Þjóðólfur - 21.11.1902, Qupperneq 1
T T
54. árg.
Reykjavík, föstudaginn 21. nóvember 1902.
Jú 47.
Biðjið ætíð um
OTTO M0NSTED’8
DANSKA SMJÖRLlKI,
sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör.
Verksmiðjan er hín elztíi oif stærsta í Danmörkn, og’ býr til óefað hina beztn
vörn og ódýrustu í samanbnrði við gæðin.
—Fæst hjá kaupmönnum. ^
Stefnuskrá hinna.
Mér hefur nýlega verið skýrt frá þv(, að
»ísafold« hafi 30. ágúst þ. á. í grein með
ofanritaðri yfirskript brugðið Heimastjórn-
arþingflokknum um, að hafa farið með ó-
sannindi um 2 atriði í ávárpi því, er flokk-
urinn sendi út í þinglok.
Önnur ósannindin eiga að vera þau, að
Heimastjórnarflokkurinn hafi sagt, að á-
varp Valtýinga »eigi að vera sérstök
stefnuskrá P'ramsóknarflokksins«, en hin ó-
sannindin þau, að engum manni úr Heima-
stjórnarflokknum hafi verið gefinn kostur
á að kynna sér ávarp Valtýinga.
Um fyrra atriðið fer »ísafold« rangt
með orð Heimastjórnarmanna. Þeir segja
um ávarp Valtýinga, eins og sjá rná á 35.
tölubl. »Þjóðólfs« þ. á.: »Það liggur næst
að skilja ávarpið svo, sem því sé ætlað
að vera sérstök stefnuskrá þessa flokks«.
Og það verður sannarlega ekki sannara
sagt um þessa langloku, sern rúmur z/3
þingsins tekur saman og birtir á laun við
mikinn meiri hluta þingsins. Það hefði
verið alveg óhætt að segja, eins og »Isa-
fold« segir, að ávarp Valtýinga væri sér-
stök stefnuskrá þeirra, er. Heimastjórnar-
menn vildu ekki tala yfir sig hér, fremur
en annarsstaðar. ■— Usafold ber til baka,
að ávarp Valtýinga hafi átt að vera sér-
stök stefnuskrá þeirra, og ber fyrir sig,
sem ástæðu, að í ávarpi þeirra hafi stað-
ið: »0g munum vér skoða hvern þann
mann, sem að henni (þ. e. stefnuskránni)
hallast, sem flokksbróður vorn, án alls til-
lits til þess, hvar hann kann að hafa stað-
ið ( fylkirigu í hinni stórpólitisku baráttu,
sem áður hefur skipt mönnum í flokka«.
En sú náð, að Heimastjórnarþingflokk-
urinn, tæpir 2/3 hlutar þingsins skuli hafa
átt að fá að elta þetta Mýraljós, sem rúm-
ur z/3 þingsins hafði tekið sig út úr til að
kveikja og sett 2 af gallhörðustu görpun-
um sínum til að skara.
Þetta eru svo augljós óheilindi, að það
geta varla kallazt óheilindi. Tilgangur-
inn með þeim er auðsjáanlega sá einn, að
slá upp í augun á alveg hugsunarlausum
mönnum, fá þá til að trúa því, að það
hafi verið Valtýingar, sem sóttust svo fast
eptir friðnum, mennirnir, sem að fyrra
bragði veltu sér yfir Heimastjórnarflokk-
inn allan með æruleysisskömmum, sögðu
um hann t. d., að hann heíði flutt: »sví-
virðing foreyðslunnar inn í helgan stað«,
sbr. Alþt. 1902, B. bls. 91 efst og margt,
margt fleira þvílíkt.
Um síðara atriðið segir »ísafold«, að á-
varp Valtýinga hafi verið »sýnt í hand-
riti einum helzta manninum í hinum
flokknum, einmitt 1 þvískyni, að hann og
flokksbræður hans, sem flestir létu tilleið-
ast að vera með. Og þetta var gert s v o
löngu á ð u r* en ávarpið var birt, að
nægur tími var til fyrir hina að halda
langa og rækilega ráðstefnu um málið.
Það er margt jfhugavert við þessa klausu,
þótt hún sé ekki löng. Maðurinn, sem
hér er átt við, er Klemens sýslumaður
Jónsson. Klemens sýslumaður var ekki
staddur á þeim fundum, sem ávarpið var
rætt á og undirskrifað, og fór egþvímeð
það til hans, er allir aðrir flokksmenn höfðu
undirskrifað það. Klemens sýslumaður
sagði mér strax, að í ávarpinu væri ein
setning, er hann ekki gæti undirskrifað,
setningin um, að engum manni úr Heima-
stjórnarflokknum heíði verið sýnt ávarp
Valtýinga, sér hefði verið sýnt það rétt
áður, en því hefði verið útbýtt prentuðu.
