Þjóðólfur - 26.09.1902, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 26.09.1902, Blaðsíða 1
ÞJÓÐÓLFUR. 54. árg. Reykjavík, föstudaginn 26, september 19 02. M 39. Biðjið ætíð u m OTTO M0NSTED S DANSKA SMJÖRLÍKl, sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör. Verksmiðjan er ln'n elzta og stærsta i Daiimiirkn, og býr til óefað liina beztn röru og ódýrustu í samanburði við g-æðin. Fæst hjá kaupmönnum. ^ Takið eptir! ----——oiiBiinnnfnnnn'innnnío———;- ÞJÓÐÓLFUR 1903. Við næsta nýár (1903) hefst 55. árgang- ur Þjóðólfs. Þeir, sem gerast nýir kaup- endur að þeim árgangi fá ókeypis það sem eptir er af þessum yfir- standandi árgangi til ársloka 1902 (13 tölublöð) og þar að auki um leið og þeir borga 55. árgang tvenn sögusöfn blaðsins sérprentuð (11. og 12. hepíi), rúmar 20 0 bls. með ágætum skemmtisögum. Nýir útsölumenn, er útvega 5 nýja kaup- endur og standa skil á andvirðinu, fá enn- fremur auk venjulegra sölulauna i þokkabót: eitt eintak af íslenzkum sagnaþáttum, er annars kosta x kr. 50 a. fyrir kaup- endur Þjóðólfs, ,en 2 kr. fyrir aðra. Sögu- rit þetta er mjög skemmtilegt, og fróðlegt, mjög hentugt til upplesturs á vetrarkveld- um í sveit. Auk annars islenzks sagnafróðleiks, er margir hafa með réttu svo miklar mætur á, kemur innan skamms i blaðinu ný ogítarleg frásögn um hinn nafnkunna xHjaltastaða- fjanda« á 18. öld, miklu réttari og ítar- legri en í Þjóðsögunum. Allir þeir, sem íslenzkum fróðleik unna, eru beðnir að senda blaðinu smásögur eða þætti, helzt um einstaka menn, er að ein- hverju leyti hafa verið einkennilegir (afl- raunasögur og harðfengis, galdrasögur, kýmnissögur, fyrirburði, fjarskyggnisgáfur o. s. frv.) eða þá um einstaka atburði, er gerzt hafa og lifa í munnmælum. Eink- um væri mjög mikilsvert að heyra gamla menn og fróða skýra frá hinu og þessu, er þeir hafa séð eða haft sagnir af, lýsa mönnum, er að einhverju leyti hafa skar- að fram úr o. s. frv. Slíkar mannlýsing- ar geta verið mikilsvirði, og mjög fróð- legar. Nú þegar hafrótið fer að lægja í póli- tlkinni mun Þjóðólfur geta flutt meira af útlendum neðanmálssögum en hingað til. Þótt margir lesendur hirði lítt um þess- konar skemmtun, þykir öðrum hún ómiss- andi, og er rétt að takadálítið tillit til þess. Hroðalegar morðsögur eða heimskulegar kynjasögur, er sum blöð eru ávallt að bera á borð fyrir lesendur sína, mun Þjóðólf- ur þó ekki flytja, þvl að slfkarsögurspilla og umhverfa smekk manna og fegurðartilfinn- ingu, svo að menn hætta að geta greintgull- ið frá soranum: góðar og vel ritaðar sög- ur frá illu og skaðlegu rugli. En þá er illa farið. Þess skal ennfremur getið, að sérstak- lega tekur Þjóðólfur feginshendi við vel- sömdum ritgerðum um allskonar a t - v i n n u m á 1 vor og önnur framfaramál, Það eru einkum mörg atriði í landbúnað- inum, sem takast þurfa til rækilegrar at- hugunar. Og skýrir og greindir bændur ættu ekki að liggja á liði sínu með tillögur í þá átt, heldur láta hispurs- laust álit sitt í ljósi, helzt með nafni. En betra nafnlaust en ekki, enda verða veru- leg smíðalýti löguð, áður en prentað er. Alþýðustétt vor, sem á svo marga ritfæra menn sín á meðal, þarf miklu optar að láta til sín heyra í blöðunum en hún ger- ir. Jsfnframt óskar Þjóðólfur eptir stutt- um og fróðlegum fréttabréfum úr héruðun- um. Það er mjög áríðandi, að blöðin fái sem allrafyrst ljósar og greinilegar fréttir um það sem við ber, og þess er vert, að gert sé að blaðamáli. Fjölbreytt og áreiðanleg geta fréttablöð því að eins verið, að lesendurnir sjái um, að þau geti sem fyrst flutt vissar og greinilegar