Þjóðólfur - 03.10.1902, Page 1
OLFUR.
54. árg.
Reykjavík, föstudaginn 3. október
1902.
M 40.
Takið eptir!
---—Oiiiniiniiminnnnniinnio—--
Þ JÓÐÓLFUR
1903.
Við næsta nýár (1903) hefst 55. árgang-
nr Þjóðólfs. Þeir, sem gerast nýir kaup-
endur að þeim árgangi fá
ókeypis
það sem eptir er afþessum yfir-
standandi árgangi til ársloka
1902 (13 tölublöð) og
þar að auki
um leið og þeir borga 55. árgang
tvenn sögusöfn blaðsins
sérprentuð (11. og 12. hepti),
rúmar 200 bls.
með ágætum skemmtisögum.
Nýir útsölumenn, er útvega 5 nýjakaup-
endur og standa skil á andvirðinu, fá enn-
fremur auk venjulegra sölulaunaíþokkabót:
eitt emtak af íslenzkum sagnaþáttum,
er annars kosta r kr. 50 a. fyrir kaup-
endur Þjóðólfs, en 2 kr. fyrir aðra. Sögu-
rit þetta er mjög skemmtilegt, og fróðlegt,
mjög hentugt til upplesturs á vetrarkveld-
um i sveit.
Nýir kaupendur Þjóð-
ólfs eru beðnir að gefa sig
fram sem fyrst.
Útlendar fréttir.
—o---
Kanpmannaliöfn 20. september.
Búaforingjarnir hafa nú fengið á-
heyrn hjá Chamberlain og hefur verið birt
opinber skýrsla um, hvað þeim fórámilli.
Foringjarnir báru fram óskir sínar ogvoru
þær hvorki fáar ná smáar. Þeir vildu, að
allir enskir þegnar, sem tekið hefðu þátt
i Búaófriðnum, skyldu fá uppgjöf allra
saka og allir náðaðir, sem dæmdir hefðu
verið fyrir tiltektir sínar meðan á stríðinu
stóð, England skyldi árlega greiða fé til
styrktar ekkjum og munaðarleysingjum og
þeim Búum, sem misst hefðu aleigu sína
í ófriðnum. Einnig kröfðust þeir, að enska
og hollenzka skyldu njóta jafnréttar í skól-
um og fyrir rétti, fangar skyldu lausir látn-
ir og allir fá heimfararleyfi, sem fluttir
hefðu verið úr landi brott. Allan skaða,
sem hlotizt hefði af stríðinu, skyldu Eng-
lendingar bæta, setja embættismenn lýð-
veldanna inn í embætti sín eða greiða þeim
skaðabættir o. s. frv. England skyldi taka
á sínar herðar allar þær skuldbindingar,
sem á lýðveldunum hvíldu og að lokum
mæltu þeir móti því, að Búum skyldi
þröngvað til að vinna Englandi trúnaðar-
eiða, Svo sem við mátti búast tók Cham-
berlain heldur dauflega undir þessar mála-
leitanir, kvað hann friðarskilmálana við
Búa svo mannúðlega, að slíks væru ekki
dæmi í veraldarsögunni og það kæmi ekki
til mála, að fara að breyta þeim í neinu.
Búaforingjarnir báru það fyrir sig, að þeir
hefðu afráðið að ganga að friðarskilmál-
unum, eins og þeir.voru, til þess að koma
í veg fyrir mein blóðsúthellingar, en þeir
hefðu hinsvegar reitt sig á fullyrðingar
Milners og Kitcheners um það, að þeim
mundi gefast kostur á að verða aðnjótandi
náðar konungs; þeim hefði því stórlega
brugðizt vonir sínar, er konungur veitti
ekki sakauppgjöf á krýningardegi sínum,
þar sem Kitchener lávarður hefði lofað að
mæla með því. Chamberlain kvaðst ekki
mótfallinn, að heiðarlegir fangar fengju að
snúa heim til Suður-Afríku, en líklegast
er að þar við sítji og Búar verði að láta
sér lynda skihnála þá, sem þeir hafa geng-
ið að.
Það er alltaf sama þófið í Frakklandi
milli stjórnarinnar ogklerkanna út úr skól-
unum. Undirforingi einn, Saint-Remy, neit-
aði að hlýðnast skipun um að taka þátt
í lokun klerkaskólánna í Bretagne. Var
honutn stefnt fyrir herrétt og hann dæmd-
ur í eins(!) dags fangelsi fyrir tilvikið.
Segja frjálslyndu blöðin, að sósíalistar megi
gleðjast yfir dómsúrskurði þesssum, því að
nú þurfi sósíalistar, sem í hernum séu,
ekki framar að hlýða því, þó að þeim sé
skipað á móti verkamönnunum, sem verk-
fall gera. Nokkrir heldri menn kváðu hafa
stofnað félag, sem þeir nefna »Samband
hins heilaga Marteins«, til þess að
vernda nunnurnar og viðhalda trúnni.
