Þjóðólfur - 09.01.1903, Blaðsíða 4
8
ritstjóri eru báðir ágætir taflmenn. Töflin
fóru þannig, að
vann móti P. Giersing
— — G. Brodersen
Einar Jónsson
Jón Isleifsson —
Karl Einarsson —
Pétur Bogason —
Þorkell Þorkelsson —
Fischer-Jakobsen —
Mortensen —
— Johansen
— S. Jensen
— Plemone
— Asgeiri Torfasyni
— Edwald Möller
en jafntefli varð á milli Lárusar Fjeldsteds
og A. Nielsen, að eins sökum fljótfærni
Lárusar og hann gat mátað í 3. leik, en
cók ekki eptir því. Skák þelrra var skrifuð
upp, og verður hún síðar birt hér í blaðinu.
Yfirréttarmálafærslumaður Giersing,; sem er
einn af hinum beztu taflmönnum Dana, lauk
hinu mesta lofsorði á félagið, og hve mik-
inn sigur það hefði hlotið, svo ungt félag,
að vinna á svo gömlu og góðu félagi. En
hvernig stendur á því, að einhver bezti tafl-
maðurinn í 5. júní ekki tekur þátt í kapp-
skákunum, það er lyfsali Richter? Eptir
þessum sigri S. í. í K. virðist svo, sem land-
ar vorir geti unnið öll félög, nema — Kö-
benhavns Skakforening, og er það stór heið-
ur fyrir oss íslendinga.
stjórn Taflfélags Reykjavíkur eru Jens
B. Waage cand. phil., Pétur Zóphóníasson
gagnfr. og Helgi Helgason verzlm., en í
stjórn skákfélagsins í Kaupmannahöfn eru
Edwald Möller stud. med., Ólafur Björns-
son stud. mag. og Asgeir Torfason stud.
polyt.
Til 1. febrúar
sauma eg Ódýrara en nokkru sinni
áður.
Notið tækifæriðl
Guðm. Sigurðsson.
skraddarl
Aðalfundur íshúsfélagsins
verður haldinn á „hótel ísland" þriðju-
daginn 20. jan. þ. á. ki. 5 e. h.
Þar verður skýrt frá hag félagsins,
lagðir fram endurskoðaðir reikningar,
valínn 1 maður í stjórn og 2 endur-
skoðunarmenn.
Tryggvi Gunnarsson.
Eg hef tapað staf með silfurhand-
fangi og merktum G. S. laust fyrir
jólin. Sá sem finnur hann geri svo
vel og skili mér honum.
Guðm, Sigurðsson
klæðskeri.
Ágœtlr skautar og nokkuð stór
bókaskápur til sölu fyrir hálfvirði.
Ritstj. vísar á.
Tækifæriskaup.
Nokkur hús og bæir með góðuverðiog
ágætum skilmálum eru til sölu, þará meðal
húsið ,GIEYSIR‘, er stendur beint á móti
ráðhúsi bæjarins. Húsið er byggt af
sænskum viði, virt yfir 7000 kr., með 11
íbúðarherbergjum stórum, auk geymslu-
klefa. A lóð þeirri, er húsinu fylgir, má
byggja 30 álna langt hús. Húsið leigist
mjög vel, yfir 600 kr. árlega, verður til
sölu þennan mánuð til 20. af alveg sér-
stökum ástæðum, og með góðum skilmál-
um. Ritstj. vísar á.
I haust var mér dregið lamb, sem eg
ekki á, með mínu fjármarki: sýlt h. sneitt
fr. vinstra. Réttur eigandi gefi sig fram sem
fyrst.
Borg á Eyrarbakka 24/n—'02.
Stzmundur Guðmundsson.
Aðalfundur Reknetafélagsins
verður haldinn á „hótel ísland" föstu-
dag 16. þ. m. kl. 5 e. h. Þar verð-
ur rætt um hag félagsins, lagður fram
ársreikningur, og kosinn einn maður í
stjórn og 2 endurskoðunarmenn.
Tryggvi Gunnarsson.
wr Takið eptir!
ÞJÓÐÓLFUR 1903.
Nýir kaupendur að þessum 55. árgangi blaðsins fá
ÓKEYPIS
um leið og þeir borga árganginn tvenn sögusöfn blaðs-
ins sérprentuð (1 1. og 12. hepti), rúmar 200 bls. með
ágætum skemmtisögum.
