Þjóðólfur - 19.09.1902, Page 3
146
menn i neðri deild er bezt hlutu að vita
um fyrirætlun H. H. í þessu efni, lýstu
því yfir, að þetta mundi ekki vera ætlun
hans, þá hefði verið réttara, að fara sér
ögn hægra með þessa tilgátu, þar til séð
væri, hver yrði framkvæmdin, þvi þangað
til hlýtur allt þetta raus að skoðast sem
ástæðulitlar illgétur.
En ef það nú hefur verið tilgangur okk-
ar með frumvarpið, að koma H. H. á þing
næst, má maður þá ekkispyrja: hver var
tilgangur Isafoldarliðsins með, að berjast
á móti því, að frumvarpið fengi framgang?
Var það ekki sá, að geta haldið ákveðn-
um manni í þingsætinu, sem er einn úr
því liði?
Ef það er óheiðarlegt, að fylgja fram
réttlátu og heiðarlegu máli með hliðsjón
af þvf, að það einnig geti komið sérstök-
um manni eða flokk að liði, þá skil eg
ekki í því, að það sé heiðarlegra, að traðka
réttu máli einungis vegna stundarhagnað-
ar eins ákveðins manns eða flokks. Mað-
ur getur gengið inn á það, að hinar per-
sónulegu ástæður væru jafn óréttmætar,
en munurinn á því að framfylgja réttu
máli eða traðka því, er ærið mikill. —
Þetta skiptingarmál var nú það eina mál
á þessu þingi, sem leiddi af sér nokkrar
ómjúkar orðasennur, en það lítur líka eins
út og að Isafold hafi þurft þeirra með,
þvl hún hefur lifað á þeim mest matar
sfðan og virðist ætla að »vinna vel að«
þessum eina skammti. Það er eins og
henni kippi þar í kynið til púkans, sem
var um tíma í fjósi Sæmundar fróða, er
fitnaði stórum við hvert blótsyrði fjósa-
mannsins, en sá ermunurinn, að þar sem
púkinn drógst upp í hor, þegar fjósamað-
ur hætti illyrðunum, þá getur ísafold —
eptir að hún hefur upp etið öll fúkyrði
sinnafjósamanna — haldið ftirðanlega hold-
um af sínum eigin rangfærslum, illgetum,
skömmum og skæting.
S/g ig02.
Gudjóti Guðlaugsson.
Eldgosið á Martinique.
I sambandi við hinar nýju voðasögur, er
nú berast frá eyjunni Martinique í Vest-
Indfum, mun ýmsum þykja fróðlegt að
heyra frásögn sjónarvotts að fyrsta gosinu
úr Mont Pelée, er lagði bæinn St. Pierre 1
eyði og deyddi 25,000 mannaásvipstundu
8. maf í vor. Maður þessi heitir Ellery
G. Scott, og var fyrsti stýrimaður á gufu-
skipinu „Roraima", er lá á höfninni í St.
Pierre, þá er hið óttalega gos dundi yfir.
Hefur hann lýst voðaatburði þessum f júlí-
hepti tímaritsins „Cosmopolitan". Lýsir
hann fyrst jarðargróða eyjarinnarog finnst
mikið til um náttúrufegurð hennar: fossana
og lækina, fagrar víkur og frjósamar ekr-
ur, lítil spegiltær stöðuvötn, en framar öllu
dáist hann að sólaruppkomunni þar, er
hann segir að sé undrafögur, og litbrigð-
in á haf og hauðri við sólaruppkomu
og sólsetur svo einstaklega skýr og falleg.
Hlíðar fjallsins Mont Pelée hafi verið grasi
vaxnar upp á topp, og þaðan mjög fagurt
útsýni yfir St. Pierre og nágrennið. Hann
lýsir bænum allrækilega. Var hann mjög
gamaldags að sniði með krókóttum, þröng-
um og ósléttum götum, öllum steinlögðum
með stórum klettum, og öll hús byggð úr
steini með háum og mörgum göflum, en
steinarnir orðnir mosavaxnir af elli. Járn-
eða trérimlar voru hafðir í stað glerglugga,
og þungir hlerar úrtré alstaðar, svo að kol-
dimmt varð inni, er lokað var.
