Þjóðólfur - 21.02.1902, Page 3
3i
* gódu meðallagi ogþvi varla hugsanlegt,
a9 menn verði heyvana, þar sem fæstir
bændur munu ekki hafa farið að hýsa
sauðfé fyr en undir jól og hesta miklu
seinna. Fiskafli hefur verið talsverður
ullt árið og fiskurinn í fremur háu verði.
Síldarveiði var og töluverð á síðastliðnu
sumri. Fiestir sjómenn hér um sióðir
eru nú farnir að kannast við, að sfldin
sé afar-nauðsynleg fyrir fiskiveiðarnar, og
eru því farnir að hafa meiri áhuga á að
afla sér hennar. — í Ólafsvík er íshús,
sem var byggt fyrir nokkrum árum, en
Því miður hefur það ekki undanfarin ár
getað komið að tilætluðum notum, þar
eð það hefur ekki haft nægilega sild með
að fara; það er fyrst nú í ár, að útlitið
er betra, því að nú sem stendur er tals-
verð síld í húsinu.
Verzlunarástandið hefur aldrei verið
glæsilegt hér undir Jökli. í Ólafsvík erti
2 verzlanir, en það virðistsannarlega ekki
vera vanþörf á þriðju verzluninni, þar
sem reynslan undanfarin ár hefur sýnt,
að skortur hefur verið á helztu nauðsynja-
vörum fyrir og um miðjan vetur. Nú
kvað vera skortur á öllum nauðsynjavör-
um, að heita má, við verzlun hins íslenzka
verzlunar- og fiskifélags í Ólafsvfk, en
Grams verzlun kvað hafa eitthvað af
skornum skammti að miðla sínum verzl-
unarmönnum. Það væri því óskandi, að
Sturla kaupmaður í Rvik yrði við áskor-
un margra héðan, að setja upp hér öfl-
uga verz'.un, því að svona má ekki leng-
ur ganga til, ár eptir ár.
Jöklurum hefur aldrei verið hossað hátt,
að þvf er andlegt líf og þroska snertir,
og það kveður svo rammt að, að þeimopt
í ræðum og ritum hefur verið jafnað við
skrælingja, og það síðast i »ísafold« síð-
astliðið ár, þegar þeir ekki fóru að orð-
um hennar og höfnuðu hinum miklu þing-
mannshæfileikum ritstjóra hennar. En
þrátt fyrir þetta er mér óhætt að fullyrða,
að alþýða manna hér um slóðir, er ekki
á öllu lægra menningarstigi, en íslenzk
alþýða yfirleitt í öðrunt landshlutum. Bóka-
og blaðafýsn er hér töluverð og nýlega
hefur verið stofnað bóka- og lestrarfélag
í Ólafsvík, sem þegar hefur fengið tölu-
verða útbreiðslu.
Pólitiskur áhugi manna befur vaxið mik-
ið á síðustu árum; menn eru hér almennt
farnir að skilja það betur og betur, að
vér Islendingar þurfum að fá v e r u I e g a
stjórnarbót, en ekki neitt kák, eins og Val-
týingar ár eptir ár hafa verið að reyna
að þjappa inn á þjóðina.
Eins og reynslan hefur sýnt, voru Snæ-
fellingar sérstaklega heppniríþingmanns-
vali sínu síðastliðið ár, enda munu þeir
almennt kunna þingmanni sínum hinar
beztu þakkir fyrir framkomu hans á sið-
asta þingi. Kosningaúrslit í vor eru þvi
auðráðin hér í sýslu, ef sami þingmaður
verður aptur í kjöri, sem flestir niunu
vona. Það er ekki til neins fyrir »ísa-
fold« og önnur henni verri blöð, að vera
að reyna að breiða það út meðal íslend-
'nga, með óþokkalegum blaðagreinum, að
sýslumaður vor sé illa þokkaður af sýslu-
búum. Sannleikurinn er sá, að sýslumað-
Ur Lárus Bjarnason er yfirleitt vel látinn
af sýslubúum sínum, og er það að mak-
legleikum, því að hann er röggsamt yfir-
vald og drengur góður.
Ritað í janúarmán. 1902.
Jöklari.
