Þjóðólfur - 09.01.1903, Side 2
6
sem hefur mikla þýðingu. Og þótt sléttan
sé þegar þakin og búið er að losajarðveg-
inn, þá er jörðin víða svo laus og þur, eink-
um á Norðurlandi, að loptið getur í nokk-
ur ár betur verkað á hinn losaða jarðveg
eu ólosaða. Llka er jarðvegurinn sumstað-
ar svo tröllslega þýfður og grýttur, að lítt
mögulegt eða ómögulegter að plægja hann,
nema hann sé áður undirbúinn. En ef hann
er sléttaður með gamla laginu okkar, þá er
hannvel búinn undirp)ægingu,þegarmenn-
ingin er komin svo langt, að hægt er að
rækta jarðveginn á réttan hátt. Enr má
þess geta að taða er Jcraptbetri af sléttum
túnum en þýfðum, ef ræktin er hin sama
og grasteguiidir einnig hinar sömu. Þá
þarf eigi að nefna hinn miklá vinnusparn-
að, er af sléttunum leiðir, enda viðurkenn-
ir Björn það líka.
Eitt er athugavert og getur orðið til að
bíta kjark úr mönnum, og það er það, þeg-
ar Björn talar um, að eigi líði lengra á tnilli
þess, sem jörðin sé plægð en 5 ár, eins og
mjög algengt er erlendis. En hér kemur
margt til greina. Jarðvegur er hér víða
lausari, minna leirborinn og þurrari, en
algengt er í öðrum löndum. Frost er hér
lengur í jörðu og því tíminn árlega styttri
fyrir jörðina að síga saman. Þetta meira
frost þenur einnig jarðveginn meira út eða
losar hann, og gerir hann því móttæki-
legri fyrir áhrif loptsins, þegar hann þiðn-
ar. Sökum þess, hve frostið er lengi 1
jarðveginum hér á landi, gengureinnig öll
rotnun eða efnaskipting mikið lengur fyr-
ir sig, og þar af leiðandi haldast áburðar-
efnin lengur í jarðveginum. En það sem
mestu skiptir er það, að hér er jarðabóta-
vinna vanalega dýra,ri en í nágrannalönd-
unum, en \a.námargfallt ódýrara. Þóttþað
borgi sig því vel þar að vinna þetta dýrá
land sem bezt, þ'á verður, eins og nú stend-
ur, að meta þetta eptir allt öðrum mæli-
kvarða hér á landi“.
Stjórnarvalda-auglýsingar,
Eins og kunnugt er var samþykktí
báðum deildum alþingis næstl. sumar
þingsályktun þess efnis, að sá blað-
útgefandi í Reykjavík, er byði hæst
árgjald til landsjóðs fyrir að flytja
stjórnarvalda-auglýsingar næstu 3 ár,
skyldi fá einkarétt til þess þetta’tíma-
bil. Ástæðan fyrir því, að þessi þings-
ályktun var borin upp, var sú, að
mönnum þótti óviðurkvæmilegt ög ó-
viðkunnanlegt, að nokkru einstöku
blaði væri veittur ókeypis einkaréttur
til að flytja þessar auglýsingar. enda
hefur sú skoðun á síðari árum verið
að ryðja sér til rúms í Danmörku, að
afnema, öll slík einkaleyfi, og hlunn-
indi. Það var gengið út frá þvf vísu,
að blað það, sem notið hefur þessara
hlunninda næstl. 16—17 ár, mundi
að minnsta kosti vilja grelða eitthvert
árgjald til þess að halda þeim. Með
ályktun þingsins var ekkert sérstakt
blað haft fyrir augum, að því er einka-
rétt þennan snerti eptirleiðis, enda var
hún samþykkt í einu hljóði og um-
ræðulítið. Útgefandi þessa blaðs skipti
sér ekkert af þessu málefni, enda lá
í augum uppi, að með þessu fyrir-
komulagi gat einkaréttur þessi aldrei
orðið nein féþúfa fyrir nokkurt blað,
harla lítill slægur í að flytja þær með
einhverju háu árgjaldi, auk þess, sem
slíkt boð hlaut jafnan að vera meira
og minna af handahófi, nema hjá þeim,
er af margra ára reynslu gat tekið
meðaltal af auglýsingagjaldinu um mörg
ár, en það gat ekki annar en sá blað-
útgefandi, er auglýsingarnar hafði flutt.
Hann stóð því langbezt að vígi, til
þess að bjóða nokkurn veginn hæfi-
legt gjald. Aðrir hlutu meira og
minna að renna blint í sjóinn með,
hvað hæfilegt væri eða næst réttu lagi.
