Þjóðólfur - 14.11.1902, Síða 2

Þjóðólfur - 14.11.1902, Síða 2
182 inn að leiða ykkur á götu sannleikans. Guðjón Guðmundsson tók 1 sama streng og þeir Sig. Sig. og E. H. Það er ann- ars ekki ógaman, hvernig þessi þrenn- i n g , ráðanautar landbúnaðarfélagsins voru samtaka í því, að reyna að rífa niður áð- urnefnda blaðagrein B. J. — Reyndar var svo að heyra á Guðjóni sem hann væri ekki mótfallinn grasrækt með sáningu, en ræða hans snerist mest um sáðskiptið. En þó enginn þessara þriggja vildi við- urkenna, að það væri neitt nýtt í grein Björns Jenssonar, þá bætti þó einn þeirra E. H. úr þessum skorti á nýjungu með því, að koma fram með kenningu, sem enginn að líkindum vill þrátta við hann um faðernið á, enginn að líkindum hefur löngun til að eigna sér. Það var einkum tvennt, sem hann tók fram á fundinum, sem mig furðar mjög á, að jafnglöggur og gætinn maður og E. Helgason er, skyldi geta fengið af sér að koma með jafn stórkostlegar fjarstæður. íyrri fjar- stæðan er sú, að hvert mannsbarn gæti stýrt plóg — hin síðari, að það væri ó- dýrara að stinga upp með skóflu, en plægja. Hvernig ætli að málararnir í Reykjavfk tækju það upp, ef hr. E. H. segði við þá: »Handverk ykkar þarf engrar kunnáttu við, það getur hvert mannsbarn gertþað«. Þeim yrði held eg á að brosa. Eg er viss um, að við E. H. getum báðir málað, það er að segja, við getum dyfið penslin- um í farfann og strokið og strokið, en hvernig við myndum leysa það af hendi og hve lengi við værum að því er ann- að mál. — Það dettur víst engum skynberandi manni í hug að neita því, að flestum störfum er þannig varið, að það þarf æf- ingu og kunnáttu til þess að geta leyst þau vel og lipurlega af hendi. Það er þessvegna hraparleg fjarstæða, að vilja telja mönnum trú um annað eins og þetta: að hvert mannsbarn geti stýrt plógi í þúfunum okkar, ef hann að eins kann að fara mið hestana, án þess að læra hin réttu handtök til þess, og æfa sig í starf- inu. Hefur reynslan sýnt og mun fram- vegis sýna, að það er svo mikil fjarstæða, að það er naumast svaravert. — Hið síðara var þó öllu lakara. — Dæmi það, sem hr. E. H. las upp á fundinum þessu til sönnunar, sannar ekki nokkurn skapaðan hlut. Þó hann hafi fengið ein- hvern smáblett í myldnum garði stunginn upp fyrir svo og svo lítið verð, sannar það ekki, að ekki hefði verið unnt, að plægja hann fyrir enn þá minna, ef hann á ann- að borð hefði verið svo stór, að plógi yrði komið við. En þegar hr. E. H. ger- ir svo litlar kröfur til kunnáttu plæging- armannsins get eg reyndar skilið, að hon- um gæti ef til vill tekizt að fá svo dýra plægingu, að það yrði dýrara að plægja royldinn garð, en að stinga upp seiga mýri. Mismunur sá á vinnunni við, að stinga upp garð og að brjóta upp óræktað land, sem hr. E. H. nefndi, var líka fjarri sanni, minna en helrnings mismún þýðir ekki að nefna; að minnsta kosti mun almenn- ingi reynast svo, hvað sem verða kann á gróðrarstöðinni. Að vilja reyna, að teJja mönnum trú um, að ódýrara sé að stinga upp en plægja, ætti að sönnu að vera þýðingarlaust, því það er svo fjarri öllum sanni, þegar það á að gilda sem almenn regla. Það er sama og að segja: Verk- færi það, sem verið hefur höfuðjarðyrkju- tól allra siðaðra þjóða um margar aldir, ogerenn, er »ópraktiskt« og ekki hafandi hér. Handöflin eru ódýrari en hestöflin. Þetta er allt saman sannað með því, að t i 1 r a un a stöðin í Reykjavlk hefur feng- ið garðblett stunginn upp með skóflu fyr- ir minna verð, en