Þjóðólfur


Þjóðólfur - 30.01.1903, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 30.01.1903, Qupperneq 2
i8 ur ríkiskanslarinu, Biilow, var potturinn og pannan í þessum gerræðisfullu tiltekt- um meiri hl. til þess að knýja frv. fram með oddi og eggju, áður kosningar fara fram af nýju, en ólíklegt er, að það verði til að fjölga fylgismönnum stjórnar- innar við kosningamar. Vtlhjdlmur keisari hefur enn þá einu- sinni fengið tækifæri til að halda ræðu, sem símrituð hefur verið út um allan heim. Krupp var vinur keisara og brá keisari því við, þegar er fregnin barst um lát hans, og fór til Essen til að fylgja honum til grafar. Aður en hann sneri aptur heimleiðis, hélt hann ræðu fyrir verka- mönnum Krupps. Fór hann þar mörg- um fögrum orðum um Krupp og mann- kosti hans. Síðan sneri hann sér að árás- unum, sem gerðar voru á hann af sósía- listablaðinu „Vorwárts" og kallaði hann þær beinlínis morð. „Það hefur verið drýgt níðingsverk í Þýzkalandi", sagði hann, „svo svívirðilegt og lubbalegt, að það hlýtur að hleypa blygðunarroða í kinnar sérhvers föðurlandsvinar yfir þeirri smán, sem þýzku þjóðinni er gerð“. Margt fleira sagði hann á þessa leið og jafn- framt notaði hann tækifærið til að þruma yfir sósíalistum yfirleitt. Þýzku blöðin töldu ræðu þessa frumhlaup af keisara og hefði átt að koma í veg fyrir, að hún hefði verið opinberlega birt. Ræðan er talin uppsláttur fyrir „Vorwarts“. Skömmu síð- ar hélt hann aðra tölu gegn sósíalistum í Breslau, en ekki eins æsta. — Ekkja Krupps hefur nú lýst því, að mál það, sem Krupp hóf gegn „Vorwárts" út af á- sökunum þess, yrði látið niður falla. Hef- ur hún gert það til þess, að hneyksli þetta gleymist sem fyrst. I erfðaskrá sinni á- nafnaði Krupp hverjum verkmanna sinna iooo mörk. Friðarverðlannum Nóbels, sem norska stórþingið úthlutar, var skipt í tvennt, eins og f fyrra, í þetta skipti milli Elic Duc- ommun ritara við alþjóðafriðarskrifstofuna í Bern og dr. Albert Gobat ritara í hinu alþjóðlega friðarfélagi þingmanna. Þeir eru báðir svissneskir, Ducommun sjötug- ur, en Gobat sextugur að aldri. Allsherj- arfriðarfélag þingmanna, sem Gobat hefur um nokkur ár veitt forstöðu, miðar að því, að fá það viðurkennt, að deilur ríkja á milli skuli útkljá á friðsamlegan hátt með gerðardómi. 70 ára nfmæli Bjðrnsons. Það var mikið um dýrðir í Kristjaníu á afmælis- dag Björnstjerne Björnssons 8. f. m. All- ar opinberar byggingar voru fánum skreytt- ar og allir kepptust um, að sýna þjóð- skáldinu ást sína og virðingu. Fyrri hluta dagsins streymdu til hans gjafirnar og heillaóskirnar úr öllum áttum; hann fékk um 700 hraðskeyti um daginn hvaðanæfa utan úr heimi. Aðalhátfðahaldið fórfram í leikhúsinu. Þar var leikið: „OverÆvne" og að því búnu söng leikkonan frú Dyb- wad hátíðaljóð til Björnsons. Því næst kom söngflokkur stúdenta fram á leik- sviðið og söng kvæði til Björnsons. Björnson gekk þá upp á leiksviðið og einn af stúdentum hélt ræðu fyrir minni hans og að því búnu sungu allir áhorfend- urnir: „Ja vi elsker dette landet". Allt húsið kvað við af fagnaðarlátum fólksins. Síðan komu stúdentar í fylkingu með blys og staonæmdust fyrir utan leikhúsið, þar sém aragrúi af fólki hafði safnazt úti fyr- ir. Björnson kom fram á svalirnar, tók við kveðju stúdenta og hélt dálitla tölu. Langt fram á nótt var veitingahúsið, sem hann dvaldi í, umkringt af fjölda manna, sem æptu fagnaðaróp og sungu þjóðsöng- inn: »Ja vi elsker". Daginn eptir var Björnson haldið hátíðlegt gildi og rigndi þar ræðunum yfir hann. Rússland. Skömmu eptir