fréttir víðsvegar af landinu. En því miður eru menn svo tómlátir í því, að skýra blöð- unum skjótt frá því, sem við ber. Og svo neyðast þau til að henda fréttirnar á skotspónum. Þetta, sem hér hefur sagt verið, eru menn beðnir að athuga rækilega. Nýir kaupendur Þjóð- ólfs eru beðnir að gefa sig fram sem fyrst. Að byggja landið. ísland er að kalla má óbyggt enn, þótt full þúsund ár seu liðin frá þvt landnám hófst af Norðmönnum. Landið er að miklu leyti ónumið enn. Vér tölum ekki um ör- æfin og jöklana, þá hluta landsins, sem óbyggilegir eru, heldur um þann hlutann, sem , á að heita byggður og byggilegur er. Sá hluti landsins er að mestu leyti enn óræktaður. Fáum löndum íheiminummun hafa verið minni sómi sýndur en Islandi hefur verið þessar 10 aldir. Ogþegarþess er gætt, hve vanhirt það hefur verið af íbúanna hálfu gegnir mestu furðu, að þjóð vor hef- ur getað bjargazt á þessum óræktaða hólma hér norður í höfum alla þessa stund, og ekki orðið að andlegum og líkamlegum apturkreystingum og vesalingum. Það sýn- ir, að 1 a n d i ð er gott, já meira að segja mjög gott. Allar bölbænir, sem þttldar hafa verið yfir því frá landnámstíð, mann fram af manni, ættlið eptir ættlið, hafa átt rót sína að rekja til þess, að íbúarnir hafa ekki kunnað hagnýta sér gæði þess, svo að segja ekkert gert til að framleiða brauð af jörðunni. Og afleiðingin af þess- um þúsund ára barlóm, þúsund ára mögli gegn landinu, guði og náttúrunni, hefur loks orðið sá, að 10—20,000 menn afþess- ari fámennu þjóð hafa á síðustu 30 árum snúið bakinu við ættjörð sinni og leitað sér bústaðar í annari heimsálfu. Og það er hætt við, að þetta útsog, þessi blóðtaka haldist áfram, ef ekki er undinn bráður bugur að því, að sannfæra þjóðina um það í verkinu, að það eru að minnsta kosti eins góð lífsskilyrði. fyr- ir menn hér á landi, eins og víðasthvar annarstaðar í heiminum, og jafnvel betri, svo framarlega, sem landinu væri sómi sýndur, eitthvað í líkingu við það, sem annarstaðar tíðkast í síðuðum löndum. Það þarf að rækta landið í stór- u m s t í 1, og byrja á þeim blettum, sem bezt eru til þess fallnir. Og það er enginn efi á, að það er Suðurlandsundirlendið, einkum mill- um Þjórsár og Reykjanessfjallgarðs til fjalls upp, eða mestur hluti Arnessýslu. Það er enginn efi á, að það er hjartað úr skák- inni, að því er ræktunarmöguleika snertir. A því svæði gætu ekki að eins lifað all- ir landsbúar, sem nú eru dreifðir út um 1900 ferhyrningsmílur, heldur margfallt fleiri menn. Hve feikimiklanautgriparækt mætti t. d. ekki hafa á öllu því svæði, ef það væri vel ræktað. Og það eru annar- staðar á landinu mjög stórar, samanhang- andi spildur, er gera mætti sömu skil. Menn kunna að segja, að þetta sé hug- sjón ein, en það er hugsjón, sem gæti orðið að virkileika, að minnsta kosti í all- stórum mæli, og ekki á afarlöngum tíma. Það er hugsjón, sem þó ofurlítið er að þoka í áttina til verklegra framkvæmda, þótt það sjáist naumast nema í smásjá, þegar litið er á, hvað ógert er. Vér eig- um hér við jarðabætur þær og búnaðar- framfarir, sem orðið hafa á síðustu árum. Þær eru að vísu ekki umfangsmiklar, en svo litlar sem þær eru, munu þær þó drjúg- um hafa stuðlað að því að efla trú manna á því, að það borgi sig að leggja rækt við jörðina. Það er t. d. lofsverð nýung, er sumir bændur 1 Arnessýslu hafa nú tekið upp, en það er að plægja óræktarmóa i túnunum eða utan við túnin. Þá er vér vorum á ferð þar eystra um daginn var þar búfræð- ingur frá Ólafsdal, Dagur Brynjólfsson (son Brynjólfs dbrm. frá Minna-Núpi), ungur maður og ötull, að plægja þar hjá bænd- um