Nýir útsölumenn, er útvega 5 nýja kaupendur og standa skil á andvirð-
inu, fá ennfremur auk venjulegra sölulauna í þokkabót:
eitt eintak af íslenzkum sagnaþáttum,
er annars kosta 1 kr. 50 a. fyrir kaupendur Þjóðólfs, en 2 kr. fyrir aðra.
Sögurit þetta er mjög skemmtilegt, og fróðlegt, mjög hentugt til upplesturs
á vetrarkveldum í sveit.
Blaðið kostar að eins 4 krónur árgangurinn. Gjalddagi um miðjan
júlí. Ýmiskonar íslenzkur sagnafróðleikur mun birtast í blaðinu við og við.
Allir þeir, sem íslenzkum fróðleik unna, eru beðnir að senda blaðinu
smásögur eða þætti, helzt um einstaka menn, er að einhverju leyti hafa verið
einkennilegir (aflraunasögur og harðfengis, galdrasögur, kýmnissögur, fyrirburði,
fjarskyggnisgáfur o. s. írv.) eða þá um einstaka atburði, er gerst hafa og lifa
í munnmælum. Einkum væri mjög mikilsvert að heyra gamla menn og fróða
skýra frá hinu og þessu, er þeir hafa séð eða haft sagnir af, lýsa mönnum,
er að einhverju leyti hafa skarað fram úr o. s. frv. Slíkar mannlýsingar geta
verið mikilsvirði, og mjög fróðlegar.
Menn eru beðnir að gæta þess, að nú hefst í blaðinu mjög skemmtileg
neðanmálssaga eptir hinn fræga rússneska rithöfund Stepniak. Menn
ættu að lesa hana með athygli.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og
opnu bréfi 4. jan. 1861, er hér með
skorað á þá, sem telja til skuldar í
dánarbúi Guðmundar Jónssonar frá
Ottarsstöðum í Garðahreppi, er andað-
ist 5- júní f. á., að lýsa kröfum sín-
um, og færa sönnur á þær fyrir und-
irrituðum skiptaráðanda, áður en liðn-
ir eru 6 mánuðir frá síðustu (3.) birt-
ingu auglýsingar þessarar.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu
7. jan. 1903.
Páll Einarsson.
Heimsins vönduðustu og1 ódýrnstn
Orgel og Piano
fást fyrir milligöngu undirritaðs frá:
Mason & Wamlin Co, Vocalion Organ
Co, W. W. Kimball Co, Cable Co, Beet-
hoven Piano & Organ Co. og Messrs. Corn-
ish & Co.
Orgel úr hnottré með 5 áttundum, tvö-
földu hljóði (122 fjöðrum). o. s. f. kostar í
umbúðum á „Transit" í Kaupmannahöfn
150 krónnr. Enn vandaðra orgel úr hnot-
tré með 5 áttundum. þreföldu hljóði (177
fjöðrum. þar af 28 Contrabassafjaðrir) o. s.
f. kostar í umbúðum í K.höfn 250 krónur.
Þetta sama orgel kostar hjá Petersen &
Steenstrup í umbúðum 847 krónur og 50
aura. Önnur enn þá fullkomnari orgel
tiltölulega jafn ódýr.
Orgelin eru í minni ábyrgð frá Ameríku
til Kaupmannaliafnar, og verða að borgast
í peningum fyrirfram, að undanteknu flutn-
ingsgjaldi frá Kaupm.höfn hingað til lands.
Verðlistar með myndum, ásamt nákvæm-
um upplýsingum, sendast þeim sem óska.
Einka-umboðsmaður á Islandi.
Þorsteinn Arnljótssou.
Sauðanesi.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt kröfu skuldheimtumanns
og með samþykki eiganda, verða IO
hundruð og 90 álnir úr jörðunni Hliði
á Alptanesi, ásamt öllum húsum, seld
við þrjú opinber uppboð, er haldin
verða kl. 12 á hádegi mánudagana 9.
og 23. febr. og 9. marz þ. á., tvö hin
fyrstu uppboðin á skrifstofu sýslunnar
í Hafnarfirði, en hið þriðja á eigninni
sjálfri, sem selja á.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu
7. jan. 1903.
Páll Einarsson.