að Chamber- lain lagði í för sína til Suður-Afríku, tókst utanríkisráðherrann rússneski, Lamsdorff, á hendur ferð til Vínarborgar. Er gizkað á, að tilgangurinn með ferð hans hafi ver- ið sá, að ráðgast um, hvernig Austurrlki og Rússland skyldu haga sér, ef ófriður kæmi upp á Balkanskaganum, því að þar hefur allt verið í báli og brandi undan- farandi, einkanlega í Makedóníu. I leið- inni kom hann til Belgrad og heimsótti Alexander Serbíukonung og Draga drottn- ingu. Mælt var, að hann hefði átt að flytja flóttamönnum frá Makedóníu 10,000 rúblur að gjöf frá Nikulási keisara, en ekki ísun það þó eiga að skiljast svo, sem Rúss- land ætli að styðja uppreisnina í Make- dóníu, því að Austurríki og Rússlandi er báðum um að gera, að jafnvægið raskist ekki á Balkanskaganum, og mun því Lamsdorff hafa verið ætlað að reyna að friða þá með góðu. Dálftill ágreiningur hefur komið upp milli Englands óg Rússlands út af því, að Rússland hefur látið herskip með verzlun- arfána sigla í gegn um Dardanellasund undir því yfirskyni, að þau væru verzlun- arskip. Eptir Krímstríðið skuldbatt Rúss- land sig til að hafa engan flota í Svarta- hafinu, en eptir fransk-þýzka stríðið 1870, tókst því að fá viðurkennt, að það mætti hafa flota þar, en engin herskip nema tyrknesk, máttu sigla úr því eða inn í það gegn um Dardanellasund. Nú hefur Rúss- land brotið bann þetta, en England hefur þá aptur á móti krafizt þess af tyrknesku stjórninni, að fá sömu réttindi fyrir sfn herskip, ef á þyrfti að halda, en með því að Rússum er ekkert um það gefið, að aðrar þjóðir hafi opinn aðgang fyrir her- skip að Svartahafinu, hyggja merin, að úr þessu geti orðið alvarleg misklíð milli Englands og Rússlands. Englendingar eru gramir yfir því, að Þýzkaland, sem Eng- land hefur verið í bandalagi við í Vene- zúelamálinu, hefur lýst því yfir, að það skipti sér ekkert af þessu máli. Það hef- ur komið til tals á Englandi, að réttast væri að vísa máli þessu til gerðardórrs- ins í Haag, en ef Englendingar skyldu komast að þeirri niðurstöðu, þá er ólík- legt, að sjálfur frumkvöðull friðardóm stólsins í Haag, Rússakeisari, mundi skor- ast undan þvf. Frakkland. 20. des. var Frederic Hum- bert og fjölskylda hans handtekin í Mad- ríd. Það varð uppvíst í fyrra, að hann og kona hans, Therese, hefðu gert sig sek í stórkostlegum fjársvikum og var rann- sökn hafin gegn þeim, en þeim tókst að sleppa úr höndum lögreglunnar i maí- mánuði og vissi enginn, hvað af þeim var orðið. Therese Humbert hefur látið drýg- indalega yfir því, að hún gæti ljóstrað ýmsu ófögru upp um marga meiri háttar menn á Frakklandi. Sumir búast því við, að mál þéttaverði annað Panamahneyksli, en ekkert verður þó sagt um það með vissu ennþá. Spánn. Sagasta fyrverandi ráðaneytis- forseti er dauður, 75 ára að aldri. Hann var upphaflega verkfræðingur, en tók snemma að fást við stjómmál og hefur optsinnis verið ráðherra og ráðaneytisfor- seti; hann var einna mestur atkvæðamað- ur frjálslynda flokksins. Skömmu áður en hann dó, varð hann að víkja úr ráðherra- sessi fyrir Silvela, er myndaði nýttíhalds- ráðaneyti. Grikkland. Þar er nýtt ráðaneyti kom- ið að völdum undir forustu Delyannis. Þegar þingið kom saman rétt fyrir jólin, sló í svarra milli þingmanna Delyannis og mótstöðuflokksins, sem Theotokis er foringi fyrir. Þeir, sem lyklavöldin höfðu í þingsalnum, voru af flokki Theotokis og neituðu að hleypa hinum inn. Ráðaneyt- ið lét þá opna salinn með valdi, en þáer þingmenn voru seztir og farið var að lesa bæn þá, [sem tíðkast við þingsetningu, tóku