Hefði ályktunin hins vegar verið þann-
ig orðuð, að auglýsingagjaldið sjálft
hefði verið boðið niður, og að sá
blaðútgefandi hreppti einkaréttinn,
sem byðist til að taka auglýsingarnar
fyrir lægst gjald, pá hefðu allirblaða-
útgefendur staðið jafnt að vígi. Þá
var að vísu að ganga, að eins spurn-
ing um, hvað menn vildu taka þær
fyrir minhst (t. d. hvern þumlung
dálks). Þá gat ekki verið um neinn
beinan skaða að ræða af tilboðinu,
og þá hefði lækkunin komið t. d. dán-
arbúum o. fl. til nota, en ekki land-
sjóði, og það hefði í rauninni vCrið
miklu eðlilegra. En nú bar þingið
svo mikla umhyggju fyrir landsjóði,
að það vildi láta hann hafa tekjur af
einkarétti þessum, ekki iáta neitt ein-
stakt blað hafa hann öldungis endur-
gjaldslaust, eða sem »dúsu«,eins og að
undanförnu.
Ráðherrann tók þingsályktunina til
greina og ritaði landshöfðingja bréf 3.
nóv. f, á., nú birt í Stjórnartíðindun-
um; leggur hann þar einna mesta á-
herzlu á, að einþaréttur þessi verði ekki
skoðaður sem óuppsegjanlegur frá
stjómarinnar hálfu þetta, þriggja ár^
tímabil, en af því leiðir beinlínis, að
hann verður einnig uppsegjanlegur af
hálfu þess blaðs, sem hann verður
veittur, þótt þrjú ár séu ekki liðin frá
veitingu hans. Það liggur í hlutarins
eðli.
Ymsir ímynduðu sér, að töluverð
keppni mpndi verða Um þennan aug-
lýsingarétt meðal blaða hér í bænum,
sem gátu komið til greina. En af
ástæðum, sem ritstjóra ísafoldar mun
kunnugt um, sendu tvö sambandsblöð
hans ekkert tilboð, og sjálfur sendi
hann sama sem ekki neitt: tilkynningu
um, að hann vildi ekkert borga í
landsjóð fyrir þennan rétt. Hann hef-
ur nfl. ekki kunnað við að fara nú að
borga fyrir það, sem hann hefur haft
gefins, alveg afgjaldslaust í 16 ár, og
var það í sjálfu sér alleðlilegt, að hann
kynni illa við það. Það eru ekki svo
lítil viðbrigði að verða allt í einu að
borga afarháan skatt af því, sem áður
hefur verið hrein tekjugrein, éf til vill
svo' háan, að tekjurnur hrökkvá ekki
fyrir árgjaldinti.
Útgefandf þéssa ‘ bláðs, áem ekki gát
metið rétt þennan einskisvirði, bauð
800 kr. árlegt gjald til, lanflsjóðs fyrir
hann, hefði auðvitað eins getað feng-
ið hann fyrir nokkra aura á ári, úr
því að önnur tilboð lágu ekki fyrir.
Það getur vel verið, að upphæð þessi
sé ofhá, að auglýsingarnar séu ekki
á ári 800 kr. virði beinlínis, en um
það verður ekkert sagt ntcð visSu, fýr
en reynslan hefur sýnt það. Hins
vegar er ekki svo mikið að marka
það, þótt »ísafold« láti nú uppi, að
þær hafi verið síðustu árin 500 kr.
að ja-fnaði. En þótt þær væru tölu-
vert meira t. d. 7-—900 kr. á ári, þá
skiptir það ekki svo miklu. Þjóðólfur
gerir sig ánægðan með að sleppa að
eins skaðlaus, því að hann hefur aldrei
ætlað sér að mylkja stjórnina eða lifa
á hennar náð. Pess vegna hafði hann
tilboðið svo hátt, til þess að hafa al-
gerlega óbundnar hendur og engar
ölmusugjafir þiggja. Hann hefði því
alls ekki viljað þiggja þær gefins, þótt
ísafold hafi þakksamlega lotið að því
næstl. 16 ár, og par af leiðandi orð-
ið að laga sig eptir því, sem atvinnu-
veitendur hennar vildu, þeir atvinnu-
veitendur, sem hafa gefið henni 7—900
kr. beinar tekjur á ári, auk hvalrekans,
sem henni hlotnaðist hér á árunum,
þá er afnám veðskuldabréfa var á
ferðinni og þúsundum króna skipti.