Mesturhluti allra eyjaskeggja eru af svert-
ingjakyni, og voru um 150,000 rnanns, áð-
ur en gosið hófst. Á eynni voru þá um
15,000 Kínverja og að lfkindum jafnmarg-
ir hvítir menn. Ibúarnir voru mjög hjá-
trúarfullir. Þeir skoðuðu Mont Pelée, sem
verndargoð og höfðu óbifanlega trú á því,
að fjallið mundi aldrei gjósa optar (það
hafði legið niðri meir en hálfa öld). En
3. maí sfðastl. fór Mont Pelée að ókyrrast
með jarðskjálptakippum, og síðari hluta
dags spúði gígurinn eldi og eimyrju, svo
að morguninn eptir lá 2 þumlungaþykkt lag
af heitri ösku yfir bænum, og reykjarmökk-
urinn upp úr fjallinu var svo þykkur, að
tindurinn sást ekki. Og 5. maí varð gos-
ið enn ákafara. Þá rann glóandi hraun-
leðjan úr f jallinu niður undir sjó, 1 Va kilo-
meter á breidd, og fórust þá menn svo
hundruðum skipti. En ekki lét fólkið sér
þetta að varnaði verða. Það trúði enn á
Mont Pelée sem verndarengil sinn. Þó flúðu
nokkrir menn þá úr bænum sjóleiðis, því
að Iandvegvartorvelt aðforða.sér úr bænum.
Peningastofnanirnar í bænum urðu einna
fyrstar til að rumskast. Allur gullforði í
Nýlendubankanum og kjollurum annara
bankastofnana var fluttur út á frakkneska
herskipið „Suchet", en margir bankastarfs-
menn urðu kyrrir í bænum. Ef til vill
hefur ástæðan til þess, að fólkið var svo
kærulítið verið sú, að útlit var fyrir, að gos-
in mundu hætta 7. maí. Brestirnir í fjall-
ínu urðu minni og öskufallið einnig, þótt
reykurinn þyrlaðist enn jafnt og þétt upp
úr gígnum.
Svo fer höfundurinn að lýsa hinum voða-
lega degi 8. maí og segir hann svo frá:
„„Roraima" (skip það, er höf. var stýri-
maður á) varpaði akkerum á St. Pierres-
höfn kl. rúmlega 6 um morguninn. Loptið
var hreint og himininn dimmblár, alveg heið-
rfkur. Vér höfðum orðið varir við dálít-
ið öskuregnummorguninn.áður en vérkom-
um inn á höfnina, en nú féll engin aska.
Skipið varpaði akkerum hér um bil í 700
metra fjarlægð frá ströndinni. Vérlágum
beint andspsénis vitanum. Þetta var á
norðanverðri höfninni og nær St. Pierre,
en ef vér hefðum verið í suðurenda hafnar-
innar. (Niðurl.).
Dannebrogsmenn
eruorðnir: Jón Jónsson hreppstj. í Byggðar-
holti í Austur-Skaptafellssýslu, Ólafur Ólafs-
son bæjarfulltrúi í Reykjavík og Páll Ól-
afsson bóndi á Akri í Húnavatnssýslu.
Hval
þrjátíu álna millum skurða rak fyrir
skömmu á Merkurfjöru (Stóru-Merkur)
undir Eyjafjöllum og hvalkálf 18 álna á
Steinafjöru.