áhangendur Theotokis fram í og urðu nú regluleg áflog í þingsalnum. Blekbytta, sem þingmaður einn kastaði, lenti í vígslu- vatninu og þótti það óhæfileg saurgun. Jólahret. Milli fyrsta og annars í jól- um gekk ofsarok yfir alla Danmörk og suður til Svíþjóðar, og olli miklu tjóni. í Kaupmannahöfn hrundu reykháfar og fleiri skemmdir urðu á húsum, stór tré féllu um koll og stöðvuðu sumstaðar alla umferð. En úti um landið var óveðrið miklu verra. Telst svo til, að hrunið hafi úti um alla Danmörk um 350 hús og 80 -90 mylnur. Mannskaðar urðu nokkrir, einkum á sjó, og fjöldi manna meiddist. f Tilboð Marconi’s. 540,000 kr, fyrir loptskeyta- samband til fslands. Loptritun Marconi’s er allmjög á dagskrá í útlendum blöðum nú, eins og eðlilegt er, þá er tekizt hefur að senda skiljanlegar hraðfregnir þvert yfir Atlants- haf. Eptir því sem séð verður af dönsk- um blöðum miðar samningum mill- um Marconi’s og dönsku stjórnarinnar um loptskeytasamband við ísland lítið áfram. I »Kristeligt Dagblad« 31. des. er þess getið, að auk hinna tveggja höfuðstöðva sitt hvoru megin Atlantshafsins, í Poldhu í Cornwall og Kap Breton í Kanada, hafi menn hugsað sér að setja hina næstu á Kap Farvel (syðsta odda Grænlands), svo aðra í Reykjavík og hina þriðju á Færeyjum. Frá Kap Breton til Poldhu — en milli þeirra stöðva hafa loptskeyti verið send — eru 5217 kílometrar, frá Kap Breton til Kap Farvel að eins 1887, fráKapFarvel til Reykjavlkur 1287, þaðan til Færeyja 777' °g frá Færeyjum er auðvelt að senda skeyti til Skotlands. Ekki getur blaðið þess, hvaðan það hafi þessar upplýsingar um, að svona lagað samband sé í ráði millum Islands og útlanda, en staðhæfir það þó fullum fetum. En áreiðanlegra mun samt, það er segir í »Nationaltidende« 10. þ. m. úr samtali við Meyer forstöðu- mann dönsku fréttaþráðarskrifstofunnar í Kaupm.höfn; þá er fréttasmali blaðsins spyr hann um, hvort ekki hafi verið talað um að setja á stofn loptritunarstöð á Græn- landi, þá neitar hann því, að það hafikom- ið til orða, enn sem komið sé, en getur þess þó, að það gæti komið til mála, ef áður væri komið á sambandi til Islands og Fær- eyja með þolanlegum kjörum. En eptir því sem Meyer farast orð, eru lítil líkindi, að það fáist. Hann segir svo um það atriði (Nationaltid. 10. jan.): »Það hefur verið leitað samninga við Marconi um að koma á loptskeytasambandi milli Islands og Færeyja og þaðan til Hjaltlands, og þeim samningum er ekki enn slitið, en mér er óhætt að segja, að nú sem stendur miðar þeim hvorki aptur á bak né áfram. — Marconi heimtaði 10,000 £ (180,000 kr.) til að koma á sambandi millum Færeyja og Hjaltlands, en 30,000 £ (540,000 kr.) fyrir sambandslínuna Is- land, — Færeyjar — Hjaltland. Það er öldungis óhæfilegt verð, sem alls ekki get- ur' komið til greina að gengið verði að, það er beinlínis ódýrara að leggja sæþráð. Þó má þess auðvitað geta, að viðhalds- kostnaðurinn við »hinn þráðlausa« er sama sem ekki neitt í samanburði við viðhalds- kostnaðinn á sæþræðinum, en hvað um það —«. Samkvæmt þessu er svo að sjá, sem naumast muni saman draga millum Mar- coni og dönsku stjórnarinnar, og að vér megum bíða enn nokkra hríð eptir hrað- skeytasambandi við umheiminn. En mjög langt getur þess naumast orðið að bíða. — Hvorki þessi Meyer, ernúvar getið, né Suenson, forstjóri hins mikla norræna frétta- þráðarfélags, virðast vera hlynntir Marconi né hrifnir af uppfundningu hans, hafa ým- islegt út á hana að setja, spá þvf, að hún muni ekki fá mikla »praktiska« þýðingu o. s. frv., eptirþví sem »Nationaltidende« skýra