Það hefur ennfremur vakið óánægju með-
al hinna æðri stétta, að ráðaneytið Com-
bes hefur kallað heim sendiheirana í Pét-
ursborg og Berlín, sem báðir eru aðals-
menn af háum stigum, án þess að þeir
færu þess sjálfir á leit. en skipað íþeirra
stað menn af borgarastétt. Það er auð-
sætt, að raðaneytið ætlar sér að bæla nið-
ur alla mótspyrnu klerka og aðals, hvern-
ig sem það kann að talcast.
Sjómálaráðherrann franski, Pelletan, hef-
ur reynzt ráðaneytinu allóþarfur með fram-
komu sinni. Það liggur við, að hann ætli
með ræðum sínum að gera út af við þá
vináttu, sem farin er að myndast milli
Frakklands og Italíu. I sfðustu ræðu sinni,
sem hann hélt í flotastöðinni Biserta, hélt
hann því fastlega fram, að nokkur hluti
Miðjarðarhafsins væri Frakka eign; hann
gat þess að vísu, að Frakkland óskaði ekki
ófriðar við England eða Italíu, en það
væri skylda sín að undirbúa hið helga stríð
gegn fjandmönnum Frakklands. Þjóðverj-
ar hafa auðvitað ekki sparað að halda
þessu á lopti og benda ítölum á, að þarna
gætu þeir séð, hvað byggi undir vináttu
Frakka, væri því bezt fyrir þá að leita
trausts í þríveldasambandinu. Utanríkis-
ráðherrann, Delcassé, hefur reynt að bæta
úr þessu glappaskoti Pelletans, svo sem
auðið er, með yfirlýsingum til sendiherra
Itala í París, og það er nú sagt, að sendi-
herrann hafi lýst yfir því við Delcassé, að
stjórn Itala taki ekkert mark á ræðu Pel-
letans, þar sem hún sé ekki í samræmi
við skoðun ráðaneytisins f heild sinni.
Nokkrir fulltrúar úr umdæmunum Kursk,
Poltava, Charkow O. fl. komu fyrir Niku-
lás keisara samkvæmt skipun hans í
höll landshöfðingjans í Kursk. Keisari gat
þess, að bændur hefðu farið með ránum
í vor í umdæmunum Charkow og Poltava
og mundi þeim verða refsað, því að yfir-
völdin mundu ekki lfða slíkar óeirðir.
Hann minnti þá ennfremur á orð þau, er
faðir hans hafði við krýningu sína mælt
til fulltrúa bændanna: »Hlustið á ráð
aðalsmannanna og trúið ekki heimskulegu
fleipri«. Að lokum kvaðst hann ekki mundi
láta þá fara á mis við umhyggju sína, er
þeir þörfnuðust hennar í raun og veru.
Þeir mega svo sem vera óhræddir um
það!
Óeirðirnar halda enn áfram í Vene-
z u e 1 a og C o 1 u m b i a. Orustur hafa
staðið öðruhvoru milli uppreisnarmanna
og stjórnarsinna. Járnbrautir og fréttaþræð-
ir hafa verið eyðilagðir hingað og þang-
að. Bandamenn hafa sett á land hermenn
til þess að vernda járnbrautirnar.
Hinn 11. þ. m. geisaði óveður mikið
yfir England og gerði þar mikið tjón á
uppskeru. Sumstaðar lá á eptir 1 þuml.
þykkt lag af hagli á jörðunni. Einungis
í miðhlutanum í héraðinu Kent var skað-
inn áætlaður um 100,000 pd. sterl. S. d.
féll nálægt bænum Vinay í Frakklandi
mjög stórt hagl. Fuglar drápust og menn
særðust.
Heimkomnir norðurfarar. Pe-
ary og Sverdrup eru báðir nýkomnir
heim úr norðurförum og hafa þeir báðir
verið 4 ár í burtu. Hvorugur þeirrahef-
ur kornizt nær hinu þráða takmarki, norð-
urpólnum, heldur en aðrir áundan þeim,
en menn búast eigi að síður við allmikl-
um vísindalegum árangri af ferðalagi þeirra.
Peary komst ekki lengra en á 84° i7mín.
n.br., en Abrúzzahertoginn, sem lengst
hefur komizt, korost á 86° 33 mín. n.br.
Sverdrup hafðist við f nyrsta hluta Græn-
lands og rannsakaði þar ókunn lönd.
Peary er Ameríkumaður, en Sverdrup
Norðmaður og hafa þeir báðir verið í
norðurförum áður. Sverdrup var skipstjóri
á »Fram« í heimskautsför Nansens, en
Peary hefur stöðugt verið að rannsóknum
á Grænlandi og í íshafinu síðan 1886;
hann komst fyrstur fyrir norðuroddann á
Grænlandi og sýndi þar með, að það er
eyland, en ekki í sambandi við neitt meg-
inland við heimskautið.