Bátur
fórst á Seyðisfirði 17. f. m. og drukkn-
aði einn maður: Halldór Einarsson úr
Skólabæ í Reykjavík, en 2 var bjargað:
Jóhanni Péturssyni úr Reykjavík ogTóm-
asi nokkrum úr Vestmannaeyjum. Voru
þeir báðir mjög þjakaðir og andaðist Tóm-
as að viku liðinni. Sagt var, að mennirn-
ír hefðu verið ölvaðir. Friðrik úrsmiður
Gíslason á Seyðisfirði var nálægt á báti
er slysið varð, og flýtti sér til að bjarga
mönnunum.
„Vesta“
kom hingað frá Kaupm.höfn í fyrra dag
snemma morguns. Hafði komið við á
Seyðisfirði samkv. áætlun. Með henni
kom þaðan að austan séra Magnús Bl.
Jónsson í Vallanesi með 2 dætur sínar, frk.
Guðrún Blöndal og allmargt sunnlenzkt
kaupafólk af Fjörðunum. Frá Höfn kom
Björn Magnússon stúdent (frá Hnausum).
InnbrotsþjófnaOur
var enn að nýju framinn hjá Birni kaupm.
Guðmundssyni hér í bænum aðfaranótt-
ina 16. þ. m. Þykir líklegt, að þjófarnir
hafi látið loka sig inni í húsinu kveldinu
fyrir, því að enginn gluggi var brotinn, en
farið út um kjallarann, sem lokið var upp
að innanverðu. Lítið eða ekkert fénaðist
þjófunum við þessa nýju atrennu, því að
þeir gátu ekki mölvað peningaskápinn, en
drógu hann úr stað og skemmdu, sprengdu
einnig upp skrifborð, er þar var. Að þetta
voru sömu mennirnir, sem fyr brutust
þarna inn, sést á því, að þeir skildu nú
eptir sparisjóðsbók þá, er þeir tóku fyrra
skiptið.
Kross.
Guðlaugur Guðmundsson sýslumaður
hefur fengið rauðu arnarorðuna af 3. flokki
hjá Vilhjálmi Þýzkalandskeisara, líklega
í viðurkenningarskyni fyrir atbeina við
þýzka "trollara", er hleypt hafa í strand
við Skaptafellssýslu.
Notið Tækifærið.
Jörðin BJARNARHÖFN í Helga-
fellssveit í Snæfellsnessýslu með hjáleigun-
um Efrakoti og Neðrakoti og Ámýrum og
eyðijörðunum Guðnýjarstöðum, Hrútey og
Hafnareyjum (sjá nákvæmari lýsingu 1 36.
tbl. Þjóðólfs þ. á.), sem er alþekkt ágætis-
jörð, er til sölu með góðum kjörum. Menn
snúi sér til hr. faktors Richters í Stykkis-
hólmi eða cand. juris Hannesar Thor-
steinsson í Reykjavík.
Búnaðarfélag
ÍSLANDS.
Hússtjórnarskólinn
tekur á móti námsstúlkum til þriggja
mánaða í senn, með sömu kjörum og
áður. Frá I. okt. til ársloka er áskip-
að, en laust frá 1. janúar og 1. apríl
n. á.
Bókleg kennsla verður veitt fáeinar
stundir í viku frá 1. okt. í heilsufræði,
matarefnafræði og garðyrkju, og auk
þess er ætlazt til, að námsstúlkurnar
hagnýti sér mjaltakennsluna, sem hér
fer fram í vetur, verklega sem bók-
lega.
Þær sem skólann vilja sækja, snúi
sér til forstöðukonunnar.
Reykjavík 12. sept. 1902.
Þórh. Bjarnarson.
Sýslunin, sem ráðskona við
holdsveikraspítalann í Laugarnesi verð-
ur laus I. marz næstkomandi.
Umsóknir um sýslun þessa eiga að
vera stýlaðar til „yfirstjórnar holds-
veikraspítalans f Laugarnesi" og send-
ast amtmanninum yfir Suður- og Vest-
urömtunum svo tímanlega, að þær séu
til hans komnar fyrir 31. desbr. 1902.
Yfirstjórn holdsveikraspítalans í Laugarnesi.
Reykjavlk 16. dag septbr.mán. 1902.