við annan mann, með 2 hesta, er hann átti sjálfur. Hafði hann 1 sumar verið þar í sýslunni við plægingar hjá ýmsum bænd- um og tók mjög væga borgun, ákveðið gjald fyrir hvern ferhyrningsfaðm, til fulls undirbúinn undir sáningu. Var hann um það skeið hjá Eggert alþm. Benediktssyni í Laugardælum og plægði þar dagsláttu, en fór þaðan til nágranna hans, Símonar oddvita Jónssonar á Selfossi, og var byrj- aður að plægja þar upp nokkuð af mjög stórum túnauka, er Símon hefur afgirt, og ætlar að rækta. Verður það mikill við- auki við tún hans, er sú spitda öll er í rækt komin. En af því að menn eru svo óvanir plægingum hér á landi, þurfa fram- takssömustu og efnilegustu bændurnir að ganga á undan, byrja á verkinu. Þá koma hinir á eptir. Nú þegar er t. d. byrjaður allmikill áhugi á jarðabótum með- al bænda í Arnessýslu og traustið á fram- tíð landbúnaðarins í sambandi við jarð- ræktina öruggara en áður hefur verið. Og er það meðal annars að þakka hinu ágæta sumri, er allir lofa, og fágætt er hér á Suðurlandi. Hinir sífelldu óþurkar á sumr- um drepa svo furðanleganiðurkjarkmanna, en sólin og þurkurinn gera lundina létt- ari, lífið glaðara og bjartara. En menn verða að gæta þess, að ræktun landsins hefur mikil áhrif á loptslagið. Að þurka landið við ræktun, rýmir sagganum úr jörð- inni, og við það minnkar einnig sagginn í loptinu, veðuráttan verður betri, þurrari þá er útguíunin úr jörðinni minnkar. Það er lögmál, sem full reynsla er fengin fyrir. I sambandi við aukinn áhuga á jarðabót- um, stendur og stofnun mjólkurbúanna þar eystra, sem er gleðilegur framfaravísir, er væntanlega verður að miklu gagni, Þessi mjólkursamlagsbú eru einhverjir allra skýr- ustu ljósdeplarnir á vonarhimni landbún- aðarins hér á landi, og vísa veginn til enn meiri framfara í þeirri grein. En samhliða þessu, er nú hefur verið talið, má ekki gleyma nýju mikilsháttar fyrirtæki, er stofnsett hefur verið í Arnes- sýslu á þessu ári, fyrirtæki, sem ber ekki að eins vott um dugnað og framtakssemi stofnendanna, heldur um glögga sjón á því, að slíkt fyrirtæki hlyti að geta borið sig, ekki sfður f því héraði en annarstað- ar. Og það eru tóvinnuvélarnar við Reykjafoss. Það eru engir auðvalds-burgeisar, sem ráðizt hafa í þetta þarflega, en kostnaðar- sama fyrirtæki. Það voru 3 ungir, búlaus- ir menn í Ölfusi, sem bundu félag með sér í janúarmánuði síðastl. að koma þessu til framkvæmda. Fyrsti hvatamaður og forgöngumaður þessa félagsskapar mun hafa verið Erlendur Þórðarson í Þorláks- höfn, mjög ötull maður, einbeittur og fram- gjan. En félagar hans voru : Guðni Jóns- son vinnumaður á Hlíðarenda og Guð- mundur Jónsson á Hrauni (sonur Jóns bónda Halldórssonar, er drukknaði með séra Guðmundi Johnsen í Arnarbæli vet- urinn 1873), báðir dugnaðarmenn og kjark- menn, enda ber það vott um óvenjumik- inn áhuga og lofsvert þor hjá þesstim þre- menningum, fremur umkomulitlum ogefna- litlum að vonum að ráðast í jafnkostnað- arsamt og stórfellt fyrirtæki. En þar sem einbeittur áhugi er samfara dugnaði, þreki og hagsýni, þar vinnst mikið, enda sést ljósast, að þeir félagar hafa ekki setið auð- um höndum, þar sem allt efnið er keypt í húsið, flutt frá Eyrarbakka upp að foss- inum, húsið reist, vélarnar pantaðar frá útlöndum, fluttar úr Reykjavík austuryfir Hellisheiði, settar niður og teknar til starfa nú í þ. m., allt á næstl. 8 mánuðum. Það er furðu fljót framkvæmd hér á landi og spáir góðu um framtíð stofnunarinnar. Þeir félagar byrjuðu á því í vetur að leigja Reykjafoss í Varmá, andspænis

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.