Þjóðólfur - 29.03.1902, Síða 3
5i
dannebrogsmaður 1895. Kvæntist 13. nóv.
1849 danskri konu Charlotte Caroline
Leopoldine Degen, er lifir mann sinn og
héldu þau gullbrúðkaup sitt 1899. Börn
þeirra eru: Júlíus læknir á Blönduósi,
Moritz læknir í Park River í Manitoba,
Sigríður kona Janusar prófasts Jónssonar
í Holti í Önundarfirði, Anna kona Hall-
dórs Daníelssonar bæjarfógeta, Ida kona
séra Kristins Daníelssonar á Söndum og
Þóra ógipt.
Halldór yfirkennari var fjörmaður, harð-
ger og ekki allra bókkur, ágætur heimilis-
faðir og raungóður við þá, er hann tók
tryggð við. Hefur tekið meiri þátt í mál-
efnum þessa bæjar en nokkur annar, sem
nú er á lífi, enda dvaldi hann hér sem
borgari meir en hálfa öld, og því eðlilegt
að hann yrði við margt riðinn, enda átti
hann opt í ströngu að stríða, en lét trauðla
hlut sinn, því að maðurinn var fylginn
sér og kappsfullur. — Jarðarför hans fer
fram 3. í páskum.
Mannalát.
Nýdáin er frú Þóra Asmundsdóttir
(prófasts frá Odda Jónssonar) kona Guð-
mundar prófasts Helgasonar í Reykholti.
Dáin er 6. þ. m. ekkjan Anna Þórð-
ardóttir á Villingavatni í Grafningi á
83. aldursári (f. 17. okt. 1819) fyrgiptMagn-
úsi hreppstj. Gíslasyni á Villingavatni,
missti hann 4. júlf 1887 eptir37ára farsælt
hjónaband. Höfðu þau búið þar allan
þann tíma við fremur góð efni. Eptir
fráfall manns síns bjó hún eitt ár á Vill-
ingavatni með syni sínum, Magnúsi, sem
svo tók við jörðinni, og dvaldi hún hjá
honum til dauðadags. Hún eignaðist með
manni sínurn 7 börn, en 3 þeirra dóu í
æsku. 4 synir lifa, allir kvæntir: Guðm.
hreppstj. á Ulfljótsvatni, Gísli sýslunefnd-
arm. frá Króki (nú í Rvík), Þórður bóndi
í Hagavík, og Magnús bóndi á Villinga-
vatni, allt góðir bændur og myndarmenn.
Anna heit. var dugleg ráðdeildarkona,
kærleiksrík, mjög hjálpfús við bágstadda,
treysti guði af öllu hjarta. Blessuð sé
hennar minning. (N.).
Meðalalin
verðlagsskrárinnar 1902—1903 erþessi:
í Norðurmúlas. og Seyðisfj.kaupst. 54 a.
- Suðurmúlasýslu....................57 —
- Austur-Skaptafellssýslu...........45 —
- Vestur-Skaptafellssýslu...........41 —
- Vestmanneyjasýslu.................43 —
- Rangárvallasýslu..................47 —
- Arnessýslu........................47 —
- Gullbringti- og Kjósarsýslu og
Rvíkurkaupstað.....................53 —
- Borgarfjarðarsýslu................55 —
- Mýrasýslu..........................56 —
- Snæfellsness- og Hnappadalssýslu 48 —
- Dalasýslu..........................53 —
- Barðastrandarsýslu................57 —
- ísafjarðarsýslu og ísafj.kaupstað 59 —
■ Strandassýslu.....................gi —
• Húnavatnssýslu.....................54 —
- Skagafjarðarsýslu..................50 —
- Eyjafjarðars. og Akureyrarkaupst. 49 —
Þingeyjarsýslu....................49 —
Hitt og þetta.
Þverrun sólarinnar.