Af því eg er einn af þeim fyrstu hér á
landi, sem hafa reynt „Patent strokkinn“
Ameríkanska, sem hr. S. B. Jónsson í Reykja-
vík hefur flutt hér til lands og gefið mönn-
um kost á að nota, þá finn eg mér skylt að
skýra stuttlega frá reyslu minni á honum,
og er hún þannig:
Strokkur þessi er svo léttur I drætti (að
strokka) að hvert stálpað barn, sem hefur
vit og stöðuglyndi til að hreyfa hann, er öld-
ungis óþreytt, þegar strokkuninni er lokið í
hvert sinn — honum er snúið með vogstang-
arsveiflu — og er það eitt svo mikils verður
kostur, að fullnægir til að taka hann frarn
yfir alla aðra strokka, sem eg hef átt kost á
að reyna. Við 2 samanburðartilraunir, sem
eg hef gert með hann og gamla bullustrokk-
inn okkar, með 12 ® af skilvindurjóma í
hvert sinn, sama hita á rjómanum á báðum
(15—16 st. á C.), þá fengust 18 kvint af
smjöri, meira úr „Patent“ strokknum en
úr bullustrokknum. Eg ræð því öllum til að
fá sér Patent strokkinn, því með honum er
sparað mikið erfiði við að strokka, og smjör-
ið aukið til muna, jafnframt, til roóts við að
nota bullustrokkinn. Auk þess er hann mik-
ið snoturt og eigulegt, og að því séð verður,
mjög varanlegt áhald.
Ef margir kaupa hann, sem ætti að verða,
þykir mér sennilegt að hann yrði enn ódýr-
ari en hann er nú.
Hr. S. B. Jónsson hafi þökk fyrir að flytja
hann hér til lands.
Meðalfelli í Kjós, í desember 1902.
Eggert Finnsson
, (bóndi).
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. íheol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.
,Pelican‘
LINDARPENNAR eru þeir lang-
beztu vegna þess, að þeir leka
ekki og slitna ekki, því
penninn er úr gulli með „irridium" í
oddinum.
Fást i bökaverzlun Sigf. Eymunds-
sonar.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og
opnu bréfi 4. jan. 1861, er hér með
skorað á alla þá, sem telja til skuld-
ar í dánarbúi Jóns Jónssonar frá Eystri-
Saltvík í Kjalarneshreppi, er andaðist
24. marz f. á., að lýsa kröfuri* sínum
og færa sönnur á þær fyrir undirrituð-
um skiptaráðanda, áður en liðnir eru
6 mánuðir frá síðustu (3.) birtingu þess-
arar innköllunar.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu
7. jan. 1903.
Páll Einarsson.
Aðalfundur
þilskipaábyrgðarfélagsins
Við Eaxaflóa
verður haldinn á „hótel ísland" þriðju-
daginn 3. febr. þ. á. kl. 5 e. h.
Reikningar verða framlagðir, kosinn
einn maður í stjórn og 2 endursk.menn.
Ennfremur rædd lagabreyiing á 18.
gr. um ábyrgð skipa í vetrarlægi.
TRYGGVI GUNNARSSON.
VÁTRYGGINGARFÉLAGIÐ
,SUN‘
í Lundúnum (stofnað 1710) tekur að
sér með sanngjörnum kjörum ábyrgð
á húsum, allskonar áhöldum og inn-
anstokksmunum, fénaði, er inni brenn-
ur og skipum, sem í höfn eru eða á
land eru sett.
Adalninbodsmadur á íslandi
Dr. Jón Þorkelsson yngri
í Reykjavík.
Uppboðsauglýsing.
Á þremur opiiiberum uppboðum, er
haldin verða kl. 12 á hádegi þriðju-
dagana 10. og 24. febr. og 10. marz
þ. á., verða 10,5 hundruð n. m. úr
jörðunni ÓttaPSStÖðum í Garðahreppi,
tilheyrandi dánar- og þrotabúi Guð-
mundar Jónssonar þar, ásamt öllum
húsum, seld hæstbjóðanda. Tvö hin
fyrstu uppboðin fara fram á skrifstofu
sýslunnar í Hafnarfirði, en hið síðasta
á eigninni, sem selja á.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu
7. jan. 1903.
Páll Einarsson.
langbeztu endurritsvélar, taka mörg
þúsund „kopíur",
fást í bókverzlun
Sigf. Eymundssonar.
Þessar báðar vélar eru hverjum
manni ómissandi, sem mikið þarf að
skrifa.
Typewriter
HAMMOND’S heimsfrægu ritvélar
°g
Trypograph
9