En einmitt sakir þess, að auglýsinga-
rétturinn þannig lagaður, eins og Þjóð-
ólfur fær hann nú, er alls engin hlunn-
indi, þarf meira en meðal vitfirrings-
hátt til að halda því fram, að slíkur
auglýsingaréttUr hafi nokkur minnstu
áhrif á stefnu blaðsins. Það er alveg
tilgangslaust að ætla sér að telja fólki
trú ura slíkt, vegna þess, að það er
svo mikil heimska, að allra stærstu
einfeldningar geta ekki rennt henni
niður. Stjórninni er t. cj. guðvelkomið
að séfeja þessum rétti, upp hvenær sem
henni þóknast án nokkurs fyrirvara
meira að segja, enda óvíst hvor fyrri
verður trl, því að hér er ekki um
neina ölmusugjöf eða bitling að ræða.
Afleiðingin af því, að Þjóðólfur borg-
ar auglýsingarnar hér um bil fullu
verði í landsjóð verður ennfremur sú,
að hann getur gengið miklu ríkar
eptir að þeir, sem birta eiga stjórnar-
valdaauglýsingar, svfkist ekki um að
birta þær í því blaði, sem réttinn hef-
ur>til að flytja þær. Ritstj. ísafoldar
er nfl. að leiðbeina mönnum um, hvern-
ig þeir eigi að fara að því, að láta
Isafold eptir sem áður sitja fyrir viss-
uni auglýsingum, serri hann héfur áður
birt og almennt eru skoðáðar sem op-
inberar auglýsingar, en menn eru víst
ekki syo skyni skroppnir, að geta ekki
varazt þær veiðibrellur mannsins. Jafn-
framt hefur sami virðulegi herra gert
heyrum kunnugt, að hann ætli að
taka upp í »Isafold« ágrip af opinberu
auglýsingunum úr Þjóðólfi, svo að
kaupendur liennar »missi einskis í«,
éins og hann segir. Eri skýldi hanri
ekki hasazt upp á þeirri eptirátu,
karltetrið? Það er að minnsta kosti
hálf »simpil forretning« að lepja aug-
lýsingar upp úr öðru blaði, að eins í
þeim tilgangi, aðþað kunni að geta eitt
hvaðskaðaðkeppinautsinn. En auðvitað
þykist Björn Jónsson ekki »offínn« til
þess. Vér hefðum getað tekið upp
sömu reglu fyrir löngu gagnvart »ísa-
fold« og VOrum stundurri að hugsa
um það, en létum það ógert, af því
að öss fannst einhver ólýkt af því. En
vérði höriUm að góðu ! Hítt mun eng-
an hafa furðað, þótt einn dilkur hans,
sem nú er á báðum »buxunum« yfir
því að verða nú ritstjóri í 2i.(?)sinni,
í þetta sinn hjá stóru hlutafélagi(l!)
þykist ekki ofifínn til að herma þetta
eptir vini sínum. Hann er þó svo
hreinskilinn manntetrið, að játa það
hreint og beint, að hann geri þetta
til þess, að blað það, sem flytja eigi
stjórnarvalda-auglýsingar (o: Þjóðólfur)
»þutfi ekki að fá fleiri kaupendur vegna
þeirra«(!l). Mjög fallega hugsað og
virðulega mælt, eins og vænta mátti
hjá því göfugmenni. Erí það er eptir
að vita, hvort árangurinn hjá þeim
félögum samsvarar viljanum.
Bæjarstjörnar-
kosningarnar.
Fyrri hluti þeirra eða kosning 7 fulltrúa
til næstu 6 ára af hinum almenna gjald-
endaflokki, fór fram að nafninu til 5.
þ. m. Þá voru og kosnir 2 endurskoð-
unarmenn bæjarreikninganna næstu 6 ár.
Kosningu í bæjarstjórnina hlutu :
Halldór Jónsson bankagjaldkeri með 381
atkv. (endurk.). *
Tryggvi Gunnarsson bankastj. með 304
atkv. (endurk.).
Jón Jakobsson bókavörður með 266 atkv.
Ólafur Ólafsson með 220 atkv. (endurk.).
Björn Kristjánsson kaupm. meÖ2i8 atkv.
Kristján Þorgrímsson kaupm. með 199 atkv.
Jón Brynjólfsson skósm. með 197 atkv.
Næst fengu atkvæði: Arinbjörn Svein-
bjarnarson bókbindari (191), Hannes Haf-
liðason skipstjóri (191), Magnús BlÖndal
snikkari (188), Gunnlaugur Pétursson (185),
Pétur Hjaltested úrsmiður (168) og Sigurð-
ur Einarson á Seli (134). Allmargir aðr-
ir fengu nokkur atkvæði 30—40 og það-
an af minna.