Eg sagði honum, að enginn vor flokks
manna hefði vitað um það, svo sem sæ-
ist á undirskripturú þeirra og sagði hann
það mundi rétt vera, en sagðist þó hafa
sagt 1 manni úr vorum flokki frá því, að
sér hefði verið sýnt ávarp hinna, en beð-
ið hann að þegja yfir því, s v o s e m á -
kveðið hefði verið við sig.*) Eg
skaut því þá til Kleménsar sýslumanns,
hvort hann gæti ekki undirskrifað það
með athugasemd, og sagðist hann skyldi
hugsa um það til næsta. dags. Nokkru
seinna skrifaði svo Klemens sýslumaður
undir ávarpið »með þeirri athugasemd, að
mér var sýnt ávarp »framsóknarflokksins«
rétt áður*) en því var útbýtt prent-
uðu«.
Þeir, sem þekkja »Isafold«, munu ekki
vera í neinum vafa um, hvor segi sann-
ara, Klemens sýslumaður eða hún.
Sannleikurinn er alltsvosá, að Klemens
sýslumanni einum var sýrit ávarpið, og
það rétt á ð u r en þvl var útbýtt prent-
uðu og hann beðinn að þegja yf-
ir því. Og má á því marka, hvað satt
er í því, að ávarp Valtýinga hafi verið
sýnt Klemens sýslumanni í því skyni, »að
flokksbræður hans sem flestir létu tilleið-
ast að vera með«, enda mun enginn hafa
lagt trúnað á jafnilla tóðraðan yfirdreps-
skap.
Mér duldist að minnsta kosti ekki, að
þetta var ein af ótal tilraunum Isafoldar-
klíkunnar, skjalli, ósönnum söguburði o.
s. frv., til þess að sprengja Heimastjórn-
arþingflokkinn, tilraun, sem Valtýingar því
ver hafa ekki verið allskostar einir um,
en sem hvorki þeim, né ónefndum yfir-
skynsflokksmanni í Kaupmannahöfn og
öðrum í Reykjavtk mun lánast.
Stykkishólmi 29. okt. 1902.
Lárus H. Bjarnason.
Ræktun Iandsins
Eptir Jón Jónatansson.
II.
Um þetta mál hafa opt komið fram
ýmsar þarfar og góðar hugvekjur, en gegn
þeim hefur optast verið beitt gömlu venj-
unni, að þegja þær ( hel. Stjórn Bfl. ísl.
á því þakkir skyldar fyrir það, að hafa
gert tilraun til, að brjóta þessa gömlu venju
með þvl, að halda umræðufund þann, er
getið var um ( byrjun greinar þessarar.
Fundur sá ætti að gera það að verkum,
að mál þetta yrði ýtarlega rætt og rakið
frá ýmsum hliðum.
Eitt hljóta allir að vera samdóma um
og það er, að vér þurfum að auka rækt-
aða landið, (þurfum að fá meira ræktað
graslendi), og svo brýn og knýjandi nauð-
syn heimtar að vér gerum þetta, að það
virðist kominn tími til, að vér reynum að
gera oss ljóst, hvort vér getum ekkert gert
í þessu efni, frekar en vér höfum gert
hingað til, og ef svo virtist, þá á hvern
hátt. Eitt af því sem menn telja (og sjálf-
sagt með réttu) einna mest standa í vegi
fyrir • verulegum almennum framförum í
jarðræktinni hjá oss, er hið núverandi al-
menna fyrirkomulag með byggingu jarða.
— Kjör leiguliða þykja ekki vera þannig,
að vænta megi, að þeir ráðist í að kosta
*) Auðk. af höf.
miklu til endurbóta á ábýlisjörðum sínum.
Hér skal nú samt ekki fjölyrt um þetta
atriði, og vil eg skjóta því til mér færari
manna, að taka það til alvarlegrar (-
hugunar og gefa bendingu til umbóta.
Að líkindum verður það eitt af hlutverk-
um næsta þings, að reyna að kippa þessu
eitthvað í lag. —
Tilgangur minn með þessari grein er
sá, að fara nokkrum orðuni um þá mögu-
legleika, sem mér virðast vera fyrir hendi,
til umbóta á jarðrækt vorri, ef á annað
borð menn vilja og geta lagt stund á jarða-
bætur.
Grein Björns kennara Jenssonar, sem
var tilefni til áðurumgetins fundar, flutti
að eins eitt nýmæli — sáðskiptið — hitt
að plægja jörðina upp og svo sá í hana
grasfræi, þegar hún er orðin hæfilega und-
irbúin til þess, er ekki nýtt, því hefur ver-
ið haldið fram áður af öðrum; það er þetta,
sem eg álít aðalatriðið í nefndri grein, og
það er þetta, sem mér virðist svo nauð-
synlegt að athuga nákværnlega. Það er
spurningin um grasrækt með tyrfingu eða
sáningu, s^m eg álft vera skyldu hvers
þess, sem nokkuð hefur um það hugsað,
að gera sitt til að reyna að svara. Sáð-
skipti og þesskonar, sem minnst var á í
nefndri grein, skoða eg sem aukaatriði,
sem getur eptir atvikum snert aðalefnið
eða verið því óviðkomandi.