Tývamál.
'■ Hann Árni er látinn ( Leiru.
Hann Vaitýr er dæmdur og dauður,
loks datt hann nú sögunni frá;
þið sjáið hvar Sess hans er — auður,
hann seint munum skipaðan fá.
Já, nú er vor foringi fallinn, —
hvar finnum vér jafningja hans? —
Hann stýrði okkur kænlega karlinn
og kenndi’ okkur réttindi lands.
Og hann var sú hönd, sem oss studdi
í hverskonar sorgum og þraut,
og hann eins og hetja oss ruddi
að hásæti ráðgjafans braut.
Þvi höldum upp hetjunnar merki
og heitum á Skúla og Björn,
og einnig skal Einar hinn sterki
oss efla við þjóðfrelsisvörn.
Og föllum ei sjálfir, þótt félli
vors foringja dauðlúna önd!
Nei, verum nú þéttir á velli
og verjumst nú sigrandi hönd. —
Þvi enn lifir Indriði góði
og öndin er Guðlaugi hjá,
og herfær er Hjálmar hinn fróði,
svo hann má til riddara slá.
En Magnúsa- þrenningin mæta,
hún mun okkur hollust í bráð,
og hún skal vors herskara gæta
og henni vér felum vort ráð.
Hann Stefán er stinnur að verjast
og styrkur er Sigurður vel;
sem jötnar þeir Jónarnir berjast,
þeim jafnsnjallan Kristján eg tel.
En enginn er Ólafi llkur,
þá íklæðist tröll-remmi hann;
á fold vorri finnst ekki slíkur,
er fara með skotvopnum kann.
Og biskupinn bætir úr nauðttm,
með bæntim hann hlífir oss vel,
og forðar oss fávísum sauðum
við falii, við glötun og hel.
Tyrfingur.
,Skrumauglýsingar‘
B. Kristjánssonar.
Björn Kristjánsson, kaupmaður í Reykja-
vík, skrifaði í surnar sem leið helzt til langa
grein í 38. tbl. Isafoldar þ. á. um orgelaug-
lýsingar mfnar, sem hann kallaði skrumaug-
lýsingar, ( þv( skyni að ófrægja og aptra
mönnum frá að kaupa orgel þau, sem eg
býð fram, en gylla fyrir mönnum, að kaupa
orgel trá Petersen & Steenstrup, eða rétt-
ara sagt, aðalumboðsmanni þeirra hér á landi.
Eg hef dregið að svara þessari grein þang-
að til nú, að eg get gefið nokkrar upplýs-
ingar um hið „sanngjarna verð" á orgelum
þeim, sem P. & St. og umboðsm. þeirra hér
á landi selja. Aðalumboðsmaðurinn er nfl.
sjálfur B. Kristjánsson, og er því ekki að
furða, þótt hann skrifaði hnjóð um orgelin,
sem eg sel. Hann skrifaði hnjóð um fyrrum
kennara sinn, Jónas Helgason, eða söngfræði
hans, þegar B. Kr. vildi sjálfur gerast
„organisti'1; hann skrifaði hnjóð urn Zöllner
& Vídalín, þegar hann sjálfur vildi gerast
pöntunarstjóri' og hann skrifaði skammir um
Skapta ritstjóra Jósepsson, af því Skapti dró
taum þeirra Z. & V. En fyrir það málæði
lýsti Skapti B. Kr. lygara, og veit eg ekki
til, að B. Kr. hafi átt hægra með að hrinda
því af sér, en að færa sönnur á getsakir þær,
er hann gerði Tryggva bankastjóra Gunn-
arssyni á þingi síðastliðið sumar, en sem
Tryggvi neitaði að hæfa væri í.
Enginn skyldi því furða sig á, þó að lítil
hæfa væri í grein hans í 38. tbl. ísafoldar.