J. Havsteen. J. jónassen.
G. Björnsson.
M Til M
yarde-klæðaverksmiðju
ættuð þið að koma ullarsendingum
ykkar sem allra fyrst. Þess fyr fá menn
haldgóð, falleg og ödýr
—-i Fataefni. -—
Nýjar „prufur" til sýnis. Þar á meðal
Sj'ól, Skyrtur, Teppi m. fl.
Gerið svo vel og talið við umboðs-
manninn:
Jón Helgason.
(Aðalstr. 14).
VATRYGGINGARFÉLAGIÐ
,SUN‘
í Lundúnum (stofnað 1710) tekur að
sér með sanngjörnum kjörum ábyrgð
á húsum, allskonar áhöldum og inn-
anstokksmunum, fénaði, er inni brenn-
ur og skipum, sem í höfn eru eða á
land eru sett.
Aðaluiiibodsnittður á íslandi
Dr. Jón Þorkelsson yngri
f Reykjayfk.
Tombóla
Thorvaldsensfélagsins
verður laugardaginn 27. og sunnudag-
inn 28. þ. m. í
IÐNAÐARMANNAHÚSINU.
Agætir munir fyrir mörg hundr-
uð krónur nýkomnir til hennar frá út-
löndutn.
WATERPROOFKÁPUR
nýkomnar f verzlun
Sturu Jónssonar.
XJndirritaður veitir
móttöku gjöfum, er góðfúsir bæjar-
menn kynnu að vilja gefa til tombólu,
er fríkirkjusöfnuðurinn í Rvík heldur
í næsta mánuði.
24 Laugaveg 24. 12. sept. 1902.
Gudm. Hallsson.
Asfalt
nægar birgðir í verzluninni
,GODTHAAB‘.
Margarine
og
Ísl. SMJÖR
í verzlun
STURLU JÓNSSONAR.
H L í N
Utgefandi: St. B. Jónsson, Reykjavík.
HILN er jafnt iðnaðar- sem búnaðarrit.
HLÍN flytur mjög fróðlegan fyrirlestur
U m I s I a n d og A m e r í k u.
Góð inntaka gegn Vesturheimssýkinni.
HLIN kemur út t v i s v a r á ári og kost-
ar fyrir áskrifendur, er borga fyrirfram
kr. 1,00 árg. Einstök hepti 0,75 au.
HLIN er ómissandi bók á hverju einasta
heimili.
HLÍN er til sölu hjá
Jóhanni Ögm. Oddssyni,
Árbæ í Ölfusi.
Til þeirra sem neyta hins ekta
Kína-lífs-elixírs.
Með því að eg hef komizt að raun
um, að þeir eru margir, sem efast um,
að Kína-lífs-elixírinn sé jafnáhrifamik-
ill sem fyr, vil eg hér með leiða at-
hygli manna að þvt, að elixírinn er
öldungis samskonar sem fyr, og selst
með sama verði sem áður nfl. 1 kr.
50 a. flaskan, og fæst hann alstaðar
á íslandl hjá hinum háttvirtu kaup-
mönnum. Ástæðan fyrir því, að hann
er seldur svona ódýrt, er, að það voru
fluttar til íslands allmiklar birgðir af
honum, áður en tollhækkunin gekk í
'gildi.
Neytendur elixírsins eru alvarlega
beðnir um sjálfs sins vegna, að gæta
þess, að þeir fái hinn ekta Kína-lífs-
elixír með hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas' í
hendinni og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen Frederikshavn, ennfremur að á
flöskustútnum standi -þ ‘ I grænu
lakki. Fáist elixírinn ekki hjá kaup-
manni yðar eða heimtað sé hærra
verð en 1 kr. 50 a. fyrir hverja flösku
eru menn beðnir um, að skrifa mér
um það á skrifstofu mína Nyvej 16,
Kjöbenhavn.
Waldemar Petersen
Frederikshavn.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. thtol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.