hún gat fengið hann plægðan fyrir. — Ef byggja ætti reglur til almennra nota á tilraunum eins og þessari, væri sjálfsagt heppilegast að til- raunaskýrslur gróðrarstöðvarinnar kæmu ekki út fyrir girðinguna. [Meira]. J. Jónatansson. Nýja lognið og A. B. A. B. A. B. A. B. A. B. A. B. A. B. A. B. A. norðanfriðurinn. Eptir Örvar-Odd. B. A. Sæll og blessaður kunningi! Fagurt er blessað lognið! Hvaða bull er þetta! Lognið! Finn- ur þú ekki, að það er norðangarri og stórhríð ? Jú, en eg meina pólitíska lognið — nýja lognið. Sérðu það ekki? Hvað er þetta. Er nokkurt logn kom- ið í pólitíkinni? Veiztu það ekki? Hefurðu ekki heyrt nýjasta nýtt ? Nei, segðu mér það, svei mér ef eg veit það. Jú. Það kom logn 1 skjóðu norðan af Akureyri nú með »Hólum«. Það var sent öllum blaðamönnunum hérna 1 Vík, sín skjóðan hverjum, og ein fór að Bessastöðum, og svo aðrar til Seyðis- fjarðar og ísafjarðar. Og það er sagt, að jafnvel »Barnablaðið« hafi fengið einhverja þá myndarlegustu. Voru það börn, sem sendu þetta upp á »grín« ? Nei, síður en svo. Það var t. d. amt- maðurinn, sýslumaðurinn, monsjör Ein- ar og hann Stefán, sem var svo svín- heppinn að brenna ekki á Möðruvöll- um, af því að þar var logn. Og nú er búið að leysa hér frá öllum skjóð- unum og hleypa logninu yfir landið. Sérðu ekki að það er að læðast yftr okkur ? Og hver þremillinn! En hafa þessir vísu menn á Akureyri ráð yfir logn- inu? F.r þaðtil sölu hjá þeim, eða fæst það ókeypis, og er það bara þessi eina »sort«, politiska lognið, sem þeir hafa vald á, en ekki aðrar »sortir« af því? Það veit eg ekkert um. Þeir hafa svo ákaflega margt á »lagar« t. d. ann- að, sem er bráðnauðsynlegt með póli- tiska logninu, og það er »pólitiskur friður«. Það fylgist að, eins og kafifi- rót með kafifibaunum. En heyrðu, kunningi! Friðurinn ! Nú, Akureyrarfriðurinn! Það er eins og mig minni, að eg hafi heyrt hans getið áður. Á, skyldi það! Manstu ekki, að þess- ir menn sendu »friðinn« í poka með pósti út um allt land um hávetur í fyrra. En undir eins og pokarnir voru opnaðir, rauk friðurinn út í storminn og það sást ekkert eptir af honum, ekki tangur né tetur. Þeir vísu menn höfðu nfl. gleymt að senda lognið á undan. Vöruðu sig ekki á því, að það var ekki sama lognið alstaðar á land- inu, eins og í þeirra friðelskandi, logn- sælu hjörtum á Akureyri. En nú hafa þeir ekki ætlað að brenna sig á sama soðinu og sent því lognið á undan, eins og nokkurskonar Messías. Fáum við þá ekki friðinn? Jú, hann kvað eiga að koma með næsta pósti í skrautlegum umbúðum, vafinn innan í margfalt »Norðurland« eins og barn í reifastranga. Og mon- sjör Einar kvað eiga að leggja bless- un sína yfir króann, áður en hann er sendur burtu, því að Einar er prests- ígildi máttu vita. Hann hefur ekki til einskis gengið í skóla hjá jafnguð- hræddum og góðum mönnum sem séra Götuþrándi í Winnipeg og Birni litla frá Dal. En logn- og friðarhöfðingj- arnir senda ekki friðinn, fyr en þeir vita, hvernig logninu reiðir af. Þá er lognblæjan er komin yfir landið, þá er hugmyndin sú, að friðurinn eigi að hvllast á henni, sofandi á silkisvæfli. Og enginn vindblær, enginn storm- þytur skal trufla þá »heilögu ró«. Og hvað á þessi blessaða værð lengi að haldast? Hinir vísu feður og stjórnendur logns- ins og friðarins á Akureyri láta í veðri vaka, að hann eigi að vara svo lengi, sem landið stendur, en aðrir óviðkom- andi, sem eru svo sljófskyggnir að sjá B. A. B. A. B. kunningi, að móka ekki alveg hálf- dottandi