Endurskoðunarmenn voru valdir:
Hannes Thorsteinsson cand. jur. með
399 atkv. og
Gunnar Einarson kaupm. með 385 atkv.
Um þá var enginn eða sáralítill ágrein-
ingur, eins og sést af atkvæðatöluhni.
En um bæjarfulltrúana skiptust menn
allmjög í flokka, eins og fyr hefur verið
getið ujn hér í blaðinu. Og þá er litið
er á úrslitin getur engum dulizt, að hin
svonefnda ísafoldarskrá hefur haft miklu
minna atkvæðamagn, en t. d. Framfara-
félagsskráin, enda þótt 3 og 3 af hvorri
skrá hafi náð kosningu og 1 sameiginleg-
ur á báðum skránum (Halldór Jónsson).
Það er og eptirtektarvert, að sá bæjar-
fulltrúi, sem ísafoldarskráin útilokaði al-
gerlega (Tr. Gunnarsson) fékk næst flest
atkvæði, eða nál. 100 atkv. meira, en sá
er efstur varð á blaði á ísafoldarskránni,
auk H. J. og sýnir það, hversu öruggt
fylgi hann hefur í bænum. Auk þess
komst að minnsta kosti einn Isafoldar-
kandídatinn (Ól. Ólafsson) að, einungis
sakir þess, að hann var tekinn á skrá hjá
nokkrum mönnum, er hvorugum flokknum
fylgdu og kustt að mestu leyti þvert ofan
í báða. Hefði hann ekki fengið þann ó-
vænta stuðning, var hann gersamlega fall-
inn. Líkindi eru og til, að kosning þessi
hefði að öðru leyti farið að mun öðru-
vísi en hún fór, ef henni hefði verið hag-
að, eins og venjulegt er. En nú tók kjör-
stjóri upp nýjan sið, er bægði mörgttm
kjósendum frá kosningu, og valdið hefur
mikilli óánægju í bænum. Kjörstjóri las
nfl. upp kjörskrána í belg og biðu, svo
að fáirheyrðu—naumast þeir, sem næstir
stóðu — án þess að fullvissa sig um, hvort
sá og sá kjósandi væri viðstaddur. En á
meðan ruddust kjósendur í þvögu og eþt-
irlitslítið að kjörborðinu og af hentu með-
kjörstjórunum kosningarseðla slna. Þá et:
kjörskrárþulunni var lokið, var beðið
hálfa kl.stund, en svo lýsti kjörstjóri yfir,
að athöfninni væri lokið, réttri t'/t
klukkustund eptiraðhún hófst.
Kom þetta öllum á óvart, því að engttm
datt í hug, að kosning ymanna með 870
kjósendum á kjörskrá mundi standa yfir
að eins rúman klukkutíma, enda þótt kjör-
seðlar væru afhentir, og atkvæðagreiðslT
an færð í kjörbókina eptir á. . Afleiðing-
in af þessu var sú, að fjölda kjósenda
var vísað frá, er þeir komu með kjörseðla
sfna rétt á eptir, að þessari fljótaskriptar-
athöfn var slitið. Það voru að eins 442,
er kornust að til að’afhenda seðla sfna
á þessum rúma 'klukkutíma. Og menn
gizka á, að allt að ioó manns, er ætluðtt
að neyta kosningarvéttar sfns hafi orðið
að hverfa frá. Hver áhrif það hefði get-
að haft á kosningaúrslitin, ef allir þessif
menn hefðu fengið að kjósa, er ekki gott
að segja, en eflaust hefðu þau orðið tölu-
verð. Það er einnig skoðun margra eða
flestra lögfræðinga, að kosningin sé bein-
línis ólögmæt sbr. 8. gr. tilsk. um bæj-
arstjórn í Rvfk 20. apr. 1872. Til þess
að verja kjósendur bæjarins eptirleiðis gegn
slíku einræði af kjörstjóra hálfu, og fáá-
kveðinn úrskurð um lögmæti eða ólög-
mæti svona lagaðra kosninga, munu vera
á leiðinni kærur um þetta til bæjarstjórnar-
innar (gömlu), en úrskurði bæjarstjórnar
má svo áfrýja til landshöfðingja. Ersenni-
legt, að öll þessi kosning verði gerð ót
gild og ný kosning fari fram.
Á morgun eiga hinir gjaldhærii kjós-
endur að velja 2 bæjarfulltrúa. Hefur
áður verið bent á hér í blaðinu, að heppi-
legast væri að velja þá Jón Magnússon
landritara og Jón Þórðarson kaupmann.
Eru kjósendur beðnir að minnast þass,
að kosning þessi fer ekki fram í Iðnað-