Henríetta Belgfudrottning dó
19. þ. m. af slagi og hafði hún lengi ver-
ið sjúk undanfarið. Hún var nákomin
austurrfsku keisaraættinni og var fædd ná-
lægt Vínarborg 1836. Hún hafði allaæfi
mikla mæðu að bera. Hjónaband henn-
ar og Leopolds konungs var ekki farsælt
og ekki átti hún barnaláni að fagna. Stef-
anfa dóttir hennar var gipt Rudolf Aust-
urríkiskrónprinz, sem mestu hneyksli og
umtali olli fyrir nokkrum árum með hin-
um sviplega dauðdaga sínum eða sjálfsmorði,
en Lovísa önnur dóttir hennar skildi við
mann sinn og er nú á geðveikraspítala.
Eiríkur Ungi, sem áðurhefur verið
getið, lét ekki hugfallast, þó að hin fyrsta
loptsigling hans misheppnaðist. 19. þ. m.
steig hann í loptbátinn í Stokkhólmi, en
þessi loptsigling varð þó enn skammvinn-
ari en hin fyrri, því að eptir 8 mínútur
sprakk loptbelgurinn og steyptist niður.
Eiríkur Ungi og félagi hans meiddust þó
ekki, því að fallhlífin opnaðist á leiðinni.
Loptfarið er alveg eyðilagt og því ólík-
legt, að karlinn, sem nú er um sjötugt,
fari að byrja á nýjan leik.
Alþjóðagerðardómurinn í Haag
tók 15. þ. m. til meðferðar fyrsta málið,
sem til hans hefur verið vísað. Það er
gömul fjármálaþræta milli Bandaríkjanna
og Mexíkó.
Kosningarnar til landsþingsins hér
í Danmörku eru nú afstaðnar. Hinir
eiginlegu hægrimenn (fylgifiskar Estrups)
hafa misst 5 þingmannasæti, svo að
þeir eru nú ekki framar í meiri hluta í
landsþinginu. Hinn litli meiri hluti þeirra
þar, var lengi eina stráið, sem þeir héngu á.
Við þessar kosningar störfuðu sósíalistar víð-
ast hvar í sameiningu með vinstrimönnum.
Hægri-frávi llingarnir, » á ttmenningarnir «,
stóðu sig vel, voru allir endurkosnir, þeir
er buðu sig fram, nema einn (Steensen-
Leth), og segja vinstri menn, að það beri
vott um, að pólitík þeirra hafi verið viður-
kennd rétt hjá fjölda hægri manna. Eru
vinstri menn glaðir yfir sigri sínum, þótt
þeir hafi ekki unnið nema 5 sæti frá hin-
um reglulegu Estrupssinnum, segja að nú
hafi verið kveðinn upp dauðadómurinn yf-
ir pólitík hans, og að hún eigi aldrei
framar uppreisnarvon, nú verði landsþing-
ið ekki lengur þrepskjöldur allra fram-
fara, eins og það hafi verið gagnvart fólks-
þinginu. Og blaðið »Politiken« hælir »sós-
laIdemokrötum« fyrir samvinnuna, ogsegir,
að vinstii vilji vera og eigi að vera frjáls-
lyndur flokkur (»radikalt Parti«).
D a g m a r keisaraekkja, G e o r g Grikkja-
konungur ogAlexandra Englandsdrottn-
ing dvelja hér nú sem stendur hjá föður
sínum Kristjáni konungi.
Krúger gamli Transwaalforseti ætlar
að fara að gefa út æfisögu sína. Hún á
að ná fram að friðarsamningnum og á
að koma út í nóvembermánuði samtímis
á ensku, þýzku og hollenzku.
F 1 ó ð mikið varð á I n d 1 a n d i í þess-
um mánuði. Mörg fljót flóðu yfir bakka
sfna. 25 þorp skoluðust á burt og 6,000
manns urðu heimilislausir.
Það lítur út fyrir uppskerubrest víða á
Norðurlöndum í ár. Einkanlega er ástand-
ið mjög ískyggilegt norðan til í Noregi,
vegna óvenjulega mikilla kulda og hefur
verið gerð gangskör að því, að reyna að
koma í veg fyrir hallæri, þar af leiðandi.
ísland.
Eptir K. A. Benediktsson.
I.
Eg hef átt tal við marga menn um Is-
land. Þeir hafa hér um bil undantekn-
ingarlaust niðrað landinu, að einu og öðru
leyti, og flestir staðið á því fastar en fót-
unum, að það ætti enga framtfð fyrir hönd-
um. Þeir hafa haft þá skoðun og jafnvel
sannfæring, að það þyldi engan saman-
burð við önnur lönd. Sumir hafa sagt
mér, að Island hefði þar ekki tærnar þar
sem Ameríka og önnur góð lönd hefðu
hælana. En eg trúi þessu aldrei. Eg hef
sjálfur mikla trú á íslandi og framtíð þess.
Island hefur margt og mikið til síns ágæt-
is, og þó enn þá fleira sem hulið er sjón-
um þessarar kynslóðar. Það er eins langt
frá því að vera fátækasta landið í heim-
inum, eins og sólin er langt frá jörðinni.
Eg marka það á jarðmyndunarsögunni, og
afstöðu Islands frá öðrum auðugum lönd-
um. Landið á mikið af auðæfum, og það
er ekki því að kenna, þó þau séu ekki