B. Kr. hneykslast á orðunum : „Heimsins
vönduðustu og ódýrustu orgel o. s. frv.“, og
blöskrar mér það ekki, því það er bæði hægt
að skilja þau skynsamlega og líka eins og
skómakari. Eg kalla orðin skynsamlega skil-
in á þessa leið : heimsins ódýrustu orgel ept
ir gcedutn og heimsins vön/tudustu orgel ept-
ir verdi, og er hér auðskiljanlega eingöngu
átt við útsöluverd. En hitt kalla eg skó-
makaraskilning, að álíta, að orgel, sem aug-
lýst er að kosti t. d. 125 krónur, sé skilyrð-
islaust talið vandaðasta orgel sem til sé, vand-
aðra en orgel, sem eru miklu hljóðmeiri og
kosta t. d. þrefallt rneira. Annars stendur
mér á sama, hvernig B. Kr. skilur auglýs-
inguna, eg veit að allir skynsamir menn skilja
hana, eins og eg nú benti til.
Af þv( B. Kr. leggur nokkuð einkennilega
þýðingu ( „ódýrt“ og „dýrt“, ætla eg strax
að gera dálitlar athugasemdir við það. Þó
að hann skrifi óskýrt og grautarlega, eins og
þeir, sem vilja segja það, sem þeir þora ekki
að standa við, sýnist mér augljóst, að hann
vilji telja lesendunum trú um, að ódýr orgel
hljóti að vera óvöndud — en orgel þau, sem
eg sel eru ódýr — , og eins að dýr orgel —
en orgel þau sem P. & St. og utnboðsm.
selja eru dýr — séu eiginlega ekki dýr held-
ur vönduð, því „verzlunarhúsið P. & St. setja
sanngjarnt verð á vöru sína, miðað við vöru-
gæðin", að því er sannleiksvitnið vottar. Til
að sanna þessa kenningu segir hann sögu af
föður mínum, sem auðsjáanlega er rangfærð,
sé hún ekki eptir B. Kr. eða annan lélegan
smið, því ódýr þýðir ekki í nútíðarmáli óvand-
aður, heldur sama sem „prisbillig" á dönsku,
„preiswerth" á þýzku og „good bargain" á
ensku, nfl. það sem gott verð er á, lágt verð
eptir gæðum. Eg get því með fullum rétti
ráðið mönnum til að kaupa ódýr orgel og
m. a. s. að kaupci aldrei annað en pað, sem
er ódýrt, sé það fáanlegt, því eg álít Islend-
inga ekki hafa, fremur en aðra rnenn almennt,
efni á að kaupa dýrt, gefa tneira fyrir hlut-
inn en hann er verður; það skyldi þá vera
viðskiptamenn B. Kr., kauptnannsins, sem
rœðtir mönnutn frd að kaupa ódýrt, og væri
þó öllu gott að þeir eins og aðrir vari sig
d slíkum viðskiptum.
Að svo komnu skal eg þá sýna, að orgel
þau, sem eg sel séu að öllu leyti vönduð.
1. Beethoven Piano & Organ Company,
Washington N. J. U. S. A., hefur fengið
mörg verðlaun, gullmedalíur og önnur' á
sýningum innan og utan Ameríku, fyrir
orgel sín, þar á meðal gullmedalíu á sýn-
ingu í Lundúrum 1887, þar sem Banda-
menn sýndu, og má sjá skírteini það prent-
að aptan á verðskrá verksmiðjunnar.
2. Beethoven félagið hefur í 20 síðastfiðin ár
selt yfir 150,000 orgel, og veit eg ekki til
að nokkur önnur verksmiðja hafi selt jafn
mörg orgel á jafn stuttum tíma. Eg hef
ennfremur ( höndum prentuð 1000 vottorð
um gæði þessara orgela.
Messrs Cornish & Co. Washington N. J.,
U. S. A. hafa, mér vitanlega aldrei sent orgel
sín á sýningar; en eg hef í höndum vottorð
frá merkum söngfræðingum og organistum (
stórkirkjum Lundúnaborgarum að orgel þeirra
séu vönduð. Þeir hafa í 50 ár selt yfir 250,000
orgel og píanó, og hef eg í höndum prent-
uð vottorð frá kaupendunum svo þúsundum
skiptir.