í þessu væntanlega logni, núna fram yfir kosningarnar, fyrir það fyrsta. .4. Þú ræður hvað þú gerir. En eg fyrir mitt leyti ætla að reyna að halda mér vakandi. Svefnlyfin frá þeim monsjör Einari þarna að norðan, verka ekki á mig. Eg þekki út í hörgul „lognið“* hans og amtmannsfriðinn líka. Þeir geta gleypt þær „pillur", sem þykja þær gómsætar og girnilegar til fróð- leiks. B. Jæja það er þá líklega réttast að halda sér vakandi — þrátt fyrir lognið. En satt að segja finnst mér loptið orðið eitthvað lognmollulegt hér í Vík. A. Satt er það. Þá er blessunin hún Isa- fold leysti frá lognskjóðunni frá þeim monsjör Einari, þá gat hún naumast tára bundizt fyrir ánægju, og lýsti því hátíðlega yfir, að þetta boðorð, boðorð friðarins og lognstillunnar hefði hún ávallt rækt, sjálf friðardfsin, sem allt- af hefði verið að reyna að búa til • logn, búa til frið. Og svo barði hún sér á brjóst, blessuð ljúfan, og þakkaði drottni sínum fyrir, að hún væri ekki eins og þessirbersyndugu, þessir þver- úðarfullu, sem ekki vildu hlíta góðra manna ráðum. En Faríseahjúpurinn á Isu gömlu var svo gauðrifinn, að sú „götótta flík, gat hana hvergi hulið". B. Nú, jæja, ef eg hrósa mér ekki sjálf- ur, þá er mín dýrð engin, svo hefur Isa gamla hugsað. Og einhverjirkunn- ingjar hennar kunna að trúa þessu. Hinir brosa að þvf, eins og þeir hafa svo opt brosað að sjálfsþekkingtt gömltt konunnar. En heldtirðu að það verði ekki leiðinlegt þetta nýja logn, efþað kemur? A. Það er nú kominn einhver vottur af því. Jafnvel Þjóðviljinn virðist vera orðinn „smittaður" af því. Eg veit ekki, hvernig fariðhefði, efþeirThom- sen og Guðjón hefðu ekki haldið skemmtuninni uppi fyrir okkur bæjar- búum nú til skamms tíma í Fjallkon- unni. Já, það eru karlar, sem kttnna á þvf lagið. Hvorugur alveg skelþunn- ur eða blár að innan. En sú vígfimi á báðar hliðar. Eg gef ekki hnífinn minn á milli þeirra. Svo kvað Hregg- viður: Gáfna- og lærdóms ljósið skært Lýsti af sköfnum guma En Thomsen hafði Iíka lært Og lagt hann hefði suma. En nú er skemmtun sú úti, þvf að húsbóndinn hefur þvertekið fyrir, að þeir mættu „messa meira" hjá „kon- unni". Ognú veit eg ekki, hvað verð- ur til skemmtunar úr þessu, nema ef vera kynnu útilegumannasögurnar hans Jóns míns söðla. Það gleður mig, að allir eru ekki trúlausir á þessum van- trúarinnar tíma. Og Jón harðmátar Bensa gamla, sem varð óvígitr í Helj- arslóðarorustu forðum eptir frækilega fraragöngu. Blæddi honum þar nær til ólífis og hefur ekki orðið samur maður síðan. Eg hef því meiri skemmt- un af Jóni en honum. En hversu sem mér drepleiðist, þá ætla eg samt að halda mér vakandi fram yfir næstu fardaga fyrir það fyrsta, hvað sem út- sölumenn lognsins og friðarins á Ak- ureyri segja um það. B. Það ætla eg að gera lfka kunningi, það mun vera vissast, og vertu nú sæll. ekki langt fram í tímann, þykjast sjá, að hann muni ekki eiga að haldast leng- ur en fram yfir næstu kosningar. Hversvegna þá? Skilurðu það ekki? Þá skal eg segja þér sögu. Fyrir síðustu kosningar áttu Valtýingar að sækja róðurinn á sama lekahripinu, sem þeir hafa set- ið í síðan 1897. * En af því að þeir fengu hvassviðri og andviðri allmikil, þá sóttist róðurinn seint og illa, þótt sumir væru alvanir sjómenn. Fékk fleytan loks svo mikla ágjöf, að hún sökk skammt frá landi, og fórust þar nokkrir hinna fræknustu kappa liðs- ins, þar á meðal sjálfur hershöfð- inginn Valtýr á grárri treyju, Herrauð- ur jarl hvítalogn, Jóhannes