Það er vísindalega sannað, að sólin fer
stöðugt minnkandi. Hinn nafnkunni stjarn-
fræðingur Robert Hall, er varið hefur æfi
sirtni til að rannsaka sólina, er hinn fyrsti
Hsindamaður, semnákvæmlegafjefur reikn-
að styttinguna á þvermáli sólarinnar. Hún er
hér um bil 23 centimetrar (þ. e. tæpir 9
þuml.) á dag. Með þvf að þvermál sólar-
tnnar er 1,376,000 kílómetrar álengd,getum
vérverið óhræddir fyrst um sinn. En af þessu
111 á samt sjá, að sólin missir 8 kílómetra
(Þ- e. rúma mílu danska) á hverri öld, að
*radius« hennar var 80 kílometrum lengri
á dögum Ágústusar Rómverjakeisara en nú,
°g að hann muni verða helmingi styttri en
nú, að 86,000 árum liðnum. Það er auð-
Velt að reikna, hve furðumikilli þverrun
s61arinnar þessi samankypringur á þvermáli
^unnar veldur. Eptir 86,000 ár munu jarð-
arbúar sviptir bæði sólarljósi og sólarhita,
að þvl er séð verður.
Villndýrin
á Indlandi eru einhver hin versta plága
þess lands. Samkvæmt skýrslum indversku
stjómarinnar árið 1900, hafa 27,500 manns
beðið bana fyrir rándýrum og eitruðum
höggormum. Eru höggormarnir langhæstir
á manndrápslistanum, því að talið er, að
þeir hafijdeytt 24,621 rnann, tígrisdýr 899,
úlfar 338, lépardar 327, krókódílarog sjak-
alar 300. Verðlaun þau, sem stjórnin hef-
ur heitið fyrir afhendingu á hausum rán-
dýra og eiturnaðra, hafa leitt til þess, að
100,000 höggormar og 20,000 rándýr hafa
verið drepin. Til þessara verðlauna hefur
alls verið varið 130,000 krónum-. Það er
nú f ráði, að gera enn aivarlegri ráðstaf-
anir gegn þessari voðalegu landplágu. Með-
al annars er hugsað um að senda allstór-
an flokk manna til að drepa tígrisdýr í
Bengal, en stjórnin hyggur, að kostnaður-
inn við þá herferð verði allt of mikill nú
sem stendur. Auk manntjónsins, er óarga-
dýrin hafa valdið, hafa 90,000 hesta og
nautgripa orðið tígrisdýrum og lépördum
að bráð, árið sem leið.
Misprcntað er f bankagreininni í síðasta
blaði í 2. dæminu á 3. dálki: „Tekjur af
varasjóðsrekstri" á að vera: „Tekjuraf spari-
í/ö<Lrekstri" o. s. frv.
•♦♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
t r> 1 o v aó minnsta kosti Ý
♦ 1 100 ára gamlar- ♦
J enskar og þýzkar |
t == B Æ K U R = t
koparstungur með stimpluðu ártali ♦
og sérstaklega útlendar (ekki íslenzk- ♦
ar) gamlar B 1 B L í U R ♦
k a u p i r t
Chr. Sehierbeck
prakt. læknir. 4
L* Rej kjavík. i
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
VERZLUNIN
(b
x
Q)
arp
o
,GODTHAAB‘
g) hefur alltaf miklar birgðir af öllum nauðsynjavörum t, d. matvörtt
Kaffi. Sykur. Tóbaki o. fl. o. fl.
-!
Flest til bygginga, svo sem Þakjáfn — Pappa innan og
2 utan húss — Saum allskonar
3 P ■■
Málning — Fernisoliu
Kítti
steina — Ofna — Eldavélar m. m.
< ±
% P>
C w
^ 3 Til bátaútgjörðar:
3
cfq’ _
m 3 Netagarn
Betrekstriga - Kalk — Cement — Múr—
Færin alþekktu — Kaðla — Öngla
Segldúk
0> 3 ’-t
N r-t >•
E- po
►—* cr
0
C/J P crq
3 0
7?
a>
o
3 O
c
margar tegundir bæði úr bómull óg hör.
Gaddavírinn — ætíð nóg til af honum.
Saltfiskur og harðfiskur mjög ódýr.
♦♦♦♦♦♦♦♦“♦ ♦-♦•♦•♦-♦•♦■♦♦♦♦
■rinn'i'nnitniirrri'nnn'iiirtniiniiimnnnnnnniiye.iiiiiiinireirinnnnnniiiiiiiiniiibieiinnniinnnnnnnniiniiiiiiiiniiiiiri
Að eins vandaðar vörur eru ffuttar.
g Hvergi í bænum fá sveitamenn
| jafngott port fyrir hesta sína.