B. Kr. hefur ekki sýnt, að hann hafi þá
þekkingu ( „akústik", sem þarf til að geta
dæmt um orgelgerð. Engu að síður segir
hann : „Eg hef sjálfur séð og reynt eitt af
hinum skárri harmonium frá þessari verk-
smiðju fyrir nokkkrum árum .... allan ná-
kvæmari innri frágang vantaði . . . Mátti því
vel líkja því við „óaftrekt úr“. Hefði B. Kr.
kunnað sér hóf, og að eins sagt, hvernig sér
hefði pótt hljóðið í þessu orgeli, gat það
skoðazt sem meinlaust og þýðingarlaust gasp-
ur eins manns á móti þúsundum: en þar
sem hanngerist til að lasta „innri frdgang"
í orgelum þeim, sem dómnefndirá stórsýning-
um eða tnerkir tónfræðingar hafalokið lofs-
orði á, verður það last hans að skoðastsem
ósatt níð eða atvinnurógur, geti hann ekki
sannað, að sér hafi að eins gengið hrekk-
laus heimska tíl, og það því fremur, sem
hann nefnir ekki, að hann hafi séð fleiri.en
eitt af þessum orgelum, sem hann svo dæm-
ir öll eptir, eins orgel frá Beethoven félaginu.
Beethoven P. & O. Co. ábyrgist einnig orgel
sín ( 25 ár á þessa leið :
Allar bilanir, sem á þvf tímabili verða á
orgelum félagsins, þær sem orsakast af smið-
inu eða efninu, en ekki af illri meðferð eða
húsakynnum, bætir félagið : 1. með því að
senda fjaðrir ókeypis, ef þær brotna, og ann-
að sem hægt er að senda með pósti, 2, með
því að borga viðgerðina sanngjörnu verði,
5. með því að taka við orgelinu, ef ekki er
hægt að gera við það hér á landi, og senda
annað nýtt í staðinn eigandanum að kostn-
aðarlausu. Bili því eitthvað í orgelum frá
þessari verksmiðju, sem henni er um að
kenna, geta eigendur þeirra hér á landi snú-
ið sér til mín, meðan eg er fulltrúi félagsins.
Til tryggingar því, að ábyrgð þessi sé áreið-
anleg, skal eg geta þess, að Beethoven fé-
lagið er staðfest með landslögum. Það hef-
ur starfsleyfi til 1925, og því verður að minnsta
kosti haldið áfram þangað til.
Messrs Cornish & Co. auglýsa einnig 25
ára ábyrgð, og efast eg ekki um að þeir
muni uppfylla hana á lfkan hátt og hér að
ofan er nefnt.
Rausið úr B. Kr. um 25 ára ábyrgðina er
því ómerkt hjal þess manns, sem ekkett vissi
um það sem hann var að segja. Þessi orð
hans : „Ábyrgð verksmiðju í Ameríku hlýt-
ur að vera einskisvirði fyrir menn hér úti á
Islandi" . . ., neyðist eg til að reka ofan í
hann sem ósannindi.
Eg skal einnig geta þess, að allir þeir, sem
pantað hafa orgel hjá mér og hafa minnzt á
þau, svo eg viti, hafa lokið tniklu lofsorði á
þau, og hef eg í höndum skriflega vitnisburði
frá þeirn. Svo læt eg prenta hér vottorð ept-
ir orgelstnið, alþekktan heiðursmann og völund:
Vottot ð.
Eg undirskrifaður, sem hefi skoðað mörg
hin svonefndu „amerísku orgel og harmonía",
bæði þýzk, dönsk, sænsk, norsk, ensk og frá
Amertku, og þar á meðal 2 orgel frá Beet-
hoven Piano & Organ Co. Washington N. J.
U. S. A. og 3 orgel frá Messrs Comish &
Co. í sömu borg, votta fúslega, að eg hefi
engin orgel af Kkri gerð og með sama spila-
fjölda séð vandaðri. Einkum var orgel með
5 octövum 34/5 spili (ferföldu hljóði) frá Beet-
hoven Piano & Organ Co., sem kostaði 185
krónur í innkaupi, frábærlega fullkomið og
vandað fyrir það verð. Skal eg sérstaklega
taka fram, hvað nóturnar voru klökkar og
líflegar, stigið létt og jafnt, og hvað óvenju-
lega vel var búið um hljóðopnunina, og að
kontrabassinn var í stokk, sem annars er
ekki vant að vera, nema ( beztu og fullkomn-
ustu orgelum. Orgelið var bæði hljóðmikið
og hljóðþýtt. Kassinn var allur úr hnottré,
með háu baki með slípuðum spegli í, víða
útskorinn, smekkvtslega gerður og mjög
traustur.