Valtýs- fóstri, Axel hinn frækni, Magnús hinn prúði, Ólafur ræðumaður, Garð- ar góði maður og Dóma-Jón, auk margra fleiri. En nokkrir svömluðu til lands. En þá var fylkingin svo þunnskipuð og illa til reika, að öll sigurvon var úti í það sinn. Og þetta var alltað kenna andbymum og storm- inum, sem þeir hrepptu. Sumir, er sárlangaði til að stíga á skip og fara í herferðina með, þorðu ekki, þá er á átti að herða, sáu fyrir svaðilfarirnar og vildu ekki hætta lffi sínu. Þar á meðal var monsjör Einar lognstjóri, stafnbúi foringjans. Hann var kom- inn með annan fótinn upp í bátinn, en gugnaði og minntist þess með kvíðahrolli, að hann var næstum því genginn fyrir ætternisstapa, rokinn á höfuðið ofan fyrir Búlandshöfða fyrir skömmu í samskonar leiðangri gegn Lárusi Snæfellsás. Og beiðEinar hrak- legan ósigur í þeim viðskiptum. Varð hann svo hjartveikur af öllum þeim at- burðum, er í þeirri för gerðust. — en maðurinn óharðger og lítilsigldur — að hann mátti ekki síðan Snæfellsnes ógrátandi augum líta og flutti sig því búferlum frá Birni litla < Djúpadal norður í land, og gerðist þar logn- stjóri hjá Herrauði jarli hvítalogn og Stefáni Möðru. Og síðan hefur hann ekki þorað að koma út nema í logni. Já, þetta kannast eg við. En hvað kemur það nýja friðnum við ? Skilurðu það ekki. Nú ætla þeir sér, þessir Valtýsliðsmenn að „lifa á logn- inu", þeir ætla hreint ogbeint að búa til logn, búa til frið nú fyrir kosning- arnar, svo að stormurinn steypi þeirn ekki aptur á kaf. Þeir vita, að kæn- an, sem þeir eru á er svoddan gargan, að hún þolir engan sjó, og ætli þeir að ná takmarkinu landveg, þá vita þeir, að þeir eru svo fótfúnir sumir hverjir, að þeir komast ekki leiðar sinn- ar nema í logni, og enginn farartálmi sé lagður á leið þeirra. Skilurðu nú? Jú, Nú skil eg. Það er þá ekkert ann- að, en fínt valtýskt kosningaagn, þetta logns og friðar sætabrauð, sem þeir eru að útbluta þarna á Akureyri, eins- konar nýtt Valtýskex, heimabakað á Akureyri. Nú auðvitað. En þú skalt ekki halda, að þeir ætli að taka á sig náðir og fara að sofa. Þeir ætla bara að vita, hvort þeir geta ekki komið þessu sæl- gæti upp í mótstöðumenn sína, svo að þeir hugsi ekki um annað, en að snæða nýja kexið og sleikja lognið og liggi svo á meltunni. En á meðan geta friðarstólparnir fengið tóm til að búa sængur sínar í kyrþey náttúrlega hjá kjósendunum hver f sínu kjördæmi, segja þeim svo í laumi, að nú skuli kjós- endur „passa" sig og láta Valtýsliða njóta þess, að nú hafi þeir útvegað landinu logn og frið og farsæld. Og kjósendurnir verða hugfangnir og stein- gleyma því, að það er Valtýr og hans flokkur, sem vakið hefur ófriðaröldu þá, sem nú hefur að undanföriiu geng- ið yfir landið, þá öldu, sem loks kaf- færði sjálfa frumkvöðla hennar. En nú er lognið, nú er friðurinn orðinn eina lffsvonin fyrir þá. Það er þá lfklega vissara fyrir okkur Landbúnaðarfundur sá, er Búnaðarfélag Islands hélt í Iðnað- armannahúsinu 8. þ. m. var óvenjulega fjölsóttur eptir því sem slfkir fundir eru vanir að vera. Voru þar samankomnir rúmir 60 rnanns. Eins og skýrt er frá á öðrum stað hér í blaðinu var fundarefn- ið að ræða urn búnaðargrein Bjarnar skóla- kennara Jenssonar, þar sem hann stingur upp á gagngerðri breytingu á ræktunar- aðferðinni, vill láta oss fara að dæmi ann- ara þjóða í því að gera allt ræktað land að sáðlandi með plægingu, en hætta við gömlu aðferðina: þúfnasléttunina, tyrfing-

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.