Það er eptir ásigkomulagi lands vors, í
alla staði svo eðlilegt og sjálfsagt, aðjarð-
rækt vor verður að vera mestmegnis gras-
rækt, — því nær eingöngu grasrækt, —
að um það geta ekki verið skiptar skoð-
anir. Að þessu hefur líka öll vor viðleitni
stefnt hingað til, og á að gera það fram-
vegis, en hinsvegar liggur það í augum
uppi, að oss miðar seint áfram — allt of
seint, þrátt fyrir það, þótt allur þorri bænda
reyni talsvert, og margir af fremsta megni
að bæta og auka tún sín. Hvað er þá til
fyrirstöðu? Er það fátæktin ein, sem hér
er þröskuldur í vegi? Eg hygg, að marg.
ir mundu svara þessari spurningu játandi,
en eg get ekki verið þeirrar skoðunar, að
fátæktinni einni sé hér um að kenna. —
Það er varla offrekt farið í sakirnar, þó
sagt sé, að hirðuleysi og mikil blind fast-
heldni við gamlar venjur geri hér talsvert
að verkum. Eg skal leyfa mér að benda
á tvennt, sem menn almennt vanrækja
rnjög mikið, en sem þó hefur svo afar-
mikla þýðingu, þegar um það er að ræða,
að auka ræktaða landið, það er hirðing
áburðarins, og íriðun hins ræktaða lands
fyrir beit. Bændur kvarta opt yfir því, að
þeir geti ekki aukið tún sín vegna áburð-
arskorts. Því miður mætti um þessa menn
segja allopt, að þeir hafa sjálfir fleygt burtu
þessu, sem þeir kvarta um að þá vanti.
Það skal að vísu játað, að það hefur tals-
verðan kostnað í för með sér, að byggja
hús yfir áburðinn eða sorpgryfju, og að
fátækt þessvegna allopt hamli mönnum
trá, að ráðast í það, en — þeir eru líka
margir, mýmargir, sem hafa næg efni til
að geta gert þetta, en gera þó ekki. Það
sannast hér sem optast, að „viljinn dregur
hálft hlass“. Þess eru ekki svo fá dæmi,
að fátækur ómagamaður, sem á fullt í
fangi með, að halda sér og skylduliði sínu
frá sveit, hefur lagt miklu meira í kostn-
að til að hirða vel áburðinn sinn, en sum-
ir efnabændurnir.
Það er „líka fyr gilt en valið sé“. Það
er mikill munur, hvort áburðurinn er svo
illa hirtur, og svo ódrýgilega með hann
farið, sem hugsazt getur, eins og því mið-
ur á sér allvíða stað, eða með hann er
farið á allan hátt eins og framast verður
ákosið. Eg get þessvegna ekki efazt um,
að talsvert mætti gera til bóta í þessu efni
án tilfinnanlegs kostnaðar.
Að girða túnin er því miður allt of mik-
ið vanrækt. Það ætti ávallt að vera fyrsta
jarðabótin; hver sem nokkuð vill gera að
jarðabótum, ætti að byrja á að girða. Girð-
ingar eru að vísu dýrar jarðabætur og eins
og nú hagar til með ábúð leiguliða, er það
afsakanlegt, að svo lltil áherzla hefur víða
verið lögð á að girða. Vonandi er, að úr
þessu verði eitthvað bætt, áður en langt
líður, og að þá dragi meir eða minna úr
þeim deyfandi áhrifum, sem þetta hefur
nú á framtakssemi leiguliða til dýrrajarða-
bóta. Utlit er fyrir, að hér eptir verði
kostur á, að fá ódýrri girðingu, þar sem
farið er að flytja hingað frá útlöndum til-
tölulega ódýrt efni til varanlegra girðinga
(gaddavír með rafhleyptum járnstólpum).
— En þrátt fyrir það, þótt vænta mætti,
að eitthvað kipptist í lag smátt og smátt,
að því er þetta tvennt snertir, þá er það
ekki einhlltt, og þá kemur aptur spurning-
in um það, hvort vér getum ekki breytt
eitthvað til með jarðræktaraðferð þá, sem
vér nú höfum, gert einhverjar þær breyt-
ingar, sem hjálpa oss til að hvetja sporið.
í næsta kafla skal nú reynt, að benda
á hinar líklegustu breytingar, sem vér ætt-
um að gera, hvernig þeim breytingum ætti
að vera varið og hvernig þeim myndi
helzt verða komið á.