Þórshöfn 19. nóv. 1901.
Jón J. Arnason.
Af þessu öllu vona eg, að lesendurnir sjái
þegar, að orgelin eru v'onduð. En um leið
og eg því sný mér að Petersen & Steenstrup
bæði sent útsölumönnum og orgelsmiðum,
skal eg þó gefa enn eina tryggingu fyrir
sannsýnilegum gæðum orgela Beethoven P.
6 O. og Messrs Cornish & Co.
(Niðurl.)
Þorsteinn Arnljótsson.
Fyrirlestur
um Island og Ameríku hélt Stefán B.
Jónsson (frá Dunkárbakka) í Iðnaðarmanna-
húsinu 18. þ. m, Talaði ræðumaður eink-
um um, hve mikil gæði Island hefði fólg-
in í skauti sínu, hve rnikið væri hér ógert
og hve landsmenn hefðu litla trú á land-
inu. Það þyrfti að auka framleiðsluna á
allan hátt, fyrst og fremst með því að
yrkja landið, svo að grasrækt og garð-
rækt tækju sem mestum framförum o. s.
frv. Minntist og á smjörverkun o. m. fl.,
er hér verður ekki talið, enda áður tekið
fratn í ræðu og riti. En aldrei er góð
vísa of opt kveðin, og þeir eru aldrei
of margir, er leitast við að vekja trúna
og traustið á ættjörðu vorri, og benda
mönnum á, að landið sé gott, ef þjóðina
brestur ekki þekkingu, dugnað og vilja
til að hagnýta sér gæði þess. Og það er
víst ekki oftalað hjá ræðumanni, að það
má engtt síður komast vel af hér á landi
en í Manitoba. Að fyrirlestri þessurn var
gerður góður rórnttr, nema ef til vill af
þeirn, er trúlitlir eru á framtíð landsins,
a f þ v í að framfarirnar ganga svo smá-
um fetum og eru e n n meir í orði en á
borði hjá oss. En orðin liggja þó til alls
fyrst, og að nokkrum áratugum liðnutn
erum vér þess fullvissir, að hér verði þó
margt öðruvísi og álitlegra umhorfs en
nú, þótt framkvæmdirnar séu enn skammt
á veg komnar.
Sjónleikar.
Nýi leikurinn, sem »Leikfélagið« er
tekið að leika, heitir »Skírnin« eptir
»Peter Sörensen« (réttu natni Carl Möller).
Leikur þessi á að vera fyndinn gaman-
leikur, og fellur sjálfsagt Dönum vel í geð.
En fyndnin í honum er fremur dauf og
allt athæfi leikendanna svo óeðlilegt og
afkáralegt, að naumast verður hlegið að
því. Verður því einskonar leiðinlegur
skrípaleikur úr öllu saman, laus við alla
fegurð, öil skáldleg tilþrif, og eru því
naumast líkur fyrir, að svona lagaður leik-
ur verði hér vel sóttur til lengdar. Það
hjálpar ekki, þótt margir leikendurnir leiki
vel og sumir mjög vel (t. d. frk. Gunn-
þórunn og Friðf. Guðjónsson), því að efni
leiksins er svo háttað, að meginþorri á-
heyrenda mun fá nóg af að sjá hann einu
sinni. Félagið helði því átt að taka sér
eitthvert veigameira verkefni fyrir hend-
ur en þetta eptir »Hina týndu Paradís«.
Eptlrmseli.
Hinn 20. apríl f. á. andaðist, að heim-
ili sínu Lóni í Kelduhverfi merkismað-
urinn Kristjdn bóndi Arnason. — Faðir
hans var Árni umboðsmaður, Þórðarson
frá Kjarna ( Eyjafirði, en móðir Árna, kona
Þórðar var Björg Halldórsdóttir, systir Björns
prófasts Halldórssonar I Garði í Kelduhverfi.