hún bæði snökkti og kveinaði í senn.
Dökkur roði færðist yfir andlit Ingiríðar. Hún gekk skörulega og
tígulega til biðils síns, rétti honum hendina og mælti:
„Eg skal þola súrt og sætt með þér".
Augu Andrésar blikuðu af fögnuði. Hann lagði handlegginn utan
um mittið á henni og kyssti hana innilega.
í sama bili opnuðust dyrnar, og á þrepskildinum stóð herforingi.
Hann var í hvítum brókum og rauðum kjól með grænum leggingum,
með gráar legghosur upp fyrir hné og svartan, tvístrendan hatt á höfði
með hvítum fjaðraskúf.
Andrés frá Rjóðri og Andrés frá Velli voru fangar.
Því, sem gerðist eptir'þetta skal nú stuttlega skýrt frá:
Hinn 9. júlí 1802 var ákveðið, að útboðið skyldi fram fara. Ut-
boðstjaldið var reist skammt fyrir neðan kirkjuna á Tönjum til hægri
handar við veginn, þegar upp frá firðinum er komið, en á vinstri hönd
við hann rann áin. Liðsaflinn, sem þarna var saman kominn, var 420