frá. En þetta er allskiljanlegt frá eigin hagsinuna sjónarmiði manna, sem meira og minna eruriðnir við hið núver- andi fréttaþráðarfyrirkomulag. Sextán ára mýling Isafoldar með stjómarvaldaauglýsingum hefur haft þau óheppilegu áhrif á heila hennar, að hún er alltaf að japla á þvf í vöku og svefni, að múllinn hljóti að ganga í erfðir frá henni til blaðs þess (Þjóðólfs) er flytja á auglýsingar þessar næstu 3 ár frá 1. apríl. En skynseminni er nú ekki betur tyllt í hana en það, að hún heldur að það sé alveg sama að þiggja þessar auglýsingar sem gjöf, sem »dúsu« frá stjórn- inni í samfleytt 16 ár, eins og hún hefur gert, og þess að borga þær f u 11 u v e r ð i í landsjóð næstu 3 ár. Hverjum manni með meðal-gripsviti, ætti að vera það nokk- urnveginn ljóst, að sá sem þiggur einkarétt 7—900 kr. virði að gjöf frá landstjórn- inni á ári hverju verður skuldbundinn og háður henni, með öðrum orðum »mýldur« til að missa ekki »dúsuna«, en sá sem kaupir einkarétt þennan fullu verði eða fyrir 800 kr. á ári hverju er landsstjórn- inni að öllu óháður, vegna þess, að það eru lítil eða alls engin hlunnindi fyr- ir hann að halda þessum rétti, svo að hon- um stendur alveg á sama, þótt hann missi hann, af því að það verður enginn tekju- hnekkir fyrir hann, þvert á móti, en 800 kr. hrefnar tekjur mundi hann fremur vilja halda í, eins og »IsafoId«. En vonskan út af því að fá þetta ekki lengur gefins kvelur hana nótt og dag, svo að hún tal- ar óráð upp úr svefninum um sextán ára stjórnar ölmusu, mýlingu og munnkörfur. Halda menn, að þetta óráð renni ekki af henni, fyr en Valtýr er seztur f ráðherra- sæti og leggur við hana splunkurnýjan múl. En heimskan í henni, hún rennur auðvit- að aldrei af henni meðan hún tórir. Svartur og Loðinn. Lodinn (gengur snúðugt og hnakkakertur inn á skrifstofu Svarts): Hér sé guð! Svartur'. Góðan daginn! Flvað er nú f fréttum félagi!? Lodinn: Hver fjandinn ætli sé í fréttum á Nesinu! Fréttirnar erti allar hjá ykkur í höfuðstaðnum. Svartur: Mér heyrist vera útsynningur í þér í dag. Kastaðu nú óveðra- haminum, kollega, og sestu nið- ur. Við skulum rabba dálítið saman um landsins gagn og nauðsynjar. Lodittn (ólundarlega): Landsins gagn og nauðsynjar! Þegar fjandinn er að fara í allt saman og spilla margra ára starfi. Svartur: Vertu stiltur félagi. Hverju sæt- ir þetta bölsýni? Við höfum enga ástæðu til að örvænta um okkar hag. Loðinn: Ekki það? Þegar fjandinn er farinn í Rangæinginn og Vest- ur-Isafjarðarsýslu hangir á einum þræði. Svartur: Eg var einmitt að hugsa um þessar horfur og steypa kúlur þeirra vegna. En það þarf að halda laglega á þeim. Loðinn (háðslega) : Hm, Hm! (sýgur upp í nefið). Þér er tiltrúandi! Viltu ekki leysa frá skjóðunni, og láta mig heyra. Svartur (spekingslega): Við verðum að reka af oss friðarmollu Akureyr- arpostulanna, og segja mönnum almennilega til syndanria. Loðinn: Hí, hí! Eg skil fyr en skellur í tönnunum. Þú meinar að sverta menn og gruna þá um græzku? Er ekki svo? Svartur: Þeim er nóg, er skilur. Þú ert annars fyrir löngu búinn að slíta friðnum. Loðinn: Utburð þann ætlaði eg mér aldr- ei að karra. En hvar hyggstu að ríða á garðínn? Svartur: Eg ætla mér að gera Rangæ- ingnum húðstroku og blakaeitt- hvað við ísfirzka skáldinu og „dánumanninum" þínum. Loðinn: Mæltu það manna heilastur! Svartur: Ekki brestur mig viljann og verkefni er nóg fyrir hendi. Loðinn (reigingslega): Það skiptir mestu, hvernig á er haldið. Svartur: Víst er það! En fyrst er að

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.