Verzlunin ,,GODTHAAB“
stenzt alla samkeppni, bæði hvað snertir verð og VÖrugæði.
c-
3
crq
Thor Jensen.
Waterproofkápur
fyrir karlmenn og kvennmenn og
Regnblífar
fást 1 verzlun
Sturlu Jónssonar.
Verzlun
Sturlu Jónssonar
hefur nú með „Laura" fengið mikið
af alls konar
RAMMALISTUM.
semseljastódýrara en nokkrusinni áður.
Gólf- 0g borðvaxdúkur
ýmsar teg. fást í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Hcimsins vönduðustn og ódýrnstu
Qrgei oe Fortepiano
fást með verksmiðjuverði beina leið frá
Beethoven Piano & Organ Co og frá Corn-
ish & Co, Washington, N. J. U. S. A.
Orgel úr hnottré með 5 áttundum, 13
tónfjölgunum, 2 hnéspöðum, með vönduð-
um orgelstól og skóla, kostar í umbúðum
ca. 125 krónur. (Orgel með sama hljóð-
magni og líkri gerð kostar í hnottréskassa
minnst 244 krónnr f umbúðum hjá Peter-
sen & Steenstrup). Flutningskostnaður frá
Ameríku til Kaupmannahafnar er frá 26—
40 krónur eptir verði og stærð orgelsins.
Öll fullkomnari orgel og fortepiano til-
tölulega jafn ódýr og öll með *5 ára á-
byrgð.
Allir væntanlegir kaupendur eiga að
snúa sér til undirritaðs. Einkafulltrúi fé-
laganna hér á landi:
Þorsteinn Arnljótsson.
Sauðanesi.
VINDLAR, REYKTÓBAK,
RULLA, RJÓL.
ágætar tegundir. í verzlun
Sturlu Jónssonar.
KRANSAR, stórt úrval, RLÓM- J|
KRANSBORDAR og SLAUFU-PÁLMA- ■ \
GREINAR. Einnig aliskonar
KORT
fást ætíð hjá mér.
Skólavörðustíg 5.
Svanl. Benediktsdöttir. j j
Tóuskinn
eru keypt háu verði í verzlun
Sturlu Jónssonar.
♦
:
♦
:
VERZLUNIN
♦
♦
♦
!
$!£♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦0
wm~E D I N B O R G~ot
.1.
í Reykjavík
fékk nú með „Laurau" og „Ceres", fjölbreyttar birgðir af vörum, sem allt
selst sérlega ódýrt.
í Pakkhúsdeildina.
Melis, kandís, kaffl, hveiti, riis, rúgmjöl, bankabygg, overhead, margarine, Un-
ur allskonar, baðlyf, olíuföt, netagarn o. fl.
í Nýlenduvörudeildina.
Rúsínur, sveskjur, gráffkjur, reyktóbak mjög margar tegundir, niðursoðið alls-
konar, cigarettur, brjóstsykur fleiri tegundir o. fl.
í Vefnaðarvörudeildina.
Silki allavega litt margar tegundir, ensku vaðmálin, svart hálfklæði, misl. do.
margar tegundir. 30 tegundir af svörtum kjólatauum, mjög margar tegundir
af mislitum kjólatauum, fermingarkjólaefni hvít og mislit, ballkjólaefni ýmsar
tegundir, muslin fl. teg., lenon fig, tvisttauin breiðu, enska vaðmálið á 75 aur.
í mörgum litum, ,$ængurdúkar fleiri teg., lérept bl. og óbl., lakalérept, borð-
dúkar hvítir og mislitir, servíettur, ljósdúkar, handklæði, handklæðadreglar,
ítaliensk klæði fl. teg., nankin, shirting, millifóður, ermafóður, mohren, vasa-
klútar hvítir og mislitir, flauel fl. teg., silkibönd allskonar, flauelsbönd, regn-
slög, regnkápur, regnhlífar, karlmannshúfur, drengjahúfur, rúmteppi hvít og
mislit, ullar- og bómullarnærföt, tvinni, shetlandsgarn, prjónagarn fl. teg.
gólfvaxdúkar, borðvaxdúkar, gardínutau hvít, gardínubönd, blúndur ýmiskon-
ar og m. m. fleira.